Morgunblaðið - 28.06.1992, Page 1
72 SIÐUR B/C
144. tbl. 80. árg.
„Evrótópía“
Heinekens
FREDDIE Heineken, stjórnarformað-
ur hins þekkta hollenska bjórfyrirtæk-
is, vinnur nú að því að reyna að sann-
færa evrópska s tj ó rn málamenn um að
heppilegasta framtíðarskipan álfunn-
ar sé stofnun sambandsríkis 75 ríkja.
Hugmynd sína, er kynnt var í skýrslu-
formi í vikunni, kallar Heineken
„Evrótópíu“ og í henni felst að sam-
band ríkjanna, sem ekkert yrði fjöl-
mennara en tiu milljónir íbúa, yrði
svipað og ríkja Bandarikjanna. Til að
ná því markmiði yrði að brjóta upp
flest stærri ríki Evrópu og yrði Frakk-
landi til að mynda skipt upp í sjö ríki
og Bretlandi í tíu ríki. Meðal hinna
nýju ríkja mætti nefna „Mercia“ með
Birmingham sem höfuðborg, „Ile-de-
France" fyrir Parísarsvæðið og Lund-
únir yrðu kjarni ríkisins „Essex“. Einu
ríkin sem yrðu óskipt áfram væru
Portúgal, ísland, Danmörk og „Skand-
inavía" [!]. Smárikin Monakó og
Liechtenstein yrðu aðildarriki án at-
kvæðisréttar svipað og District of
Columbia í Bandaríkjunum.
Skorar Andrew
Morton á hólm
FRAKKI nokkur hefur skorað Andrew
Morton, höfund bókarinnar um hjóna-
bandsraunir Díönu Bretaprinsessu, á
hólm. Maðurinn heitir Jean Verrier,
er 71 árs að aldri og bauð Morton til
einvigis í opnu bréfi í franska dagblað-
inu Le Figaro. „Þú ert bölvaður bast-
arður,“ skrifaði hann. „Ég vara þig
við því að ég er með hittnari mönnum
þegar ég beiti skammbyssunni minni.“
Kona hans segir þetta frumhlaup, því
maðurinn hafí aldrei nokkurn tíma
hleypt af byssu.
John Gotti aft-
ur á skólabekk
JOHN Gotti, mafíuforinginn fyrrver-
andi sem var dæmdur í lífstíðarfang-
elsi í Bandaríkjunum á dögunum, hef-
ur orðið fyrir enn einni auðmýking-
unni. Honum verður gert að taka þátt
í þriggja mánaða námskeiði, sem
byggt er á námsefni fyrir grunnskóla.
Lestur, skrift, enska, stærðfræði og
náttúrufræði verða þá skyldufög fyrir
harðjaxlinn, sem hætti í skóla á tán-
ingsárunum til að hefja ferilinn þjá
mafíunni. Helsta skemmtun hans í
fangelsinu verður bingó, sem haldið
er siðasta miðvikudag hvers mánaðar.
Ef hann verður heppinn gæti hann
unnið svissneskt armbandsúr - eða
par af sokkum.
HAFRANNSOKNASTOFNUN
• •
Orlagagyðja
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Þorkell
Ólympíumeistari í Fljótá
Norðmaðurinn Vegard Ulvang, sem vann þrenn gullverðlaun á I í framtíðinni í Hólafjalli. Skíðakapp'arnir létu vel af dvölinni
Ólympíuleikunum í Albertville í vetur, hefur dvalið í Fljótum í nyrðra, fóru á hestbak, sigldu á kajak og renndu fyrir silung
Skagafirði undanfama daga ásamt félögum sínum úr norska jafnframt því að hlaupa um Tröllaskaga. A myndinni eru Veg-
skíðalandsliðinu. Þeir hafa m.a. skoðað fyrirhugað skíðasvæði ard Ulvang og félagi hans, Pál Gunnar Mikkelsplass, að reyna
sem Trausti Sveinsson á Bjarnargili hefur í hyggju að koma upp | sig á kajak niður Fljótá.
Leiðtogar EB íhuga hera-
aðaraðgerðir í Sarajevo
Belgrad, Lissabon. Reuter.
SERBAR héldu áfram stórskotaárásum
á Sarajevo, höfuðborg Bosníu-Herz-
egovínu, í gær eftir að Sameinuðu þjóð-
irnar höfðu gefið þeim tveggja sólar-
hringa frest til að hætta árásunum, en
hann rennur út í dag, sunnudag. Sam-
kvæmt drögum að ályktun leiðtoga
aðildarríkja Evrópubandalagsins er
ekki útilokað að beitt verði hervaldi i
því skyni að opna flugvöllinn í Sarajevo
svo hægt verði að koma vistum til
300.000 íbúa borgarinnar, sem eru
orðnir uppiskroppa með matvæli og lyf
vegna rúmlega tveggja mánaða umsát-
urs Serba.
Harðir bardagar geisuðu í úthverfinu
Dobrinja, sem er skammt frá flugvellinum
og var reist fyrir vetrarólympíuleikana árið
1984 en því síðan breytt í Mðahverfi. Ef
Serbar ná hverfinu á sitt vald er borin von
að hægt verði að opna flugvöllinn, að sögn
embættismanns Sameinuðu þjóðanna í New
York.
Sameinuðu þjóðirnar hafa að undanförnu
reynt að opna flugvöllinn og ákváðu á föstu-
dag að gefa Serbum tveggja daga frest til
að hætta árásunum á Dobrinja og vöruðu
við því að ella kynnu samtökin að beita
„öðrum aðferðum" til að koma íbúunum til
hjálpar. Þar er að öllum líkindum átt við
beitingu hervalds. Fulltrúi Bosníu hjá Sam-
einuðu þjóðunum hvatti til takmarkaðra loft-
árása til að binda enda á árásimar, en leið-
togi Serba í Bosníu, Radovan Karadzic,
varaði við því að erlend hemaðaríhlutun
gæti leitt til nýs „Víetnamstríðs".
Samkvæmt drögum að ályktun, sem
embættismenn EB-ríkjanna 12 samþykktu
fyrir leiðtogafundinn í Lissabon í gær, úti-
lokar bandalagið ekki að hervaldi verði beitt
þótt það kjósi frekar að hægt verði að leiða
málið til lykta með friðsamlegum hætti.
Sigurreifir Danir
Um 100.000 manns
komu saman í miðborg
Kaupmannahafnar á
föstudagskvöld til að
fagna óvæntum sigri
Dana á heimsmeisturum
Þýskalands í úrslitaleik
Evrópumóts landsliða í
knattspymu. Þetta voru
mestu fagnaðarlæti í
dönsku höfuðborginni
frá frelsun hennar árið
1945 eftir fimm ára
hernám nasista.
—r
S
Reuter
ERFÐAVISAR
rrr t rrr t k MWVVr
FLYTJA UHllf
BRJOSTAKRABBA
Rcett •við þrjá ís-
lenska vísinda-
menn um þessar
rannsóknir
Landshornaflakk
Ráöherrrabústaðarins
Hvar?
Þórður
Runólfsson
rifjar upp
kynni sín af
Jóhanni skáldi
Jónssyni
BLAÐ