Morgunblaðið - 17.03.1992, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
Minning:
Vilhjálmur Guð-
mundsson frá Gerði
Fæddur 21. ágúst 1900
Dáinn 10. mars 1992
Andlátsfregn Vilhjálms Guð-
mundssonar frá Gerði kom engum
á óvart. Hann hafði lifað langa ævi
og mátt reyna margt á lífsleiðinni.
Lengi hafði hann verið rúmliggjandi
á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á
Höfn og beðið þess sem koma
skyldi. Hann kvartaði ekki yfir hlut-
skipti sínu og tók því af sama æðru-
íeysi og hafði einkennt allt hans líf.
Vilhjálmur fæddist á Skálafelli í
Suðursveit 21. ágúst aldamótaárið.
Það var bjart yfir landinu þetta
sumar. Svo virðist sem þá hafi þjóð-
in fundið á sér að það væri að birta
til í sögu hennar. Hátíðarhöld voru
um allt land og í stað tómlætis
öðlaðist þjóðin smátt og smátt
sjálfsöryggi og fékk trú á framtíð
sína og var þess fullviss að hún
væri fær um að glíma við þau
mörgu mál sem til úrlausnar voru.
Þessi hugsun kemur glöggt fram í
aldamótaljóðum Einars Benedikts-
sonar:
Öld! Kom sem bragur með lyftandi iag
og ieiddu oss upp á þann sólbjarta dag.
Láttu oss tómlæti í tilfinning snúa,
í trú, sem er fær það, sem andinn ei nær.
Því gullið sjálft veslast og visnar í augum
þess vonlausa, trúlausa, dauða úr taugum.
Það var í þessu andrúmslofti sem
Vilhjálmur kom í þennan heim.
Andi þessa ljóðs einkenndi líf hans
og störf. Foreldrar hans voru
Sigríður Aradóttir frá Reynivöllum
í Suðursveit og Guðmundur Sig-
urðsson frá Borg á Mýrum. Vil-
hjálmur var næstyngstur af 13
systkinum. Hann var í foreldrahús-
um til 13 ára aldurs, en þá fór hann
í vist að Selbakka á Mýrum til Jó-
hönnu systur sinnar þar sem hann
var í 10 ár. Vilhjálmur gleypti fljótt
í sig anda aldamótakynslóðarinnar.
Þrátt fyrir kröpp kjör ákvað hann
að leita sér mennta og búa sig sem
best undir lífið. Hann fór norður í
Eyjafjörð og var hjá séra Gunnari
Benediktssyni í Saurbæ um nokk-
urt skeið. Hann hreifst eins og
margir aðrir af skólamanninum Jón-
asi Jónssyni frá Hriflu, sem hafði
barist manna harðast fyrir því að
efla alþýðumenntun í landinu. Hann
fór í Samvinnuskólann haustið 1924
og útskrifaðist þaðan vorið 1926.
Að loknu námi ákvað Vilhjálmur að
fara til vinnu í allt öðrum landshluta
og var hjá Kaupfélaginu á Þórshöfn
um tveggja ára skeið. Þar líkaði
honum vel að vera en æskustöðvam-
ar toguðu í hann þótt aðstæður
væm þar um margt erfíðar.
Þótt hann hefði mikinn áhuga á
að afla sér nýrrar reynslu þá er
áreiðanlegt að Guðný átti hug hans
og hann ákvað því að snúa heim,
en þau giftust sumarið 1928. Fyrstu
tvö árin bjuggu þau í Flatey en síð-
an lá leið þeirra að Haukafelli á
Mýrum. Nú er í Haukafelli unaðs-
reitur Skógræktarfélags Austur-
Skaftfellinga þar sem skógi hefur
verið plantað í stórkostlegri nátt-
úru, en í þá daga var aðkoman með
öðrum hætti. Ræktað land var það
lítið sem ekkert og var heyskapur
afar erfiður. Ekki bætti úr skák
stöðugur ágangur vatna og eftir
nokkurra ára búskap fluttu þau
aftur í Flatey um nokkurt skeið.
Á þessum ámm tók Vilhjálmur
þátt í félagsmálum á Mýmm og þau
fylgdu honum ávallt síðan. Hann var
þar bamakennari um skeið og sat
í hreppsnefnd frá 1930-1938. Hann
var mikill áhugamaður um skólamál
og þótti því sjálfsagður sem formað-
ur skólanefndar þann tíma sem hann
sat í hreppsnefnd. Hann var jafn-
framt mikill áhugamaður um mál-
efni Kaupfélags Austur-Skaftfell-
inga og einlægur samvinnumaður.
Árið 1931 var hann kjörinn endur-
skoðandi Kaupfélagsins og vann við
það um áratuga skeið. Þvf starfí
sinnti hann af mikilli tnímennsku
og samviskusemi, eins og einkenndi
öll önnur störf hans.
Á árinu 1938 urðu mikil þátta-
skil í lífí þeirra hjóna. Þá keyptu
þau jörðina Gerði í Suðursveit og
fluttust þangað með fjölskyldunni
þá um vorið. I Gerði iifðu þau Guðný
og Vilhjálmur áreiðanlega bestu ár
ævi sinnar. Þar undu þau vel og
byggðu þar upþ af miklum dugn-
aði. Þar var hann virkur í félagsmál-
um og sinnti mörgum trúnaðar-
störfum fyrir sveit sína og sýslu.
Ég átti því láni að fagna að dvelja
í nokkur sumur hjá þeim hjónum.
Þótt íbúðarhúsið væri ekki stórt var
þar nóg rúm fyrir alla og þar ríktu
gleði, vinnusemi og bjartsýni.
Guðný gekk til vinnu sinnar af
miklum krafti og það lék allt í hönd-
unum á henni. Hún var glaðvær,
fljótvirk og taldi ekkert eftir sér.
Þótt heimili væri stórt þá var hún
komin í störf úti við ef eitthvert
hlé gafst. Samband hennar og Vil-
hjálms var mjög kært og þau létu
sér annt um alla sem til þeirra komu.
Á þessum árum var Suðursveitin
einangruð. Menn voru heilan dag
að fara til Hafnar í Hornafírði og
lítil samskipti voru milli Suðursveit-
ar og Öræfa. Allt heimilishald ein-
kenndist af þessum staðreyndum,
en í Gerði var ávallt nóg af öllu og
þar gátu þau búið fjölskyldunni
gott heimili. Vilhjálmur hafði yfír-
leitt ekki mörg orð um hlutina.
Hann gekk til starfa sinna þögull
og ákveðinn. Þess í milli var hann
glaður og hafði gaman af að segja
frá ýmsu sem hann hafði kynnst á
lífsleiðinni. Hann var áhugasamur
um allan fróðleik og í tómstundum
sem voru fáar grúskaði hann all-
mikið í ættfræði.
Það er algengt í Austur-Skafta-
fellssýslu að margir bæir standa í
sama túni. Næstu bæir við Gerði
og í sama túni eru Hali og Breiða-
bólstaður. Mikil samvinna var á
milli þess fólks sem þama bjó um
margvíslega hluti. Vélar voru að
hluta til sameiginleigar. Heyskapur,
garðrækt, silungsveiði og jafnvel
sjósókn voru stunduð í samvinnu.
Mikill samgangur var á milli bæj-
anna og samvinna eins og best. var
á kosið. Á Breiðabólstað bjó Þór-
hallur Bjarnason sem var stór mað-
ur, mikill vexti, ákaflega hlýr og í
góðu jafnvægi eins og flestir á þess-
um slóðum. Á Hala var Steinþór
Þórðarson sem var landskunnur
fyrir óvenjulega frásagnarhæfileika
og hafði áhuga á öllu sem til fram-
fara horfíð. Steinþór segir svo um
samskipti þeirra: „En ef vafi þótti
um eitthvað sem ráðslagið var um
var málinu skotið undir úrskurð
Þórhalls. Hann var maður réttsýnn
Okkur langar til að minnast ást-
kærs afa okkar í fáeinum orðum.
Baldur afí fæddist 21. nóvember
1918 á Sveinsstöðum í Þingi, sonur
hjónanna Magnúsar Jónssonar bónda
og hreppstjóra og Jónsínu Jónsdóttur.
Þann 27. september 1940 kvænt-
ist afí Sigriði Guðrúnu Sigurðardótt-
ur frá Steiná í Svartárdal, sem lést
fyrir fáeinum árum. Dætur þeirra
eru Ingibjörg Dóróthea, Magnhildur
og Kristíana.
í okkar huga er erfitt að hugsa
sér betri afa. Hæglæti og glaðværð
voru hans aðalsmerki og því var
hann hvers manns hugljúfi. Góðar
stundir með afa eru of margar til
að telja upp hér en þó eru okkur
minnisstæðastar útileguferðirnar
norður að Hólabaki, þar sem hann
stundaði búskap í hartnær þrjátíu
ár. í þessum ferðum kom það best
og góðgjam og vildi hvers hlut
bæta og því síst stofna til vand-
ræða. Þess vegna hlýddu grannarn-
ir hans úrskurði og allir voru
ánægðir. Svona var sambúðin á
meðan Vilhjálmur og hans fjöl-
skylda bjó í Gerði. Hún var sannar-
lega til fyrirmyndar og öllum sem
að stóðu til ánægju.“ Þótt þessar
þijár kempur væru húsbændur á
heimilum sínum vom það ekki síst
böm þeirra og aðrir heimamenn sem
sáu um verkin. Það var greinilegt að
þeim var öllum mikið ánægjuefni að
sjá böm sín taka við búskapnum og
finna að samvinna innan heimilanna
og á milli þeirra gekk vel fyrir sig.
Vilhjálmur og Guðný eignuðust
sex börn se öll erfðu dugnað og
myndarskap foreldranna. Synimir
vora Halldór, Gunnar og Sigurður,
en dæturnar Sigríður, Heiður og
Guðbjörg. Það var mikið reiðarslag
og áfall fyrir heimilið þegar Gunnar
drukknaði við silungsveiðar í ósnum
við Breiðabólstaðarlón árið 1965.
Gunnar var hvers manns hugljúfí
og var mjög líkur móður sinni í skapi
og hreyfíngum. Hann var glaðvær
og alltaf fljótur til verka ef eitthvað
þurfti að gera. Hann átti marga vini
og var umhyggjusamur við alla sem
í kringum hann vora. Það var gam-
an að vera með honum hvort sem
var við störf heima við, veiðar eða
þegar hann var að bijótast yfír vötn
á hertrakk sem hann átti.
Upp úr þessu fluttu þau Vilhjálm-
ur og Guðný á Höfn og komu sér
þar ágætlega fyrir, en áföllin urðu
fieiri. Árið 1967 lést Sigurður sonur
þeirra af slysförum við vinnu á
Höfn. Sigurður hafði dvalist lengst
af í Flatey hjá móðurfólki sínu og
varð fráfall hans mikið áfall fyrir
fjölskyldurnar frá Gerði og í Flatey.
Þau hjónin bára sorgina vel, enda
trú þeirra mikil og vissa um annað
tilverustig. Þau höfðu þroskast af
harðri lífsbaráttu og vora vön að
taka því sem bar að garði. En enn
á ný barði sorgin að dyram, því
Guðný varð fyrir slysi og andaðist á
Landakotsspítalanum 30. júní 1970.
Það þarf sterka menn til að þola
slík áföll, en Vilhjálmur var enginn
venjulegur maður og hélt áfram að
takast á við lífið með hjálp eftirlif-
andi ástvina sinna. Hann bjó hjá
sveitinm sinni þótt nú séu 20 ár síð-
an hann og amma fluttu til Reykja-
víkur.
Síðastliðið sumar hélt ætt Sigríðar
ömmu ættarmót að Steiná í blíðskap-
arveðri. Þar lék afi á als oddi og
taldi ekki eftir sér að vaka jafn lengi
eða lengur en helmingi yngra fólk.
Sunnudaginn 2. mars á þessu ári,
daginn fyrir bolludag, kynnti afi
fímm mánaða gamalt langafabam
sitt fyrir rjómabollum með súkkul-
aði, og tók Eiður litli hraustlega til
matar síns, við mikla kátínu við-
staddra.
Nú ríkir hins vegar sorg í fjölskyld-
unni því elsku afí er horfínn frá okk-
ur. Hans verður sárt saknað af okk-
ur öllum, en þótt „okkur Baldurs-
mönnum" hafi fækkað um einn von-
um við að það verði aðeins um stund-
Minning:
Baldur Magnússon
í ljós hversu mikið afí unni gömlu
Halldóri syni sínum og konu hans,
Hallberu Karlsdóttur, úr Öræfum,
þar til hann flutti á Skjólgarð. Dótt-
ir hans Sigríður er gift Jóni Ara-
syni, en þau bjuggu lengi að Nýpu-
görðum á Mýrum, Heiður er gift
Kristni Guðjónssyni og eiginmaður
Guðbjargar er Einar Gíslason. Þær
systur hafa búið á Höfn eftir að
þær fóru frá Gerði og búa öll systk-
inin þar nú. Það styrkti Vilhjálm
mikið í langri sjúkralegu að eiga
bömin og barnabörnin við hliðina á
sér og njóta umhyggju þeirra og
ástúðar. Skjólgarður varð hans síð-
asta heimili þar sem starfsfólkið
hugsaði um hann af mikilli alúð.
Þrátt fyrir mikil þrengsli og á marg-
an hátt erfiðar aðstæður gat þetta
ágæta fólk búið honum gott ævi-
kvöld eins og fjölmörgum sýslungum
hans. Fyrir þetta var hann og
ættingjar hans afar þakklátir. Hann
eins og allir aðrir óskaði þess inni-
lega að enn betur mætti búa að
þeim sem síðar kæmu. Hans kynslóð
var sátt við sitt en naut þess að upp-
lifa framfarir í landinu ásamt betri
kjöram og aðbúnaði afkomendanna.
Þegar ég nú kveð vin minn, Villa
í Gerði, verður manni hugsað til
þess hvað hans kynslóð mátti reyna
og hveiju hún fékk áorkað. Með
ekkert í höndunum fór hann til
mennta, byggði upp myndarlegt
býli og eignaðist stóra fjölskyldu.
Hann hafði lítið handa í milli allt
sitt Iíf, en gat þó ásamt elskulegri
eiginkonu búið fjölskyldu sinni gott
heimili. Hann mætti ekki aðeins
óblíðum náttúruöflum þegar hann
var að koma sér fyrir undir Vatna-
jökli milli beljandi vatnsfalla. Sorgin
knúði dyra og fáir máttu reyna jafn
mikið og hann. Hvað gerði honum
kleift að komast í gegnum þetta
allt? Ég er ekki í nokkrum vafa um
að það var túin á landið og trúin á
það, sem yfir okkur vakir. Þrátt
fyrir allt mótlætið var hann sá
gæfumaður að líta til hins bjarta í
lífínu, meta það meira sem honum
var gefið og bera í hljóði þá miklu
sorg sem hann varð fyrir. Það er
hægt að læra mikið af lífi þessa
manns og hann gaf mörgum mikið.
Þar á vel við sem segir í því ljóði
sem áður var vitnað til:
Hver þjóð, sem í gæfu og gengi vill búa,
á guð sinn og land sitt skal trúa.
Steinþór á Hala sagði um Vil-
hjálm sjötugan: „Vilhjálmur fæddist
á morgni þessarar aldar. Hann telst
því einn af bömum aldarinnar.
Hann hefur unnið sitt hlutverk sem
sannur íslendingur á langri ævi
með trú á land sitt og þjóð. Hann
hefur í hvívetna lagt orð og rétt
hönd til þess sem betur hefur mátt
fara. Slíkir menn eru virðingarverð-
ir.“
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst Vilhjálmi og Guðnýju og átt
með þeim ógleymanlegar stundir.
Við Siguijóna og foreldrar mínir,
Ásgrímur og Guðrún, sendum börn-
um, tengdabömum og bamaböm-
um okkar innilegustu samúðaróskir
í þeirri vissu að Vilhjálmur muni
nú mæta Guðnýju sinni á nýjan
leik á öðru tilverustigi.
Halldór Ásgrímsson.
arsakir og við hittumst öll á sama
stað að leiðarlokuin.
Baldur Benediktsson,
Linda Rut Benediktsdóttir.
37
SIEMENS
■
Sjónvarpstœki
Sjónvarps-
myndavélar
Hljómtœkja-
samstϚur
Ferðaviðtœki
Útvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMÍTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Gódandaginn!