Morgunblaðið - 23.04.1992, Síða 21

Morgunblaðið - 23.04.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992 21 Verð frá: 1.548.000,- Greiðslukjör við allra hæfi Til sýnis núna að Vatnagörðum 24 virka daga kl. 9:00 - 18:00 og laugardaga kl. 11:00 - 15:00. Nánari upplýsingar f sfma 68 99 00 ŒJ) 1 HONDA Húsnæðismál ungs fólks að loknu námi eftirHrafn Sæmundsson Þegar námsmenn koma heim frá námi erlendis eða úr langskólanámi hér heima, blasir við þeim nöturlegur veruleiki. Fólk um þrítugt eða eldra stendur allt í einu frammi fyrir þeirri staðreynd að verða að bytja nýtt líf á núlli. Það er eignalaust, það er með verulegar skuldir við Lánasjóð íslenskra námsmanna og það er í fíestum tilfellum húsnæðislaust. Og þetta unga fólk rekur sig á fleira. Það er ekki lengur boðið í það á vinnumarkaði. Það er ekki lengur í boði að vinna tvöfalda eða þrefalda vinnu. Það er ekki einu sinni öruggt lengur að allir fái atvinnu við sitt hæfi eða yfirleitt einhveija vinnu. Margt af þessu fólki sem kemur úr langskólanámi er komið með fjöl- skyldu. Meðan á náminu stendur hefur það bæði erlendis og hér heima oft haft möguléika á að búa við þær aðstæður að hafa börn sín á leikskól- um og hefur að öðru leyti getað sinnt uppeldi þeirra með náminu. Einn daginn er skorið á þetta allt. Þetta er stórt mál í hnotskurn. íslenski „draumurinn" er ekki lengur fyrir hendi. Þjóðfélagið er að breyt- ast. Veiðimannaþjóðfélagið er að líða undir lok. Það verður að endurmeta marga hluti. Kannski allt. Það verður að breyta um lífsstíl. Það verður að breyta skipulagi efnahagsmálanna. Ungt fólk getur ekki — og kannski vill ekki lengur — fórna öllu fyrir þá grunnþörf að hafa þak yfir höfuð- ið. Það vill ekki leggja fjölskylduna í hættu, það vill ekki fórna uppeldi barna sinna, það vill ekki eyða bestu árum ævinnar í galeiðuþrældóm fyr- ir einföldum frumþörfum. Og það er engin ástæða til að fólk þurfi að gera þetta í einu ríkasta landi ver- aldarinnar. Þessvegna verður meðal annars að breyta húsnæðiskerfinu þannig að námsfólk geti gengið inn í hóflegt húsnæði á viðráðanlegum kjörum að loknu námi. Leiguhúsnæði eða kaup- leiguhúsnæði sem fjármagnað er til langs tímaö Þetta mál verður ekki leyst innan núverandi húsnæðiskerf- is. Einkaaðilar — verktakar og byggingarfélög verða að breyta um starfsaðferðir. Það verður að fjár- magna til langs tíma íbúðarhúsnæði til leigu eða kaupleigu eins og gert er alls staðar í nálægum löndum. Til þess þarf ef til vill að taka erlend lán og jafnframt að lækka bygging- arkostnað. Íburður og bruðl í hús- byggingum á íslandi er löngu farin að storka heilbrigðri skynsemi og svokallaður efnahagsvandi á að hluta rót sína að rekja til þessarar „geð- veiki“! Þetta mál sem hér er drepið á er mjög brýnt. Og þó talað sé um hús- næðismál fólks sem kemur úr lang- skólanámi á þetta að sjálfsögðu við um þarfir annarra þjóðfélagshópa. Mál námsmanna er hinsvegar sér- kafli í þessu verkefni núna. Ef fyrir- hugaðar breytingar verða á kjörum í Lánasjóði íslenskra námsmanna fá námsmenn sem koma úr framhalds- námi minni aðlögun og þyngri greiðslubyrðar. Það er þess vegna vandséð hvernig meginþorri þessa fólks kemst í húsnæði. Leigumarkað- ur er nánast ekki fyrir hendi og vegna gerðar peningamarkaðarins og vaxtapólitíkur verður leiga að vera óhugnanlega há til að standa undir byggingarkostnaði. Þessu þarf að breyta eins og áður er sagt og ekki aðeins með langtímalánum og ef til vill erlendum lánum heldur og ekki síður með því að lækka bygging- arkostnaðinn. Til þess þarf stefnu- breytingu og hugvit og það þarf að nýta betur það fjármagn sem fer í íbúðarbyggingar. Námsmenn þurfa fyrst og fremst sjálfir að taka þessi mál til umræðu á víðu plani. Það stendur þeim næst „Það verður að endur- meta marga hluti. Kannski allt. Það verð- ur að breyta um lífsstíl. Það verður að breyta skipulagi efnahagsmál- anna.“ að mynda sér skoðanir og vinna að heildstæðri stefnumörkun í þessu máli. Námsmenn þurfa að vera opnir fyrir nýjum hugmyndum og ef til vill byltingarkenndum hugmyndum í þessum efnum. Það þarf að tengja lausn húsnæðismálanna við breytt gildismat og verðmætamat fólks. Hvað er mikilvægast? Hvort er upp- eldi bama mikilvægara en íburður í húsnæði? Eru frístundir og menning- arlíf mikilvægara en það að hlaða upp dauðum hlutum langt fram yfir skynsamlegar þarfir? Og það eru margar aðrar spurningar sem þarf að svara. En aðalatriðið er að náms- menn hafi sjálfir skoðanir á þessu máli og fjalli um það af raunsæi. Og hinsvegar er það mikilvægt að aðilar í byggingariðnaði sjái þessa hluti í rökréttu ljósi. Þeir verða eins og áður er sagt að hefja nýja mark- aðssetningu í íbúðarbyggingum. Þeir verða að líta meira til framtíðar og leita nýrra ijármögnunarleiða hér- lendis og erlendis. Verktakar og byggingarfélög verða að skilja að veiðimannaþjóðfélagið er einnig að hverfa í þeirra bransa. Höfundur er atvinnumálafulltrúi. Hrafn Sæmundsson Foreldrar! Takið mynd af börnunum með þeim Guffa og Andrési. Fjarðarkaup kl. 13. Kringlan kl. 15,16 og 17. 2.6J-Í Jii*gard&iur: Kringlan kl. 13 og 14. Mikligarður kl. 15. Þaö er ekki nema von að Guffi og Andrés séu kátir því aö þeir eru aö koma til íslands í fyrsta sinn, f boöi Coca Cola og Disney- klúbbsins. Þeir félagarnir munu bregöa á leik í stórmörkuöum á föstudaginn og laugardaginn og láta þar öllum góöum látum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.