Morgunblaðið - 22.03.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.03.1992, Blaðsíða 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARZ 1992 AF SPJOLDUM GLAPASÖGUNNAR Hann var M\ Mðfur og svikari, - og ef tii vill líka morðingi. Hvar er iiann ni? ÞAÐ ER óhugnanlega algengt í glæpasögunni, aö viss tegund glæpamanna hafi til að bera ytri glæsimennsku, lipran talanda og persónutöfra, svo að flestir láta heillast af þeim, jafnvel þeir, sem vita, að viðkomandi hefur eitt- hvað óhreint í pokahorninu. Þeir komast oft lengra á glæpabraut- inni- en aðrir, og þegar í nauðir rekur, virðast þeir alltaf hafa eignast nóga vini til þess að skjóta skjólshúsi yfir þá og hjálpa þeim til að fara í felur fyrir rétt- visinni. Þótt þeir umgangist kon- ur í raun eins og óæðri dýrateg- und, falla þær unnvörpum fyrir öruggri framkomu þeirra, skjall- mælum og skartgripagjöfum. Þær látast ekki vita um hrotta- legan viðskilnað þeirra við fyrri vinkonur og eiginkonur, þó að þeim sé fullkunnugt um það, og virðast reiðubúnar til að trúa því í hvert skipti, að þær séu „fyrsta, stóra ástin“ í lífi hans; hitt hafi allt verið „misskilningur“. Hér segir frá einum slíkum. Síðast spurðist til hans árið 1975, en hann gæti enn verið á ferli ... Ianadamaðurinn Georges Lemay er talinn fæddur árið 1926. Hann hefur gengið undir ýmsum nöfnum um dagana, svo sem René Roy og Robert G. Palmer. Ekki er vitað, undir hvaða nafni hann dylst núna eða hvar hann dvelst. Ungur bjó hann hjá móður sinni og vann í fasteignasölu hennar, „Immeubles Demers". Hún var af frönskum ættum og kaþólsk, og hana langaði til þess, að sonurinn yrði prestur. Hann virtist einnig hafa hug á því og fór í prestaskóla. Fljótlega bar á því, að hann sýndist aðeins hafa áhuga á þrennu: Utilífi, peningum og glaumgosalífi. Hann fór aftur að vinna hjá móður sinni, en stundaði einnig kaup og sölu fyrir eigin reikning: Brátt varð hann þekktur í skemmtana- og næturlífi í Montreal, þar sem um 67% íbú- anna eru frönskumælandi. Hann stundaði marga næturklúbba, eink- um „Montmartre“, þar sem hann varð þekktur fyrir að ná stúlkum af boðsherrum sínum. Hann átti auðvelt með að koma sér í mjúkinn hjá fólki með málskrafi sínu, glæsi- leika og skemmtilegu viðmóti. Kvenfólk féll unnvörpum fyrir hon- um. Dálkahöfundur, sem sá um slúðursöguburð úr samkvæmislíf- inu, skrifaði þannig um hann í dag- blað sitt. „Þótt hann kunni að vera vafasamasti ónytjungur í bænum, er samt ekki hægt annað en að láta sér líka við hann.“ Um helgar stundaði hann útilíf og dvaldist þá venjulega í bústað, sem hann hafði byggt sér í fjöllunum fyrir norðan borgina. Þótt hann væri flest kvöld virkra daga í næturklúbbum, drakk hann og reykti lítið sem ekkert. Oft flaug hann til Las Vegas og Kúbu, þar sem hann hékk sólar- hringum saman inni í spilavítunum, en sjaldan sást hann spila sjálfur. Hann virtist aðeins sækjast eftir samvistum við fólkið, sem þar var. Raunverulegar ástríður hans voru hraðskreið farartæki: Bílar, flugvél- ar, seglbátar og vélbátar. Fram til ársins 1961 hafði hann sjaldan átt í útistöðum við lögregl- una og aldrei alvarlegum, nema þá helst, þegar fyrsta konan hans, Huguette Daoust, hvarf. Lemay hafði aldrei bundist neinni konu til lengdar, þótt hann hefði staðið í ótal samböndum og jafnvel búið með sumum um stundarsakir. Það var ekki fyrr en vorið 1951, að hann vildi kvænast. Móður Hugu- ette var hjónabandið á móti skapi, en einkum var bróðir hennar, Raymond Daoust, því andvígur. Hann var þekktur lögfræðingur með sakamál að sérgrein og hafði illan bifur á tilvonandi mági sínum, án þess þó að geta fært nokkuð sérstakt fram. Þrátt fyrir andstöðu mæðginanna, gekk Huguette í hjónaband með honum 19. maí 1951, og síðan héldu þau í brúð- kaupsferð til Flórída. Þá þegar kom í Ijós, að hann var svo einþykkur, að nálgaðist einæði. Veröldin átti að snúast um einn miðpunkt, Georges Lemay. Annað gat hann ekki skilið. Það má því nærri geta, að venjulegt hjónaband hentaði honum illa. Honum þótti það óþol- andi skerðing á frelsi sínu. Þau sneru aftur til Montreal úr brúð- kaupsferðinni, og nú fór að koma í ljós, að lundemi hans var ekki eins Ijúft og sýnst hafði fram til þessa. Hann hafði hingað til þótt skapstillingarmaður, en nú braust skapofsi hans stundum upp á yfír- borðið, svo að jaðra þótti við ofbeld- ishneigð. Huguette fannst hann ekki taka mikið tillit til sín í einu eða neinu, og olli það æ oftar deilum þeirra, sem orðið gátu að orðljótum rifrildissennum. Milli jóla og nýárs 1951 ákváðu þau að endurtaka brúðkaupsferðina í þeirri von að bæta hjónabandið. Huguette sagði bróður sínum, að þau ætluðu að ræða í einlægni um misklíðarefni sín og væru staðráðin í að komast að varanlegu samkomulagi, því að þegar öllu væri á botninn hvolft, tengdi þau fleira saman en sliti þau í sundur. 4. janúar 1952 óku þau í burtu frá gistihúsi sínu í Flórída og ætluðu að veiða fisk í lækjum og tjömum. Um kvöídið kom Lemay einn til baka og var í miklu upp- námi. Hann sagði, að þau hefðu verið að veiðum, þegar Huguette kvartaði undan því, að sér væri ekki nógu hlýtt. Hún hefði því snú- ið aftur að bifreið þeirra, sem stóð nokkurn spöl frá veiðistaðnum, og ætlað að klæða sig betur. Hún hefði ekki komið til baka, og þegar hann hefði farið að svipast um eftir henni, hefði hann hvergi getað fundið hana. Fregnin af hvarfí hennar kom bæði í bandarískum og kanadískum blöðum og þótti meira en lítið dular- full. Mikil leit fór fram, en hún bar engan árangur. Rannsóknardóm- stóll í Flórída úrskurðaði að lokum, að Huguette Lemay væri „líklega látin, og ef svo er, hlýtur dauða hennar að hafa borið að höndum með óeðlilegum hætti“. Landslagi var þannig háttað þama, að líkið hefði átt að fínnast, hefði hún orðið bráðkvödd. Lemay hélt fast við það í framburði sínum, að hann væri með öllu grunlaus um það, hvernig hvarf hennar hefði orsakast. Ákæra var ekki lögð fram á hendur honum. Bandarísk yfírvöld í innflytjenda- máium stefndu honum hfns vegar á fund sinn, þar sem honum var gert að sæta yfirheyrslu, en að henni lokinni hugðust yfírvöld ákveða, hvort hann fengi leyfi sitt til þess að heimsækja Bandaríkin endurnýjað, hygðist hann koma þangað aftur. Leamy sinnti ekki stefnunni. Þar með var sjálfkrafa kveðinn upp opinber úrskurður um það, að honum væri ekki heimilt lengur að koma til Bandaríkjanna. Leit að líkinu bar engan árangur, þótt yfirvöld og bróðir Huguette Buið að Lemay. handtaka Séð niður úr glugganum á sjöundu hæð sem Lemay slapp út um frá fangelsi Dade-sýslu í Miarni árið 1965. Kanadíski innbrotsþjófurinn Georges Lemay og kona hans Lisa Lemieux. Mynd af Georges Lemay birtist í sjónvarpinu og leiddi það til handtöku hans. Lisa Lemieux giftist Lemay í fangelsinu. kostuðu miklu til hennar. Næstu níu árin kom nafn hans nokkrum sinnum við sögu í lögregl- uskýrslum, en aldrei var hann þó sakaður um glæpsamlegt athæfí, þó að litlu munaði stundum. T.d. lagði stúlka, sem verið hafði vin- kona hans, fram kæru árið 1954. Hún bar það á hann að ógna sér þráfaldlega og hræða sig til hlýðni, eftir að upp úr sambandi þeirra slitnaði. Þegar til átti að taka, vildi stúlkan ekki bera vitni gegn honum, svo að málið féll niður. 15. júlí 1957 var hann sektaður fyrir að hafa byssu undir höndum án leyfis. Hann viðurkenndi brot sitt og greiddi sektina, 25 kanadíska doll- ara. Grunur féll á hann vegna morðs á rúmenskum innflytjanda, húsa- málaranum Larry Petrov. Hinn mýrti beið þess að koma fyrir rétt vegna aðildar að smygli á eiturefn- um. Ekki þóttu nægilegar sakir verða sannaðar á Lemay, til þess að unnt væri að leiða hann fyrir rétt, og féll svo það mál niður. Þegar hann var 35 ára, braust hann inn í banka ásamt hópi aðstoð- armanna. 1. júlí 1961 brutu þeir sér leið^nn í útibú „Bank of Nova Scotia" í Montreal með því að bora í gegnum steinsteypta loftplötu og veggi. Leamy hafði komið sér fyrir í húsi handan götunnar og stjórnaði innbrotinu þaðan með fyrirskipun- um í talstöð. Þjófarnir létu greipar sópa í 377 bankahólfum í öryggis- hvelfingu undir bankanum. Þeir stálu seðlum og mynt, skartgripum og auðseljanlegum verðbréfum, samtals að virði 633.605 Kanada- dollara. Þetta var mesti þjófnaður úr banka í sögu Kanada fram til þessa, og fyrst í stað stóð lögreglan ráð- þrota. Þar kom, að grunur féll á Lemay, og misseri eftir innbrotið töldu yfírvöld sig hafa nóg í hönd- unum til þess að fyrirskipa húsrann- sókn í fjallabústað hans og hneppa hann jafnframt í varðhald til yfír- heyrslu. Lemay var ekki í bústaðn- um, en við leit fundust tvö þúsund bandarískir dalir, sem faldir höfðu verið á bak við gerviþil í fatabúri í svefnherbergi hans. 8. janúar 1962 lýsti lögreglan i Montreal eftir Georges Lemay, og ákæra fyrir innbrot og þjófnað var birt. Lög- reglan vissi, að Lemay hafði yndi af að dveljast á suðrænum slóðum, svo að mynd af honum ásamt hand- tökuúrskurði var dreift í Mið- og Suður-Ameríku auk venjulegra auglýsinga í bandarískum og kanadískum lögreglustöðvum. Hálfum mánuði síðar fréttist af 42ja feta skútu í höfn í Miami, sem Montreal-lögregluna grunaði, að Lemay hefði siglt á frá Monteal, 2400 mílur. Um sama leyti þóttist lögreglan vita, hveijir hefðu staðið að bankainnbrotinu ásamt honum, og handtóku tvo menn, Jacques LaJoie, 37 ára, Roland Primeau, 35 ára, og Lemieux-systkinin þijú: André, 27 ára, Yvon, 19 ára, og Lise, sem seinna giftist Lemay. LaJoie, Primeau og Lemieux-bræð- umir voru ákæi-ðir og dæmdir til fangelsisvistar. Lise, sem einnig var ákærð, reyndist samvinnuþýð. Hún játaði á sig aðild að innbrotinu og fékk fangelsisdóm, sem var jafn- langur varðhaldssetunni. Henni var því sleppt lausri, þegar dómur hafði verið upp kveðinn. Leitinni að Lemay var enn haldið áfram. í maí 1965 notfærði lögregl- an sér nýja tækni. Kanadíska ridd- aralögreglan sendi myndir af Lemay og öðrum glæpamönnum um gérvihnött til sjónvarpsstöðva, sem voru farnar að hafa reglulega þætti um eftirlýsta bófa. Bátasmiður nokkur í Fort Lauderdale í Flórída hafði skroppið yfír götuna frá verk- stæði sínu, til þess að fá sér kaffi í nálægum veitingastað. Þar var þá einmitt verið að sýna í sjónvarp- inu mynd af manni, sem smiðurinn kannaðist við undir nafninu René Roy. Þessi Roy hafði búið í hálft ár í 43 feta lystisnekkju, sem legið hafði fyrir akkerum í skipakví í Bahia Mar. Smiðurinn hringdi þeg-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.