Morgunblaðið - 17.03.1992, Side 41

Morgunblaðið - 17.03.1992, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992 41 Sigurrós Gísla- dóttir — Minning Fædd 9. febrúar 1906 Dáin 8. mars 1992 Sigurrós Gísladóttir, eða Rósa eins og hún vildi vera kölluð, andað- ist að morgni sunnudagsins 8. mars á Borgarspítalanum, en á vistheim- ilinu Skjóli hafði hún átt heimili sitt síðustu árin. Hún var lögð til hinstu hvíldar í gær, mánudaginn 16. mars, í kyrrþey frá Fossvogs- kapellu, að viðstöddum einungis sínum allra nánustu. í kyrrþey hafði hún innt af hendi hina hljóðlátu þjónustu sína sem húsmóðir og móðir og í kyrrþey taldi hún við hæfi að kveðja. Þó fór hér ein þeirra, sem hvað hæstan frúarsess skipuðu í þjóðlífinu, ekkja Jónatans Hallvarðssonar hæstaréttardóm- ara, sem féll frá fyrir 22 ár.um, öll- um sem til þekktu sár harmdauði. Þegar svo langt er um liðið, hefur fennt yfir margan kunnugleika og mörg bönd rofnað, og mun því eftir- greint koma mörgum fyrir sjónir sem ný kynning. Rósa var fædd 9. febrúar 1906, dóttir Gísla Kristjánssonar sjó- manns frá Ánanaustum og konu hans Halldóru Sigurðardóttur af Melhúsaætt á Akranesi. Átti hún gott atgervi að sækja til þessara ætta. Afabróðir hennar, Pétur Gíslason, reis frá tómthúsmennsku til að verða áhrifamikill bæjar- stjórnarfulltrúi, en sonarsonur hans varð Jakob Gíslason, orkumála- stjóri. Annar þremenningur við Rósu var Sverrir Kristjánsson, sagnfræðingur. Síðar á ævinni, einkum eftir að hún var orðin ekkja, lagði Rósa mikinn hug og stund á ættfræði og hafði mikla ánægju af að tengja fólk við uppruna sinn. Ég get aðeins reynt að gera mér i hugarlund af lesningu og afspurn, hvernig Rósu hefur farnast í upp- vextinum í sex barna hópi í frum- stæðri en ört vaxandi bæjarbyggð, þar sem kjör manna voru almennt kröpp og heimsstríð og fáheyrð dýrtíð fór í hönd. En ekki virtist árferðið hafa skaðað þá tápmiklu ungu konu, sem ég man fyrst fagra, vel klædda og snyrta og í alla staði vel mennta og mannaða. Þótt ég hafi verið henni samtíða í höfuð- staðnum nokkur fyrstu ár mín, man ég hana fyrst sem góða og gjöfula frænku í borginni, sem gott var heim að sækja og frísklegt að fá í heimsókn út á landsbyggðina. Að jólum 1930 gekk Rósa að eiga Jónatan Hallvarðsson, sem brotist hafði til mennta af fágætum I URVALI FYRIR: • Verktaka_________ • Fiskeldi__________ • Skip/báta Frystihús • Sumarhús • Sundlaugar • Skolpkerfi Skrúðgarða • Ahaldaleigur O.fl. o.fl. Ráðgjöf - Sala - Þjónusta! Einkaumboð á íslandi: Skútuvogur 12A • 2 812530 dugnaði, lokið lögfræðiprófi þá um vorið og ráðist þá þegar sem full- trúi lögreglustjórans í Reykjavík. Hófst með því mikill embættis- frami, þar sem hann með nokkurra ára millibili varð lögreglustjóri, stofnandi sakadómaraembættisins, sem þá náði einnig yfír rannsóknar- lögregluna, og var loks hæsta- réttardómari í nærfellt aldarfjórð- ung, eða alls í meira en 40 ár í þessum umfangsmiklu og ábyrgð- arþungu embættum. Ég hygg, að það sé nú orðið ekki metið sem skyldi, hvern hlut eiginkonurnar eiga oft í að axla ábyrgðina og styðja að kjarki og siðferðisþreki manna sinna. Víst er um, að Rósa lá ekki á liði sínu og sómdi sér glæsilega við hlið manns síns í öllum hans hlut- verkum. Ég fæ ekki varist þeirri hugsun, að þegar forsetaframboð var orðað við Jónatan, var með því einnig lagt mat á framgöngu henn- ar og virðuleika. Hjónaband þeirra var fágætlega ástúðlegt og hamingjusamt og ein- kenndist af gagnkvæmri virðingu og tillitssemi. Að sama skapi var heimilið vistlegt og vel og smekk- lega búið munum og listaverkum allt frá fyrstu árunum í Norðurmýr- inni, síðan við Nesveginn og loks í höfðinglegu einbýlishúsi, sem þau byggðu í prófessorahverfinu við Aragötu. Þau voru bæði hinir ágæt- ustu uppalendur og höfðuðu tif manndóms og dáða með börnum sínum, sem hafa búið að því alla tíð síðan og raunar einnig barna- bömin, sem flest hafa þegar komist til góðra mennta. Böm þeirra eru: Halldór forstjóri Landsvirkjunar, kvæntur Guðrúnu Dagbjartsdóttur, og eiga þau ijórar dætur og þrjú bamabörn; Bergljótj gift Jóni Sigurðssyni forstjóra Isl. járnblendi- félagsins, og eiga þau þijú börn og 8 barnabörn; og Sigríður gift Þórði Þ. Þorbjamarsyni borgarverkfræð- ingi, og eiga þau þrjú börn. Alls eru afkomendur Rósu orðnir 24 talsins. Ég átti ungur því láni að fagna að vistast hjá þeim hjónum fyrsta vetur minn í gagnfræðaskóla hér fyrir sunnan. Naut ég hjá þeim góðs aðbúnaðar og atlætis og um leið mannbætandi uppeldis og hæfi- legra umvandana. Nokkrum árum eldri en þau systkinin hef ég sjálf- sagt reynst ákjósanlegt æfínga- stykki í táningauppeldi. Átti Rósa við mig ýmsar siðbætandi atrennur og að kenna mér frísklega fram- göngu og röskleika í athöfnum, en náttúran vildi reynast náminu rík- ari. Þegar ég svo ætlaði að misnota Jónatan við námshjálp, fékk ég af honum vænan fyrirlestur um hinar miklu fórnir þjóðarinnar við að halda uppi menntakerfinu, og væri nú mörgum hollt að hlýða. Mér þótti vænt um að geta þakkað fyr- ir mig með besta námsárangri, sem ég hefi náð, dúx yfir fyrstu bekki skólann. Brosandi af ánægju sagð- ist Rósa ekki skilja í þessu, hún hefði ekki séð mig lesa svo mikið. Manngæði þeirra hjóna voru ekki einskorðuð við fjölskylduna, heldur voru þau stöðugt að greiða fyrir einhverjum og hjálpa fram til nokk- urs þroska. I minningarorðum Bjarna Benediktssonar eftir Jónat- an sagði hann frá því, að nauðleitar- menn sóttu til hans að fá úrlausn síns vanda. Sama var um Rósu, að hún mátti ekki aumt sjá og var mjög á varðbergi um, hvar hún gæti rétt hjálparhönd og vikið ein- hveiju að fólki. Eitt tilvik man ég, þar sem fólk falaðist eftir hlut, sem þau voru að skipta út. Eftir andar- taks umhugsun var mér falið að svara því, að þau vildu heldur gefa en selja. Álþýðuhollusta virtist Rósu í merg runnin, og tók hún gjarnan svari lítils megandi og láglauna- fólks, þegar við frændur ræddum málin af kaldri skynsemi. Svipuðu máli gegndi um hann, er verið hafði sáttasemjari í mörgum illvígustu vinnudeilunum, að hann lýsti for- göngumönnum þeirra sem mestu sóma- og ágætismönnum. Þannig mætti lengi rekja minningar, viðtöl og viðhorf, en þó verður að láta staðar numið. Ævilok Jónatans voru óneitan- lega harmræn, þar sem honum auðnaðist ekki að njóta hvíldar og hugðarefna að starfslokum, heldur lagðist banaleguna nóttina eftir að hann kvaddi starfsfélaga sína. Rósa bar þá sáru raun af hljóðlátri þolin- mæði og geðprýði og lagaði sig vel að nýju æviskeiði. Hún dró kjarna heimilisins saman í hóflega íbúð í Auðarstræti, í grennd við þeirra fyrstu slóðir. Við tók hlutverk ömm- unnar, sem fylgdist með vaxandi hópi barnabarna og síðan barna þeirra verða til, vaxa og þroskast og veitti þeim fræðslu um ætt og uppruna og samhengi við fortíðina. Þetta er verðugt hlutverk og veit- ult á lífsfyllingu. Trú mín og tilfinning segja mér, að Rósa hafi nú náð samfundum við Jónatan sinn á ný. Við biðjum þeim Guðs blessunar. Megi minning þeirra verða eftirkomendunum til varanlegrar blessunar. Bjarni Bragi Jónsson. Veljið það besta FORMICA^ er til i hundruðuri lita og mynstra senil beygja má á borðplötur. > gluggakistur, skáphurðir eða næstum hvað sem er. ÁRVÍK ÁRMLILI 1 - REYKJAVlK - SIMI 607222 -TELEFAX 687295 Ertu í fasteignahugleiðingum? TAKTU SKATTAFSLÁTTINN 0G HUSNÆÐISLANIÐ MEÐ í REIKNINGINN! Bústólpi, húsnæðisreikningur Búnaðarbankans, er örugg ávöxtunarleið sem gefur mjög góða vexti og veitir rétt á húsnæðisláni hjá Búnaðarbankanum í lok sparnaðartímans. Húsnæðis- reikningurinn er kjörinn fyrir þá sem vilja safna fyrir eigin húsnæði eða skapa sér eins konar lífeyrissjóð á auðveldan hátt. Reikningurinn veitir auk þess rétt til skattafsláttar sem neniur einurn fjórða af árlegum innborgunum á reikninginn. Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi Búnaðarbankans. Kynntu þér Bústólpa! Bll N AÐARBAN KIN N - Traustur banki BUSTOLPI HÚSNÆÐISREIKNINGUR GAMLJl VERDIÐ! Við eigum enti takmarkaðar birgðið afgegnheilu Insúluparketi á gamla verðinu, þ.e. án tollgjalda. Við veitum sérstakan magnafslátt af stafaparketinu. Gullfallegur askur 16 mm, natur á 2.998,- (stgr.) og rústik askur á 2.539,- (stgr.). Eik, beyki, askur, jatoba og eukalyptus. Við verslum einungis með gegnheilt gœðaparket, þ.e. tréð er límt beint á steininn ogsíðan slípað, spartlað og lakkað eftir á. Gegnheil (massív) gólf eru varanleg gólf! Hefðir miðalda í heiðri hafðar. — Gerið verðsamanhurðl Fagmenn okkar leggja m.a. fiskibeinamynstur (síldarmynstur) og skrautgólf, lakka eða olíubera. Opið kl. 10-18 virka daga Suðurlandsbraut 4a, símí 685758 - 678876, fax 678411 B m

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.