Morgunblaðið - 17.03.1992, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
27
Arftaki Ia-
cocca frá GM
BANDARÍSKI bifreiðafram-
leiðandinn Chrysler tilkynnti í
gær að Ro-
bert Eaton,
sem verið
hefur yfir-
maður Evr-
ópudeildar
General Mot-
ors, muni
taka við
stöðu for-
stjóra i fyrir-
tækinu af
Lee Iacocca. Iacocca, sem er
67 ára gamall, lætur af störfum
í desember og tilkynningar um
eftirmann hans hafði verið beð-
ið með eftirvæntingu. Iacocca
varð frægur er honum tókst
að bjarga Chrysler frá gjald-
þroti í bytjun níunda áratugar-
ins en Chrysler á nú aftur í
miklum erfiðleikum og er talið
standa verst af stóru banda-
rísku bifreiðaframleiðendunum
þremur.
Brown veitist
að Clinton
FORKOSNINGAR fyrir banda-
rísku forsetakosningamar
verða haldnar í ríkjunum Mich-
igan og Illinois í dag. Jerry
Brown, fyrrum ríkisstjóri í Kali-
forníu, réðst í gær harkalega á
Bill Clinton, ríkisstjóra í Ark-
ansas, sem talinn er sigur-
stranglegastur þeirra demó-
krata sem beijast um tilnefn-
ingu fiokksins sem forsetaefni.
Sakaði Brown Clinton um að
hafa sem ríkisstjóri látið fjár-
muni Arkansas-ríkis renna til
lögfræðistofu þeirrar sem eig-
inkona hans starfar hjá. Clinton
vísaði þessum ásökunum á bug
og sagði þær ósmekklegar.
Umrædd lögfræðistofa hefði
verið starfrækt í meira en heila
öld og meðal viðskiptavina
væri ríkið.
Kennedy boð-
ar hjónaband
EDWARD Kennedy, öldungar-
deildarþingmaður, gaf um
helgina út tilkynningu þar sem
segir að hann hafí í hyggju að
kvænast Viktoríu Reggie, 38
ára gömlum lögfræðingi frá
Washington, síðar á þessu ári.
Kennedy sagði þau hafa verið
í sambandi síðan í júní á síð-
asta ári og hefði Viktoría veitt
honum ómælda hamingju.
Edward Kennedy er sextugur
og bróðir Johns F. Kennedy,
fyrrum Bandaríkjaforseta, og
Roberts Kennedy, fyrrum
dómsmálaráðherra, en þeir
voru báðir myrtir á sjöunda
áratugnum.
Neyðarástand
í Dnéstr
LEIÐTOGAR héraðsins Dnéstr
í Moldavíu lýstu yfir neyðar-
ástandi í gær og hótuðu að
reka burt andófsmenn og tak-
marka útvarpssendingar.
Hveijum þeim sem leggur yfir-
völdum Moldovu lið verður í
skjóli neyðarástandsins vísað
burt frá Dnéstr, að sögn frétta-
stofunnar Itar-Tass. Utvarps-
sendingar verða takmarkaðar
og skyndileit aukin á fólki og
í farartækjum. Moldova hefur
neitað að viðurkenna þetta
sjálfskipaða lýðveldi á austur-
bakka Dnéstr-árinnar við land-
amæri Úkraínu. Rússneski
minnihlutinn í Dnéstr lýsti yfir
sjáifstæði héraðsins í septem-
ber árið 1990 og myndaði vopn-
aðar sveitir til að fylgja sjálf-
stæðisyfirlýsingunni eftir.
Ellefu farast og sex bjargast
í þyrluslysi í Norðursjónum
Rannsókn hafin á flugritunum
Aberdeen, Edinborg. Reuter. Daily Telegraph.
FLAK þyrlu sem forst 1 Norð-
ursjó á laugardagskvöld fannst
í gærmorgun á 150 metra dýpi
60 mílur norðaustur af Hjalt-
landi. Sex menn lifðu slysið af
og var bjargað en með þyrlunni
fórust 11 manns.
Þegar brak þyrlunnar fannst á
sjávarbotni kom í ljós að lík fimm
þeirra sem fórust var þar að finna.
Náðust þau upp í gærmorgun og
síðar náðist flak þyrlunnar upp á
yfirborðið. Hefja átti rannsókn á
flugritum þyrlunnar í gær en búist
var við því að þeir hefðu að geyma
upplýsingar sem leiða myndu or-
sakir slyssins í ljós.
Þyrluslysið varð er feija átti
starfsmenn frá borpalli Shell á
svonefndu Cormorant-vinnslu-
svæði í Norðursjónum yfir í íbúð-
arpall. Aðeins 200 metrar eru þar
á milli. Veður var slæmt á þessum
slóðum, hvassviðri og snjókoma,
en talsmaður Bristow-þyrlufélags-
ins sem átti þyrluna sagði þó að
þyrlan, sem var af gerðinni Super
Puma, gæti flogið við mun erfið-
ari veðurskilyrði en voru á slys-
stað.
Aðstæður til björgunar voru
afar erfiðar sökum hvassviðris og
sjávargangs en ölduhæð var 10
metrar. Fimm menn komust í
björgunarbát þyrlunnar en brot-
sjór hreif einn þeirra frá borði.
Var mönnunum bjargað um borð
í þyrlu en einum var bjargað mátt-
litlum úr ísköldum sjónum tæpri
hálfri annarri stundu eftir slysið.
Lík sex fundust á floti við slysstað-
inn. Meðal þeirra sex sem björguð-
ust voru flugstjóri þyrlunnar. Hún
var smíðuð 1982 og hafði verið
flogið í 12.000 stundir, þar af 300
frá síðustu stórskoðun.
Mannskæðasta þyrluslys Bret-
lands varð í nóvember 1986 en
45 menn biðu þá bana er Boeing
Vertol 234 þyrla steyptist í hafið
er hún átti skammt eftir til lend-
ingar á Hjaltlandi.
-- ♦ ♦ ♦----
Leiðtoga-
fundur um
Karabak
Jerevan. Reuter.
LEIÐTOGAR Armeníu og Az-
erbajdzhans munu hittast í Kíev,
höfuðborg Úkraínu, á fimmtudag
til .þess að reyna að leysa deilu
landanna um héraðið Nagorno-
Karabak, að því er Levon Ter-
Petrosjan, forseti Armeníu, sagði
í gær.
Ter-Petrosjan sagði á fundi með
fréttamönnum, að hann og Jagub
Mamedov, sem nú gegnir forseta-
embættinu í Azerbajdzhan, hefðu
samþykkt að ræðast við um málið.
Mamedov tók við af Ajaz Mutalibov,
sem hrakinn var úr embætti fyrir
tíu dögum.
I gær hófust átök að nýju í Nag-
orno-Karabak, aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að íranskir
stjórnmálamenn höfðu lýst yfir, að
þeir hefðu talið leiðtoga Annena og
Azera á að skrifa undir friðarsam-
komulag. Þá sökuðu Azerar Armena
um að hafa hafið árásir að nýju í
grennd við bæina Sjelli, Jelegarala
og Abdal-Gulapli.
Viðræðumar á fimmtudag munu
hefjast skömmu áður en þar byijar
fundur forseta allra 11 aðildarland-
anna í Samveldi sjálfstæðra ríkja.
Reuter
Rússar og Kínverjar undirrita
landamærasamning
Andrej Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands (t.v.), og starfsbróðir
hans í Kína, Qian Qichen (t.h.), undirrituðu samning um óbreytt landa-
mæri ríkjanna í Peking í gær. Kínveijar höfðu haft af því miklar
áhyggjur að hrun Sovétríkjanna í fyrra kynni að leiða til þess að
Rússar krefðust landsvæða í Kína.