Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRIL 1992
39
Pétur Pan á Armani skóm
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Stjörnubíó, Krókur - „Hook“
Leikstjóri Steven Spielberg.
Handrit Jim V. Hart og Malia
Scotch Marmo, byggt á söguper-
sónum úr leikriti og sögu J.M.
Barries, Peter Pan. Kvikmynda-
tökustjórn Dean Cundey. Klipp-
ing Michael Kahn. Tónlist John
Williams. Aðalleikendur Dustin
Hoffman, Robin Williams, Julia
Roberts, Bob Hoskins, Maggie
Smith. Bandarísk. Amblin Ent.
TriStar 1991.
Það er alkunna að einn mesti
ævintýrasmiður kvikmyndanna fyrr
og síðar, Steven Spielberg, var bú-
inn að ganga með kvikmyndagerð
Peters Pan í fjölda ára áður en í
stórvirkið var ráðist. En þessi ævin-
týrasaga og leikrit hefur notið gíf-
urlegra vinsælda í hinum ensku-
mælandi heimi og á þar ekki lítinn
hlut að máli teiknimynd Disneys frá
1953.
Spielberg hefur tekið þann kost-
inn að færa söguna fram 'á tuttug-
ustu öldina. Nú er Peter Pan orðinn
Peter Banning (Williams), fertugur
bandarískur lögfræðingur sem hef-
ur allt af öllu, fallega konu, dóttur
og son. Vegnar vel í viðskiptum en
hefur gleymt gjörsamlega baminu
í sjálfum sér, að maður tali ekki
um upprunann. En í heimsókn til
Wendy frænku (Smith) í London
er hann minntur hressilega á hann.
Því Krókur kapteinn sjálfur (Hoff-
man) gerir nú lokatilraun að ná
fram hefndum á þessum erkifjanda
sínum og stelur börnum hans eina
nóttina. Svo leikurinn berst enn á
ný til Huldulands þar sem fortíðin
smá rifjast upp fyrir lögfræðingn-
um sem kastar nú sínum Armani
skóm og leggur loks til atlögu við
óvininn með góðri hjálp týndu
drengjanna og ekki síst Gló (Rob-
erts).
Ekki ónýtt efni fyrir bragðaref-
inn að bauka við. Og enginn fjár-
skortur á þessum bæ. En því miður
bera brellurnar söguna ofurliði og
kæfa á köflum þetta hugljúfa ævin-
týri. Það er engu líkara en Spiel-
berg sé farið að fatast flugið, hann
hefur nú gert hveija myndina á
fætur annarri sem komast ekki í
hálfkvist við hans bestu myndir.
Hér er hann með kjörinn efnivið
og hann gerir honum á köflum góð
skil. Kannski er lögfræðingurinn
full kuldalegur í upphafinu en þá
er einmitt efninu beint inn á um-
hugsunarverð atriði, hversu nú-
tímamaðurinn sinnir skammt barn-
inu í sjálfum sér í algleymi efnis-
hyggjunnar sem ennfremur vill gera
það að verkum að við sinnum ekki
börnunum okkar nógu vel þann
skamma tíma sem við höfum til að
móta þau og umgangast af þeirri
ástúð og umhyggju sem gefst ekki
færi á seinna á lífsleiðinni.
En svo tekur við húllumhæið í
Huldulandi. Leiktjöldin eru af þeim
gæðastaðli að verðmiðinn uppá tug-
milljónir dala stendur á þeim. Þau
eru í einu orði sagt ævintýraleg.
En of mikið má af öllu gera því
handritið er ekki of sterkt og hálf-
kafnar í allri tækninni og peninga-
flóðinu. Og húmorinn af heldur
skornum skammti, enda sjaldnast
Saga úr Suðurríkjunum
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Steiktir grænir tómatar („Fried
Green Tomatoes at the Whistle
Stop Café“). Sýnd í Háskóla-
bíói. Leikstjóri: Jon Avnet.
Handrit: Fannie Flagg og Carol
Sobieski, byggt á samnefndri
bók Flagg. Aðalhlutverk: Kathy
Bates, Jessica Tandy, Mary-
Louise Parker og Mary Stuart
Masterson.
Hin undarlega nafngift á mynd-
inni Steiktir grænir tómatar eða á
frummálinu „Fried Green Tomato-
es at the Whistle Stop Café“, er
fengin af sérrétti matsölustaðarins
í smábænum Whistle Stop í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna, sem er
sögusvið myndarinnar. Staðurinn
tengir saman persónur og leikend-
ur í skemmtilegri og manneskju-
legri fjölskyldusögu, sem er í senn
„Freejack“. Sýnd í Regnbogan-
um. Leikstjóri: Geoff Murphy.
Byggð á sögu Robert Sheckley,
„Immortality Inc.“. Aðalhlut-
verk: Emilio Estevez, Rene
Russo, Mick Jagger, Anthony
Hopkins,DavidJohansen.
„Freejack" er byggð á vísinda-
skáldskap eftir einn af höfðingjum
slíkra bókmennta, Robert Sheckley,
sem gerði „Immortality Inc.“, en
fjórir handritshöfundar hafa tekið
grunnhugmyndina úr sögunni og
steypt í bíómynd um möguleikann
á eilífu lífi með hugsanaflutningi.
Fyrir þá sem þekkja til og alla aðra
ætti myndin að virka sæmilega vel
án þess að skara neitt framúr á
sínu sviði. Vísindaskáldskapurinn
er athyglisvert afbrigði af tímaferð-
alagshugmyndinni, framtíðarsýnin
svartnættið eitt eins og tískan er á
okkar neikvæðu tímum og hasarinn
ágætlega af hendi leystur. Þótt hún
sé ekki í neinum þungavigtarflokki
og eitt og annað þoli ekki mikla
nærskoðun heldur hún manni við
efnið og er mestanpart skemmtileg.
Sekúndubroti áður en kappakst-
urshetjan Alex Furlong, sem Emilio
Estevez leikur heldur linkulega,
ferst í kappakstri eru líkami hans
og sál flutt inn í framtíðina þar sem
milljónamæringar geta tryggt sér
eilíft líf með hugsanaflutningi;
þeirra veiku líkamar deyja en heila-
starfsemin er flutt yfir í „nýtt kjöt“
eins og Furlong. Nema kappakst-
urshetjan kveikir á því að hann er
lentur inni á all óvenjulegri gjör-
gæslu og hefur sig á burt. Hann
kemst að því að nú er árið 2009 —
18 ár hafa liðið frá „dauðaslysinu“
— og með öryggissveitir á eftir sér
undir stjórn Micks Jaggers reynir
hann að hafa upp á gömlu félögun-
falleg og sorgleg og fjallar um
samstöðu og ástúðlega vináttu
tveggja vinkvenna sem reka stað-
inn.
um, m.a. kærustunni sinni, leikinni
af Rene Russo, og manninum sem
öllu stjórnar og hyggst koma sér í
líkama hans.
Hvernig heimurinn varð eins 'og
hann er í myndinni á 18 árum er
aldrei skýrt en þjóðfélagið skiptist
nú í þá sem allt eiga og þá sem
ekkert eiga. Framtíðarsýnin sjálf
er varla frumleg lengur; það ríkir
einræði í ætt við Stóra bróður, stutt
af þungvopnuðum öryggissveitum,
ofbeldi er allsráðandi á götunum,
heimilisleysingjar eigra um á milli
skotbardaga, allir eru veikir á ein-
hvern hátt, ósonlagið ekkert. Heil-
brigður líkami er virði þyngdar
sinnar í gulli. Á toppnum ríkja við-
skiptajöfrar eins og sá sem Anthony
Hopkins leikur, maður sem fundið
hefur upp aðferð til að öðlast eilíft
líf í nýjum líkama.
„Freejack" gerir svosem ekki
mikið fýrir vísindaskáldskapar-
myndir. Til þess skortir frumlegra
yfirbragð og ríkulegra hugmynda-
flug. í miðpunkti er eltingaleikurinn
við Furlong um öngstræti og yfir-
gefin verksmiðjuhverfi á nóttu sem
degi og hann vill dragast á langinn
með her manns sem dvalið hefur
of lengi í búningadeildinni. Rokkar-
inn Mick Jagger er glettilega góður
sem yfirmaður öryggissveitanna og
hefur greinilega yndi af óþokka-
skapnum en er algerlega óskiljanleg
persóna; maður veit ekki með hveij-
um hann stendur stundinni lengur.
Hopkins er fágunin uppmáluð og
refslegur líka en það kviknar aldrei
líf í sambandið á milli Estevez og
kærustunnar, Russo. „Freejack" er
sæmilegasta skemmtun sem vís-
indaskáldskaparmynd en kemur í
fáu á óvart.
Sagan gerist reyndar á tveimur
tímaskeiðum. Annars vegar í nú-
tímanum þegar húsmóðir ein, leik-
in af Kathy Bates, sem á við offitu-
vandamál að stríða og nokkur
önnur vandamál miðaldra ævi-
skeiðsins, kynnist gamalli konu á
elliheimili skammt frá Whistle
Stop. Jessica Tandy leikur hana
og hrífur húsmóðurina með sér
aftur í tímann með frásögnum af
örlögum vinkvennanna Idgie Thre-
adgoode (Mary Stuart Masterson)
og Rut (Mary Louise Parker), sem
opna.og reka matsölustaðinn sam-
an. í gegnum frásagnir gömlu
konunnar af lífi þeirra, hugrekki
þeirra, missi og vináttu, öðlast
húsmóðirin að nýju trú á sjálfa sig
og lífið sem rándýr námskeið
hefðu aldrei getað veitt henni.
Saga gömlu konunnar er mjög
góð, safarík og spennandi. Hún
spannar a.m.k. tvo áratugi frá
fyrri heimsstyijöldinni til hinnar
síðari og fjöldi persóna kemur við
sögu í stórum og smáum hlutverk-
um, raktir eru viðburðir í lífi hinn-
ar stóru Threadgoodefjölskyldu,
sorglegir og gamansamir og inn í
fléttast jafnvel morðsaga þegar
ofbeldisfullur eiginmaður Rutar,
Klansmaður sem hún hefur flutt
frá, er myrtur þar sem hann er
að ræna barni þeirra. í miðpunkti
eru vinkonurnar Idgie og Rut sem
veigra sér ekki við að afgreiða
svertingja í veitingahúsinu sínu
þrátt fyrir andstöðu sveitamanna
og eru óaðskiljanlegir vinir.
Það er vandasamt og djarft að
blanda saman sterkri sögu úr
fortíðinni við vandamál nútímans
en það tekst ágætlega hér. Mynd-
in er líka um tímann og söknuðinn
eftir horfnum tíma og horfnum
vinum.
Það er ekki sist að þakka frá-
bærum leik þeirra óskarsverð-
launahafa, Kathy Bates og Jessica
Tandy, að vel heppnast að sameina
samtimainnskotin við frásögnina
úr fortíðinni. Bates er kostuleg
sem hin áhyggjufulla húsmóðir er
klæðir sig í sellófan til að ná at-
hygli sjónvarpssjúks eiginmanns
síns og fer á handónýt námskeið
í leitinni að sjálfsvitund. Tandy er
stórskemmtileg og gáskafull í
hlutverki gömlu konunnar og sög-
umanns myndarinnar. Þá eru þær
ekki síðri Mary Stuart Masterson
sem ótemjan Idgie með góða
hjartalagið og Mary Louise PaVker
sem Rut vinkona hennar, veik-
byggðari, en staðföst líka.
Steiktir grænir tómatar (látið
kúnstugt nafnið ekki letja ykkur)
er ein af þessum góðu, alvarlegu
myndum og hlédrægu sem fólk
ætti endilega að sjá en hættir til
að missa af. Hún er sannarlega
bíómiðans virði.
Dýrmætur líkami
Robin Williams sem Peter Banning (Pan) og Dustin Hoffman sem
Krókur kapteinn eru kúnstugir og það besta í nýjustu ævintýramynd'
Spielbergs.
verið sterkasta hlið leikstjórans og
hans hjálparkokka. Hér bregður
honum hvað helst fyrir í harla
ómerkilegum tertukastsatriðum sen
verða furðu langdregin. Hann lukk-
ast hinsvegar betur í skemmtileg-
ustu persónunni, Króknum, sem
leikinn er af snilld Hoffmans sem
er í essinu sínu og glæðir hann stór-
karlalegu lífi teiknihetjunnar. Will-
iams er firnagóður í hlutverkum
Pétranna Pan og Banning, önnur
hlutverk smáleg nema Wendy
frænka sem blómstrar í öruggum
höndum Maggie Smith.
Það vantar ekki skrautbúinn
rammann en innihaldið veldur
nokkrum vonbrigðum, einkum þeg-
ar haft er í huga að yfirsmiðurinn
er engin annar en höfundur þess
töfrandi fagra og sígilda ævintýris,
E.T. Myndin er vönduð í öllu útliti
og engin spurning um að hún er
hin besta afþreying fyrir smáfólkið.
Þeir sem minnast E.T. sakna þess
hinsvegar að ekki var lögð meiri
einbeiting í söguþráðinn, heilsteypt-
ari framvindu ævintýrsins og mann-
lega þáttinn.
FLEX-O-LET TREKLOSSARNIR
FÁST NÚ HJÁ OKKUR.
Hvítir í stærð 35-41 kr. 4.695.-
Svartir í stærð 41-47 kr. 4.995.-
Geysir seldi þessa klossa um árabil. Sendum um allt land.
Grandagarði 2, Rvík, sími 28855, grænt númer 99-6288.
)VE$AINriAURENl
Kynning
á nýju vor- og sumarlitunum í
SAJÍDXA
Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði
Þórunn Jónsdóttir, förðunarfræðingur, veitir ráðgjöf
um förðun og liti
á morgun, föstudag, frá kl. 12-18 og
á laugardag frá kl. 12-16.
Tekið er við tímapöntunum í síma 53422 ef óskað er.