Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992
Hörð átök í Jóhannesarborg
Stríðandi fylkingar blökkumanna börðust með byss-
um og sprengjum í hverfinu Alexandra í Jóhannesar-
borg í gær. Bardagarnir kostuðu að minnsta kosti
þrjá menn lífið og rúmlega 30 særðust. A myndinni
má sjá bifreiðar sem kviknaði í á meðan bardagarn-
ir geisuðu.
Bandaríkin:
Slæm útreið fyrir
Clinton í Vermont
New York. Reuter.
JERRY Brown bar sigur úr býtum í forkosningum bandarískra demó-
krata í Vermont og eru úrslitin áfall fyrir Bill Clinton, sem tapaði
einnig fyrir Brown í Connecticut. Sainkvæmt skoðanakönnum meðal
kjósenda Demókrataflokksins eru þeir ánægðir með hvorugan fram-
bjóðandann og vilja gjarna fá einhvern þriðja mann í slaginn.
Brown vann mikinn sigur í Verm-
ont, fékk 47% atkvæða, og það, sem
gerði hlut Clintons sýnu verri, var,
að hann lenti í þriðja sæti á eftir
„óbundnum" atkvæðum þeirra, sem
hvorugan frambjóðandann vildu
kjósa. Voru þau 25% en Clinton
fékk stuðning 17%. í forkosningum
repúblikana vann George Bush for-
seti sinn mesta sigur til þessa, hlaut
80% atkvæða en Pat Buchanan
ekki nema 2%. 18% voru „óbundin“.
Clinton hefur mikla foiystu hvað
varðar kjörmannafjölda og hann
hefur verið að gera sér vonir um,
að góður sigur í forkosningunum í
New York næsta þriðjudag tæki
endanlega af skarið um framboðs-
mál demókráta í forsetakosningun-
um í haust. Margt bendir samt til,
að meðal demókrata séu vaxandi
efasemdir um Clinton sem forseta-
frambjóðanda. Hefur blökkumaður-
inn Jesse Jackson hvatt til, að fund-
inn verði þriðji maðurinn höfði þeir
Clinton og Brown ekki til kjósenda.
■»■ ♦ ♦
Nýfundnaland:
Aðgerðaleysi kanadísku
stjórnarinnar mótmælt
St. John’s. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
í sameiginlegri yfirlýsingu sjómanna, fiskvinnslufólks, útgerðar-
manna og fiskverkenda á Nýfundnalandi sem birt var á þriðjudag
er þess krafist að ríkisstjórn Kanada taki þegar við stjórn fiskveiða
á kanadíska landgrunninu utan 200 mílnanna.
Yfirlýsingunni var komið fyrir í
kænu rétt utan 200 mílna markanna
á Nýfundnalandsbanka. Sjö kana-
dískir togarar mannaðir fulltrúum
hagsmunaaðila í sjávarútvegi sigldu
út fyrir 200 mílurnar til að leggja
á táknrænan hátt áherslu á rétt
Kanada til að stemma stigu við
þeirri óstjórn sem ríkir við veiðar á
svæðinu. John Crosbie,' sjávarút-
vegsráðherra Kanada, -sagði á fundi
með blaðamönnum í St. John’s að
þarlend stjórnvöld myndu einskis
láta ófreistað til að koma skikk á
fiskveiðar á kanadíska landgrunn-
inu, tími yfirgangs og ofbeldisverka
væri hins vegar engan veginn kom-
inn.
Snemma á þriðjudagsmorgun
lögðu fulltrúar kanadísks sjávarút-
vegs lítilli kænu við bauju rétt utan
200 mílnanna. Kænan var skreytt
herráðsfánum allra byggðarlaga á
Atlantshafsströnd Kanada auk þess
sem yfirlýsing til kanadísku stjórn-
arinnar var lögð í kænuna. Tals-
Frakkland:
Enn mikil óvissa um
framtíð Edith Cresson
París. Reuter.
EDITH Cresson, forsætisráðherra Frakklands, átti í gær langan
fund með Francois Mitterrand Frakklandsforseta, fjórða daginn í
röð. Er talið að hún hafi reynt að fá forsetann af því að biðja hana
um að segja af sér og gefa sér í staðinn leyfi til að stokka upp í
ríkisstjórninni. Venja er að halda ríkisstjórnarfundi í Frakklandi á
miðvikudögum og var búist við tilkynningu um breytingar á ríkis-
stjórninni að honum loknum. Mitterrand ákvað hins vegar að aflýsa
fundinum.
Frönsk dagblöð, sem og heimild-
armenn innan Sósíalistaflokksins,
töldu í gær líklegt að Pierre Be-
regovoy, ráðherra efnahagsmála,
yrði næsti forsætisráðherra Frakk-
lands. Dagblaðið Le Monde sagði
hins vegar að svo virtist sem ágrein-
ingur hefði komið upp milli Be-
regovoy og forsetans er þeir hittust
á fundi á þriðjudag. „Er Mitterrand
í þann mund að skipta um skoð-
un?“ spurði blaðið í forsíðufrétt.
Svo virðist einnig sem ýmsir af
leiðtogum Sósíalistaflokksins, svo
sem Pierre Joxe yarnarmálaráð-
herra og Liónel Jospin menntamála-
ráðherra, hafi hafið herferð fyrir
því að Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópubandalags-
ins, verði fyrir valinu, þar sem þeir
telji Beregovoy ekki líklegan til að
fá almenning til að Hykkjast um
Sósíalistaflokkinn á ný. Ólíklegt
þykir aftur á móti að Delors fáist
menn aðgerðanna sögðust með
þessu vilja á táknrænan og friðsam-
legan hátt undirstrika rétt og skyld-
ur Kanada til að vernda fiskstofnana
á Nýfundnalandsbanka. Þegar kæn-
unni hafði verið komið fyrir héldu
kanadísku togararnir á veiðislóð
flota Evrópubandalagsins þar sem
reynt var að hafa áhrif á spænska
og portúgalska sjómenn með frið-
samlegum fortölum án árangurs.
Samkvæmt fréttum frá miðunum
kom bræla í veg fyrir að Kanada-
mennirnir færu um borð í eitthvert
EB-skipanna til að afhenda mót-
mæli sín.
Meðan á þessum aðgerðum stóð
flaug Crosbie sjávarútvegsráðherra
yfir skipin í einni af eftirlitsflugvél-
um kanadísku stjórnarinnar. Hann
notaði tækifærið til að lýsa yfir
stuðningi við aðgerðirnar. Síðar
sagði hann við blaðamenn að öllum
tiltækum ráðum yrði beitt til að
„koma vitinu“ fyrir aðildarríki Evr-
ópubandalagsins í þessu efni.
Crosbie lagði áherslu á að ekki yrði
látið undan kröfum fárra‘„kjaft-
aska“ um flotaíhlutun á miðunum,
slíkt væri að minnsta kosti um sinn
hið mesta óþarfaverk. Hins vegar
væri það ljóst að ekki yrði hikað
við að beita harkalegum aðgerðum
í framtíðinni ef önnur ráð dygðu
ekki.
Á meðan á aðgerðunum stóð voru
99 erlend fiskiskip við veiðar rétt
við 200 mílna mörkin á Nýfundna-
landsbanka. Þar af voru 72 frá
Evrópubandalaginu, mest spönsk og
portúgölsk skip. Það þóttu slæmar
fréttir á Nýfundnalandi að í hópi
spönsku togaranna voi'u að minnsta
kosti þrír er áður stunduðu ólögleg-
ar veiðar við Namibíu.
Mikill urgur er í Nýfundlending-
um vegna ofveiða erlendra togara
á kanadíska landgrunninu en tog-
araíloti þeirra hefur verið í veiði-
banni vegna yfirvofandi hruns mik-
ilvægustu fiskstofnanna. Það eru
því einungis erlendir togarar sem
stunda veiðar á Nýfundnalands-
banka um þessar mundir. Forsætis-
ráðherra Nýfundnalands, Clyde
Wells, hefur krafist þess að Kanada
lýsi einhliða yfir yfirráðum sínum
yfir landgrunninu frá og með 1.
júlí n.k. Stjórnvöld í Ottawa vilja
hins vegar bíða fram yfir umhverf-
ismálaráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Brasilíu í júní. Viðhorf sjó-
manna er hins vegar í stuttu máli:
„fyrst íslendingar gátu það, getum
við það einnig".
Patriot-kerfið:
Saudi-Arab-
ar veittu
Kínverjum
upplýsingar
London. The Daily Telegraph.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að Saudi-Arabar hafi veitt
Kínverjum leynilegar upplýsingar
um Patriot-gagnflaugakerfið.
Upphaflega var því haldið fram
að Israelar hefðu verið að verki
og ásakanir þar að lúlandi ollu
erfiðleikum í sambúð Bandaríkja-
manna og ísraela.
Bandaríkjamenn létu bæði ísrael-
um og Saudi-Aröbum Patriot-gagn-
flaugakerfi í té eftir innrás íraka í
Kúveit. Voru þau notuð með góðum
árangri til að granda Scud-flaugum
sem Irakar skutu á Israel og Saudi-
Arabíu meðan á Persaflóastríðinu
stóð.
Bæði Israelar og Saudi-Arabar
hafa gert samstarfssamninga við
Kínveija á sviði hergagnafram-
leiðslu. Komið hefur í ljós að Kínvetj-
ar komust yfir tæknilegar upplýs-
ingar um Patriot-flaugarnar og
beindist grunur Bandaríkjamanna að
ísraelum. Talið var að Kínvetjar
hefðu fengið afhentar upplýsingar
um eldflaugakerfið í leynilegri för
ísraelskra embættismanna undir for-
ystu Moshe Arens varnarmálaráð-
herra til Peking í fyrrahaust.
Við rannsókn málsins, sem reynd-
ar stendur enn yfir, lagði ísraelska
leyniþjónustan Mossad fram gögn
sem þykja sanna að Saudi-Arabar
hefðu afhent kínverskum tækni-
mönnum, sem sinntu viðhaldi á kín-
verskum flugskeytum saudi-arabíska
hersins, gögn um Patriot-flaugarnar.
Samkvæmt upplýsingum Mossad
sömdu Kínvetjar og Saudi-Arabar
um það að skiptast á upplýsingum
um eldflaugakerfi hvors annars í
heimsókn varnarmálaráðherra
Saudi-Arabíu til Peking árið 1988.
Cresson
til að gegna
embættinu.
Árið 198.3 var
einnig svipuð
umræða í gangi
um hvort skipta
ætti um forsæt-
isráðherra í
Frakklandi. í því
embætti sat þá
Pierre Mauroy
og líklfegustu
arftakamir voru taldir vera þeir
Delors og Beregovoy. Menn minn-
ast þess nú að þá tók Mitterrand
sér níu daga til að hugsa málið og
komst að lokum að þeirri niðurstöðu
að skipta ekki um forsætisráðherra.
Cresson gaf enga yfirlýsingu út að
loknum fundi sínum með Mitterrand
í gær en talsmaður hennar gaf í
skyn að hún yrði enn í embætti
þegar tæki að vora.
Verð á hlutabréfum
snarlækkar í Japan
Tókvó. Reuter.
Tókýó. Reuter.
SEÐLABANKI Japans lækkaði í gær vexti sína meira en nokkru sinni
í rúrnan áratug til að blása lífi í efnahag landsins sem hefur verið í
lægð að undanförnu. Þetta leiddi til mikillar verðlækkunar á hlutabréfa-
markaðinum og hefur verð japanskra hhitabréfa ekki verið lægra í
fimm ár. Fjármálainenn telja þó að botninum hafi verið náð en segja
að verulegs efnahagsbata sé ekki að vænta í bráð.
Seðlabankinn lækkaði vexti sína Nikkei-hlutabréfavísitalan lækk-
um 0,75 prósentustig í 3,75% áður aði um 537,24 stig, eða 2,78%, við
en markaðir opnuðu í gær. Þetta er
í fjórða sinn sem bankinn lækkar
vexti sína frá því þeir voru hæstir í
júlí síðastliðnum, en þá voru þeir 6%.
Ákvörðun bankans kom ekki á
óvart því stjórn Iandsins hafði 'lengi
knúið á um vaxtalækkunina og fjöl-
miðlar höfðu mánuðum saman verið
með vangaveltur um að hennar væri
að vænta.
tíðindin og fór niður í 18.808 stig.
Þetta er í fyrsta sinn sem vísitalan
er lægri en 19.000 stig frá því 14.
janúar 1987 og hún er nú helmingi
lægri en þegar hún var hæst 29.
desember 1989, er hún varð 38.915
stig.
„Það eru enn margir sem vilja
selja hlutabréf," sagði Toranoubu
Sugai hjá hlutabréfafyrirtækinu Le-
hman Brothers. „Ef við göngum út
frá því að vaxtalækkunin hafi jákvæð
áhrif á efnahaginn eftir hálft ár
gæti verð hlutabréfa haldist svona
lágt í einn eða tvo mánuði.“
• Kyodo-fréttastofan skýrði frá því
í gær að fylgi Kiichi Miyazawa for-
sætisráðherra hefði lækkað niður í
24,1% og væri helmingi minna en í
sambærilegri könnun í desember.
Miyazawa á í vök að verjast vegna
hneykslismála sem samstarfsmenn
hans eru viðriðnir og búist er við að
stjórnarflokkurinn, Frjálslyndi lýð-
ræðisflokkurinn, skipti um forsætis-
ráðherra eftir þingkosningarnar í
júlí.