Morgunblaðið - 17.03.1992, Side 56
Launakröfur ASÍ, BSRB og Sambands bankamanna:
Samið verði nm sama kaup-'
mátt og gilti í júnímánuði
Forystumenn launþegasamtaka og vinnuveitenda sam-
mála um að samningar verði að nást innan tíu daga
í LAUNAKRÖFUM Sambands íslenskra bankamanna sem lagðar hafa
verið fyrir samninganefnd bankanna er gert ráð fyrir að þjóðarsáttar-
samningarnir verði framlengdir miðað við 1. september sl. og gildi til
31. janúar 1993. Samið verði um sama kaupmátt og gilti 1. júní 1991.
Að sögn Ásmundar Stefánssonar, forseta ASÍ, er Alþýðusambandið
með sömu kaupmáttarviðmiðun í sínum hugmyndum og skv. heimildum
Morgunblaðsins gerir kröfugerð BSRB og KI ráð fyrir að ná sama
kaupmætti og gilti í júní auk iáglaunabóta á öll laun undir 80 þús. kr.
í skammtímasamningi til næstu áramóta.
Danir hafna
fargjalda-
umsoknum
'Flugleiða
DANIR hafa hafnað umsókn Flug-
leiða um að láta frímiða fyrir
maka fylgja flugmiða á Saga-class
til Norðurlandanna. Einnig hafa
Danir hafnað umsókn Flugleiða
um sértakt fargjald í maí til að
mæta leiguflugssamkeppni til
Danmerkur. Flugleiðir hafa í kjöl-
farið óskað eftir því við sam-
gönguráðuneytið að loftferða-
samningur Islands og Danmerkur
verði endurskoðaður.
Umsókn SAS um 90% afslátt fyr-
ir maka farþega sem greiðir fullt
fargjald á ferðum milli Norðurlanda
—- -var samþykkt í síðasta mánuði og í
kjölfarið óskuðu Flugleiðir eftir því
við dönsk flugmálayfirvöld að veita
mökum þeirra, sem greiða fullt Saga-
class fargjald, frímiða á þessum leið-
um. Þessu höfnuðu Danir, að sögn
Péturs J. Eiríkssonar framkvæmda-
stjóra markaðssviðs Flugleiða. Hins
vegar fá Flugleiðir að bjóða 90%
afslátt í samræmi við SAS. íslenska
samgönguráðuneytið féllst hins veg-
ar á þessa ósk.
Þá sóttu Flugleiðir um að bjóða
sérfargjald til Danmerkur í maí til
*að mæta leiguflugssamkeppni frá
Kaupmannahöfn, en því var hafnað
á þeirri forsendu að þau fargjöld
væru ekki í takt við fargjöld sem
gildi innan Evrópu.
Pétur sagði að þessi svör Dana
væru endanleg og Flugleiðir myndu
því bjóða mökum farþega sem fljúga
á Saga-class 90% afslátt á ferðum
til Norðurlandanna en frímiða á öðr-
um leiðum.
„Við erum komnir í þá stöðu að
geta illa haft frumkvæði í samkeppni
við SAS og aðra. SAS hefur hingað
til fengið allt í gegn sem það vill á
íslenska markaðnum og hjá yfirvöld-
um í öðrum Norðurlöndunum. Ef
þetta heldur svona áfram getum við
aðeins apað eftir SAS og gert það
sem það fær samþykkt. Með öðrum
orðum þá ræður SAS fargjöldunum
milli íslands og Norðurlandanna,"
sagði Pétur.
------»-♦ ♦----
Hafnarfjörður;
Alþjóðlegt
skakmót hafið
ALÞJÓÐLEGT skákmót hófst í
Hafnarborg í Hafnarfirði í gær.
12 þátttakendur eru í mótinu.
Eftirtöldum skákum lauk í gær-
kvöldi: Jón L. Árnason vann Björn
Fr. Bjömsson, Motwani vann Helga
^ Áss Grétarsson og jafntefli gerðu
Þröstur Þórhallsson og Howell og
Margeir Pétursson og Levitt.
Sjá skákþátt á bls. 55.
„Menn semja ekki um kaupmátt,
hann er afrakstur efnahagsstarfsem-
innar, sem er um 4% minni en á síð-
asta ári og það eru einfaldar stað-
reyndir sem við getum ekki umflúið.
Menn geta reynt að nálgast þetta
þannig að reynt verði að veija þá
lægstlaunuðu en kostnaðarþróuninni
haldið sem mest í skefjum. Ef ég
ætti kost á að velja kaupmátt myndi
ég velja einhvern ennþá betri en var
1. júní,“ sagði Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, að-
spurður um. þær kaupmáttarhug-
myndir sem verið er að móta.
Fyrsti sameiginlegi fundur ASÍ,
BSRB, KÍ og viðsemjenda þeirra fór
fram í húsnæði ríkissáttasemjara í
gær. Þar var rætt um vinnutilhögun
í viðræðunum. Ásmundur segir að
niðurstaða í viðræðunum verði að
liggja fyrir á næstu tíu dögum. Þór-
arinn segist vera sammála því að
kjarasamningar verði að takast inn-
an tíu daga og Ogmundur segir nauð-
synlegt að niðurstaða fáist í samflot-
inu innan viku eða tíu daga og mjög
æskilegt sé að kjarasamningar verði
gerðir fyrir mánaðamót.
Bankastarfsmenn gera kröfu um
þijár launahækkanir á samningstím-
anum í samræmi við þróun fram-
færsluvísitölunnar, þ.e. um 2% 1.
september 1991 og 1,5% 1. febrúar
1992, sem komi til útborgunar við
undirritun samningsins, og 1,5%
hækkun 1. september næstkomandi.
Þá vilja bankastarfsmenn að sett
verði rauð strik í samningana í maí
og nóvember. „Þetta er bara grín.
Liðinn tími er liðinn og við hendum
jafnharðan því sem dettur af dagatal-
inu en geymum það ekki,“ sagði
Þórarinn um þessar kröfur.
Samtök opinberra starfsmanna og
ASÍ hafa ekki fest niður nákvæmar
kauphækkanir í sinni kröfugerð en
vilja ná upp kaupmættinum eins og
hann var í júní.
Samband bankamanna tekur ekki
þátt í samfloti heildarsamtaka á
vinnumarkaði fyrr en niðurstaða hef-
ur fengist varðandi ágreining um
túlkun á kjarasamningum um sam-
bærileg lífeyrisréttindi starfsfólks
ríkisbanka og einkabanka en íslands-
banki hefur vísaði því máli til Félags-
dóms. Lögmaður sambands banka-
manna leggur greinargerð sína fyrir
dóminn í dag og er búist við að
málflutningur hefjist í vikunni.
Enn er ágreiningur milli aðila í
sameiginlegu viðræðunum um lengd
samningstímans. BSRB hefur lagt
áherslu á skammtímasamning en
mun þó sætta sig við kjarasamning
til áramóta. ASÍ hefur lagt áherslu
á samning fram í mars eða apríl en
Ásmundur segist ekki eiga von á að
það atriði tefji viðræðurnar. Þórarinn
segist eiga von á að í viðræðunum
verði gengið út frá eins árs samningi.
Sjá einnig frétt á bls. 2.
------♦ ♦ ♦------
Legutími ekki
lengri en í
öðrum löndum
SÍMON Steingrímsson, verkfræð-
ingur á skrifstofu Ríkisspítala og
Þórður Harðarson, prófessor og
yfirlæknir lyflækningadeildar
Landspítalans, segja í grein sem
birt er á miðopnu blaðsins í dag
að ályktanir Hagfræðistofnunar
HÍ um að íslendingar iiggi tvö-
falt lengur á sjúkrahúsum en
Danir, séu tilhæfulausar og
byggðar á röngum forsendum.
Höfundar greinarinnar segja að
þvert á móti bendi samanburður á
legutíma á sjúkradeildum fyrir sams
konar sjúklinga til að legutími sé
síst lengri á Islandi.
Benda þeir m.a. á að skilgreining-
ar á sjúkrastofnunum hjá OECD sé
svo losaralegur að samanburður
milli landa sé tilgangslítill.
Kjarvalsstaðir:
Miró-sýning í sumarbyrjun
SÝNING á verkum hins heimsþekkta spænska listamanns Mirós
verður opnuð á Kjarvalsstöðum í sumarbyrjun. Um er að ræða 10
málverk, 40-50 skúlptúra og 10-15 teikningar frá Maeght-listasafn-
inu í nágrenni borgarinnar Nice í Frakklandi. Miró er einn af frum-
legustu og merkilegustu listamönnum 20. aldarinnar að sögn Gunn-
ars Kvarans forstöðumanns Kjarvalsstaða.
Gunnar sagði að hingað til lands hefst um mánaðamótin maí-júní og
kæmi gott úrval verka Mirós frá
Maeght-listasafninu en það væri
álitið eins konar Mekka 20. aldar
nútímalistar. Verkunum yrði komið
fyrir í vestursal Kjarvalsstaða og
ekki væri ólíklegt að hún yrði einn-
ig á göngum safnsins. Sýningin
stendur yfir í einn mánuð.
Miró er fæddur á Spáni ( 1893-
1983) en bjó og starfaði lengst af
í París. Hann aðhylltist kúbisma í
upphafi ferils síns en undirritaði
stefnuyfirlýsingu súrrealista ásamt
fleirum árið 1924. Eftir það var
hann lengi virkur þátttakandi í
hópi súrrealista. Nú á timum er
þó talað um verk Miró óháð stefn-
um og straumum í myndlist. Miró
er einn af frumlegustu og merkileg-
ustu listamönnum 20. aldarinnar
og telst þar í hópi listamanna eins
og Picasso og Matisse, að sögn
Gunnars Kvarans.
Stór hluti verkanna á Kjarvals-
stöðum verður hluti af úttekt á
verkum Mirós á Edinborgarhátíð í
haust.