Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 38
^ 38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992 Hjá ANDRESI Fermingarföt, margir litir. Verð kr. 10.900-13.900,- Herraföt i úrvali. Verð kr. 5.500-17.900,- Stakir jakkar, m.a. yfirstærðir. Verð kr. 4.900-9.900,- Stakar buxur í miklu úrvali. Verð kr. 1.000-5.600,- Andrés, Skólavörðustíg 22a, sími 18250. Póstkröfuþjónusta. Kuldagallar. Verð kr. 5.400,- Samfestingar í vinnuna. Verð kr. 2.900,- Stakar buxur. Verð kr. 1.000-6.500,- Sportfatnaður f úrvali. Andrés - Fataval, Höfðabakka 9c, sími 673755. (Opið frá kl. 13-17.30 mánud.-föstud.) Gamall draumur — nýr veruleiki SKóla- o®AePiaó wrya^ °,ympia Cawer r Qg fis|ettar. F''ö,hæ,ai ’M0iTefurV að auN 12K nn\nni tynr gluggainnsláttog geymslu gagna. TiWo'>n f ern'ingorffl®*' STAÐGR6IÐSI-UVERÐ: aeg carrerau 18.810 nR* CARRERAn WD. 23.180 KR* KJARAN Skrífstofubúnaður SÍÐUMÚLA 14 • SÍMI (91) 813022 < eftir Vilhjálm Einarsson „Ég á mér draum“ sagði Grundt- vig, faðir lýðskólahreyfingarinnar svipað og Martin Luther King 120 árum síðar. Draumur Grundtvigs var -um „menntastofnun, þar sem þjóðin vaknaði smám saman til sjálfsvitund- ar og þar sem kennararnir lærðu jafn mikið af nemendum sínum og hinir ungu af þeim fyrrnefndu: þar skal ríkja lifandi gagnverkan og inn- byrðis fræðsla, þannig að það hyl- dýpi brúist, sem stéttaskipting, að- all, latínustagl og sérhagsmunastríð hefur skapað milli fólksins og ieið- toga þess og kennara." Ef Grundtvig gamli mætti sjá draum sinn í framkvæmd í dag er hætt við að hann yrði hissa og ef til vil nokkuð vonsvikinn. Áherslan sem hann lagði á vakningu í góðum þjóð- legum og kristilegum anda hefur vik- ið fyrir hagnýtum þáttum. Hér á eftir verður greint frá heimsókn í einn þeirra fjölmörgu skóla á Norður- löndum sem telja sig „grundtvigska" og halda fast við grundvallarhug- sjónirnar þótt hinn hagnýti veruleiki ráði viðfangsefnum að verulegu leyti. Tvennt er það einkum sem gerir heimsókn í þennan skóla, Wendels- berg lýðskólann forvitnilega: 1. Námsbraut í stjórnun- og skipu- lagningú' tómstundalífs/starfs. 2. Samvinna við aðila utan skólans um námskeiðahald. Wendelsberg-lýðháskólinn var stofnaður árið 1908. Sænska bindindishreyfingin (NGTO) stofnaði skólann og varð fyrst meðal þjóðfé- lagshreyfinga Svíþjóðar að reka eigin lýðháskóla. Enn í dag tilheyrir skól- inn bindindishreyfingunni IOGT — NTO myndar stjóm hans. Hin glæsilega aðalbygging skól- ans var reist 1883 og er öll úr timbri. í Mölnlycke, þar sem skólinn er, var á síðari hluta 19. aldar mikill iðnað- ur. Þegar aðaleigandi mikilla spuna- FAXAFENI 14 . S í M I 68 74 80 Sfiemmtileg og þroskandi ndmskeið keffast í næstu viku fyrir stúlkur og pilta 1. Snyrting, framkoma, kurteisisvenjur, tjáning og sviðsframkoma. Verð kr. 7.300,- 2. Ganga, sviðsframkoma og tjáning. Verð kr. 5.500,- 3. Framhaldsnámskeið. NÝTT - NÝTT. Verð kr. 4.000,- 4. Herranámskeið, ganga og sviðsframkoma. Verð kr. 4.000,- Tískusýning og prófverkefni í lok námskeiðsins. Kennarar og leiðbeinendur: Unnur Helena Esther Dong Qing Ath.: Allir þeir, sem hafa spurt um námskeiðin, hafi samband sem fyrst. Innritun daglega frá kl. 17.00- 19.00 í síma 36141. Giafakort Jg) (J[) verksmiðja, Bruno Wendel, lét af störfum byggði hann sér þessa „höll“ til að eyða ellinni í! Glæsilegir salir með loft og veggskreytingum vitna um forna auðlegð, en mikið hefur í seinni tíð vantað á að hægt hafi ver- ið _að viðhalda dýrðinni sem skyldi. í rúm áttatíu ár hefur verið bætt við svo og kennarabústöðum. Nú er þar rekin skólastarfsemi, sem aðlag- ast hefur hefur kröfum tímans, þótt enn sé reynt eftir föngum að láta hinn „gruntvigska anda“ svífa yfir vötnunum. Það er sambýlið niilli skóla og lengri eða skemmri nám- skeiða og ráðstefna sem vekur at- hygli mína. Kreppa í atvinnulífi eykur skólasókn Þegar komið er til Wendelsberg verður strax vart við sérkenni staðar- ins: nýtísku heimavistarbyggingar til hliðar við skrautlega aðalbyggingu í undurfögru umhverfi, þar sem skipt- ast á skógartjarnir, grasflatir og fjöl- skrúðugur trjágróður. Friðsæld. Þótt staðurinn sé rétt utan við borgina (Gautaborg) er aliur ys og þys víðs- fjarri. Birgitta Wendelberg leiðbeindi mér og sýndi skólann. Hún kennir við skólann en skipuleggur auk þess styttri námskeið og ráðstefnur, sem utanaðkomandi aðilar geta fengið að halda þar. Hvernig er aðsóknin að skólanum? Hún hló við. „Það má segja að hún sé alltof mikil. Þegar kreppir að í atvinnulífi og á vinnumarkaði eykst aðsókn í lýðháskólana. Nú er alveg fullt í skólanum og á vinnumarkaði eykst aðsókn í lýðháskólana. Nú er alveg fullt í skólanum nær 80 nem- endur í heimavist og það þrengir möguleikana á því að sina eftirspurn eftir styttri námskeiðum. Auðvitað er gott að hafa mikla aðsókn að sjálfu lýðháskólanáminu en stuttu nám- skeiðin gefa mestan arð. Þú sérð á göndu byggingunni að okkur vantar á að geta lagt nógu mikið í viðhald- ið.“ Eru rekstrarskilyrði erfið? „Já og nei. Síðastliðið ár breytti ríkið fyrirkomulagi á styrkjum til skólanna. Fram til þess tíma fengum við styrk samkvæmt höfðatölu nem- enda frá ári til árs. Nú er starfað í þriggja ára fjárhagstímabilum og við fáum heildarupphæð sem byggist á starfseminni undanfarin þrjú ár. Vilhjálmur Einarsson Þessi upphæð breytist ekki næstu þijú ár. Munurinn er sá að hver skóli er fijálsari um ráðstöfun fjárins, að hve miklu leyti því er varið til launa, viðhalds eða búnaðar. Það á eftir að koma í ljós hvernig þetta nýja fyrir- komulag reynist.“ „Hvað með nemendurna?" „Þeir eru allir yfir 18 ára, flestir innan við þrítugt en raunar á öllum aldri. Lýðháskólar veita ágætt tæki- færi ungu fólki að taka upp þráðinn hafi það misst hann með einhveijum hætti: átt erfitt í grunnskóla, veikst eða ruglast í ríminu. Margir þeirra búa heima hjá sér og koma alls stað- ar að af Gautaborgar-svæðinu. Flestir eru á tómstundaleiðbeinenda brautinni Þarna minntist Birgitta á náms- braut, sem ég er í vandræðum með að nefna upp á íslensku: „tómstunda- leiðbeinenda-braut" er ansi fijótt og íjölbreytt frístundastarf. Um þetta vildi ég heyra meira. „Frístundastjórnendanámið tekur tvö ár eða 80 kennsluvikur. Það telst vera á háskólastigi, fyrst þurfa nem- endur að hafa lokið „stúdentsprófi" (gymnasie). Nemendur aðstoða einn- ig í æskulýðs- eða íþrótta- og tóm- Nýtt íþróttafélag stofnað á Sauðárkróki Sauðárkróki. UM síðustu helgi kom saraan hópur fólks í Sveinsbúð, félagsheimili björgunarsveitarinnar á Sauðárkróki, til þess að stofna nýtt íþróttafé- lag, sem leggja mun aðaláherslu á íþróttir fatlaðra og eldri borg- ara, en félagið er öllum opið. Á stofnfundinum voru um þijátíu manns, fólk á öllum aldri og var mikill áhugi í hópnum. Aðalhvata- maðurinn að stofnun félagsins er Sólveig Jónsdóttir og hefur hún unnið lengi að undirbúningi og kynningu á þessum félagsskap. Fundargestir skráðu sig stofnfélaga en Sólveig Jónsdóttir sagði að ákveðið væri að allir þeir sem skráðu sig í félagið fyrir 1. maí nk. teldust stofnfélagar. Það hefur verið mikill áhugi fyr- ir stofnun þessa félags sagði Sól- veig sem hefur haft mikil sam- skipti við íþróttafélagið Snerpu á Siglufirði og fleiri félög sem hafa svipuð mál á stefnuskrá sinni. Við höfum farið til Siglufjarðar og feng- ið að fylgjast með því sem þau eru að gera þar, en félagið þeirra hefur núna starfað í fimm ár. Við leituð- um einnig til bæjaryfirvalda hér á Sauðárkróki og fengum myndarlegt fjárframlag til þess að stofna félag- ið. Við höfum einnig hafið kynningu á Boccia íþróttinni og höfum fengið mikið betri aðsókn að æfingum cn. við þorðum að vona, sagði Sólveig, enda er stefnt að því að félagar taki þátt í Islandsmóti í íþróttum fatlaðra, sem haldið verður nú í vor. Á stofnfundinum voru gestir Camilla Hallgrímsson varaformað- ur íþróttasambands fatlaðra sem færði hinu nýstofnaða félagi sér- stakar kveðjur sambandsins og einnig færði hún félaginu að gjöf veglegan bikar, Hvatningarbikar- inn, farandgrip, sem keppt verður um árlega á vegum félagsins svo og formaður íþróttafélagsins Snerpu á Siglufirði, Guðrún Arna- dóttir ásamt hluta að stjórn félags- ins og færði Guðrún hinu nýja fé- lagi fagra gestabók og hluti með merki þeirra Snerpufélaga. í fund- arlok þáðu gestir kaffiveitingar í boði undirbúningshópsins. Formað- ur hins nýja félags er Sólveig Jónás- dóttir. ^pt**-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.