Morgunblaðið - 02.04.1992, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992
39
stundafélögum í nágrenninu með
náminu. Sumarið á milli ogjafnframt
síðari veturinn er um að ræða heils
mánaðar vinnu úti í félögum. Þannig
tengjum við fræðilega nám raunhæfu
starfi.
Markmið námsins er íjölþætt, því
sviðið er vítt. í stórum dráttum má
orða það sem svo: námið stefnir að
því að gera nemendurna færa um
að hvetja og leiðbeina fólki til að
geta staðið að jákvæðri breytingu
og þróun í átt til lífvænlegra um-
hverfis og betra samfélags. Áhersla
er lögð á allt það, sem dýpkar og
styrkir lýðræðið, ekki síst frjáls fé-
lagasamtök hvers konar. Trúr upp-
runa sínum, sem rakinn er til bind-
indishugsjónarinnar, leggur skólinn
mikla áherslu á baráttuna gegn öll-
urn vímugjöfum.
Námið samsvarar 80 háskólaein-
ingum. Á bak við starf „frístunda-
stjórans“ felast ýmiss konar verksvið
bæði uppeldisleg og hvað snertír
stjórnun. Að loknu námi fá þeir sem
útskrifast oft störf hjá fyrirtækjum,
félögum, sveitarstjórnum, fræðslu-
samböndum eða söfnuðum svo dæmi
sé nefnt. Margir álíta að nýbyijaður
áratugur verði „áratugur frítímans“
þar sem meiri áhersla en nokkru sinni
verði lögð á fijóa tómstundaiðju. Ef
sú spá rætist þurfa nemendur okkar
ekki að kvíða atvinnuleysi
Námskeiðahald fyrir fullorðna
Eitt það forvitnilegasta í Wendels-
berg-lýðskólanum er starfsemi sú
sem skólinn rekur í samvinnu við
utanaðkomandi aðila og fer frarn í
stuttum námskeiðum. Um þetta
sagði Birgitta m.a.:
„Eg hef það starf með höndum
að hjálpa utanaðkomandi aðilum að
skipuleggja námskeiðin. Þeir greina
mér frá þörfum sínum og óskum og
ég geri athugun á því hvort starfsem-
in falli undir lög og reglur um viður-
kenningu, sem m.a. felur í sér styrk
til námskeiðsins. Síðan gef ég við-
komandi hugmyndir um kostnað."
Setjum svo að ég vilji fá inni með
þriggja daga námskeið fyrir 20
manns og hringi í þig sem einstakl-
ingur. Hvaða fyrirgi-eiðslu gætir þú
veitt mér?
„í fyrsta lagi þarf það sem þú
ætlar að koma á framfæri eða
„kenna“ að falla undir eitthvað af
öllum þeim fjölda efnissviða sem við-
urkennd eru. í öðru lagi þarft þú að
undirgangast það skilyrði að kennar-
ar skólans sjái um 25% af kennsl-
unni sem vera skal almenns eðlis og
í samræmi við ríkjandi lýðræðis- og
mannfrelsishugsjónir. Miðað við 20
þátttakendur (yfir 18 ára að aldri)
og þijá daga fást greiddar 25
kennslustundir frá ríkinu, þar af
mátt þú ráðstafa 18 stundum. I þriðja
lagi: kostnað við mötuneyti og
heimavist bera einstaklingar sjálfir
en leigu af kennsluhúsnæði þarft þú
að greiða (ca. 5.000 ísl. kr. á dag).“
ÁRNAÐ HEILLA
Ljósmynd: Ljósmyndarinn Jóhannes Long.
HJÓNABAND. Þetta eru brúð-
hjónin Ásta Lorange og Pétur Jóns-
son. Þau voru gefin saman í Kópa-
vogskirkju 22. febrúar sl. Prestur
var séra Ægir Sigurgeirsson. Heim-
ili þein’a er á Kópavogsbraut 55.
Gódandaginn!
Eftir að hafa snætt ágæta kjúkl-
ingamáltíð með Birgittu í mötuneyti
skólans þakka ég henni upplýsingar
og fyrirgreiðslu, og hef ég satt að
segja hugsað mikið um hvað af þessu
megi læra og nýta á íslandi.
Nýtt hlutverk héraðsskólanna
Islendingar hafa lyft grettistaki
hvað varðar uppbyggingu ýmiss kon-
ar mannvirkja og aðstöðu til íþrótta
og leikja á undanförnum áratugum.
Öll slík mannvirkjagerð stendur á
gömlum merg í Svíþjóð. Þar er öll
tómstundastarfsemi mun skipulagð-
ari en á íslandi. Flestir gera minna
upp á eigin spýtur. Forsjárhyggjan
hefur á stundum gengið of langt.
Við, á hinn bóginn, erum einstakl-
ingshyggju- og skorpufólk, sem af
dugnaði ræðst í stórræði en skortir
stundum þolinmæði til að fylgja hlut-
unum eftir; ætlum of oft að leysa
málin með einu pennastriki.
Ég hefi í fyrri greinum mínurn
bent á þörfina fyrir jafnari aðstöðu
til endurmenntunar eftir búsetu og
gagnsemi þess að koma upp aðstöðu
til námskeiðahalds sem þjónaði í senn
landinu öllu og atvinnuh'finu. Flétta
ætti saman hið hagnýta, tæknilega
og menningarlega þætti, ásamt ýmsu
er varðar persónuþroska einstakl-
ingsins. Marga héraðsskólana vantar
verkefni. Wendelsberg-skólinn sann-
ar að vel getur farið saman almennt
nám og fjölbreytt námskeiðahald
fyrir fullorðna.
Höfundur er skólamcistari
Menntaskólans á Egilsstöðum.
HJÁLPARSTARFIÐ
HELDIIR ÁFRAIH
Gíróseólar í bönkum
og spurisjóóum
VANDAÐAR GJAFABÆKUR A TIMAMOTUM I LIFINU
HEILDARSAFN
LJÓÐA STEINS
- þar a meðal áður óbirt Ijóð
Vaka - Hclgalell heturgefio ut nýlt og aukið Ijóðasafn Steins
Steinarr þar sem meðal annars eru birt þrjálíu íjóð sem ekki
hala áður verið prentuð í bókum skáldsins. íslendingar hafa
skipað Steini Steinarr á bekk með öndvegis
skáldum sínum og Ijóð hans fundið hljómgrunn hjá hverri
nýrri kynslóð í landinu.
Allar Ijoðabækur Steins í vandaðri bók.
Frábær gjöf - framtíðareign.
■ ■
ÁIN
Ég vaknaði loksins
og áin hélt áfram að renna,
frá austri til vesturs,
að íjarlægum óþekktum ósi.
Eitt andartak leiö
og ég sá að á sefgrænum bakka
stóð sál mín nakin
í dagsins lóðrétta Ijósi.
Svo gekk ég af stað,
ég hélt áfram með ánni,
frá austri til vesturs,
að flarlægum óþekktum ósi
Eitt frumbirtu Ijóöanna í nýju
Ljóöasafni Steins Steinarr.
GULLFALLEGAR GJAFABÆKUR
Á 10 ára afmæli bókaforlagsins Vöku-Helgafells hefjum við
útgáfu á flokki glæstra gjafabóka á ótrúlega góðu verði.
Hér býðst lifandi og skemmtilegt efni tengt íslcnskri
þjóðmenningu: Bókin Úr sagnabrunni, með þjóðsögum og
ævintýrum sagnaþularins Ásdísar Ólafsdóttur. Eftir henni
sendu Reykvíkingar mann og hest um síðustu aldamót svo að
hún gæti sagt þeim sögur.
Hin bókin sem markar upphaf þessa nýja gjafabókaflokks er
í skugga lárviðar með snilldarþýðingum Helga Hálfdanar-
sonar á 2000 ára ljóðum Hórasar, höfuðskálds Rómverja.
Gjafabækur í hæsta gæðaflokki á aðeins 1860 krónur.
VAKA-HEIGAFELL
Síðumúla 6 • Sími 688 300