Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992
íslandsbanki:
Fjöregg hf.
tekur við
rekstri ali-
fuglabúsins
BÚIST ER VIÐ að í dag, fimmtu-
dag, verði skrifað undir samning
um kaup Fjöreggs hf. á fasteign-
um í Sveinbjarnargerði á Sval-
barðsströnd, af íslandsbanka. Þá
verður væntanlega einnig gerður
lejgusamningur við Fjöregg um
bústofninn.
Árni Pálsson lögmaður íslands-
banka sagði að málið væri nokkurn
veginn frágengið og væri reiknað
með að frá kaupum Fjöreggs hf.
yrði gengið í dag.
Alifuglabúið Fjöregg í Svein-
bjamargerði var lýst gjaldþrota í
júní í fyrra og keypti Islandsbanki
hluta fasteigna á uppboði sem
fylgdi í kjölfarið. Frá því um miðjan
desember hefur bankinn einnig átt
» allan bústofn og lausafé og hefur
hann verið að reyna að selja þessar
eignir.
Að Fjöreggi hf. standa þau Anny
Larsdóttir og Jónas Halldórsson
auk fleiri aðila, en þau áttu og ráku
alifuglabúið fram að gjaldþroti.
-----*—*—*---
Alþýðusamband
Norðurlands:
Fundur um
stöðuna í
kjaramálum
STAÐAN í viðræðum um nýjan
kjarasamning verður rædd á
fundi sem Alþýðusamband Norð-
urlands hefur boðað til í Alþýðu-
húsinu á Akureyri á morgun,
föstudag.
Á fundinum kemur miðstjórn
AN, sambandsstjórn og varasam-
bandsstjórn saman og fer yfir stöð:
una í kjarasamningaviðræðum. I
þessari viku hafa verið haldnir
fundir í hinum ýmsu félögum sem
aðild eiga að Alþýðusambandi
Norðurlands og verða þau viðhorf
sem þar hafa komið fram kynnt auk
þess sem reynt verður að meta
stöðu mála og næsta skref.
Spurningakeppnin Gettu betur:
Spila ólsen-ólsen og mæta í sömu fötunum
MA-INGARNIR Finnur, Magnús og Pálmi spila ólsen ólsen, en
VMA-ingarnir Pétur og Rúnar mæta til leiks í sömu fötunum;
það þykir í lagi þó Skafti skipti um föt. Það verður mikill slagur
í íþróttahöllinni á Akureyri annað kvöld, föstudagkvöld, þegar
fulltrúar framhaldsskólanna í bænum, Menntaskólans á Akureyri
og Verkmenntaskólans á Akureyri, keppa til úrslita í spurninga-
keppni framhaldsskólanna, Gettu betur, sem sýnd verður í beinni
útsendingu í Sjónvarpinu. Og að sjálfsögðu fylgir ákveðin hjátrú
keppni sem þessari, þannig er MA-ingum nauðsynlegt að spila
ólsen og VMA-piltar leita að sokkunum sem þeir klæddust í síð-
asta þætti.
Lið Menntaskólans á Akureyri
fór með sigur af hólmi í keppn-
inni í fyrra, en í því eru þeir Finn-
ur Friðriksson, Magnús Teitsson
og Pálmi Óskarsson. Þeir félagar
voru í gær að bera saman bækur
sínar á heimili Finns. „Keppnin
leggst bara vel í okkur og að sjálf-
sögðu stefnum við að því að
sigra,“ sögðu þeir galvaskir.
„Þessi vika hefur verið svipuð
öðrum, við höfum mætt í skólann
að venju, enda um að gera að
taka þetta ekki of hátíðlega. Mað-
ur bætir ekki svo miklu við sig á
svona skömmum tíma, þannig að
það þýðir ekkert að liggja yfir
bókum, það stressar mann bara,“
sagði Finnur.
Þeir félagar mæta nú í áttunda
sinn til keppni í sjónvarpinu og
segjast vera farnir að sjóast í því
að koma þar fram. I fyrstu hafi
tilhugsunin um að vera í sjónvarp-
inu truflað þá nokkuð, en nú snú-
ist allt um keppnina sjálfa.
Félagarnir úr liði Verkmennta-
skólans á Akureyri, Pétur Maaek
Þorsteinsson, Rúnar Sigurpálsson
og Skafti Ingimarsson, fóru yfir
spurningar úr Trivial Persuit í
aðstöðu nemendafélags skólans í
gær. Þeir sögðust hafa legið yfir
alfræðibókum eftir að þeir komust
í keppnina í sjónvarpinu, en í þess-
ari viku eru piltarnir með frjálsa
mætingu í skólann og hafa notað
tímann vel til að búa sig undir
úrslitakeppnina.
„Það fylgir því dálítil streita
að vera í sjónvarpinu, það var
þægilegra á meðan keppnin var í
útvarpinu og þá gekk okkur líka
betur, en það er gaman að þessu,“
sögðu þeir félagar og staðhæfðu
að þeir hefðu upphaflega alls ekki
ætlað að taka þátt í þessari
keppni. Hjá því hefði þó ekki ver-
ið komist, einungis fimm nemend-
ur hefðu mætt í undankeppni sem
fram fór innan skólans fyrir
keppnina. „Nú stefnum við að því
að vinna og ef allt gengur upp á
það að geta tekist," sagði Pétur.
Það er mikil stemmning í báð-
um skólum og dyggir stuðnings-
menn liðanna láta eflaust í sér
heyra.
Lionsmenn syðra styðja Gissur
GISSUR, sem er tveggja ára gam-
all Labradorhundur í eigu Daní-
els Snorrasonar, lögreglufulltrúa
hjá rannsóknarlögreglunni á Ak-
ureyri, á hauk í horni sem er Li-
onsklúbburinn Njörður í Reykja-
vík.
Gissur, labradorhundur í eigu
Daníels Snorrasonar lögreglufull-
trúa, sem Lionsmenn í Reykjavik
hafa ákveðið að „fæða og klæða“
í eitt ár.
Á félagsfundi hjá klúbbnum ný-
lega var samþykkt að veita Daníel
styrk að upphæð 140 þúsund krónur
til að halda hundinn, en áætlað er
að kostnaður við að halda hundinn
á einu ári nemi þeirri upphæð. Á
umræddum félagsfundi kom lög-
reglumaður frá fíkniefnadeild í
heimsókn til Lionsmanna og fræddi
þá um þessi mál og kom m.a. fram
í máli hans að ekki hefði fengist
viðurkenning hjá opinberum aðilum
fyrirþví að halda sérþjálfaðan „hass-
hund" hjá rannsóknarlögreglunni á
Akureyri.
Daníel Snorrason hefur sjálfur séð
um að þjálfa Gissur í frítíma sínum
auk þess að ala hann og greiða af
honum tryggingar og gjöld, enda
telur hann brýna nauðsyn á að tiafa
til taks á Akureyri þjálfaðan hund
í tengslum við fíkniefnaleit. Fíkni-
efnamálum hefur fjölgað mjög í
bænum og er augljóst að auðgunar-
bi'otum í tengslum við þau hefur
einnig fjölgað umtalsvert.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Magnús, Pálmi og Finnur í liði Menntaskólans á Akureyri.
Morgunblaðið/Kúnar Þór
í liði Verknienntaskólans á Akureyri eru þeir Skafti, Pétur og
Rúnar.
Tónleikar Fóstbræðra
KARLAKÓRINN Fóstbræður heldur sína árlegu tónleika fyrir styrktar-
félaga sína dagana 2., 3. og 4. april nk. Tónleikarnir verða haldnir í
Langholtskirkju og hefjast kl. 20.30 fímmtudaginn 2. og föstudaginn
3. apríl en kl. 17.00 á laugardeginum.
Söngstjóri kórsins er nú Ámi
Harðarson og er þetta fyrsta árið
sem hann stjórnar kórnum á tónleik-
um. Á síðastliðnu ári starfaði hann
sem æfingastjóri hjá kórnum. Undir-
leikari á tónleikunum verður Jónas
Ingimundarson píanóleikari. Hann
hefur áður starfað með Fóstbræðr-
um bæði sem stjórnandi og undir-
leikari.
Efnisskrá tónleikanna verður fjöl-
breytt að vanda, þar verða bæði flutt
innlend og erlend lög. Flutt verður
frumsamið verk, Söngvar til jarðar-
innar, eftir John Speight, sem hann
hefur samið fyrir kórinn við ljóð eft-
ir Hannes Pétursson. Einsöng í verk-
inu syngja Marta Halldórsdóttir,
sópran, og Viktor Guðlaugsson, ten-
ór. Marta er nú við söngnám í
Munchen. Viktor, sem er tónmennta-
kennari, lýkur burtfararprófi frá
Söngskólanum í Reykjavík nú í vor.
, Af öðrum innlendum lögum má
nefna lag eftir Gylfa Þ. Gíslason við
ljóð eftir Kristmann Guðmundsson
er hann orti á norsku, Sommerens
sidste blomster, þar sem Árni Jó-
hannsson syngur einsöng og lag eft-
ir Björgvin Guðmundsson, íslands
lag, þar sem Þorsteinn Guðnason
syngur einsöng. Tvö lög verða flutt
eftir Árna Thorsteinsson, Sumarnótt
og Fyrsta vordægur, og einnig tvö
lög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Töframynd í Atlantsál og Sprettur.
Meðal verka sem kórinn flytur
eftir erlenda höfunda má nefna
Dance of Gnomes eftir Edward
MaeDowell, Invocation eftir Claude
Debussy, þar sem Marta Halldórs-
dóttir syngur einsöng, og Bolero
eftir Maurice Ravel.
Þótt tónleikarnir séu fyrst og
fremst ætlaðir fyrir styrktarfélaga
kórsins verður unnt að fá miða á
tónleikana eftir því sem húsrúm leyf-
ir og verða þeir seldir í anddyri Lang-
holtskirkju fyrir hveija tónleika.
(Fréttatilkynning)
Karlakórinn Fóstbræður.
Tyrkneskur þjóðlagadjass í Gerðubergi
TYRKNESKI tónlistarmaðurinn Hadji Tekbilek heldur tónleika í
menningarmiðstöðinni Gerðubergi laugardaginn 4. apríl kl. 16.00.
Hadji leikur á tyrknesk blásturs- og strengjahljóðfæri (ney, saz og
zurna) auk altsaxófóns og flautu. Meðleikarar Hadjis á tónleikunum
verða Steingrímur Guðmundsson á slagverk og Páll E. Pálsson á
bassa. Þessir tónleikar eru þeir fyrstu í tónleikaröð þar sem leikin
verður órafmögnuð alþýðutónlist. Næstu tónleikar verða tónleikar
Kuran Swing laugardaginn 2. maí og KK-hljómsveitarinnar mánu-
daginn 18. maí.
Hadji Tekebilek fæddist í Adana er í fremstu röð tyrkneskra djass-
í Tyrklandi 1948 og hefur fengist tónlistarmanna og einnig þeirra
við tónlist frá níu ára aldri. Hann sem leggja stund á þjóðlega tyrk-
neska tónlist. Síðustu ár hefur Hadji
búið í Svíþjóð og starfað sem tón-
listarmaður hjá sænska Þjóðleik-
húsinu.
Tónleikagestum gefst einnig
tækifæri til að skoða fjölbreytta
myndlist í Gerðubergi. Ásta
Erlingsdóttir opnar sýningu í
veitingabúð Gerðubergs á laugar-
daginn og sýningu Önnu Guðjóns-
dóttir lýkur 7. apríl. Einnig eru
sýnd verk í eigu Reykjavíkurborgar
í Gerðubergi.