Morgunblaðið - 23.04.1992, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRIL 1992
+ FRIÐJÓN SIGURBJÖRNSSON, Hjarðarhaga 40, lést í Borgarspítalanum 22. apríl. Ingiberg Guðbjartsson, Kristján Guðbjartsson.
+ Elskuleg móðir okkar og systir, KLARA EGGERTSDÓTTIR, Stórholti 14, lést 21. apríl. Guðrún Guðjónsdóttir, Heiða Guðjónsdóttir, Guðný Guðjónsdóttir, Fanný Eggertsdóttir.
+
Ástkær eiginkona mín,
ELÍN AUÐUNSDÓTTIR
frá Minni-Vatnsleysu,
Ásbraut 3,
Kópavogi,
lést af slysförum þriðjudaginn 21. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Friðgeir H. Eyjólfsson.
t
Ástkær faÖir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÁGÚST ÞÓR GUÐJÓNSSON,
lést í Landspítalanum aðfaranótt 22.
apríl.
Jón Ágústsson,
Ágúst Ágústsson,
Þorlákur Ari Ágústsson, Gróa Eyjólfsdóttir,
Guðjón Róbert Ágústsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Þuríður Jana Ágústsdóttír, Arnlaugur Samúelsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför móður minnar,
GUÐBJARGAR HALLDÓRU SVEINSDÓTTUR
frá Norðfirði,
Fannborg 1,
Kópavogi,
sem lést 14. þ.m., verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 25. apríl kl. 14.00.
Ingunn Stefánsdóttir.
+
Ástkær sonur okkar og barnabarn,
JÓHANN ÞÓR STEFÁNSSON,
Hæðargarði 10,
Höfn,
er andaðist á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans 15. apríl, verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
24. apríl kl. 15.00.
Gréta Friðriksdóttir, Stefán G. Steinarsson,
Jóhanna Guðlaugsdóttir, Þórketill Sigurðsson.
+
Ástkær sonur minn, unnusti, bróðir og mágur,
INDRIÐI KRISTJÁNSSON,
Leyningi,
Eyjafjarðarsveit,
sém lést af slysförum miðvikudaginn 15. apríl, verður jarðsunginn
frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. apríl kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlega bent á björgun-
arsveitirnar.
Áslaug Kristjánsdóttir,
Petra Kristjánsdóttir,
Haukur Krístjánsson,
Erlingur Kristjánsson,
Vilhjálmur Kristjánsson,
Sigríður Sveinsdóttir,
Kolbrún Elfarsdóttir,
og systkinabörn.
Gunnar Frímannsson,
Þorkell Pétursson,
Margrét Hólmsteinsdóttir,
Pollý Brynjólfsdóttir
Gestur Amason,
prentari - Minning
Fallinn er frá löngu fyrir aldur
og mjög svo óvænt náfrændi minn
og sérstaklega kær vinur.
Það hvarflaði ekki að mér þegar
við Gestur hittumst síðast að það
yrðu okkár síðustu samskipti í þessu
lífi. En ef til vill er það einn af
kostum tilveiunnar að geta ekki
ráðið of langt inn í hið ókomna og
látið hveija nótt sem nemur.
Gestur var fæddur á Glettinga-
nesi við Borgarfjörð eystri og var
einkasonur móðursystur minnar
Gyðu Árnadóttur. Hann ólst framan
af að mestu leyti upg hjá móður-
bróður okkar, Jóni Árnasyni, og
konu hans, Þórveigu Steingríms-
dóttur, sem bjuggu á þessum árum
í Bakkagerðisþorpi. Þar dvaldi
Gestur við góða umhyggju þeirra
hjóna fram yfir fermingaraldur, en
var alltaf í mjög góðu sambandi við
móður sína og dvaldi hjá henni af
og til. Á þessum árum var Gestur
mikið samvistum við okkur frænd-
systkini sín á Ósi og má segja að
hann hafi alla tíð verið sem einn
af okkar fjöiskyldu, bæði á þessum
æsku- og unglings árum og svo
eftir að leiðir skildu þar. Þá lét
hann sér ætíð mjög annt um okkur
öll og fylgdist með fjölskyldum okk-
ar af ástríki og góðum hug.
Gestur nam við barnaskólann
heima á Borgarfirði og eftir ferm-
ingu flutti hann svo alfarinn til
móður sinnar í Reykjavík. Þar
stundaði hann nám við Ingimars-
skólann og lauk þaðan gagnfræða-
prófi. Síðan nam hann prentiðn og
fékk sinn faglega undirbúning í lít-
illi prentsmiðju sem hét Herberts-
prent og lauk svo námi frá Iðnskó-
lanum og sveinsprófi í prentiðn
1950. Hann var síðan lengi hjá
Prentsmiðjunni Eddu og nú síðustu
mörg ár hjá Gutenberg. Gestur var
ákaflega fær í sinni iðngrein og kom
sér vel við starfsfélaga sína og naut
trausts og virðingar vinnuveitenda
sinna.
Gestur var sérstaklega frænd-
rækinn og tryggur. Hann var einn-
ig tengdur sinni fyrstu heimabyggð
ákaflega sterkum böndum. Hann lét
einskis ófreistað til þess að stuðla
að sem bestum samskiptum við íbúa
Borgarijarðar og var um langt ára-
bil aðal drifijöðrin í átthagafélaginu
okkar, Félagi Borgfirðinga eystra,
eða allar götur frá árinu 1949. Störf
hans í því félagi væri allt of langt
mál upp að telja, en öll voru þau
unnin í þeim anda að tengja brott-
flutta Borgfirðinga sem nánustum
böndum með samkomuhaldi og með
því stuðla að því að hægt væri að
sýna heimabyggðinni sem mestan
virðingarvott með gjöfum til lista-
og menningarmála og ósjaldan
vakti hann máls að því hvað við
gætum best gert fyrir kirkjuna í
heimabyggð okkar.
Gestur hafði mikið yndi af hljóm-
list og söng. Hann hafði fallega og
fágaða rödd, en eitt af því fáa sem
hann gerði fyrir sjálfan sig um dag-
ana var að stunda söngnám um
tíma. Var hann því mjög liðtækur
við.þau ótal mörgu tækifæri sem
frændfólkið fékk til þess að syngja
saman.
Gestur var einkar háttvís maður
í framkomu og hlýr í viðmóti. Hvar
sem spor hans lágu gat ekki farið
hjá því að ljúfmennska hans og
fáguð framkoma gæddu umhverfið
næst honum sérstökum andblæ sem
skildi efir varanlegar minningar um
hlýju og manngæsku hjá samferða-
mönnum hans.
Þegar hann er horfinn af sjónar-
sviðinu erum við öll sem næst hon-
um stóðu fátækari og söknum góðs
félaga og sérstaks vinar.
Á bak við fátæklegan búning
þessara kveðjuorða dyljast hugsanir
og tilfinningar sem eru tvinnaður
mörgum sterkum þáttum, en sá
sterkasti þeirra er tengdur persónu-
legum samskiptum okkar og endur-
minningunum frá bernsku- og
æskuárum okkar í leik og við störf
og síðar fyrir umhyggju hans fyrir
íjölskyldu minni.
Eins og áður var getið um var
Gestur mjög nátengdur okkur
systkininum frá Ósi og var nánast
eins og einn af okkar stóru fjöl-
skyldu og litum við ávallt á hann
sem bróður. í áranna rás hafa með-
limir þessarar fjölskyldu dreifst um
landið en Gestur fylgdist ávallt með
okkur öllum og vissi jafnvel betur
en aðrir um hagi hvers og eins.
Fyrir þessa umhyggju og vináttu
vil ég nú þakka honum og fyrir
hönd systkina minna. Hafi hann að
leiðarlokum heila þökk fyrir órofa
vináttu og tryggð við okkur öll.
Gestur hélt heimili með Gyðu
móður sinni og lét sér einkar annt
um hana alla tíð og var umhyggja
hans fyrir henni nú á seinni árum
þegar aldur færðist yfir hana alveg
sérstök. Hún sér nú háöldruð á eft-
ir ástkærum syni og bið ég henni
blessunar guðs og megi henni öðl-
ast friður og styrkur til þess að
sigrast á þeim harmi sem nú er að
henni kveðinn.
Jón Þór Jóhannsson.
Við íikyndilegt og óvænt fráfall
Gests Árnasonar prentara í Guten-
berg er mikið skarð fyrir skildi við
útgáfu Alþingistíðinda. Sú útgáfa
er engin smásmíði, 10-15 þús. bls.
ár hvert. Gestur var eins konar líf-
akkeri þessarar útgáfu.
Samskipti Alþingis og Gutenberg
eru nærri því jafngömul öldinni. Þau
hófust skömmu eftir að prentsmiðj-
an var stofnuð 1901 og síðan 1930
hefur þingið ekki skipt við aðrar
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA BÆRINGSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
sem andaðist 15. apríl, verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 24. apríl kl. 10.30.
Jóhanna B. Halldórsdóttir,
Brynja B. Halldórsdóttir, Svavar Bjarnason, '
Daði B. Halidórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
INGIBJÖRG ÍSLEIF HALLDÓRSDÓTTIR
frá Gaddstöðum,
Faxabraut 32c,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 25. apríl kl.
14.00. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Þroskahjálp
á Suðurnesjum eða Sjúkrahús Keflavíkur.
Helgi G. Eyjólfsson og synir.
prentsmiðjur að neinu ráði ef frá
er skilinn sá tími á áttunda áratugn-
um er losað var um allmikla teppu
sem var í útgáfu þingræðna og
vösk sveit stóð að. Allan þennan
tíma hafa vélarnar snúist fyrir þing-
ið og Stjórnarráðið. Gestur kom til
starfa í Gutenberg 1972 og átti því
mörg handtök þar. Hann var um-
brotsmaður að mennt en flutti í
hinni byltingarkenndu framþróun
prenttækninnar verklagni sína og
snyrtimennsku úr blýinu yfir í papp-
írsumbrot nútimans.
Svo verðmæt verkþekking safn-
aðist hjá Gesti og samstarfsmönn-
um hans að við höfum vart treyst
okkur til þess að bjóða þessa miklu
prentun' út eins og nú tíðkast. Við
höfðum það stundum í flimtingum
að slíkt kæmi ekki til greina nema
Gestur fylgdi með í samningum.
Svo vel þekkti hann alla þætti út-
gáfunnar, ræðupartinn, lausakjölin
og ekki hvað síst nú hin síðari ár
skjalapartinn. Yfir þessu vakti hann
eins og hann væri meðritstjóri og
ábyrgðarmaður. Marga nóttina
vann hann við skjalaprentun og
stundum fram að klukknahringingu
um jól og áramót í kapphlaupi við
tímann þegar mest gekk á við laga-
prentun. Vandvirknin var ótrúleg
og óvíst að textinn hafi alltaf átt
það skilið. Það virtist ekkert slíta
hann frá þessu verki, nema helst
umsamdir snúningar fyrir móður
hans, sem hann bjó með, og aldrei
mátti svíkja.
Það er stundum sagt að menn-
ingin felist í góðu verki, ekki síst
góðu handverki. Gestur skilur eftir
sig mikið og vandað verk og það
væri gæfa stéttarbræðra hans ef
sú menning lifði áfram innan þeirra
raða.
Sjálfur var Gestur sá alþýðumað-
ur sem okkur þykir mest varið í,
upplýstur, ábyggilegur, duglegur,
en þó umfram allt hlýr í viðmóti
og elskulegur. Þannig munum við
minnast hans.
Starfsfólk á skrifstofu
Alþingis,
Helgi Bernódusson,
Guðrún Stefánsdóttir,
Ásdís Krisljánsdóttir.
BLOM
SE6JA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
ERFIDRYKKJUR
Perlan á Öskjuhlíð
p e r l a n sími 620200