Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
,, FuLLkomiS!"
Hann heimtaði að fá að segja
þér uppskriftina á rauðvíns-
sósunni.
HÖGNI HREKKVISI
NEU Þerr-1 er ekkj sosh/ bak.< "
fUwgtutMftMb
BEÉF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Keppinautar þorsksins
Frá Birni S. Stefánssyni:
MEÐ því að lögbjóða stóra möskva
við veiðar er fiskistofnum hlíft sem
engar nytjar eru af. Ég spurði um
það á síðum Velvakanda (6. desem-
ber) hvaða áhrif það hefði, þar eð
æti í hafinu væri takmarkað.
Svend-Aage Malmberg haffræðing-
ur á Hafrannsóknastofnun svarar
spurningu minni í blaðinu 7. febr-
úar („Hvers vegna ekki 400 þúsund
tonn?“) þannig: „Því er til að svara,
að þorskur keppir vart við fiska
eins og langhala og gulllax um
æti, öllu fremur étur hann þá, rán-
fiskur sem hann er. Óveiddur getur
a.m.k. gulllax nýst þorski sem æth“
Ekki er þetta í samræmi við Is-
lenska fiska, bók Gunnars Jónsson-
ar fiskifræðings á Hafrannsókna-
stofnun. Þar kemur fram að fiskar
langhalaættar og gulllax éta ljósátu
og krabbadýr sem þorskurinn nær-
ist á. Þótt þorskur éti gulllax, er
það léleg næringarnýting að láta
ljósátuna og krabbadýrin fara fyrst
um maga gulllaxins. Með því móti
fer mest af næringunni til viðhalds
gulllaxinum.
Það kann að skiljast betur, hvað
um er að ræða, ef við færum okkur
í huganum upp á land, upp á gras-
lendi, sem má nýta til beitar fyrir
sauðfé og hross. Hugsum okkur,
að svo standi á, að féð gefi verð-
mætar afurðir, en hrossin séu stóð
og kjöt þeirra verðlaust, þar sem
siðlaust þyki að leggja sér það til
munns. Hrossakjötið má samt nýta
sem mjöl og fóðra sauðféð á því.
Ljóst er, að beitargróðurinn, sem
hrossin taka til sín, skilar ekki nema
broti af því sem hann gerði, ef þau
væru fjarlægð og sauðféð hefði
enga samkeppni við hrossin og nýtti
grasið milliliðalaust. Þorskurinn er
í stöðu sauðljárins í dæminu og
gulllaxinn, sem ekki er til nytja, í
stöðu stóðhrossanna, og því til
óþurftar.
Þorskar og sauðir
Tilefni þess að ég spurði Velvak-
anda svona var að SM lýsti því hér
í blaðinu 22. nóvember (í grein með
sama nafni og síðari greinin), að
æti í hafinu væri takmarkað. Því
hafði aldrei áður verið haldið fram
á vegum Hafrannsóknastofnunar
og hún hefur aldrei vísað til þess,
þegar hún hefur lagt á ráðin um
hæfilegar fiskveiðar. Samt telur SM
í siðari grein sinni enga ástæðu til
að rýma til í sjónum í slæmu ár-
ferði. Um það segir hann: „Rýrfisk-
ur í vondu árferði vex áfram fyrir
hvert ár sem líður ... og getur svo
allt í einu komist í feitt aftur.“
Svona var farið með sauði á öld-
um áður. Þá gaf það verið hag-
kvæmt, því að verðmæti sauða til
frálags var mest í mörnum sem gat
vaxið með aldrinum. (Auk þess
gáfu sauðirnir árlega af sér ull, sem
var mikilvæg afurð.) Þannig nýtist
næring hins vegar illa til vaxtar,
hvort sem hún fæst með beit eða
öfluðu fóðri. Búfjárfóður nýtist best
til vaxtar með því að fóðra svo, að
gripirnir vaxi eins og þeim er eðli-
legt, svo að ekki verði lát á, en
þeim fargað, þegar fer að draga
úr vexti aldurs vegna. Ef svar SM
lýsir næringarfræði Hafrannsókna-
stofnunar, er hún á frumstigi.
SM kynnir niðurstöður rann-
sókna á ætisskilyrðum í sjónum.
Enn leita ég samlíkingar við nýt-
ingu gróðurs með beit. Til að fylgj-
ast með því hvort beit sé hæfileg
má athuga breytingar á gróðurskil-
yrðum, og er það sambærilegt við
rannsóknir SM á ætisskilyrðum í
hafinu. Það vill hins vegar svo til,
að þess gætir fyrr á þrifum grip-
anna en á gróðurfari, ef beitt er
meira en hóflega. Það er hagkvæmt
að fækka beitargripum þegar þess
gætir á þrifum þeirra að ofsett er.
I hagnýtum tilgangi er því miklu
markvissara að rannsaka þrif beit-
argripa en beitarskilyrði. Sú skoðun
að hagkvæmt sé að auka veiði
(fækka fiskum, „grisja stofninn"),
þegar þrif nytjafiska reynast ekki
í samræmi við eðlilegan vöxt hvers
árgangs, er sama eðlis, Hafrann-
sóknastofnun aflar ekki vitneskju
um þrif þorsks eða annarra nytja-
fiska til marks um næringarskilyrði.
SM ítrekar að athuganir bendi
ekki til þess að stærð hrygningar-
stofns þorsksins hafi áhrif á hrygn-
ingu og nýliðun, en ráð Hafrann-
sóknastofnunar hafa haft það
markmið sem kallað hefur verið að
byggja upp hrygningarstofninn til
að tiyggja hrygningu og nýliðun.
Umræður okkar SM leiða því í ljós,
að Hafrannsóknastofnun hefur ekki
haft rök til að ráðleggja eitt né
neitt um hæfilega þorskveiði.
BJÖRN S. STEFÁNSSON,
hagfræðingur
Vesturvallagötu 5
Reykjavík
Víkveiji skrifar
Frammistaða íslenska landsliðs-
ins i handknattleik í B-keppn-
inni í Austurríki er ekki til þess
fallin að vekja traust og lítið hefði
mátt út af bregða til þess að niður-
staðan yrði allt önnui' en bronsverð-
laun og sæti í A-keppninni í Svíþjóð
að ári. Það voru ekki eigin verðleik-
ar sem tryggðu íslenska liðinu far-
seðilinn til Svíþjóðar heldur góð
frammistaða Norðmanna í leiknum
gegn Dönum og bæði norska og
danska liðið sýndu betri leiki á
mótinu en það íslenska. Það gefur
heldur ekki rétta mynd af leikjum
okkar við Norðmenn og Dani að
stig hafitapastfyrir óheppni á loka-
sekúndunum. í leiknum við Dani
áttum við allan leikinn undir högg
að sækja og Norðmenn sýndu tví-
mælalaust skemmtilegasta hand-
knattleikinn á mótinu.
XXX
A
Islenska landsliðið, landsliðsþjálf-
arinn og foi-ysta HSÍ hljóta að
þurfa að fara yfir hvað það var sem
fór úrskeiðis í undirbúningi Iiðsins.
Það er frumatriði áður en farið er
að setja á oddinn ný markmið um
árangur á stórmótum. Það vita allir
sem fylgjast með handknattleik að
það býr miklu meira í íslenska lið-
inu en það sýndi í B-keppninni og
að öllu eðlilegu hefði það átt að
leika um gullverðlaunin á mótinu.
Það eru gerðar miklar kröfur til
íslenskra handknattleiksmanna um
árangur eins og hann gerist bestur.
Það eru kannski ekki raunhæfar
kröfur, en á móti kemur að hand-
knattleikur kemst næst því að vera
„þjóðaríþrótt“ hér á landi.
XXX
Uppstytta er nú í viðræðum um
nýja kjarasamninga og er það
miður að ekki tókst að ljúka þess-
ari samningalotu sem staðið hafði
í nær tvo mánuði með samningum.
Launþegar hafa nú verið án kjara-
samninga í meira en hálft ár án
þess að kaupmáttur hafi fallið að
ráði vegna þess hve verðbólga hefur
verið lítil undanfarna mánuði. Það
hefði einhvern tíma þótt saga til
næsta bæjar að kaupmáttur félli
ekki nema um 1-2% á hálfu ári þó
engir samningar væru í gildi. Þessi
staðreynd út af fyrir sig eykur ekki
þrýsting á að kjarasamningar séu.
gerðir, þó ýmislegt annað geri það
að verkum að æskilegt sé að aflétta
óvissu í efnahagslífinu með kjara-
samningum. Það er ekki að sjá að
launþegar græði neitt á biðinni og
ótrúlegt má telja að fólk sé almennt
tilbúið til átaka þegar svo nálægt
er komið páskum og sumarleyfi
taka við fljótlega eftir þá auk þess
sem atvinnuástand er mjög ótryggt.
Það er ekki raunhæft að auka kapp-
mátt þegar þjóðartekjur minnka og
ekkert vinnst með því að draga
kjarasamninga til haustsins. Að
tryggja stöðugleikann í sessi er tví-
mælalaust stærsta hagsmunamál
launþega og ákvarðanir um kjara-
samninga ættu að taka mið af því.