Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 60
MORGUNBLADID. ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJA VÍK
slm 601100. SÍUBRÉF 601181. PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRsETI 85
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Grundartangi:
Manns er
saknað eft-
ir að lóðs-
bát hvolfdi
Manns er saknað eftir að lóðsbátn-
um frá Akranesi hvolfdi og liann
sökk á hafnarsvæðinu við Járn-
blendiverksmiðjuna á Grund-
artanga í gærkvöldi. Slysið átti sér
stað á niunda tímanum og var
lóðsbáturinn að aðstoða japanskt
skip við að leggja að í höfninni.
Tveir menn voru um borð í lóðs-
bátnum og tókst öðrum þeirra að
bjarga sér á land.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Borgarnesi var ekki vitað
nánar um tildrög slyssins í gær-
kvöidi. Um leið og slysið varð var
haft samband við Slysavarnarfélagið
og þyrla Landhelgisgæslunnar var
send með tvo kafara upp á Grund-
artanga og fjörur í grennd við höfn-
ina gengnar.
Þar sem lóðsbáturinn sökk er mik-
ið dýpi og erfitt fyrir björgunarmenn
að athafna sig. Auk kafaranna
tveggja sem fóru með þyrlu Land-
helgisgæslunnar voru tveir aðrir kaf-
>'Bfcir frá Hafnarfirði sendir til að taka
þátt í leitinni.
------» 4 »------
Alverð hækk-
að um 14%
frá áramótum
Bond Evans, aðalforstjóri Alu-
max segist bjartsýnn á að áliðnað-
urinn sé á leið upp úr þeim öldu-
dal sem liann liefur verið í og
vissulega muni sú þróun hafa já-
kvæð áhrif á Atlantsálverkefnið á
Islandi. Frá áramótum hefur ál-
verð hækkað um 14% á málm-
.jiiukaðinum í London.
Evans segir það ekki tímabært að
vera með vangaveltur um það hvort
Atlantsál muni ákveða af eða á með
haustinu hvort ráðist verður í að
byggja nýtt álver á Keilisnesi. „Við
fylgjumst auðvitað grannt með þróun
mála og íhugum Atlantsálverkefnið
af fullri alvöru," sagði Bond Evans.
Sjá viðtal við Bond Evans á
miðopnu.
iviurguiiuiauio/ overrir
Vorverk í veðurblíðu
Milt og gott veður var víða um land í gær og nýttist dagurinn til vorverka í höfuðborginni eins og sjá má. Gömul tré voru felld og runnar klipptir
og greinum og spreki safnað saman.
Landspítalinn:
Frekari niðurskurði frestað
að ósk heilbrigðisráðherra
100 milljóna króna niðurskurður bíður niðurstöðu kjarasamninga
Á FUNDI í sljórn Ríkisspítalanna
í fyrradag bar Árni Gunnarsson
formaður stjórnarinnar fundar-
mönnum þau boð frá heilbrigðis-
ráðherra að fresta skyldi frekari
niðurskurði á starfsemi spítal-
ans. Forráðamenn Landspítalans
hafa þegar gert ráðstafanir sem
Coldwater Seafood:
Samningur við Færeyinga
tekinn til endurskoðunar
F0ROJA Fiskasala hefur óskað eftir endurskoðun á samningi sínum
við Coldwater Seafood, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, um sölu á framleiðslu Færeyinga á Bandaríkjamarkaði.
Hefur samningnum verið sagt upp og er uppsagnarfrestur fjórir
mánuðir frá marsbyrjun. Sljórnendur fyrirtækjanna munu hittast
síðar í mánuðinum til að fara yfir málin og ræða samskipti fyrirtækj-
„Ég vonast til að okkur takist
að halda þessum viðskiptum áfram
É®éum aðilum til hagsbóta," sagði
. 'agnús Gústafsson forstjóri
Coldwater i samtali við Morgun-
blaðið í gær. Bjarti Mohr forstjóri
Fiskisölunnar sagði að Coldwater
hafi sagt upp samningnum er þeir
óskuðu endurskoðunar á honum.
„Við viljum hinsvegar gjarnan
halda samstarfinu áfram,“sagði
ijohr í samtali við Morgunblaðið.
Coldwater hefur annast sölu fyr-
ir Færeyinga frá 1970. Magnús
sagði að tímabært væri að endur-
skoða samninginn þar sem ýmislegt
hefi breyst á þessum tíma. Nauð-
synlegt væri að setjast niður og
fara yfir samninginn að nýju, og
skoða með hvaða hætti hægt væri
að endurnýja hann þannig að hann
þjónaði hagsmunum beggja aðila
sem best.
Viðskiptin hafa sveiflast töluvert
á undanförnum árum. Þau voru
mikil á árunum 1983-84 þegar mik-
ið veiddist af þorski við Færeyjar
en hafa minnkað að undanförnu. Á
síðasta ári keypti Coldwater 2.900
tonn af fiski frá Færeyjum og er
það tæp 11_% af fiskkaupum fyrir-
tækisins. Árið áður keyptu þeir
2.400 tonn frá Færeyjum. Ýsan er
nú veigamesti hluti fiskkaupanna.
Bjarti Mohr tekur undir það sjón-
armið að tímabært sé að taka samn-
inginn til endurskoðunar og því
hafi Fiskisalan farið fram á það.
„Við erum búnir að hafa þennan
samning við Coldwater í tuttugu
ár og margt. í honum er einfaldlega
orðið úrelt,“ sagði Mohr. „Ég reikna
fastlega með að uppsagnarfrestur-
inn verði notaður til að semja upp
á nýtt enda viljum við áfram eiga
samstarf við Coldwater á Banda-
ríkjamarkaði."
skila eiga 300 milljón króna
sparnaði en eftir var að taka
ákvörðun um 100 milljón króna
niðurskurð í viðbót. Heilbrigðis-
ráðherra hefur óskað eftir að
aðgerðum varðandi 100 milljón
krónurnar yrði frestað í a.m.k.
viku.
Sighvatur Björgvinsson lieil-
brigðisráðherra segir að hann hafi
óskað eftir frestun á frekari niður-
skurði þar til niðurstöður kjara-
samninga lægju fyrir. „Þessi mál
hafa verið til umræðu í tengslum
við kjarasamninga og ég taldi ekki
rétt að gengið yrði frá aðgerðum
vegna þessa 100 milljón króna
sparnaðar í viðbót hjá Landspítalan-
um fyrr en staðan í samningamál-
unum skýröist," segir Sighvatur.
Aðspurður um hvort fé til að mæta
þessum 100 milljónum sé til segir
Sighvatur svo ekki vera. „En það
eru þijár leiðir til að afla þess, frek-
ari niðurskurður annarstaðar,
skattahækkanir eða erlend lán,“
segir hann.
Árni Gunnarsson formaður
stjórnar Ríkisspítalanna segir að
Landspítalinn hafi ekki fengið það
viðbótarfjármagn sem spítalinn
taldi sig eiga að fá úr 500 milljón
króna varasjóði heilbrigðikráðherra.
Samtals fékk spítalinn 95 milljón
krónur úr þessum sjóði en reiknaði
með að fá 200 milljónir. Megnið
af sjóðnum rann hinsvegar til Borg-
arspítalans er hann tók að sér
bráðavaktir Landakots.
„Auk þess að óska eftir frestun
á frekari niðurskurði hja Landspít-
alanum fór heilbrigðisráðherra
fram á það við stjórn Ríkisspítal-
anna að hún léti kanna möguleika
á að koma á fót sívöktum á Land-
spítalanum,“ segir Árni. „Með sí-
vöktum er átt við að stöðug bráða-
vakt sé í gangi á spítalnum og við
höfum ákveðið að athuga hvort
þetta er tæknilega mögulegt.“
Fjórtán ára
stúlka kær-
ir nauðgun
FJÓRTÁN ára. stúlka kærði í
gær nauðgun, sem hún segir
hafa átt sér stað í bifreið í
borginni.
Samkvæmt heimildum Morg-
unbiaðsins segist stúlkunni svo
frá að maður, sem ók hvítri bif-
reið, hafi boðið henni far, en
ekið með hana á afvikinn stað
og þar komið fram vilja sínum.
Hjá Rannsóknarlögreglu rík-
isins fengust þær upplýsingar í
gær að enginn hefði verið hand-
tekinn vegna málsins, en það
væri í rannsókn.