Morgunblaðið - 17.03.1992, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
Helg’in 13.-16. mars.
Sextán slys á fólki voru til-
kynnt til lögreglunnar um helg-
ina. Átta slösuðust í fímm um-
ferðarslysum og einn um borð í
togara þar sem hann var staddur
úti á Faxaflóa. Það var skipveiji
sem festist í vír og tók útbyrðis.
Hann náðist, en þegar í Ijós kom
að hann hafði hlotið opið bein-
brot á fæti og fengið sjó í lungu
var hann fluttur með þyrlu á
slysadeild Borgarspítalans. Þá
féll kona af hestbaki, vélsleða-
maður slasaðist við Hvítárvatn
og var fluttur með þyrlu til borg-
arinnar, en önnur slys voru
vegna falls í hálku.
Alls var tilkynnt um 51 um-
ferðaróhapp um helgina. í einu
tilviki reyndist um ölvaðan öku-
mann að ræða. Þegar átta manns
slasast í umferðaróhöppum og
hátt á annað hundrað bflar
skemmast í umferðinni í borginni
á einni helgi hlýtur að vera eitt-
hvað meira en lítið athugavert
við_ umferðarmenninguna.
Á föstudagskvöld handtóku
lögreglumenn í fíkniefnadeild í
samvinnu við lögreglumenn frá
RLR átta manns í húsi við Lind-
argötu. Hald var lagt á eitthvert
magn fíkniefna og áhalda, sem
notuð höfðu verið við neysluna.
Mál þeirra handteknu tengist
umfangsmikilli þjófnaðar- og
innbrotastarfsemi á höfuðborg-
arsvæðinu undanfamar vikur.
Á laugardag var óskað aðstoð-
ar lögreglu vegna kattar sem
virtist hríðskjálfa úr kulda í kjall-
aratröppum húss við Skúlagötu.
Einhver vegfarandi hafi veitt
kettinum athygli, en ekki séð
aðra leið að koma honum til
aðstoðar en að hafa samband
við lögregluna. Kötturinn hafði
hins vegar ekki beðið um neina
aðstoð og taldi sig ekki þurfa
hana, enda á heimaslóðum.
Tvisvar var tilkynnt um búð-
arhnupl. í öðru tilvikinu áttu
tveir piltar hlut að máli. Þeir
höfðu nýlega komið til stórborg-
arinnar utan af landi, atvinnu-
lausir og févana. í fyrstu höfðu
þeir gert tilraun til þess að selja
dagblöð, en gengið illa, og því
ákveðið að ná sér í eitthvað
matarkyns með því að hnupla.
Piltarnir voru staðnir að verki,
enda verslunarfólk í borginni
vant að sjá við hnuplurum. í hinu
tilvikinu var um fertugan óreglu-
mann að ræða sem einnig reyndi
að ná sér í svanginn.
Fremur rólegt var í miðborg-
inni um helgina, enda viðraði illa
til útiveru, bæði kalt og
hryssingslegt.
Á laugardagskvöld var öku-
maður mældur með radar á 110
km hraða á Sæbraut við Höfða.
Ökumaðurinn var færður á lög-
reglustöðina og sviptur ökurétt-
indum til bráðabirgða.
Til sölu nýr Toyota 4-Ronner '92
Bíllinn er sjólfsk. m/vökvastýri V-6, beinni innspýtingu, rafm. í rúðum og
samlæsingum, útvarpi og kassettutæki, ólfelgum og stærri dekkjum.
Innfluttur af Toyota umboðinu. Til sýnis ó staðnum
bÍLÁSALÁ RtXKJAVÍKUR
SKEIFUNNI 11, SÍMI 67 88 88
rv
S!
S
s
*
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Mwí%% Mwíu
Bjóðum í nokkra daga hvítan
undirfatnað á niðursettu verði
Hvítt við öll tœkifœri
Óðinsgötu 2, sími 13577.
Vélsleðamaðurinn fluttur um borð í TF-SIF í Kerlingarfjöllum á laugardag. Morgunbiaðið/ingvar
Kerlingarfjöll:
Þyrla sótti slasaðan vélsleðamann
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann í skíðaskálann
í Kerlingafjöllum síðdegis á laugardag. Maðurinn hafði slasast í
vélsleðaslysi, en meiðsli hans reyndust ekki alvarleg.
Landhelgisgæslunni barst þyrlan, TF-SIF, lent við skíðaskál-
beiðni um aðstoð kl. 16.45 og var ann kl. 17.50 og fór í loftið aftur
fimm mínútum síðar. Hún lenti
við Borgarspítalann í Reykjavík
kl. 18.31. í ljós kom að maðurinn
var ekki alvarlega meiddur og
fékk hann að fara heim af sjúkra-
húsinu í gær.
Vélsleðamaður
féll 50 metra
fram af hengju
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, sótti á laugardagskvöld
mann á Langjökul, sem hafði
slasast þegar hann ók vélsleða
sínum fram af 50 metra hárri
hengju. Mjög erfiðar aðstæður
voru á slysstað. Þyrlan varð að
fara mjög nærri sryóhengju og
læknir stökk út úr henni í lítilli
hæð, til að aðstoða manninn.
Maðurinn fékk talsverðan
áverka á brjóst, en er ekki í lífs-
var hann enn á gjörgæsludeild
Borgarspítalans. Hann var þó ekki
í lífshættu.
í áhöfn þyrlunnar voru þeir
Benóný Ásgrímsson, Jakob Ólafs-
son, Kristján Þ. Jónsson og læknir-
inn Sveinbjörn Brandsson.
18 ára stúlka frá Hellu
kjöriii Ungfrú Suðurland
hættu.
Lögreglunni í Reykjavík barst
ósk um aðstoð kl. 22.32 á laugar-
dagskvöld, þar sem maður hefði
slasast í vélsleðaslysi í austanverð-
um Langjökli, upp af Hvítárvatni.
Vegna versnandi veðurs gekk ferð
þyrlunnar erfiðlega. Á leiðinni náð-
ist farsímasamband við vélsleða-
mann, sem var nærri slysstað og
kvaðst hann senda neyðarblys á
loft þegar þyrlan væri nærri. Þeg-
ar SIF var yfír Hvítá, norð-austur
af Bláfelli, sást blysið á lofti. Slys-
staðurinn var í snjógili í 1320
metra háum tindi norð-vestur af
Fjallkirkju. Þangað kom þyrlan kl.
23.53. Létta varð hana um 250
kíló af eldsneyti, því ekki tókst að
lenda á slysstað vegna slæmra
aðstæðna og hættu á snjóblindu,
þar sem kennileiti voru fá og myrk-
ur. Eftir nokkrar atrennur tókst
að koma þyrlunni í „hang“ yfir
slysstaðnum, þ.e. láta hana svífa
stöðuga yfir. Sjúkrabörum var
slakað niður, en læknirinn, Svein-
björn Brandsson, varð að stökkva
á eftir úr lítilli hæð. Þegar hann
hafði búið um sjúklinginn voru
þeir hífðir um borð. Lokið var við
það fimmtán mínútum eftir mið-
nætti og þyrlan kom til Reykjavík-
ur fimm mínútum fyrir kl. 1 að-
faranótt sunnudags.
Maðurinn hlaut talsverðan
áverka á bijósti við fallið og í gær
Selfossi.
UNGFRÚ Suðurland var valin á
hátíðarkvöldi á Hótel Örk á
föstudagskvöld. Það var Hanna
Valdís Garðarsdóttir frá Hellu
sem hlaut sæmdarheitið að þessu
sinni. Hún var valin úr hópi sjö
stúlkna.
Hanna Valdís er 18 ára, dóttir
hjónanna Garðars Jóhannssonar og
Erlu Hafsteinsdóttur, Heiðvangi
21, Hellu. Hanna Valdís stundar
nám við Fjölbrautaskóla Suður-
lands, á málabraut.
Vinsælasta stúlkan í hópnum var
vaiin íris Böðvarsdóttir frá Eyrar-
bakka og sem Ijósmyndafyrirsæta
Suðurlands varð fyrir valinu Lára
Björk Eriingsdóttir, Hveragerði.
Aðrar stúlkur sem tóku þátt í
keppninni voru Drífa Nikulásdóttir,
Hellu, Guðrún Eiríksdóttir, Hruna-
mannahreppi, Hrafnhildur Þor-
steinsdóttir, Hveragerði, og íris
Björk Magnúsdóttir, Selfossi.
Húsfyllir var á Hótel örk á föstu-
dagskvöldið en auk fegurðarsam-
keppninnar voru fjölbreytt
skemmtiatriði þar sem fram komu
íslandsmeistararnir í suður-amer-
ískum dönsum, Ingvar Þór og Anna
Sigurðardóttir. Spaugstofan
skemmti og Módelsamtökin sýndu
vor- og sumartískuna. Danstónlist
sá Geirmundur Valtýsson um.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ungfrú Suðurland, Hanna
Valdís Garðarsdóttir.