Morgunblaðið - 22.03.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.03.1992, Blaðsíða 21
ar til lögreglu, sem fór tafarlaust um borð og handtók Lemay, án þess að hann veitti mótspyrnu. Lemay var haldið í fangelsinu í Dade County, Flórída, en þar tókst honum að snúa á yfirvöld, þrátt fyrir varúðarráðstafanir. Lögreglu grunaði, að hann vildi kvænast Lise Lemieux, svo að hún væri ekki leng- ur hæf til þess að bera vitni í máii hans. Þess vegna var henni bannað að heimsækja hann. Hann var geymdur í klefa innst í fangelsinu, svo að þeim tækist ekki að láta framkvæma löglega hjónavígslu með köllum milli hans í glugga, eða aðeins í kallfæri, og hennar ásamt vígsluvottum á götunni fyrir utan. 1. júní þurfti að fara með Lemay til yfirheyrslu í skrifstofu innflytj- endayfirvalda. Lise hefur borist njósn af þessu, því að hann var ekki fyrr kominn í biðstofuna fyrir framan skrifstofuna en Lise birtist ásamt dómarafulltrúa og vottum. Áður en verðir gætu brugðist við, hafði lögleg hjónavígsla farið fram á frönsku. Lemay var færður aftur í fang- elsið. Næstu mánuði var reynt að fá hann framseldan til Kanada, sem hann þæfðist fyrir með hjálp lög- fræðinga sinna. Varnaglar í lög- gjöf, sem eru slegnir til þess að heiðarlegt fólk verði ekki fyrir óþægindum, voru óspart notaðir til þess að tefja eða helst hindra flutn- ing á Lemay norður til Kanada. Þar kom, að Lemay slapp úr ör- yggisklefa sínum, 21. september 1965. Klefinn var á annarri hæð fangelsins. Honum tókst að komast óséður út úr honum og eftir gangi að lyftudyrum. Hann fór með lyft- unni upp á áttundu hæð, braut þar rúðu og renndi sér rúma 27 metra niður á jafnsléttu eftir rafmagns- streng á húshliðinni. Þar beið bíll eftir honum. Með honum hvarf Lemay út í bláan buskann. Fangels- isyfirvöld og lögregla töldu annað óhugsandi en að fé hefði verið bor- ið á einhveija til þess að gera slík- an flótta framkvæmanlegan. Nú leið tæpt ár, án þess að nokk- uð spyrðist til þijótsins. Þá var það, 19. ágúst 1966, að glöggum manni sýndist honum bregða fyrir inni í Gullmolanum (Golden Nug- get), sem er stór spila- og skemmti- staður í Las Vegas í Nevada. Hann lét lögreglu vita, og innan skamms þustu fulltrúar FBI-alríkislögregl- unnar inn. Þeir gripu í tómt, en skömmu síðar tókst þeim að hafa upp á dvalarstað hans og handsama hann þar. Hann notaði nafnið Rob- ert G. Palmer og var með tíu þús- und bandaríska og kanadíska dali á sér. í handtökuákærunni var hann meðal annars borinn þeim sökum að hafa borið fé á fangaverði í Flórída og að dveljast ólöglega í Bandaríkjunum. Hann var _að lokum framseldur til Kanada. í Montreal var hann ákærður fyrir bankaþjófnað 1961. Réttarhöld drógust á langinn, því að Lemay og lögfræðingar hans báru sífeilt fram ný málskot og gagnákærur. Dómur var ekki felld- ur fyrr en 17. janúar 1969, og var Lemay dæmdur til átta ára fangels- isvistar fyrir þjófnaðarsamsæri og innbrot. Hann áfrýjaði málinu til æðra dómstigs, en þar var dómur- inn staðfestur. í janúar 1970 höfð- aði Lise, eiginkona hans, skilnaðar- mái á hendur honum á þeim for- sendum, að „hann vildi ekki lengur lifa með henni og neitaði að gegna hjúskaparskyldum sínum“. Lemay var látinn laus árið 1975. Nokkru síðar var hann handtekinn í íbúð í Montreal, grunaður um aðild að þjófnaði. Grunsamleg áhöld fundust í íbúðinni. Við yfirheyrslur sannaðist ekkert á hann, svo að óyggjandi þætti, og var honum því sleppt lausum. Til hans hefur ekk- ert spurst síðan. Aldrei hafðist upp á nokkru af því, sem stolið var úr bankanum 1961, nema hvað nokkur pör af verðmætum eyrnalokkum fundust í fórum einnar vinkvenna hans. Hún sagði, að Lemay hefði gefið henni gripina í tryggðapant. • MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARZ 1992 C 21 Til sölu Nissan Pathfinder2,4, árgerð 1989. Verð 1.850.000. Góð greiðslukjör Upplýsingar gefur Bílasalan Start (skuldabréf). í sfma 684878. Sjóvá - Almennar. Nýtl simanúmer Skrifstofa RANNSÓKNARÁÐS RÍKISINS hefur fengið nýtt símanúmer. Nýja númerið er 621320 V / Nú er komið að því að velja fermingagjöfina í ár, Heimilistæki hf. býður nú sem endranær upp á fjöl- margar og skemmtilegar lausnir. PHILIPS er brautryðjandinn í gerð geislaspilara; gæði, frágangur og útlit í sérflokki. - ÞÚ GETUR TREYST PHILIPS - VERÐ 59.900, STGR PHILIPS hljómtækjasamstæða. Frábærlega skemmtilegt tæki. Nýtt útlit, litil og nett en iiefur alla þá kostisem „topp græjur" þurfa aðhafa. Styrkurinn er 2x30W+20W. Magnarinn með 5 banda tónjafnara og grafiskum skjá. Ofan á er geislaspilari með mótordrifnu loki. Tvöfalt snældutæki og „Digital" útvarp með 20 stöðva minni. Tveir tveggja-átta hátalarar ásamt sjátfstæðum bassa „ Woofer". Þráðlaus fjarstýring. Meiriháttari! STGR PHILIPS HS 255 rakvélin fyrir ungu mennina. Með tveimur fjaðrandi hnifum. Bæði fyrir 110 og 220 volt. (Einnig fáanieg með hleðslurafhlöðu). STGR PHILIPS 14 tommu litasjónvarp. Hágæða litaskjár. Fjarstýring. Sjálfleitari, og góður hljómur. STGR STGR SPOOLIES hárrúllur frá PHILIPS. Hitna á 10 mínútum, auðveltaðvefjahárinuummjúkarúlluna. Liðar hárlð á örskömmum tima. PHILIPS AQ 5190 steríó útvarp og segulband. Handhægt og létt. Sjálfvirk upptökustilling. 8 watta magnari. Innbyggður hljóðnemi. VERÐ % t00s 818, ■ STGR. VERÐ 1.990, JL STGR. VERÐ 7.348, Heimilistæki hf SÆTUNI 8 SÍMI69 15 15 ■ KRINGLUNNI SÍMI69 15 20 geislaspilar 20 laga minni. Sjálfvirkur leitari. Tímastillirmeðminni. Fullkominfjarstýring. Góður spilari á frábæru verði. SUPERTECH vasadiskó, hljómur. steríó heyrnartæki, góður VERÐ PHILIPS steríó hljómtæki. Þetta stórkostlega tæki hefur upp á margt að bjóða þ.e. geislaspilara, kassettu- tækiog fullkomiSútvarp með sterió FM. Styrkurinn er40 wött úr tveimur stórum hátölurum. Heil hljómtækjasam- stæða. VERÐ 4.450, "T STGR. PHILIPS Hipp hopp steríó vasadiskó með útvarpi. Hraðspólun i báðar áttir, sjálfvirkur stoppari. FM sterió. Bassa og hátíðnistilling. Létt heyrnartæki. PHILIPS HP 4320 hárþurrka, litil, létt og fervel i hendi. Blæs oggreiðirhárið um leið og hún dreifirlóftinu jafnar en hefobundnar hárþurrkur. Traust þjónusta í 30 ár. SUPERTECH Digital vekjaraklukka með 24ra stunda stillingu á vekjara. Endurtekur hringinguna, fyrir þá sem sofa fast. PHILIPS útvarpsklukkan. Þessi býryfir mörgum kostum. Næmtútvarp. Vekurtvisvarmeðútvarpiog/eða suðandi tóni. Öðruvisi stillihnappar, nýjung frá Philips. PHILIPS ferðaútvarp. GóðurmóttakaríáAMog FM. Góður hljómur, öðruvisi hönnun. Eisa EUROCARD munXlán

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.