Morgunblaðið - 22.03.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.03.1992, Blaðsíða 13
MQJtGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARZ 1992 C 13 hnekkja áralangri hefð MR í að framleiða ljóðskáld handa þjóðinni. Við forðuðumst allan tímann að láta höndla okkur og tókum gjör- samlega alvarlega það sem við vor- um að gera. Við vorum það ídíódísk- ir að það var ekki hægt að hanka okkur á því að við værum einhver ungskáld á frökkum með nefið upp í loftið. Við stungum alltaf af frá slíkum skilgreiningum með því að haga okkur eins og kjánar. Eg held að þetta hafi verið eins- konar bókmenntalegt pönk, líkt og var að gerast í rokkinu. Þar leituðu menn aftur í hráleika og frumkraft og við fórum heljarstökk afturábak yfir svíastíuna, yfir listaskáldin vondu, yfir Dag og þá og lentum á svæði sem ekki hafði verið svo mjög kannað hér. Menn höfðu skrifað súrrealískan skáldskap áður, en enginn hafði farið eins langt í því og við. Þetta var í raun nýbylgja í bókmenntum.“ Hvar er Medúsa í dag? „Þór er alltaf að semja ljóð, Jó- hanne3 er starfandi rithöfundur og að mínu mati best varðveitta leynd- armál íslenskra bókmennta. Ég efa það ekki að hann á eftir að koma þjóð sinni stórlega á óvart. Það ber mest á mér af því að ég er síkjaft- andi. Svo er það líka að ég tók þá ákvörðum 1986 að leyfa Máli og menningu að gefa út heildarsafn Ijóða minna.“ Sem var umdeilt. „Þetta er skáldskapur sem fólk á í erfiðleikum með að skilja og þannig á það að vera. I vetur varð fjölbrautaskólin fimmtán ára og aðalatriði í hátíðardagskránni var úr Medúsuskáldskap. Það sem mér fannst sætast við það, því ég er fyrir löngu búinn að gera mér grein fyrir því að það er ekkert til sem heitir að vera uppreisnargjarn lista- maður, samfélagið lítur alltaf til þín með samblandi af meðaumkvun ög viðurkenningu eftir vissan tíma, var að þarna voru fjölmargir viðstaddir, kennarar og fleiri, sem höfðu verið við skólann á þessum tíma, en voru að heyra þetta í fyrsta skipti. Á þeim tíma hafði enginn áhuga innan skólans og ég man ekki eftir neinum kennara sem sýndi minnsta áhuga á þessu skáldbrölti á þessum tíma.“ Stálnótt „Fyrsta skáldsagan kom haustið 1987, Stálnótt, sem gerist öll í Breiðholti framtíðarinnar og er til- raun til að nálgast steinsteypuveru- leikann. Stálnótt gerist einmitt á mörkum tveggja heima. Náttúruafl- ið Johnny Triumph kemur af hafi og kemur fyrir demónum í borgar- mörkunum og síðan mæta fjórir úthverfaunglingar þeim sem engl- um dauðans. Eg held að mig hafi bara langað ofsalega mikið að vita hvort ég gæti skrifað skáldsögu. Þetta er skáldsaga á jaðri þess að vera skáldsaga og ljóð. Þau eru jaðarfólk og birtast fyrst og fremst í gegnum ytra borð sitt, þ.e. jaðar sinn, og þegar þau deyja þá er það inn fyrir manneskjuna. Ég tók þá ákvörðun að helga mig ritstörfum um áramótin 1985/86; að gera ekkert annað. Annaðhvort yrði ég rithöfundur og tæki þá sjensinn á því að vera Birgitta Baby Doil Siguijón, þú átt þér líka auka- sjálf sem starfar að myndlist. „Ég hef haldið tvær myndlistar- blankur, eða ég myndi halda áfram að hafa þetta sem áhugamál. Síðan hef ég algjörlega haldið mig við ritstörf, þó ég hafi tekið að mér verkefni eins og að setja upp lista- smiðju fyrir börn.“ Andleikrit Siguijón hefur fengist við ýmis- leg fleiri skrif en skáldsagnaritun og ljóðagerð, því fyrir nokkrum árum gerði hann teiknimyndasögu í félagi við annan Medúsumeðlim og fyrsta leikrit hans frumsýndi Herranótt, leikfélag Menntaskólans í Reykjavík, 1988. „Ég tók að mér að serpja Tóm ást fyrir Menntaskólann í Reykja- vík, einskonar gamanleikrit, en það leikrit, og leikrit sem ég skrifaði fyrir Kvennaskólann er fyrir mér eitthvað allt annað en skáldskapinn. Ég lít á það nánast sem vinnu. Það er vegna þess að ég er að taka að mér ákveðin verkefni; ég er að skrifa leikrit fyrir menntaskólaleik- hús með þeim takmörkunum sem það setur. Það er fyrir mér vinna, en ég er þó ekki að gera lítið úr leikritunum; ég vandaði mig við þau eins og ég gat og ég hef mjög gam- an af því að skrifa fyrir leikhús. Ég er spenntur fyrir þeim möguleik- um sem leikhús gefur. Til að mynda skrifaði ég leikrit fyrir Nemenda- leikhúsið sem ég vann mjög alvar- lega sem leikbókmenntir, en það var ekki sett á svið. í verkinu vom klassískar persónur; bróðirinn sem vill verða skáld, geðveika systirin, móðirin á Hagkaupssloppnum, elli- ært gamalmenni, pabbinn sem er dáinn en kemur svo aftur. Þessar persónur eru allar úr leikritum sem allir þekkja. Ég var mjög meðvitað að skrifa andleikrit, sem hefði að ytri gerð öll einkenni hins íslenska heimilisdrama og markmiðið var alltaf að skrifa síðasta samfélags- lega leikritið sem skrifað yrði á ís- landi; að ganga af því dauðu. Ég hef ekkert á móti því að þjóðin sé að kýta yfir eldhúsvaskinum, en ég vil að hún haldi því út af fyrir sig. Leikritið er um litla stúlku sem flýr að heiman, vegna þess að hún -er búin að fá nóg af lífinu. Pabbi henn- ar er dáinn, raunverulega dáinn, og hún þolir ekki að lifa í fjölskyldu sem er ekki kjamaijölskylda, veit að frændi, sem er gamall vinur pabba og farinn að búa með mömm- unni, kemur ekki í stað pabbans. Hún fer því í ferðalag til þess að endurheimta pabbann og gerir það, en á meðan eru hin pikkföst í stofudramanu, geta ekki bmgðist við því að litía stúlkan er horfin, því það er ekki það sem gerast á í stofudrama. Hennar svar við vem- leikanum er barnaleikhúsið, sem hún teflir gegn þeim. Þegar þau komast að því í lokin að hún er að ná tökum á þeim með sínum barna- skap og er að njörva þau niður í sína endurtekningu fyllast þau skelfingu, en komast ekki undan því að þau eru að leika *** ***** í hundraðasta skipti og því föst í frösum og endurtekningum." sýningar. Þegar ég útskrifaðist af listasviðinu vorið 1982 hélt ég sýn- ingu á verkum sem ég hafði unnið utan skólans. Vann með gamlar Ijósmyndir sem ég hafði límt á ýmsa smáhluti. Seinni sýninguna hélt ég 1985 og sýndi þá brúður, sem ég hafði saumað. Ég hef verið með aukasjálf sem heitir Birgitta sem er mest í myndlistinni og að- eins í ljóðlistinni. Eitt sinn í ofsa- veðri var ég milli svefns og vöku að reyna að pína Birgittu til að skrifa, en hún þráaðist við og sagði: „Ég er nobody’s baby doll“ og þá sá ég fyrir mér fyrstu brúðuna. Brúðurnar voru svo nefndar eftir þekktum konum í mannkynssög- unni. Ég var reyndar með þriðju sýninguna, mjög prívat sýningu, í Liege fyrir tveimur árum. Þar sýndi ég gildrur. Ég hef líka stýrt listasmiðju fyr- ir börn i Gerðubergi sem byggist á þeirri trú að list sé afskaplega holl fyrir samfélagið og ekki síður fyrir böm. Þetta er í rauninni míní aka- demía þar sem börnin koma inn sem virkir þátttakendur og það eina sem verkstjórarnir hafa fram yfir þau er að hafa starfað eitthvað við ein- hveija list. Við eram að hjálpa börn- unum að komast í gegnum það sem kallað er bamalist, því vesalings bömin eru yfirleitt að glíma við fólk sem hefur ákveðnar skoðanir á því hvað er barnalist og eru því að uppfylla væntingar þess. Fólki finnst að bamalist sé mynd af bami fneð rauða blöðra og sól í heiði, en við viljum vinna lengra og hætta ekki fyrr en þetta verður að list. Það era tveir menn í mér. Það er annars vegar rithöfundurinn sem vill skrifa bækur sem hafa ekki áður verið skrifaðar á þessu landi og er oft óþekkur og gerir hluti sem ekki má gera, en hins vegar er ég þessi maður sem á svo afskaplega gott með að vinna með böm og kann það af einhverjum ástæðum." „Bestseller“ Er önnur skáldsaga væntanleg? „Ég hef verið að vinna að skáld- sögu í rúmt ár með hléum. Ég er svo illa gefinn að ég held alltaf að ég sé að skrifa bestseller og þegar það svo kemur í ljós að þjóðin hleyp- ur ekki til, faðmar hinn unga snill- ing að sér og kaupir bókina í þús- undatali verð ég alltaf jafn hissa. Ég er að skrifa bestseller eins og ég get best, en ég skrifa á þann eina hátt sem ég get. Ég hef skrif- að sáralítið af ljóðum undanfarið, þó það hafi komið út óskiljanleg ljóðabók, Ég man ekki eitthvað um skýin, fyrir stuttu, vegna þess að mér finnst skáldsagan gefa mér svo miklu meira frelsi. Fyrir utan það er skáldsagan heilög kýr á íslandi. Það er búið að ganga svo á ljóð- forminu og ég myndi fagna því ef það kemur einhver fram og sýnir að það sé hægt að bijótast út úr þessari rauðvínskertarómantík. Skáldsagan er aftur á móti heilög kýr; íslendingar vilja sína epík og engar reflar. Þetta er því sá vett- vangur sem ég get unnið mestan skaða á í augnablikinu.“ TískuSjón Þú er gjaman talinn tóngjafi í tísku, tónlist og bókmenntum. „Ég held að ég setji engar lfnur. Ég held að það sé misskilningur, ég skil ekki af hveiju fólk heldur það. Hins vegar gæti einföld útskýr- ing á því verið sú að ég er kannski svolítið áberandi og fólk tekur kannski eftir einhveijum straumum sem margir era að fást við hjá mér því ég er svo sýnilegur. Til að mynda stældi ég Einar Örn í mörg ár í klæðaburði og var þá best klæddi maður bæjarins, svo hætti ég því og lenti í 7. sæti á lista yfir verst klæddu menn landsins. Ég er í rauninni svolítill samtíningur úr því sem margir eru að fást við. persfiiuriar s i fin, h i r gif t a og johnny triumph

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.