Morgunblaðið - 02.04.1992, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
ODEXION
IMPEX - hillukerfi án boltunar sem
hentar m.a. fyrir verksmiðjur, lagera,
geymslur og bílskúra.
Auðvelt í samsetningu með stífingum og
lokun að óskum kaupanda.
LANDSSMIÐJAN HF.
Sölvhólsgötu 13 - Reykjavík - Sími (91) 20680 - Telefax (91) 19199
asHSSSu’55’
Minning:
Gunnar Kjartansson
frá Fremri-Langey
Fæddur 29. maí 1927
Dáinn 24. mars 1992
Gunnar Kjartansson var fæddur í
Fremri-Langey á Breiðafirði 29. maí
1927. Foreldrar hans eru Kjartan
Eggertsson og Júlíana Einarsdóttir
sem voru búandi þar. Þau lifa hann
í hárri elli á Hrafnistu í Reykjavík.
Gunnar ólst upp í Langey í stórum
systkinahópi, þau voru sjö systkinin.
Það er gott að alast upp í frelsi og
víðáttu Breiðafjarðar, enda unni
Gunnar sínum æskustöðvum. Hann
fór ungur að fást við báta, gera við
vélar og fara á sjó á heimaslóðum.
Hann fór líka á vertíðir við Faxa-
flóa. Gunnar fór ungur maður í
íþróttaskólann í Haukadal.
Hann kvæntist 16. febrúar 1952
Ólöfu Ágústsdóttur frá Laugum í
Hvammsveit. Þau eignuðust fjórar
dætur, Láru, gift Gunnþóri Halldórs-
syni, eiga þau 2 böm, Júlíönu, gift
Jóhanni Sigurðssyni, eiga þau 3 börn,
Elfu, á hún einn son og Lóu Björk,
sem er í heimahúsum.
Gunnar vann fyrst í Reykjavík í
Trésmiðjunni Heiðmörk, þá í Steins-
stólpum hf., síðar hjá GG-flutning-
um, en lengst og síðast hjá Ingi-
mundi hf. við vélagæslu og viðgerð-
ir. Og margan bílinn gerði hann við
fyrir fólk, enda bónþægur maður.
Gunnar var skapléttur og skemmti-
legur. Þar var oftast stutt í grínið,
hann var söngmaður og hafði gaman
af tónlist.
Þau voru gestrisin Gunnar og Lóa,
það var gott að koma í Karfavog,
enda var oftast margt fólk í kringum
þau. Gunnar eignaðist bát fyrir
nokkrum árum með Andrési mági
sínum, og fóru þeir á sjó hér á Faxa-
flóa á sumrin, sér til ánægju, því
Gunnar var alltaf gefinn fyrir sjó,
enda af sjómönnum kominn. Eitt-
hvert af fyrstu árunum sem Gunnar
og Addi áttu bátinn, fóru þeir sigl-
andi frá Reykjavík vestur á Breiða-
fjörð og komu í Langey. Það var
dásamlegt að sjá bátinn birtast úr
hafvíðáttunum og gaman að fá þá í
heimsókn. Gunnar var kominn heim.
Upp í hugann hrannast minning-
ar. Gott átt þú hrísla á grænum bala.
Gunnar er kært kvaddur.
Fríða.
Frændi, vinur og hrókur alls fagn-
aðar, Gunnar Kjartansson, er fallinn
frá. Það var hjartað sem gaf sig. Á
Ijóðrænan hátt má segja að hann
hafi gefið það frá sér. Gunnar var
hjartahlýr maður. Hann hleypti lífi í
fólk. Með kímni, stríðni og fjöri smit-
aði hann umhverfi sitt, enda laðaðist
fólk að honum. Heimili hans og Lóu
var og er mjög sérstakt. Þar var
ekki bara kjarnafjölskyldan eins og
við þekkjum hana, heldur stórfjöl-
skylda, fjölskylda kynslóða. Alltaf
var rými fyrir gesti, aldrei heyrði
maður minnst á orðið þrengsli.
Gunnar Kjartansson fæddist
29.maí 1927 í Fremri-Langey á
Breiðafírði. Sonur hjónanna Júlíönu
Einarsdóttur og Kjartans Eggerts-
sonar. Þau og sex systkini lifa hann.
Gunnar ólst upp í Fremri-Langey.
Hann fór sautján ára á sjó og var
fyrst á vertíð frá Akranesi. Árið
1952 kvæntist hann Olöfu Ágústs-
dóttur frá Laugum í Hvammssveit
og hafa þau nánast alla sína búskap-
artíð átt heima í Karfavogi 36,
Reykjavík. Þau eignuðust fjórar dæt-
ur, Láru, Júlíönu, Elfu og Lóu
Björku. í þessari upptalningu finnst
mér verða að geta Ándrésar sem var
Gunnari eins og sonur svo samrýmd-
ir voru þeir.
Gunnar var ætíð við vélar af ýmsu
tagi. Maður átti hauk í horni ef eitt-
hvað amaði af bílræflinum. Þótt pers-
ónulega þyki mér ekki gaman að
gera við bíla þá undi ég mér svo vel
hjá Gunnari að ég lagði í að sprauta
bílinn minn með hjálp Gunnars.
Persónueiginleikar Gunnars komu
þar vel í ljós. Stöðugur straumur af
fólki kom til að fá ráðleggingar eða
bara til að kasta á hann kveðju. Með
vinnunni gaf hann sér tíma til að
leiðbeina spurulum unglingi um bíla
og vélar.
Eitt áhugamál átti Gunnar sem
tók hug hans allan. Fyrir mörgum
árum dreymdi hann um að eignast
bát. Hann hljóp ekki til og keypti
bát, enda ekki fjársterkur maður,
heldur lét drauminn vaxa. Fyrst var
drifið keypt, síðan vél og smám sam-
an óx báturinn á mörgum árum og
Gola RE 143 varð að veruleika. Það
er svo heillandi að eiga sér draumsýn
og láta hana rætast. Gunnar átti sér
fleiri draumsýnir sem ekki rættust.
Hann var mjög pólitískur í hugsun
og gat rætt um tíkina stundum sam-
an. Sósíalisminn var draumsýn sem
rættist ekki Gunnari né öðrum hvað
sem síðar kann að vera.
Líf okkar sem þekktum Gunnar
er snöggtum snauðará? við fráfall
hans. Ég vil þakka frænda fyrir sam-
fylgdina þótt það sé eflaust ekki til
neins. „Langt í eilífðar útsæ vakir
eylendan þín“, megi hann fá góðan
byr á Golu sinni.
Eggert Eggertsson.
í dag fer fram útför Gunnars
Kjartanssonar frá Langholtskirkju í
Reykjavík. Ég vil af því tilefni minn-
ast hans nokkrum orðum. Það eru
komin 25 ár síðan við kynntumst
fyrst og hafa samskipti okkar verið
meiri og minni alla tíð síðan og aldr-
ei borið skugga á. Margar sjóferðir
okkar um æskuslóðir hans í Breiða-
firði verða mér ævinlega ógleyman-
legar. Þar reyndi ég að læra af hon-
um að þekkja siglingaleiðir, hin fornu
fiskimið eyjabænda, draga fisk á
færi, beita og leggja haukalóðir, háfa
lunda og margt fleira. Ég held að
enginn geti gert sér í hugarlund, sem
ékki hefur reynt, hvernig tilfinning
það er að vera úti í Breiðafjarðareyj-
um við sólarupprás á vorin. Skynja
allt lífið í kring um sig og hina víð-
áttumiklu náttúrufegurð, en vera
laus við skarkala heimsins. Öðrum
fremur var það Gunnar sem kenndi
mér að meta slíkar stundir.
Gunnar fæddist í Fremri-Langey
á Breiðafirði og ólst þar upp í stórum
systkinahópi. Hann var sonur hjón-
anna Kjartans Eggertssonar og Júlí-
önu Einarsdóttur sem þar bjuggu,
en þau dveljast nú háöldruð á Hrafn-
istu í Reykjavík. 16. febrúar 1952
giftist hann Ólöfu Ágústsdóttur frá
Laugum í Hvammssveit og stofnuðu
þau heimili í Reykjavík og hafa í
mörg ár búið í Karfavogi 36. Þar
hefur fjölskylda þeirra hjóna átt at-
hvarf hvenær sem þurft hefur á að
halda. Gestir hafa átt þar að mæta
hjartahlýju og höfðinglegum móttök-
um. Hlutur Ólafar hefur þar verið
stór. Skemmst er að minnast mið-
vikudagskvöldanna í vetur þegar við
nokkrir félagar komum í heimsókn
til að spila brids.
Þau hjónin eignuðust fjórar dæt-
ur. Þær eru: Lára sem er gift Gunn-
þóri Halldórssyni og eiga þau tvö
böm. Júlíana sem er gift Jóhanni
Þór Sigurðssyni og eiga þau þrjú
börn. Elfa sem á einn son og yngst
er Lóa Björk.
Gunnar hafði verið þjakaður af
erfiðum sjúkdómi hin síðari ár. Þess
vegna varð hann að láta margt ógert
sem hugurinn stóð til. Það var þó
fjarri honum að láta bugast; heldur
var hann með hugann við framtíð-
ina. Fjölskyldan öll var honum stoð
og stytta, ekki síst Lóa með sinn
mikla dugnað og óbilandi góða skap.
Einmitt þegar kallið kom voru vonir
bundnar við að hjálp væri á næsta
leiti. Andlátsfregnin varð því sárari
en ella.
Ég og fjölskylda mín söknum góðs
vinar og trausts félaga. Við biðjum
góðan guð að styrkja þig Lóa mín
og fjölskyldu þína alla.
Grétar Sæmundsson.
Margargerðiraf
tölvuborðum.
Verð frá kr. 12.500,
BÍRÓ
SKRIFBORÐSSTÓLL
VERÐKR.12.350,-STGR.
MEÐÖRMUMKR. 16.500,-
S t
SMIÐJUVEGI2
h í r Ó TB-10TÖLVUBORÐ
VERÐ KR. 11.875,- STGR.
e i n a r meðhliðarplötu
- 200 KÓPAV0GI - SlMI 46600 KR. 14.700,-
íslenskgæðahúsgögn
með 5 ára ábyrgð.
Skrifborðsstólar
ímikluúrvali.
Verðfrá kr. 7.125,-stgr.
/