Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992 Björn Bjarnason um utanríkismál: Forusta í EB-málum til forsætisráðherra „ÉG er ekki frá því að við nýtum okkur heimild til vínveitinga um borð í nýja Herjólfi þegar þar að kemur, enda verður öll að- staða um borð til þess,“ sagði Magnús Jónasson, framkvæmda- stjóri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs, þegar hann var inntur álits á ákvæði í frumvarpi til breytinga á áfengislögum, um að heimilt verði að veita leyfi til áfengisveitinga um borð í far- þegafeijum. Magnús sagði að ekki hefði verið hugað að því sérstaklega að fá vín- veitingaleyfi um borð í nýja Herj- ólf, sem hefur siglingar milli lands og Eyja í júní, en áhugi hjá fyrir- tækinu að kanna það þegar þar að kæmi. „Ég gerði mér ekki grein fyrir að lagabreytingu þyrfti til fyrr eh ég las frétt um þetta frumvarp, en sá möguleiki hafði verið ræddur að vera með vínveitingar um borð í nýja Heijólfi," sagði hann. „Þar verða tvær greiðasölur og öll að- staða til að bjóða upp á bjór og léttvín, sem líklegt er að mesta áherslan yrði lögð á. Ég er því ekki frá því að við nýtum þennan mögu- leika um borð í nýja skipinu, enda held ég að þróunin sé í þá áttina,“ sagði Magnús Jónasson. ------» ♦ ♦----- Asiaco hf. fær greiðslustöðvun ASIACO hf hefur verið veitt greiðslustöðvun til tveggja mán- aða í skiptarétti Reykjavíkur frá og með síðasta þriðjudegi. Að sögn Baldvins Iiafsteinssonar hdl, tilsjónarmanns fyrirtækisins er nú verð að fara yfir mál fyrirtækisins og meta stöðuna. Hins vegar sagði hann ekki ákveðið hvernig staðið yrði að þeirri fjárhags- legu endurskipulagningu sem gert er ráð fyrir að fram fari á meðan greiðslustöðvun stendur yfinen unn- ið yrði að því í samráði við lánar- drottna. Ekki náðist í Pál Þorgeirsson, framkvæmdastjóra Asiaco, í gær en á hann vísaði Baldvin spurningum um fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Morgunblaðið/Júlíus Slasaðist í umferðaróhappi Alvarlegt umferðarslys varð er unglingur hljóp fram fyrir strætisvagn og í veg fyrir jeppa við skiptistöð SVR við Grensásveg í gærkvöldi. Að sögn lögreglu var hinn slasaði fluttur á Slysadeild Borgarspítalans og þaðan í aðgerð. Fjármál fjölskyldunnar GERA má ráð fyrir að fjög- urra manna fjölskylda sem kaupir þær tryggingar sem talsmenn tryggingafélaga telja henni nauðsynlega tryggingavernd, greiði á annað hundrað þúsund í tryggingaiðgjöld árlega, séu skyldutryggingar 2 bifreiða meðtaldar og gert ráð fyrir að búið sé í eigin húsnæði. Þetta kemur m.a. fram í umfjöllun um tryggingamál í Fjármálum fjölskyldunnar, sér- blaði sem fylgir Morgunblaðinu í dag. Þá er ennfremur fjallað um fjármál unglinga og skiln- ing barna á peningum og stöðu lífeyrissjóða í framtíðinni. Sjá blað C BJÖRN Bjarnason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi við umræður um skýrslu utanríkisráðherra á Alþingi í gær hvernig stað- ið væri að skýrslugerð um utanríkismál. Samræma þyrfti sjónarmið þeirra sem störfuðu saman í ríkisstjórn á hverjum tíma, þannig að þeir sem stæðu utan ríkisstjórnar þyrftu ekki að spyrja livort skoða bæri skýrsluna sem stefnu ríkisstjórnar eða ekki. Hann sagði einnig að það væri spurning hvort athugun á stöðu Islands og Evrópubanda- lagsins ætti ekki að heyra undir forsætisráðuneytið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Menntskælingar á útitónleikum Nemendafélag Menntaskólans við Sund stóð fyrir útitónleikum á skólalóðinni í gærkvöldi í tilefni vorsins, sem lá í loftinu. Fögnuðu nemendur þessari uppákomu og klæddust nokkrir trúðsbúningum og stigu villt- an dans fram eftir kvöldi. ' EIGNARHALDSFÉLAG Verslunarbankans hf. fékk tvo menn kjörna í stjórn á aðalfundi íslenska útvarpsfélagsins hf. í gær. Ljóst er að breyting hefur orðið á valdahlutföllum í stjórn félagsins eftir stjórn- arkjörið á aðalfundinn. Að sögn Jóhanns J. Ólafssonar stjórnarformanns var Jóhann Óli Guðmundsson kjörinn varaformað- ur að tillögu Jóns Ólafssonar, sem var varaformaður áður. Gunnsteinn Skúlason gekk úr stjórn og tók Pétur Guðmundarson hæstaréttar- lögmaður sæti hans. Kemur Pétur inn í stjórnina sem annar fulltrúi Eignarhaldsfélags Verslunarbank- ans en Páll Kr. Pálsson, forstjóri, :f „Enéghéltað •s værum tryggð... var þar fyrir af hálfu félagsins. Við stjórnarkjörið var viðhöfð margfeldiskosning að kröfu Eignar- haldsfélagsins og Stefáns Gunnars- sonar stjórnarmanns. í kjöri til stjórnar Islenska útvarpsfélagsins á fundinum voru auk Jóhanns J. og Jóhanns Óla, þeir Jón Ólafsson, Haraldur Haraldsson bornir upp af Fjölmiðlun sf., Páll Kr. Pálsson og Pétur Guðmundarson, fulltrúar Eignarhaldsfélagsins, og Stefán Gunnarsson, fulltrúi svonefndra Valsara. Auk þeirra var Sigurður G. Guðjónsson borinn upp af Fjöl- miðlahópnum í kjöri. í stjórnarkjörinu féllu atkvæði þannig: Háraldur Haraldsson fékk atkvæði sem svöruðu til um 470 milljóna hlutafjár, Stefán Gunnars- son 452,5 milljónir, Jóhann Óli Guðmundsson 451,5 milljónir, Jó- hann J. Ólafsson 446,8 milljónir, Jón Ólafsson 446,8 milljónir, Páll Kr. Pálsson 444,7 milljónir, Pétur Guðmundarson 444,6 milljónir. Mynda þessir sjö aðilaí- því stjórn- ina. Sigurður G. Guðjónsson fékk hins vegar 443,2 milljónir. Varamenn í stjórn eru Skafti Harðarson, Gunnsteinn Skúlason, Ásgeir Bolli Kristinsson, Sigurður G. Guðjónsson, Guðjón Oddsson, Heijólfur hf: Áhugi á að veita vín í nýju ferjunni verið forseti og forsætisráðherra Finnlands sem hefðu undirritað að- ildarumsókn Finnlands að EB. Og í Noregi hefði forsætisráðuneytið for- ystu um að kanna breytta stöðu og þær afleiðingar sem hún hefði. Sjá fréttir af umræðum á Al- þingi á bls. 35. ------♦ ♦ ♦---- Bónus og 11-11: Verðkannanir takmarkaðar við tvo daga VERSLANIRNAR Bónusog 11-11 hafa óskað eftir því við stórmark- aðina Hagkaup og Miklagarð að verðkannanir á þeirra vegum verði framvegis einungis á mánu- dögum og þriðjudögum. Verslunarstjórar í Bónus og 11-11 telja að verðkannanir stórmarkað- anna trufli viðskiptin og þess vegna er óskað eftir að þær fari fram fyrri hluta vikunnar. Að sögn Björns Ingi- marssonar, framkvæmdastjóra Miklagarðs, hefur verið óskað eftir því að verðkönnun þeirra Bónus- og 11-11-manna í Miklagarði fari einn- ig fram þessa sömu daga. Öryggisverðir í Miklagarði vísuðu verðkönnunarmönnum frá Hag- kaupum á dyr í gær, en Björn sagði að þar hefði verið um misskilning að ræða, sem hafi verið leiðréttur. Samstarf Miklagarðs og Hagkaupa hafi ávallt verið gott, enda erfitt að halda vöruverði leyndu. ------♦ ♦ ♦---- Tveir sinubrun- ar í Fossvogi SLÖKKVILIÐIÐ var tvisvar kall- að út í gærkvöldi vegna sinubruna í Fossvogsdainum. Fyrra útkallið kom um kl. 22 og hið síðar skömmu seinna. Samkvæmt upp- lýsingum frá slökkviliðinu logaði töluverður eldur á svæðinu í bæði skiptin. Sinubrunarnir voru austarlega í Fossvogsdalnum og í fyrra skiptið hafði verið kveikt í nálægt gróðrar- stöð. Auk þessar útkalla voru tvö önnur útköll vegna sinubruna í gær- kvöldi, bæði nálægt Árbæjarsafni. Björn sagði að samkvæmt hefð væri skýrslan að nokkru leyti upp- rifjun staðreynda. En að svo miklu leyti sem um stefnumótandi atriði væri að ræða þyrfti að halda þannig á málum að um þau væri rætt í ríkis- stjórn og helst í stjórnarflokkunum einnig. Ennfremur hlyti sú spurning að vakna hvort ekki væri ástæða til að taka þessa skýrslu til umræðu í utanríkismálanefnd áðut' en hún væri rædd í þingsalnum. Varðandi það hvernig staðið væri að könnun á stöðu íslands og Evr- ópubandalagsins væri spurning hvort slíkur málatilbúnaður ætti ekki að vera undir forystu forsætisráðu- neytisins eins og í öðrum löndum. Það væri athyglisvert að það hefðu Breyting á valdahlutföllum í stjórn Isl. útvarpsfélagsins Skarphéðinn Þórisson og Rafn Johnson. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins kom Eignarhaldsfélagjð seinni manni sínum inn í stjórnina með samstarfi við Jóhann Óla Guð- mundsson og Stefán Gunnarsson og félaga þeirra. Jóhann Óli Guð- mundsson hefur verið samheiji Jó- hanns J. Ólafssonar, Haralds Har- aldssonar og Jóns Ólafssonar í Fjölmiðlun sf. en með samstarfi hans við fulltrúa Eignarhaldsfé- lagsins og Valshópinn svonefnda í stjórnarkjörinp í gær er augljóst að breyting hefur orðið á valdahlut- föllum innan stjórnarinnar enda þótt stjórnarmenn sem Morgun- blaðið ræddi við í gær vilji ekki ganga svo langt að segja að beinlín- is sé orðinn til nýr meirihluti í stjórn íslenska útvarpsfélagsins. Þannig sagði Jóhann J. Ólafsson í samtali við Morgunblaðið að Fjölmiðlun hefði eftir sem áður meirihluta innan stjórnarinnar en það skipti ekki lengur öllu máli þar sem allir stjórnarmenn hefðu fyrst og fremst hagsmuni og heill félags- ins að leiðarljósi. í i I i í I I I \ i I I I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.