Morgunblaðið - 17.03.1992, Síða 33
MQEGUNBLADIÐ ÞKIDJUDAGUR 17. MARZ 1992
33
Frumvarp til laga um breytingu á Seðlabankalögum:
„Seðlabankinn ákveður að fengnu
samþykki ríkistjórnarinnar hvern-
ig verðgildi íslensku krónunnar
gagnvart erlendum gjaldmiðlum
skuli ákveðið. Heimilt er að ákveða
að gengi krónunnar skuli skil-
greint gagnvart einum erlendum
gjaldmiðli, meðaltali erlendra
gjaldmiðla eða samsettum gjaldm-
iðli, svo sem evrópsku mynteining-
unni (ECU) og sérstökum dráttar-
réttindum Alþjóða gjaldeyrissjóðs-
ins (SDR).“ Einnig er kveðið um
það að heimilt sé að ákveða sér-
stakt hámarks- og lágmarksgengi
íslensku krónunnar gagnvart
þeirri erlendu gengisviðmiðun sem
valin hefur verið.
Fyrirvarar
Við umræður í gær gerðu full-
trúar stjórnarandstöðu í efnahags-
Jón
Sigurðsson
Tengingu fylgja margir kostir segir viðskiptaráðherra
Frumvarp um breytingu á lögum um Seðlabanka íslands var
til annarrar umræðu í gær. Ekki er ágreiningur um samþykkt
frumvarpsins en hins vegar er verulegur ágreiningur um hvaða
ástæður eru fyrir því að samþykkja frumvarpið. Frumvarpið
gerir ráð fyrir því að gengi hinnar íslensku krónu ráðist í aukn-
um mæli af framboði og eftirspurn og er það óumdeilt. En
stjórnarandstæðingar óttast tengingu við evrópsku mynteining-
una, ECU. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra segir ríkistjórnina
stefna að slíkri tengingu þegar aðstæður verða réttar.
Frumvarpið var lagt fram
síðastliðið haust og miðar að því
að laga seðlabankalögin að ákvæð-
um í lögum um fjárfestingu er-
lendra aðila. En einnig er það flutt
til þess að unnt verði að breyta
núverandi fyrirkomulagi á gengis-
skráningu krónunnar til þess að
gengi hennar ráðist í auknum
mæli af framboði og eftirspurn á
gjaldeyrismarkaði. Samhliða
þessu frumvarpi og sem fylgifrum-
varp var einnig lagt fram frum-
varp um skipan gjaldeyris- og við-
skiptamála sem miðar af því að
aflétta sölu- og skilaskyldu á er-
lendum gjaldeyri enn frekar svo
unnt sé á þróa gjaldeyrismarkað
hér á landi.
Samstaða í nefnd
Að aflokinni fyrstu umræðu var
þessum tveimur frumvörpum vísað
til efnahags- og viðskiptanefndar.
Síðastliðinn fimmtudag mælti
Matthías Bjarnason (S- Vf) for-
maður efnahags- og viðskipta-
nefndar fyrir áliti og breytingartil-
lögum nefndarinnar. Nefndin náði
samstöðu um afgreiðslu þessara
frumvarpa. Fulltrúar stjómarand-
stöðu höfðu þó fyrirvara á sínu
samþykki. Nefndin flutti breyting- \
artillögu um ákvæði þess efnis að
í lögum um Seðlabanka íslands
skuli kveðið á um að gjaldeyri-
svarasjóður skuli varðveittur eftir
því sem unnt væri í tryggum og
auðseljanlegum verðbréfum eða
innlánum og gjaldeyri sem nota
má til greiðslu hvar sem er. En
einnig var í 2. tölulið breytingartil-
lögunnar lagt til að orðalagi í 2.
gr. frumvarpsins breyttist að
hluta. Samkvæmt tillögu efna-
hags- og viðskiptanefndar mun
m.a. verða skráð í 18. gr. laga um
Seðlabanka íslands svohljóðandi:
og viðskiptanefnd, Jóhannes Geir
Sigurgeirsson (F-Ne), Stein-
grímur J. Sigfússon (Ab-Ne) og
Kristín Astgeirsdóttir (Sk-Rv),
grein fyrir fyrirvömm stjórn-
arandstöðu. Þessir fyrii’varar lúta
í fyrsta lagi að efasemdum um að
Seðlabanki íslands sé nægjanlega
í stakk búinn fjárhagslega og
stjórnunarlega til að takast á við
nýjar aðstæður og aukið hlutverk.
Hins vegar gerðu stjórnarand-
stæðingar mjög sterka fyrirvara
um að með samþykkt þessa frum-
varps væri á engan hátt verið að
gefa jáyrði við hugsanlegri teng-
ingu við hina evrópsku myr.tein-
ingu, ECU. Þeir hvöttu til mikillar
varfærni í því máli öllu.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra tók undir að efla þyrfti
Seðlabankann og benti ráðherra á
að á vegum viðskiptaráðuneytisins
starfaði nefnd sem ynni að heildar-
endurskoðun Seðlabankalaganna.
Hann vonaðist eftir að geta lagt
fram fmmvarp þar að lútandi í
vor eða haust. Ráðherra ítrekaði
einnig það sem hann hefur fyrr
sagt að frumvarpið miðaði að þvi
að undirbúa jarðveginn fyrir nauð-
synlegar breytingar í gengis-,
gjaldeyris- og peningamálum, til
þess að unnt yrði, ef menn svo
ákvæðu, að tengja gengi krónunn-
ar „t.d. við ECU. Eins og stefna
þessarar ríkisstjórnar stendur til.“
Stjórnarandstæðingar lögðu
áherslu á að í þeirra stuðingi fæl-
ist stuðningur við aðlögun og ný-
sköpun í fijálsræðisátt á gjaldeyr-
ismarkaði en ekki við tengingu við
ECU. — En það kom einnig fram
í umræðum að í sjálfu sér er ekk-
ert í gildandi lögum sem hindrar
tengingu íslensku krónuna við
ECU. — Stjórnarandstæðingar
óttuðust að tenging við ECU gæti
hindrað eða aukið áhættu í við-
skiptum við önnur viðskiptasvæði
heldur en Evrópu. Viðskiptaráð-
herra var krafinn raka um hvers
vegna honum þætti það vænlegt
að tengja hina íslensku krónu við
þennan samsetta evrópska
gjaldmiðil.
Rök mæla með
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra taldi ýmis rök mæla með
tengingu við ECU ög telfdi m.a.
fram: Með slíkri yfírlýsingu væri
gefín sterkari yfírlýsing um stöð-
ugra gengi en hingað til hefði
verið gefín. Tenging við ECU
drægi úr gengisáhættu í viðskipt-
um við Evrópulöndin sem væru
nú okkar mikilvægasta viðskipta-
svæði. ECU- tenging væri líka
viljayfírlýsing íslendinga um nán-
ara samstarf við Evrópuþjóðir á
sviði viðskipta- og efnahagsmála.
Ennfremur myndi tenging hinnar
íslensku krónu gera hana gjald-
gengari i erlendum viðskiptum
heldur en nú væri. Ráðherra þótti
fyrrgreint vera fullkomin rök fyrir
því að þessi kostur væri vandlega
kannaður og að því stefnt að skapa
forsendur slíkrar ákvörðunar, þótt
ríkisstjórnin teldi ECU-tengingu
ekki tímabæra nú.
Hinn sam-
eiginlegi
gjaldmiðili
Evrópu-
þjóða, mynt-
in ECU, var
slegin í silf-
ur árið 1987
í Belgíu.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(F-Ne) lét ekki sannfærast af rök-
um viðskiptaráðherra. Hann boð-
aði breytingartillögu við þetta
frumvarp til að taka af öll tví-
mæli um að með samþykkt þessa
frumvarps væri ekki verið að
leggja blessun yfír ECU-tengingu.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
þakkaði efnahags- og viðskipta-
nefnd fyrir breytingartillögur sem
hefðu bætt frumvarpið og þakkaði
þingmönnum þann stuðning sem
þeir sýndu málinu, óháð þeim fyr-
irvörum sem þeir gerðu. Hann
hvatti menn til að horfa ekki svo
mjög til þess hvaðan gott kæmi
og samþykkja þetta frumvarp sem
væri til framfara.
Ekki tókst að ljúkja annarri
umræðu um frumvarpið vegna
þingflokksfunda og Jóhannes Geir
Sigurgeirsson (F-Ne) átti eftir að
mæla fyrir breytingartillögu sinni
og annarra fulltrúa stjórnarand-
stöðunnar í efnahags- og við-
skiptanefnd við breytingartillögu
þá sem öll nefndin stendur að.
Stjórnarandstaðan vill nú að orðin:
„Svo sem evrópsku mynteining-
unni (ECU) og sérstökum dráttar-
réttindum Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins (SDR) í 2. tölulið" falli á brott.
Deilt um tengingu
krónunnar við ECU
Fyrirspurnir:
Spurst fyrir um auglýsinga- og
kynningarkostnað ráðuneyta
AUGLÝSINGAÁHUGI sameinar þingmennina Árna Mathiesen
(S-Rn) og Guðrúnu Helgadóttur (Ab-Rv). Árni hefur lagt fram
alls tólf fyrirspurnir um auglýsinga- og kynningarkostnað ráðu-
neytanna og Guðrún fimm.
Fyrirspurnir Árna Mathiesens
ná til allra ráðuneyta að Hagstof-
unni frátaldri: Menntamálaráðu-
neytis, utanríkisráðuneytis, við-
skiptaráðuneytis, forsætisráðu-
neytis, dóms- og kirkjumálaráðu-
neytis, landbúnaðarráðuneytis,
samgönguráðuneytis, sjávarút-
vegsráðuneytis, heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytis, félagsmála-
ráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og
umhverfisráðuneytis.
Fyrirspurnir Árna Mathiesen
eru svohljóðandi: „1. Hver var
auglýsinga- og kynningarkostnað-
ur ráðuneytisins á árinu 1990 ann-
ars vegar og fyrstu fjóra mánuði
ársins 1991 hins vegar? 2. Hvaða
aðilar fengu-greiðslur vegna þessa
kostnaðarliðar? 3. Hversu háar
voru greiðslurnar og hvenær voru
þær greiddar? 4. Fyrir hvað var
greitt? 5. Voru einhveijar reglur
í gildi í ráðuneytinu varðandi þessi
atriði?“
Þingmaðurinn óskar eftir skrif-
legum svörum. Forsætisráðuneyt-
ið hefur sent svar og þar kemur
m.a. fram að á árinu 1990 nam
auglýsingakostnaður ráðuneytis-
ins 69.982 kr og fyrstu fjóra mán-
uði síðasta árs 25.661. Aðallega
var auglýst í Lögbirtingarblaðinu.
Áhugi Guðrúnar Helgadóttir
(Ab-Rv) er nokkru sértækari.
Þingmaðurinn spyr um auglýsing-
akostnað þeirra ráðuneyta sem eru
undir tilsjón Alþýðuflokksmanna:
Viðskiptaráðuneytis, iðnaðar-
ráðuneytis, heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytis, félagsmála-
ráðuneytis og utanríkisráðuneytis.
Fyrirspurnir Guðrúnar Helgadótt-
ur eru svohljóðandi: „1. Hversu
háa upphæð greiddi ráðuneytið
fyrir auglýsingar í Alþýðublaðinu
frá. 1. maí 1991 til 1. mars 1992?
2. Hvað var auglýst?“
Þingmaðurinn óskar eftir skrif-
legum svörum. Utanríkisráðuneyt-
ið hefur skilað inn svari. Ráðu-
neytið auglýsti fyrir 442.880 krón-
ur í Alþýðublaðinu. Auglýstir voru
kynningarfundir með utanríkis-
ráðherra um EES og GATT. Einu
sinni var auglýst laus staða til
umsóknar.
Stuttar þmg’fréttir
Varamenn
Tveir varamenn tóku sæti
í fyrsta sinn á Alþingi í gær.
Það er Auður Sveinsdóttir
landslagsarkitelct sem skipar
nú sæti Guðrúnar Helgdóttur
(Ab-Rv) sem verður að fara
til útlanda í opinberum
erindagjörðum. Ragnar Arn-
alds (Ab-Nv) hefur einnig
orðið að fara í utanför á veg-
um hins opinbera. í stað
Ragnars hefur Anna Kristín
Guðmundsdóttir verið kölluð
til þings.
Atkvæði greidd með
rafbúnaði
Atkvæði voru greidd með
hinum tölvuvædda rafbúnaði
í gær. Greidd voru atkvæði
um þijú mál, veitingu ríkis-
borgararéttar, beitumál og
jarðgöng milli Fáskrúðsfjarð-
ar og Reyðarfjarðar. Salome
Þorkelsdóttir forseti Alþingis
bað þingmenn um að leið-
beina nýkomnum þingmönn-
um um notkun rafbúnaðar-
ins. Ekki tókst alveg jafnvel
til og þingforseti hafði vonast
eftir. Hrafnkatli A. Jónssyni
(S-Al) varamanni Egils
Jónssonar varð það á að ýta
ekki á hnapp við eina at-
kvæðagreiðsluna. Svavar
Gestsson (Ab-Rv) gagnrýndi
það að enn hefði orðið mis-
brestur á atkvæðagreiðslum
með hinu „þjóðkunna at-
kvæðagreiðslukerfi".
Hrafkell harmaði mistök
sín en þótti nokkuð til um
hversu sumir þingmenn væru
þrautseigir í baráttu við
framfarir og tækni. Þing-
maðurinn jafnaði þessu við
mótmæli sunnlenskra bænda
gegn símanum árið 1905.
Olafur Þ. Þórðarsson (F-Vf)
taldi nauðsynlegt að bera
sakir af íslenskum bændum.
Olafur benti á að menn hefðu
mótmælt samingum um sæ-
streng í eigu hins Mikla nor-
ræna símafélags en viljað
þráðlaust samband með loft-
skeytum. Nú annaðist
Skyggnir slíkt.