Morgunblaðið - 23.04.1992, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRIL 1992
Vantar vilja
til að vernda
umliverfið
VESTRÆN-
IR þjóðarleið-
togar sem
ætla að taka
þátt í um-
hverfisráð-
stefnunni í Ríó
de Janeiro í
júní hafa ekki
nægan póli-
tískan vilja til
að taka á þeim
hættum sem steðja að umhverf-
inu, sagði Gro Harlem Brundt-
land, forsætisráðherra Noregs,
í viðtali við breska ríkisútvarp-
ið, BBC, í gær. Brundtland er
formaður umhverfisnefndar
Sameinuðu þjóðanna, sem
standa fyrir ráðstefnuhaldinu í
Brasilíu. Þar á meðal annars
að móta heildarstefnu þjóða
heims um varnir gegn nátt-
úruvá. En leiðtogar sumra vest-
rænna þjóða óttast að náttúru-
vemdin kunni að reynast of
kostnaðarsöm. .
Kóladrykk-
ir bannaðir
SÆTIR gosdrykkir eins og
Kókakóla og Pepsíkóla verða
settar á bannlista í skólum í
Singapore frá og með júnímán-
uði næstkomandi, að því er frá
er sagt í frétt í dagblaðinu
Straits Times í gær. Markmiðið
er að stuðla að heilsusamlegu
líferni nemenda og draga úr
offitu meðal þeirra, að því er
haft var eftir talsmanni mennt-
amálaráðuneytisins. „Við emm
að útbúa lista yfir drykki sem
innihalda minna en 10% sykur
og leyft verður að selja í mötun-
eytum skólanna," sagði hann.
I janúarmánuði bönnuðu stjórn-
völd framleiðslu, sölu og inn-
flutning á tyggigúmmíi.
Sekt fyrir
eggjakast
NÁMSMAÐUR sem kastaði.
eggi í John Major, forsætisráð-
herra Breta, á kosningafundi
fyrr í þessum mánuði, var sekt-
aður um 100 sterlingspund (um
10.000 ísl. kr.) á miðvikudag.
Honum var enn fremur gert
að kosta hreinsun á fötum ráð-
herrans. Fleiri urðu til að kasta
eggjum í Major og hann varð
fyrir ýmsu öðru hnjaski á fram-
boðsfundum sínum, en talið er
að hann hafi uppskorið mikla
samúð meðal kjósenda fyrir
vikíð.
Fujimore lof-
ar kosningum
ALBERTO
Fujimori
Perúforseti
hét því í gær
að efna til
þjóðarat-
kvæðis í júlí
nk. um þá
ákvörðun sína
að rjúfa þing
og loka dóm-
stólum. Einn-
ig boðaði hann kosningar um
nýja stjórnarskrá í nóvember
og loks lofaði hann þingkosn-
ingum í febrúar 1993. Maximo
San Roman varaforseti Perú
sór á þriðjudag embættiseið
sem forseti landsins að við-.
stöddum 200 af 240 þingmönn-
um á löggjafarsamkundunni
sem Fujimori leysti upp. San
Roman sagði að með valdarán-
inu 5. apríl væri Fujimori orðinn
einræðisherra og því misst for-
setavald sem stjórnarskráin
kvæði á um.
Fuíimori
Reuter
Rússneskur gervihnöttur á uppboði í París
Ungur maður lítur inn í rússneskan gervihnött, sem
er nú til sýnis á götu skammt frá Champs-Elysees í
París. Gervihnettinum var komið upp í geiminn í apríl
1985 og verður seldur á uppboði í París í dag.
Fiskveiðideilur Kanada og EB:
Vísindamenn fjalla
um hrun fiskistofna
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
JOHN Crosbie, sjávarútvegsráðherra Kanada, skýrði frá því á
þriðjudag að hann hefði farið fram á sértstakan fund vísindanefnd-
ar Norðvestur-Atlantshafsnefndarinnar (NAFO) til að fjalla um
ástand fiskstofna undan Kanada og orsakir yfirvofandi hruns þeirra.
Gert er ráð fyrir að aukafundurinn verði haldinn í tengslum við
árlegan fund vísindanefndarinnar sem verður 3. júní.
í yfirlýsingunni segir Crosbie að
tilgangur fundarins sé sá að leiða
aðildarríkjum NAFO og þá sérstak-
lega Evrópubandalagsins (EB) í
ljós hversu alvarlegt ástand fisk-
stofnanna sé. Vonir eru bundnar
við að á fundinum takist að miðla
málum á milli EB og Kanada en
orðahnippingar þeirra háfa magn-
ast á síðasta misseri og nú er ótt-
ast að sjómenn á Nýfundnalandi
láti hendur skipta verði ekki ráðin
bót á rányrkju EB-flotans. Kanada-
menn hafa ásakað flota EB um
ofveiðar utan 200 mílna markanna
á Stórabanka annars vegar á þorski
sem heldur til á norðvestanverðum
bankanum og hins vegar á fjórum
flatfískstofnum á bankanum
sunnanverðum. Þorskurinn á
norðanverðum bankanum er undir
stjórn Kanadamanna sjálfra þar
sem 95% stofnsins eru alla jafna
innan kanadískrar lögsögu. Þrátt
fyrir sex ára veiðibann hefur EB
einhliða ákveðið kvóta fyrir flota
Svíþjóð:
Werner lætur
af formennsku
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara
Morgunblaðsins.
LARS Werner, formaður Vinstri-
flokksins í Svíþjóð, ætlar að láta
af embætti á þingi flokksins á
næsta ári. Margir háttsettir félagar
í flokknum höfðu krafist tafar-
lausar afsagnar Werners eftir að
hann kom fram ölvaður á blaða-
mannafundi á dögunum. Er það
alls ekki í fyrsta sinn sem það ger-
ist.
Líklegast er talið að varaformað-
ur flokksir.s, Gudrun Schyman, taki
við formennskunni af Werner.
sinn en það hafa önnur aðildarríki
NAFO á hinn bóginn ekki gert.
Um síðustu áramót ákváðu
Kanadamenn að banna eigin togur-
um allar veiðar úr þorskstofninum
a.m. k. á fyrri helming þessa árs.
Á halanum á Stórabanka þykir
sannað að floti EB stundi rányrkju
á flatfiski á uppeldisslóðum. Stað-
fest er að möskvar í veiðarfærum
EB-flotans séu langt undir sam-
þykktum lágmörkum.
Gert er ráð fyrir að NAFO-
nefndin komi saman 11. til 15. maí
í Halifax til þess að fjalla um eftir-
lit með veiðum á umsjónarsvæði
nefndarinnar og aðgerðir til að
tryggja að farið sé að settum regl-
um við veiðarnar. í yfirlýsingu sinrii
leggur Crosbie áherslu á nauðsyn
þess að kvótaákvörðunum NAFO
sé hlýtt, fari svo sem horfir sé
hætt við að stofnar á borð við
þorsk, flatfisk, og karfa hverfi end-
anlega af Stórabanka fiskimönnum
við Norðvestur- Atlantshaf til
óbætanlegs tjóns.
Líflát Roberts
Altons Harris:
Fjölmiðlar
í Evrópu
fordæma
aftökuna
London. Reuter.
DAGBLÖÐ í Vestur-Evrópu
þar sem dauðarefsing var
afnumin fyrir löngu for-
dæmdu í gær aftöku Roberts
Altons Harris í San Quentin-
fangelsinu í Kaliforníu. Tim-
es of London kallaði aftök-
una „viðurstyggilegan at-
burð“ og sagði, að líflát með
gasi væri óvanaleg og kvala-
full refsing. „Hvernig getur
nokkurt ríki notað gasklefa,
morðtól nasista?" spurði
blaðið.
Harris var tekinn af lífi á
þriðjudag og hafði þá verið
færður í gasklefann tvisvar
sinnum. í fyrra sinnið var búið
að binda hann við stólinn í klef-
anum þegar áfrýjunarréttur
frestaði aftökunni. Var hann
þá leystur en síðan líflátinn
þegar hæstiréttur hafnaði frek-
ari frestun.
í Frakklandi, þar sem fallöx-
in var áður notuð, sagði blaðið
La Meridional, að aftakan hefði
verið hryllingur, þessi hring-
snúningur með dauðadæmdan
mann hefði tekið fram öllu því,
sem nokkur rithöfundur hefði
getað sett saman, jafnvel þótt
hann væri fullur kvalalosta.
Dionigi Tettamanzi, formaður
ítölsku biskupasamtakanna,
tók í sama streng og gagnrýndi
harðlega, að bandarískt sjón-
varp skyldi hafa birt myndir
af dauðamanninum í klefanum.
Fjölmiðlar og mannréttinda-
samtök í Bandaríkjunum hafa
einnig þau orð um aftökuna,
að hún hafi verið skelfileg en
almenningur er á öðru máli.
Samkvæmt síðustu skoðana-
könnunum eru nú 75% Banda-
ríkjamanna fylgjandi dauða-
refsingu og þeir gráta þurrum
tárum yfir örlögum Harris.
Hann var dæmdur fyrir að
myrða tvo unglingspilta árið
1979 með köldu blóði og hann
gaf sér meira að segja tíma til
að borða hamborgarana, sem
þeir voru með, áður en hann
stal bílnum þeira.
Aðgerðir gegn ofveiði í Bandaríkjunum:
Þorsk- og laxveiðin hef-
ur aldrei verið minni
New York. Frá Huga Ólafsayni, frcttaritara Morgunblaðsins.
GRIPIÐ hefur verið til róttækra friðunaraðgerða í Bandaríkjun-
um til að koma í veg fyrir ofveiði á þorski, ýsu, Iaxi og öðrum
verðmætum fiskstofnum. Bolfiskafli hefur dregist saman um tvo
þriðju frá því hann var mestur um 1980 og fer enn minnkandi.
í Nýja-Englandi á norðanverðri
Atlantshafsströndinni er þorsk-
og ýsuafli minni enn nokkru sinni
og yfirvöld þar hafa boðað strang-
ar aðgerðir til að rétta stofnana
við. Nýjum bátum Verður bannað-
ur aðgangur að miðunum, sóknar-
dögum verður fækkað og möskva-
stærð aukin. Afli á svæðinu hefur
aldrei verið minni - tæp 100.000
tonn - og er aðeins tæpur helm-
ingur þess sem hann var fyrir
áratug. Þar að auki hefur hlutfall
verðmætustu tegundanna svo sem
þorsks, ýsu og lúðu, fallið úr 75
af hundraði í um fjórðung af afl-
anum. Talið er að aflasamdráttur-
inn hafi kostað 14.000 manns
atvinnuna í Nýja-Englandi.
Aðeins verður leyft að veiða
um 300.000 laxa á Kyrrahafs-
ströndinni í ár, sem er aðeins
helmingur af aflanum í fyrra og
yrði það minnsta veiði í sögunni.
Líffræðingar kenna ofveiði og
skógarhöggi sem gruggar ár um
hrun laxstofnsins.
Bandaríkin, sem eru fjórða
helsta fiskveiðiþjóð heims, tóku
upp 200 míína fiskveiðilögsögu
með hinum svokölluðu Magnuson-
lögum árið 1976. Afli heima-
manna tvöfaldaðist á fjórum árum
eftir að útlend skip hurfu af mið-
unum, en er nú aftur orðinn svip-
aður eftir útfærslu lögsögunnar.
Hluti af sökinni skrifast á
reikning sjö svæðisnefnda, sem
eiga að stjórna veiðum en þær eru
að mestu leyti skipaðar fulltrúum
hagsmunaðila. í Nýja-Englandi
var tekið upp kvótakerfi við út-
færslu lögsögunnar en það var
afnumið 1981 fyrir áeggjan sjó-
manna. Ástæðan fyrir að gripið
er til aðgerða nú er sú að umhverf-
isverndarsamtök kærðu svæðis-
nefndina fyrir vanrækslu og dóm-
stóll krafðist þess að hún kæmi í
veg fyrir frekari ofveiði.
Helsta stjórntækið á sviði fisk-
veiða í Bandaríkjunum hefur verið
takmörkun veiðidaga, eins og í
Alaska, þar sem ýsuveiðar eru
aðeins leyfðar í örfáa daga á ári
og er þá hvaða lekabytta sem er
sett á sjó. Sala veiðileyfa er lítið
notuð, öfugt við það sem tíðkast
í nágrannaríkinu Kanada, en hef-
ur verið reynd við skelfiskveiðar.