Morgunblaðið - 28.06.1992, Síða 14

Morgunblaðið - 28.06.1992, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992 Morgunblaðið/Einar Falur Þorvaldur Þorsteinsson og P-Ieikhópurinn. Sviðsett kammerverk Leiklist Súsanna Svavarsdóttir Héðinshúsið P—leikhópurinn & Vasaleikhús- ið í TILEFNI DAGSINS Höfundur: Þorvaldur Þorsteins- son Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson Leikmynd og búningar: Rósberg Snædal Jarðarfarir eru sérkennilegar samkomur. Þangað safnast fólk sem ekkert á sameiginlegt annað en að hafa þekkt hinn látna. Og þó. í einþáttungi Þorvaldar eiga per- sónumar sem hittast í jarðarförinni það líka sameiginlegt að vera ekki alveg vissar um að þær hafi þekkt hann nógu mikið til að eiga að vera í jarðarförinni. Enginn gefur því upp tengsi sín við hinn látna og hver og einn verður að geta sér til um tengsl hinna við hann. Þau segja öll „nei, nei“ við spuming- unni „ert þú?“ og bæta „vinur“ eða „kunningi" við til skýringar. Orgel- leikarinn spilar eitt og annað, við- eigandi og óviðeigandi á skemmtar- ann sinn á meðan vinimir og kunn- ingjamir tínast inn og bíða eftir prestinum. Við og við segir einhver stutta sögu, sem er bara til að segja eitt- hvað og þá helst eitthvað til að leyna því hver hann er. Það er al- gert sambandsleysi milli persón- anna — ekki einn snertiflötur, fyrr en „maður í jakka" fer að segja frá H.C. Andersen og nær með því sambandi við vstúlku“ og svo dansa þau saman. A einhvem sérkenni- legan hátt eru þó allir að reyna að finna annan einstakling til að mynda bandalag með. Þótt sögurn- ar séu til að leyna því hver viðkom- andi er, eru þær jafnframt leið til að finna út hvort þarna inni sé mögulega önnur manneskja sem hefur svipað áhugamál. Sögumar eru einhvers konar „stikkorð" að mannlegum samskiptum. En með látbragði og svipbrigð- um hafa þessir einstaklingar þegar sett upp vegg á milli sín. Þeir byija á því að horfa gagnrýnir hver á annan og af svip þeirra má lesa hvað þeim finnst — og þótt þessar persónur eyddu tíu þúsund orðum, gætu þær ekki afmáð hindrunina sem þögult skilaboðakerfið hefur sett upp. Það era engin ósköp af texta í þessu verki og ekkert innbyrðis samband á milli persónanna í text- anum — ekki einu sinni milli „stúlku" og „manns í jakka,“ þótt þau nái að dansa í takt. Svo kemur presturinn og segir grátlega sögu, sem enginn skilur, allir bregðast mismunandi við; sögu sem virðist ekkert hafa með þann látna að gera. Maður veit ekki almennilega hvort fólkið er í réttri jarðarför. „í tilefni dagsins" er mjög vel skrifað verk, afmarkaður textinn er skemmtilegur og gerir miklar kröfur til leikara og leikstjóra um leið og hann gefur þeim mikið svig- rúm til að leika sér. Ég man ekki eftir að hafa áður séð leiksýningu, þar sem ég hef það svo sterklega á tilfinningunni að leikaramir séu ólík og óskyld hljóðfæri sem era leidd saman í einu verki. Sýningin var eins og kammerverk; leikhóp- urinn mjög samstilltur, þótt hver og einn léki með sínu nefí og öll smáatriði vora vel og nákvæmlega útfærð. í hlutverki „organista" var Erl- ingur Gíslason. Hann á vægast sagt snilldarleik í þessu stykki; snýr lengstum baki í áhorfendur, en nær engu að síður að halda athyglinni allan tímann. Guðrún Ásmundsdóttir leikur „konu í pels,“ og kemur ótrúlega vel til skila þess- ari kvenpersónu, sem er svo yfir- lætisleg að maður gæti haldið að hún væri eitthvað „betra“ eintak af manneskju en hinir, en svo kem- ur í ljós að hún er bara í pels. Karl Guðmundsson er „maður í frakka“, virðulegur, sá eini sem greinilega kann sig þama og verð- ur því hálf hlægilegur í þessum sauðahóp og ekki batnar það þegar hann fer að segja mærðarlega sögu — þessi maður í frakka er af ein- hverri hugsjónakynslóð sem hefur annað gildismat en gengur í dag og í stað þess að snerta viðkævma strengi hópsins á þessari sorglegu stund, kemur hann liðinu til að skella upp úr. Aldís Baldvinsdóttir og Ólafur Guðmundsson leika „stúlku“ og „mann í jakka“. Þau koma því ágætlega til skila að þessar persón- ur era þvingaðar inni í þessu sam- kvæmi, en þau vantar greinilega reynslu til að skila því hvers konar persónur þetta era. Það vantar töluvert á svipbrigði og öll smáatr- iði í hreyfingum til að persónurnar nái að lifa á sviðinu. Ingibjörg Björnsdóttir leikur „konu í kápu“ alveg með ágætum; það er greinilegt að þarna er á ferðinni kona sem kann ekki að vera í jarðarförum, hún þarf að spyija hvort hún sé rétt klædd — og það er sama hvað sagt er og gert, henni fínnst hún vera eina manneskjan þama sem engan þekkir; hún er augljóslega sann- færð um að á milli allra hinna séu einhver tengsl — og heldur sig því nokkuð afsíðis. í hlutverki prestins er svo Jón St. Kristjánsson. Hann kemur inn í lokin og er því stutt á sviðinu, en með vönduð- um textaflutningi og sérlega góðri raddbeitingu, nær hann að yfír- vinna þá athygli sem hinir hafa þegar náð og renna léttilega saman við þennan allsendis ósamstæða hóp. „í tilefni dagsins" er sérlega skemmtilegt verk og úrvinnsla leik- stjórans á því er markviss og vönd- uð. Sýningin er ákaflega fyndin um leið og hún skilur töluvert eftir sig. Einföld leikmyndin er skapar sérstætt og trúverðugt andrúmsloft og búningarnir styðja persónusköp- un leikaranna af mikiili nákvæmni. Svona á gott leikhús að vera. Til að þola lífið Héðinshúsið SKILABOÐ TIL DIMMU Höfundur: Elísabet Jökulsdóttir Leikari: Þórey Sigþórsdóttir Hvernig kemst manneskjan hjá því að lifa að fullu? Hvernig getur hún nýtt hindranir sínar og að hvaða leyti er hún takmörkuð? Hveijar eru flóttaleiðir hennar? Nær hún einhveiju sambandi við annað fólk? Skilaboð til Dimmu er einþátt- ungur, þar sem ósköp venjuleg kona, í kápu og með slæðu, kemur heim til sín. Hún virðist dálítið upptrekkt, hvolfir úr veskinu sínu, rífur af sér slæðuna, fer úr káp- unni og stendur í ballkjól. Hún segist vera að læra að dansa, til að afsaka kjólinn. Hann er greini- lega ekki alveg viðeigandi, svo konan þarf að útskýra hann. En hún segir ekki frá því hvers vegna hún er að læra að dansa; hvort það sé vegna þess að hún hafi gaman af því, eða vegna þess að hún sé einmana og vilji reyna að ná sambandi við fólk. Það er auðveldara að tala um kjólinn. Og hún talar og talar. Hún er ein, „hann“ í lífi hennar hefur yfirgefið hana, þótt hún segi að hann hafi bara farið og komi aftur. Hún sakn- ar pabba síns sem er dáinn, þótt hún trúi því ekki; hún sá ekki líkið og bíður alltaf eftir að hann komi aftur. Það er of sárt að hann skyldi deyja og það er of sárt að vera yfirgefín og til að þurfa ekki að fínna til, afneitar hún þessum stað- reyndum. Konan er hrædd og reið en þorir ekki að vera það og til að komast hjá því að horfast í augu við sársauka sinn, ótta og reiði, hefur hún komið sér upp dágóðu kerfí: Hún tekur við skilaboðum. Skilaboðin koma utan úr blánum — að handan — innan úr ráðvilltum hausnum á henni. Það skiptir ekki máli. Aðalatriðið er að hún hefur afsalað sér ábyrgð á lífi sínu og bregst við þessum skilaboðum og stekkur eftir þeim út og suður, í stað þess að setja spurningamerki við þau. Hún getur meira að segja leitt rök að því að það sé eitthvert vit í skilaboðunum. Þau era flótti hennar og sjálfsblekking; leið til að þola lífið — en ekki til að takast á við það. Það er ótal márgt fleira í þessum makalaust góða einþáttungi Elísa- betar, sem gaman er að velta fyrir sér. Þórey Sigþórsdóttir flutti hann upphaflega sem sóló verkefni í Leiklistarskóla fslands, undir hand- leiðslu Hlínar Agnarsdóttir. Leikur Þóreyjar er mjög skemmtilegur. Hún sveiflar þessari einmana per- sónu fram og til baka; konan er alltaf að missa stjórn á tilfinningum sínum — það er að segja þeim nei- kvæðu — en brosir svo afsakandi, grípur þær á lofti, stingur þeim niður í gufupottinn og skellir lokinu á, verður ofsakát, bros hennar strítt, hlátur hennar örvæntingar- fullur. Hún má ekki sýna reiðina, sársaukann og óttann, bælir þessar ljótu tilfínningar; hún er jú í ball- kjól og ákveður að leggja sig og fara svo að kaupa varalit. Þetta lítur allt ósköp vel út — en hún er ekki glöð. Að breytast eða ekki Héðinshúsið ÓBREYTTUR MAÐUR Höfundur: Hallgrímur Helgason Leikari: Gunnar Helgason Hann er svosem ósköp venjuleg- ur maður, sem á i einhveijum erfið- leikum með eiginkonuna, sambýlis- konuna, kærustuna, eða hvér sem „hún“ er í lífi hans. Hún hefur sagt að „hann“ þurfi að breytast, annars geti hún ekki staðið í þessu lengur. Maðurinn veltir því fyrir sér hvemig hann á að breytast, getur alveg fallist á að hann hafi kannski gert mistök, og þó — það var svo gaman. Hann reynir að vera alvar- legur í vangaveltum sínum um breytingar, en minningar um bráð- skemmtilegan tíma með strákun- um, stinga sér inn í alvörana og maðurinn heldur ekki þræði. Hann brosir með sjálfum sér og ætlar að segja frá því hvað þeir strákam- ir vora að bralla, en áttar sig á því að það er óviðeigandi; hann á að breyta sér. Þetta er árans skemmtilegur mónólóg, sem segir mikið um mannleg samskipti í ákaflega stuttu máli. „Hún“ gerir kröfur til hins óbreytta manns, án þess að spyija hvort hann er fær um að uppfylla þær kröfur, eða hvort hann vill það yfír höfuð. Hann á að breytast til að fá að hafa „hana“ í lífi sínu. „Hún“ gefur skipanir, „hún“ setur skilyrði, „hún“ þarf ekki hans álit, „hún“ þarf ekki skýringu á því sem gerðist. Hann reynir aftur og aftur að segja frá því, en kemst ekkert áfram, vegna þess að allt snýst um að hann eigi að breytast. „Hún“ er greinilega aðalpersónan í þessu leikriti. Ótrú- lega kunnuglegt þema — ekki satt? En hinn óbreytti maður er ekki alveg tilbúinn til að gangast inn á þessi ósköp. Þótt hann viðurkenni næstum því tillitsleysi sitt, eru hugleiðingar hans um það hvort hægt sé að breytast augljóst vitni um að hann vill alls ekki vera gerð- ur ábyrgur fyrir öryggisleysi henn- ar og viðbrögðum. Hann færir fók- usinn yfír á sjálfan sig og verður þar með aðalpersónan í því leikriti sem hann er í. En í stað þess að ræða tiltekna hegðun, hefur „hún“ sett spumingarmerki við alla hans tilvera. Hann þarf því ekki að taka afstöðu til þeirrar afmörkuðu stað- reyndar að hafa verið úti að þvæl- ast með strákunum. Hann fær miklu stærri pakka til að glíma við og það sem gerðist verður algert aukaatriði. Gunnar Helgason fer á kostum í þessu stutta verki, um kæralaus- an, glaðlyndan strák (sem er að reyna að hugsa af einhverri al- vöra). Óbreytti maðurinn var sóló verkefni hans í Leiklistarskólanum fyrir örfáum árum, undir leiðsögn Hilde Helgason. Óbreytti maðurinn fer svosem ekki í gegnum neinar tilfinningasveiflur. Það hefur ekk- ert verið spurt um tilfínningar hans eða vilja, eða getu til að breytast. Að breytast eða ekki breytast — um það snýst málið. Bardúsa á Hvammstanga: Galleríið aðdráttar- afl fyrir ferðamenn Hvammstanga. FRÁ áramótum hefur Bardúsa hf., sem er félag handiðnaðarfólks í Húnaþingi, staðið fyrir ýmsum námskeiðum og nú í júníbyrjun má sjá ýmsa muni i sölubúð félagsins sem kallast Gallerí Bardúsa. Þetta verður annað starfssumar Gallerí Bardúsa og er galleríið nú á Höfðabraut 6. Forstöðumaður er Jó- hanna Sveinsdóttir og er opið virka daga frá 9-18 og frá 13-17 um helgar. Jóhanna segir um 50 manns hafa Iagt inn vörur en allar vörar eru teknár til umboðssölu. Mest ber á pijónlesi en einnig er fjölbreytt úrval af allskyns handunninni vöra. Á síðasta sumri kom í Gallerí Bard- úsa á fjórða þúsund manns og hafði starfsemin veralegt aðdráttarafl á ferðamenn til Hvammstanga. Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson Úr Gallerí Bardúsa, f.v. Jóhanna Sveinsdóttir og Berit Hemming- sen afgreiðslustúlka. Tyrkneskt farþega- skip í Ólafsvík TYRKNESKT skemmtiferðaskip kom til hafnar í Ólafsvík í gær. Farþegar eru flestir Þjóðverjar of um Snæfellsjökul og jafnvel upp Kuldalegt veður hefur sett svip sinn á undanfarna daga hér á nes- inu, en ekki hefur þó snjóað nema í hæstu fjöll. Lítið hefur borið á erlend- um ferðamönnum það sem af er sumri enda hefur tíðin verið fremur óyndisleg fyrir þá. í gær kom þó tyrkneskt skemmtiferðaskip hér á Víkina og þá um morguninn var Auðbjörg SH að feija 70 manns, sem ætla þeir að fara hringferð kring- i hann. flest munu vera Þjóðveijar, af skip- inu í land. Fólk þetta ætlar í hring- ferð kringum Jökul og jafnvel upp á hann. Hætt er við að veðrið spilli nokkuð þessari ferð upp á Jökulinn því hér er nú norðvestan kaldi, það dreypir úr lofti og þoka er á hinum fallegu tindum Snæfellsness. Helgi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.