Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
92. tbl. 80. árg.
FIMMTUDAGUR 23. APRIL 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/KGA
Afganistan:
Klofningur meðal skæru-
liða á bandi Hekmatyars
Islamabad, Peshawar. Reuter.
AHMED Shah Masood virtist vera orðinn Iangáhrifamesti skæru-
liðaleiðtoginn í Afganistan í gær er skýrt var frá því að klofning-
ur væri kominn upp innan skæruliðasveita helsta keppinautar
hans, Gulbuddins Hekmatyars, leiðtoga heittrúaðra múslima.
Benon Sevan, sendimaður Sameinuðu þjóðanna, sem er að reyna
að koma í veg fyrir blóðuga bardaga um Kabúl, ræddi við Masood
í fyrsta sinn í gær. Skæruliðaleiðtoginn lofaði sendimanninum
því að sveitir hans myndu ekki ráðast á borgina og kvaðst von-
góður um að geta samið við Hekmatyar um friðsamlega lausn
á deilu þeirra um framtíð landsins.
Háttsettur embættismaður
stjórnarinnar í Kabúl sagði að fímm
foringjar skæruliðasveita sem hafa
verið á bandi Hekmatyars hefðu
sagt að liðsmenn þeirra myndu
ekki ráðast á höfuðborgina. Aður
hafði Hekmatyar hótað árásum á
borgina ef stjórnin í Kabúl gæfist
ekki upp án skilyrða fyrir sunnu-
dag. „Hekmatyar hefur ekki stjóm
á eigin sveitum," sagði embættis-
maðurinn og bætti við að fimm-
menningarnir hygðust freista þess
að ræða við Masood.
Talsmaður Hezb-i-islam, hreyf-
ingar Hekmatyars, í pakistanska
landamærabænum Peshawar vís-
aði ummælum embættismannsins
á bug. „Þetta er 100% tilbúning-
ur,“ sagði hann. Útvarpsstöð hreyf-
ingarinnar sagði að sveitir Masoods
fengju frest til miðnættis á föstu-
dag til að fara frá Kabúl, ella yrði
ráðist á þær.
Stjórnarerindrekar í Kabúl sögðu
að svo virtist sem Hekmatyar væri
að einangrast. Sveitir hans væru
ekki nógu öflugar til að geta barist
við skæruliðasveitir Masoods, sem
hafa þegar hafið samvinnu við
stjórnarherinn um að vetja höfuð-
borgina standi Hekmatyar við hót-
un sína.
Skæruliðasveitir, sem hafa náð
stærstum hluta Norður-Afganist-
ans á sitt vald, mynduðu nýlega
bandalag undir stjórn Masoods,
sem nefnist Jihad-ráð íslams.
Sveitimar eru skipaðar Tadsjikum
og Úzbekum frá norðurhluta lands-
ins en liðsmenn Hekmatyars eru
af Púshtún-ættbálkinum, sem ráðið
hefur lögum og lofum í landinu í
aldaraðir. Masood hefur lengi ein-
beitt sér að því að sameina skær-
uliðaforingja innan Afganistans en
Hekmatyar hefur reitt sig á stuðn-
ing erlendra ríkja, svo sem Pakist-
ans og Bandaríkjanna.
Najibullah Ahmadzai, sem fyrr-
verandi samstarfsmenn steyptu af
stóli forseta á skírdag, reyndi að
flýja land í gær. Hann var stöðvað-
ur á Kabúl-flugvelli, og neyddur til
að snúa aftur til borgarinnar. Hann
hefst við í skrifstofum Sameinuðu
þjóðanna og skæruliðar segja að
sú ákvörðun samtakanna að halda
hlífiskildi yfir honum geti hindrað
friðarumleitanir þeirra.
Gassprengingar í
Guadaiajara:
Rúmlega
hundrað
biðu bana
Borgin eins og
eftir loftárás
Mexíkóborg. Reuter.
EITT hundrað manns að minnsta
kosti biðu bana og allt að 600
slösuðust er gassprengingar
tættu í sundur tugi bygginga í
miðborg Guadalajara, næst-
stærstu borg Mexíkó, í gær.
Björgunarsveitir höfðu fundið
lík a.m.k. 100 manna en sam-
kvæmt fregnum mexíkanskrar
útvarpsstöðvar voru þau orðin
127 og óttast var að mun fleiri
hefðu farist.
Tugir bygginga jöfnuðust við
jörðu í sprengingunum sem urðu í
holræsakerfi borgarinnar. Hundruð
bifreiða eyðilögðust og munu marg-
ir þeirra sem biðu bana verið í þeim.
Bílar þeyttust í loft upp og þegar
sprengingunum linnti var bílhræ
að finna á þökum húsa og hang-
andi í tijám. Talið er að sprungið
hafí á um 10 stöðum.
Fréttamenn sögðu að miðborgin
væri á að líta eins og hún hefði
orðið fyrir loftárás. Þar sem
sprengingarnar hefðu átt sér stað
væru gígar allt að 15 metrum í
þvermál.
Talið er að hexan-gas hafi lekið
inn í göngin frá litlu olíufyrirtæki.
Borgarbúar sögðu að megn gaslykt
hefði borist upp úr holræsinu frá
því daginn fyrir sprengingarnar
sem hófust klukkan 10 að staðar-
tíma í gærmorgun.
Sprengingarnar urðu á afmörk-
uðu og tiltölulega litlu svæði í mið-
borg Guadalajara. Borgin er rómuð
fyrir fegurð en er jafnframt kunn
sem miðstöð fíkniefnaverslunar.
Bosnía-Herzegovína:
Átök í Sarajevo stefna
friðarferð EB í hættu
Sartyevo, París. Reuter.
BARIST var með sprengjuvörpum, vélbyssum og stórskotabyssum í
Sarajevo í gær og fleiri stöðum í Bosníu-Herzegovínu. Ráðgert hafði
verið að Carrington lávarður, sem sljórnar ráðstefnu Evrópubanda-
lagsins (EB) um júgóslavnesku lýðveldin fyrrverandi, færi til Sarajevo
í dag en búist var við í gær að hætta yrði við ferðina vegna bardag-
anna.
Colm Doyle, sem er í Sarajevo
til að skipuleggja friðarferð Carr-
ingtons, varð að gera hlé á fundi
sínum með blaðamönnum í hóteli í
borginni vegna skothríðar frá leyni-
skyttum. „Ferðin kann nú að vera
í hættu,“ sagði hann. „Við getum
engan veginn tryggt öryggi Carr-
ingtons. Þetta eru vitfirringsleg
átök. Það að hótel með embættis-
mönnum EB og blaðamönnum og
sjúkrahús skuli vera skotmörk lofar
ekki góðu... Það er verið að drepa
fólk þarna úti. Bardagarnir eru svo
harðir og grimmilegir að það er
engu líkara en að hópar manna séu
stjórnlausir."
Embættismenn EB og blaða-
menn komust ekki úr hótelinu
vegna skothríðarinnar og fátt var
því vitað með vissu um ástandið í
Sarajevo. Útvarpið í borginni skýrði
frá því að margir hefðu beðið bana
í þorpinu Sokoloviceva Kolonija en
þaðan hafa serbneskar hersveitir
haldið uppi stórskotaárásum á
Sarajevo. Júgóslavneski herinn náði
flugvellinum á sitt vald og notaði
hann til árása á borgina.
Tanjug-fréttastofan hafði eftir
lögreglunni að miklar skemmdir
hefðu orðið á opinberum bygging-
um í gamla bænum í Sarajevo.
Roland Dumas, utanríkisráð-
herra Frakklands, hvatti til þess í
gær að Sameinuðu þjóðirnar skær-
ust sem fyrst í leikinn í Bosníu til
að afstýra blóðugri borgarastyijöld.
Friðargæslusveitir á vegum SÞ eru
nú í nágrannalýðveldinu Króatíu og
eru með höfuðstöðvar í Sarajevo
en þeim hefur ekki verið falið að
hafa afskipti af átökunum í Bosníu.