Morgunblaðið - 02.04.1992, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992
41 s-
Ráðstefnan í Ríó
Athugasemd
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá Eiði
Guðnasyni umhverfisráð-
herra:
Víkverji fjallar í gær um fyrir-
hugaða ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna um umhverfi og þróun sem
haldin verður í Ríó de Janeiro í júní
næstkomandi. Þar eru höfð eftir
mér ummæli sem ég hef aldrei lát-
Flóamark-
aður í Her-
kastalanum
HJÁLPRÆÐISHERINN er með
flóamarkað í Herkastalanum á
fimmtudag og föstudag, 2. og 3.
apríl, kl. 10 til 17 báða dagana.
Þangað eru allir velkomnir og
ósk okkar er að sem flestir not-
færi sér þennan möguleika til að
fá sér góðan fatnað.
í frétt Hjálpræðishersins segir
ennfremur: „Við viljum líka minna
á, að flóamarkaðsbúð Hjálpræðis-
hersins í Garðastræti 2 er opin alla
þriðjudaga og fimmtudaga kl.
13-18. Það er alltaf full búð af
góðum fatnaði á algjöru lágmarks-
verði. Hjálpræðisherinn vill með
þessu mæta aukinni þörf í þjóðfé-
laginu og einnig stuðla að því að
góðum fatnaði sé ekki hent á haug-
ana.
♦ ♦
ið mér um munn fara, en komust
á kreik vegna misskilnings frétta-
manns á Stöð 2. í fréttum Stöðvar
2 hafa ummælin verið leiðrétt, en
leiðréttingar komast illa til skila.
í viðtali við Stöð 2 í fyrri viku
um undirbúningsfundinn sem ís-
lenskir embættismenn hafa sótt í
New York að undanförnu vegna
umhverfisráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna lét ég svo ummælt að víst
fylgdi því kostnaður að hafa menn
þar að störfum, en sá kostnaður
væri smámunir miðað við þá hags-
muni sem væru í húfi varðandi
mengun sjávar og umráðarétt yfir
fiskistofnum og öðrum auðlindum
hafsins.
Ég hef ekkert í þessa veru sagt
um kostnað ríkisins vegna ráðstefn-
unnar í Ríó, enda liggur ekki fyrir
á þessari stundu hver verkefni bíða
þar úrlausnar né hversu margir
þurfa að fara þangað til að fylgja
okkar tillögum og málflutningi eftir
og vinna okkar málstað fylgi.
Eiður Guðnason.
Kýrrðar- og
íhugnnarstund
í Laugar-
neskirkju
KYRRÐAR- og íhugunarstund
með altarisgöngu og söngvum
frá Taizé verur í Laugarnes-
kirkju föstudaginn 3. apríl kl.
21.00. Tónlist verður leikin frá
kl. 20.30.
Form kyrrðar- og íhugunar-
stundanna í Laugarneskirkju er
komið frá Taizé- söngvum sem eru
stuttir og auðlærðir, endurteknir
aftur og aftur og verða þannig að
bæn og lofsöng til Guðs.
Eftir kyrrðarstundina verður
boðið upp á kaffi í safnaðarheimil-
inu og þar verður samvera á vegum
Ný-ung, KFUM/K. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson ræðir þar um efnið
„Að lifa einn“. Öllum eru velkomið
að taka þátt í þessari samveru.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
i.
SAHYO SAMSTÆÐAN
SKOÐAÐU
VERÐIÐ
Allt þetta fyrir aðeins 52.530,- eða
ÁN PLÖTUSPILARA
• 16 aögerða þráðlaus
fjarstýring.
• Magnari; 2x60W með 5
banda tónjafnara.
• Útvarp; FM/AM/LW, 24
stöðva minni og sjálfvirkur
stöðvaleitari.
• Segulband; tvöfalt með
hraðupptöku, Dolby B og
samtengdri spilun.
• Plötuspilari; reimdrifinn,
hálfsjálfvirkur.
• Geislaspilari; með tvöfaldri
„digital/analog" yfirfærslu,
16 minni, lagaleit o.fl.
• Hátalarar. 80 Watta,
þriggja átta.
Umboðsme'nn um land allt
Gunnar Asgeirsson hf.
Borgartún 24
Sími: 626080 Fax: 629980
Reykjavík, Heimilistæki hf. Sætúni 8, Frlstund, Kringlan, Rafbúð Sambandsins, Holtagörðum, Kaupstaður í Mjódd
• Akranes, Skagaradíó • Borgarnes, Kaupfélag Borgfirðinga • Isafjörður. Póllinn hf. ■ Sauðárkrókur, Ratsjá •
Ólafsfjörður, Valberg • Akureyrl, Radiónaust • Húsavfk, KÞ Smiðjan • Vestmannaeyjar, Brimnes ■ Selfoss, Kf.
Árnesinga • Keflavfk, Radíókjallarinn.
Útsala í
Bóksölu stúdenta
frá og með
30. mars
/
Otrúlegur
fjöldi titla
á hreint
lygilegu verði
l yrir utan heíMnuuIif) lesetni þá er úrx alif) at sérf ræóihókum og -ritum
i Boks()lu stúdenta hginni líkast.
Söi>ur um fjölhreytt tramboh tímarita og vasahrotshóka eru ekki
ur lausu lotti gripnar og jttif) er ekkert stærihvti ah segja ah i
Bóksölu stiHÍenta sé rekin ól’hig ritfanj>adeikl.
Komdu og skoóaóu úrvalih, |)aó á eltir aó konut jier á óvart.
bók/ðslð. /túdervtK
\ i<S Hringbruut, sími Ol-OI 59 01