Morgunblaðið - 17.03.1992, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
39
Sigríður Ögmunds-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 22. júlí 1897
Dáin 8. mars 1992
" Ljóðið Kirkjuhvoll eftir Guðmund
Guðmundsson hefst á orðunum
„Hún amma mín það sagði mér“.
Þessi orð hafa oft komið upp í huga
mér þegar ég hef hugsað til hennar
ömmu minnar.Það var svo margt
sem hún amma mín sagði mér;
sagði og kenndi.
Það var amma sem rölti með
mig litla telpu út í náttúruna til að
sjá kindurnar með litlu lömbin sín,
til að skoða blómin og gróðurinn.
Það var amma sem kenndi mér
að umgangast náttúruna, að sjá
margbreytileika hennar og bera
virðingu fyrir henni.
Það var amma sem gaf mér
nammi í búðinni en sagði mér svo
að setja umbúðirnar í vasann og
henda er heim var komið.
Það var amma sem kenndi mér
að biðja til Guðs.
Já, það var svo margt sem hún
amma mín sagði mér.
En þótt ég sé ekki lítil stelpa
lengur og hafi undanfarin ár verið
búsett fjarri ömmu og mínu æsku-
heimili munu orð ömmu fylgja mér
alla tíð.
Ég veit að vel verður tekið á
móti henni í nýjum heimkynnum
og endurfundirnir við horfna ástvini
munu gleðja hana.
Lífsins kynngi kallar.
Kolbítamir rísa
upp úr öskustó.
Opnast gáttir allar,
óskastjörnur lýsa
leið um lönd og sjó.
Elín Sigurbergs-
dóttir - Minning
Kær vinkona mín er látin. Elín
Sigurbergsdóttir var fædd 17. jan-
úar 1921, hún andaðist 1. mars
1992, hún var því aðeins 71 árs.
Fyrstu kynni okkar Ellu eins og
við vinir hennar kölluðum hana urðu
er við þá bæði innan fermingar
breiddum fisk á Kirkjusandi í
Reykjavík. En á kreppuárunum var
helsta sumarvinna unglinga fisk-
breiðsla. Mér er Ella mjög minnis-
stæð frá þessum dögum. Hún var
ekki stór vexti, en ákaflega létt í
hreyfingum og framúrskarandi
rösk. Nú liðu nokkrir áratugir, þá
lágu leiðir okkar saman á ný, þá í
gegnum hestamennsku sem var
áhugamál okkar beggja. Eiginmað-
ur hennar, Hans Þorsteinsson, var
góður vinur minn og mikill áhuga-
maður um hesta og hestamennsku.
Áttum við kona mín og ég margar
ógleymanlegar ánægjustundir í
hestaferðalögum með þeim hjónum.
Við áttum því láni að fagna að hafa
aðstöðu til beitar og útreiða austur
í Landeyjum ásamt nokkrum ágæt-
um félögum. Ella náði strax ágæt-
um árangri í hestamennskunni þótt
hún væri komin á miðjan aldur þeg-
ar hún byijaði, naut hún þar létt-
leika síns og áræðis. Það er stórt
skarð höggvið í hóp okkar félaganna
á bökkum Affallsins nú þegar Ella
er horfin okkur, og við njótum ekki
lengur samvista við hana. Hennar
gæfa var, að hún átti elskulegan
eiginmann sem var hennar stoð og
stytta í erfiðum veikindum, góður
félagi í þeirra áhugamálum, stóran
hóp bama og barnabama, sem bera
foreldrum sínum fagurt vitni dugn-
aðar og mannkosta. Hans; vinur
minn, þú hefur misst mikið. Eg vona
Suma skorti veijur og vopn við hæfi,
þótt veganestið móðurhjartað gæfi,
Hvarf ég frá þér, móðir mín,
en mildin þín,
fylgdi mér alla ævi.
(Örn Amarson)
Ég þakka ömmu minni.
Hulda Karen.
að sá sem öllu stjórnar styrki þig í
þinni miklu sorg. Megi minningin
um Ellu lifa á meðan sólin stafar
geislum sínum á hinn fagra fjalla-
hring sem við svo ótal sinnum dáð-
umst að saman, sem hún kunni svo
vel að njóta í hópi góðra vina.
Vigfús Tómasson.
Sigurður Siguijóns-
son - Minning
Fæddur 5. ágúst 1921
Dáinn 9. mars 1992
í dag fylgjum við elsku pabba,
Sigurði Siguijónssyni, til grafar.
Þessi sterki maður, sem lét ekkert
slá sig út af laginu, varð loks að
láta í minni pokann. Pabbi gekk
ekki heill til skógar síðustu misser-
in en gegn því mótlæti sem öðru
var hann ákveðinn að berjast. Hann
barðist með reisn og hógværð uns
yfir lauk 9. mars sl.
Það er köld staðreynd að vita til
þess að við höfum pabba ekki leng-
ur hjá okkur. Það sem yljar okkur
aftur á móti eru þær góðu minning-
ar sem við eigum um hann. Þær
eru ótaldar stundirnar heima í Aust-
urbrún þar sem við ræddum málin
saman og oftar en ekki var fjöl-
skyldan og hagur hennar umræðu-
■efnið. Fjölskyldan var honum allt
lífið og alltaf var hann tilbúinn að
rétta okkur börnunum hjálparhönd.
Pabbi gerði sér grein fyrir í hvað
stefndi og síðustu dagana sem við
áttum með honum sagði hann oft
hvað sér liði vel yfir því að við
værum búin að koma okkur fyrir.
Þrátt fyrir lasleika var alltaf stutt
í fallega brosið og það sýndi hann
oft þó að á móti blési undir það
síðasta.
Sigurður Siguijónsson fæddist
að Minni-Bæ í Grímsnesi 5. ágúst
1921. Hann var þriðji yngstur af
sextán bömum þeirra hjóna Sigur-
jóns Jónssonar og Guðrúnar Guð-
mundsdóttur. Pabbi var á öðru ári
þegar faðir hans lést en móðir hans
féll frá 1975, 91 árs að aldri.
Það voru skemmtilegar samveru-
stundir með pabba þegar við fórum
með honum á æskustöðvamar í
Grímsnesinu. Þar naut hann sín í
hvívetna enda þekkti hann þar nán-
ast hveija þúfu. Við eigum oft eftir
að minnast þessara ferða þarigað
með hlýjum hug.
Síðastliðið haust hætti pabbi að
vinna að loknum löngum starfs-
degi. Hann hlakkaði mikið til að
geta hvílt sig og varið tímanum
með afabömunum en þau voru sól-
argeislamir hans.
Við kveðjum nú elsku pabba okk-
ar og þökkum honum fyrir allt sem
hann gerði fyrir okkur. Við biðjuiiÉr
algóðan Guð að gæta hans og
geyma. Blessuð sé minning hans.
Börnin.
Leiðrétting
Lokaorð í minningargrein um
Jóhönnu Svendsen, eftir Sossen, í
blaðinu á laugardag brengluðust.
Þau áttu að vera svohljóðandi:
Að leiðarlokum er mér efst í
huga þakklæti fyrir ómælda vináttw
og hjálpsemi við mig og fjölskyldu
mína.
Ég kveð elskulega vinkonu og
bið Bjössa, Sigrúnu, sonum, systk-
inum og öllum öðmm ástvinum
Jóhönnu guðsblessunar.
Sossen.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
Skrifstofuhúsnæði
Lítið útgáfufyrirtæki vantar skrifstofuhús-
næði, helst í Múlahverfi eða nágrenni. Þarf
að vera á jarðhæð. Æskileg stærð 30-40 fm.
Upplýsingar í síma 681290, en einnig má
senda skrifleg tilboð, merkt: „Skrifstofa", í
pósthólf 8055, 128 Reykjavík.
Bókhald - skattuppgjör
Viðskiptafræðingur, með áratuga reynslu í
bókhaldi og skattuppgjöri, getur bætt við sig
verkefnum gegn sanngjörnu verði. Notað er
TOK bókhalds- og endurskoðendakerfi.
Upplýsingar í símum 685460 og 685702,
utan skrifstofutíma í síma 813312.
Aukin þjónusta
e
Grænt númer: 99-65 60
G.J. FOSSBERG
VÉLAVERZLUN HF.
Skúlagötu 63 - Reykjavfk
Sfmi 618560
65 ára
afmælishátíð
65 ára afmælishátíð Heimdallar verður haldin í Valhöll, Háaleitis-
braut 1, laugardagskvöldið 21. mars.
Afmælisdagskráin hefst kl. 19.00 með kvöldverði.
Allir velunnarar félagsins velkomnir. Skráning í síma 682900.
IIFIMIMI.IUK
F ■ U ■ S
ATVINNUHÚSNÆÐI
Arðbær eign til sölu
Ca 900 fm atvinnuhúsnæði miðsvæðis í
Reykjavík. Mögulegar leigutekjur 6-8 milljón-
ir. Hagstæð áhvílandi lán. Skipti á minni eign
möguleg.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „B - 14881“.
Húsaviðgerðir
Endurnýjanir og viðhald á íbúð-
um, gluggaskipti, smíða allar
innréttingar, múrverk, öll gólf-
efni, þ.m.t. flísar, og málun.
Laus strax.
Upplýsingar í síma 670867.
Nýaldarsamtökin
Fyrirlestur í kvöld. Jörundur Guð-
mundsson fjallar um Sókrates
meðal meistara kl. 20.30 á
Laugavegi 66.
SK RR1
Bláfjallagangan
sem er 20 km almenningsganga
á skíðum og liður í lands-
göngunni, fer fram í Bláfjöllum
laugardaginn 21. mars kl. 14.00.
Gengið verður með hefðbund-
inni aðferð. Þátttökutilkynningar
verða í kaffiteriunni f Bláfjalla-
skálanum kl. 12.00 á keppnis-
daginn. Einnig verður boðið upp
á styttri vegalengdir 10 km og 5
km. Ef veður verður óhagstætt
á keppnisdaginn kemur tilkynn-
ing f Ríkisútvarpinu kl. 10.00. 4
Skíöaráð Reykjavfkur.
□ FJÖLNIR 599203177 = 2 Frl.
I.O.O.F.Ob. 1 =1733178'/2 = FL
□ EDDA 59921737 - 1 Fri. Atkv.
Til leigu
Skrifstofu- og lagerhúsnæði (kælir fylgir) á
jarðhæð til leigu.
Góð staðsetning. Góð bílastæði.
Upplýsingar í vinnusíma 617002 eða heima-
síma 35968.
HELGAFELL 59923177 IV/V 2
□ HAMAR 59921737-1 Kosn.
Stm.
LO.O.F. Rb. 4= 1413178 - 8</t
AD KFUK
Fundur f kvöld kl. 20.30 á Holta-
vegi. Halla Jónsdóttir: „Börn og
sorg.“ Kaffi eftir fund. Allar kon-
ur hjartanlega velkomnar.
□ SINDRI 59923177 - Fr.