Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992 27 Finnsk stéttarfélög mótmæla niðurskurði 300.000 launþegar taka þátt í verkföllum víða um landið Hclsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morg-unblaðsins. UM 300.000 finnskir iaunþegar tóku í gær þátt í mótmælaverkföll- um víðs vegar um landið. Til mót- mælanna var efnt sökum niður- skurðar á útgjöldum til félags- mála sem ríkisstjórn Esho Aho hefur ákveðið. Þótt einungis sjötti hver félagi í stéttarfélögunum hafi tekið þátt í verkfallinu er engu að síður litið á þetta sem tímamótatviðburð í Finnlandi; stéttarfélögin hafi tekið þá stefnu að hafa bein afskipti af stjórnmál- um. Esko Aho forsætisráðherra segist skilja afar vel áhyggjur launþega af efnahagskreppunni í Finnlandi en kveðst á hinn bóginn ekki fá séð hvaða tilgangi slík mótmæli geti hugsanlega þjónað. Um önnur opin- ber viðbrögð var ekki að ræða. í borginni Vasa bar mest á þeirri gagnrýni að ríkisstjórnin hefði tekið fjármuni af launþegum og gefið bönkum í Finnlandi sem eru í litlum metum meðal almennings nú um stundir. í vetur ákvað ríkisstjórnin að koma bönkum landsins til bjargar og var lögð fram upphæð sem svar- ar nokkurn veginn til þeirra tíu millj- arða finnskra marka sem nú á að spara á vettvangi félagsmála. Verkalýðsleiðtogar lögðu í ræðum sínum einkum áherslu á að ný staða hefði skapast í samskiptum ríkis- stjórnar og aðila vinnumarkaðarins. Um áraraðir hefði ríkt samstaða meðal vinnuveitenda, ríkisvaldsins Þessi spá fjármálaráðuneytisins er mun neikvæðari en hagspá sænsku þjóðhagsstofnunarinnar, sem birt var fyrir nokkrum vikum. Stofnunin spáði því að enginn hag- vöxtur yrði á þessu ári en að þjóðar- framleiðsla myndi aukast um 0,8% á næsta ári. Ríkisstjórnin reiknar með 0,2% samdrætti á þessu ári og og launþega um helstu áhersluatriði á sviði félagslegra umbóta. Nú hefði ríkisstjórnin með einhliða ákvörðun gert samkomulag þetta að engu og tekið sér rétt tii að segja launþega- samtökum fyrir verkum. 0,5% vexti á því næsta. Spá stjórnarinnar gengur út frá því að neysla muni halda áfram að minnka og að rauntekjur Svía fari lækkandi á árinu. Það er ekki fyrr 'en á næsta ári sem stjórnin telur að neysla og rauntekjur muni ná jafnvægi. Svíþjóð: Ríkisstjórnin spá- ir samdrætti áfram Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins. SÆNSKA ríkisstjórnin gerir ráð fyrir, samkvæmt skýrslu sem lögð verður fyrir þingið í vikunni, að áfram verði samdráttur í efnahagslíf- inu á þessu ári. Þar er því einnig spáð að atvinnuleysi muni aukast í 5% á næsta ári sem þýðir það að um 300 þúsund Svíar verði þá án atvinnu. Reuter Píanóið hans Beethovens Píanóleikarinn Melvyn Tan er hér að leika á 174 ára gamalt hljóð- færi, píanóið, sem snillingurinn Ludwig van Beethoven átti á sínum tíma. Er það í eigu ungverska þjóðminjasafnsins og hefur verið tek- ið rækilega í gegn. I maí á að gera víðreist með það um Evrópu og það er vel tryggt, fyrir um hálfan milljarð íslenskra króna. Reuter Nokkur hópur kommúnista safnaðist saman í Moskvu í gær til að minnast þess, að þá voru 122 ár liðin frá fæðingu Vladímírs Leníns. Borgarbúar létu sér þó yfirleitt fátt um finnast og því er æ oftar haldið fram, að í Lenín sé að leita upphafsins að afturför Rússlands í 70 ár. Rússland: Lenín lítill sómi sýnd- ur á afmælisdeginum Moskvu. Reuter. FÆÐINGARDAGUR Vladímírs Leníns, stofnanda Sovétrílq- anna, er ekki lengur almennur frídagur í Rússlandi og þeim fækkar stöðugt, sem leggja leið sína að grafhýsi hans við Rauða torgið. Fyrir flesta skiptir hann engu máli, nema kannski minjagripasalana, sem hagnast vel á viðskiptunum við útlenda ferðamenn. „Ég kom hingað til að segja Lenín hvað mig tekur það sárt hvernig búið er að fara með hann og arfleifð hans,“ sagði Tatjana Nadezhdína, gömul kona og ein fárra í grafhýsinu þennan daginn en myndir og styttur af Lenín þar sem hann stendur með óljóst bros á vör, húfuna í annarri hendi en hina teygða í átt til glæstrar framtíðar eru að heita má horfn- ar í Moskvu. Myndir af honum eru einnig að hverfa af peninga- seðlunum. Kommúnistar og lýðræðissinn- ar notuðu afmælisdaginn í gær til að senda hver öðrum tóninn og Pravda, nokkurs konar mál- gagn kommúnista, líkti núver- andi valdhöfum við Júdas. Réðst blaðið hart að Borís Jeltsín for- seta og sérstaklega að innanrík- isráðherra hans, umbótafrömuð- inum Gennadíj Búrbúlís. „Núverandi innanríkisráð- herra var áður við kennslu í marx-lenínisma í heimabæ sínum í Uralfjöllum. Hvenær laug hann — þá eða nú?“ spurði Pravda en umbótasinnarnir iétu ekki sitt eftir liggja. Dmítríj Volkogonov, sem var áður háttsettur embætt- ismaður í kommúnistaflokknum og sovéska hernum en nú ákafur talsmaður lýðræðislegra stjórn- arhátta, segir í Izvestíu, að það sé Lenín að kenna hvernig komið sé í Rússlandi. Hann hefði aldrei getað gert sér grein fyrir afleið- ingum kommúnismans, „þessi maður, sem litið var til sem snill- ings“. Weetab/x $ HJARTANS TREFJARIKT ORKURÍKT FITUSNAUTT HOLLT... og gott með mjólk, súrmjólkp AB mjólk v6 og jógúrt. Einnig með sykri, sultu og hunangi, eða blandað ferskum og þurrkuðum ávöxtum. WetabTx Whnt Brtokfoit Cmol , MAL Wéetabix Wholt Whial Briahfait Cirial TREFJARlKUR MORQUNVERDUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.