Morgunblaðið - 28.06.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992
31
Andy Griffith, sem leikur
Matlock lögfræðing í samnefndum
þáttum, telur hlutverk Matlocks
vera hið besta sem hann hefur
nokkum tíma leikið. „Mörg hlut-
verkanna sem ég hef leikið síðustu
ár hafa verið skemmtileg en slung-
inn náungi, sem gæddur er kímni-
gáfu Matlocks, er allt sem ég
þarf,“ segir Griffith. Gagnrýnend-
ur og áhorfendur hafa farið lof-
samlegum orðum um þættina um
Matlock og túlkun Griffíths á pers-
ónuleika hins rólyndislega en
kæna lögfræðings.
Andy Griffíth býr í Norður-
Karólínu, þar sem hann er fæddur
og uppalinn. Eftir útskrift úr há-
skólanum í Norður-Karólínu
kenndi hann tónlist við gagnfræð-
askóla í Goldsboro. Hann kom
einnig fram, söng og dansaði og
flutti gamanþætti. Honum bauðst
samningur við Capitol-plötufyrir-
tækið eftir að einn af yfírmönnum
þess sá hann flytja einn gaman-
þátta sinna.
Griffíth kom fram i sjónvarps-
þætti Eds Sullivans árið 1954 en
ferill hans hófst fýrir alvöru þegar
hann lék eitt aðalhlutverkanna í
sjónvarpsmyndinni „No time for
Sergeants" sem hann fýlgdi eftir
á svið á Broadway og síðan á
hvíta tjaldið en kvikmynd með
þessu nafni var gerð árið 1958.
Griffíth hefur leikið í ótal sjón-
varps- og kvikmyndum síðan en
hann er best þekktur fyrir hlut-
verk sitt sem Andy Taylor lögregl-
ustjóri í sjónvarpsþáttunum „The
Andy Griffíth Show“.
Nágranninn Les er fimm-
faldur Emmy-verðlaunahafí
Don Knotts, sem leikur Les
„Ace“ Calhoun, nágranna
Matlocks, er þaulreyndur gaman-
leikari, hefur leikið í 18 kvikmynd-
um og hlotið fímm Emmy-verð-
laun fyrir túlkun sína á Bamey
Fife lögreglufulltrúa í sjónvarps-
þáttunum „The Andy Griffith
Show“.
Knotts var mikill aðdáandi
kvikmynda og útvarps í æsku.
Hann hafði sérstakt dálæti á
glensi og gríni og reyndi að líkja
eftir eftirlætisleikara sínum, Jack
Benny.
Eftir skólagöngu gekk Knotts
í herinn og í nokkur ár fór hann
um Suður-Kyrrahaf og skemmti
hermönnum. Þvínæst lauk hann
háskólamenntun sinni og fór til
^New York til að reyna að slá í
gegn í skemmtanabransanum.
Hann kom fram í fjölda út-
varps- og sjónvarpsþátta í nokkur
ár og fékk síðan hlutverk í kvik-
myndinni „N.o Time for Serge-
ants“ en Andy Griffith lék ein-
mitt aðalhlutverkið í henni. Síðan
þá hefur hann leikið í ótal sjón-
varps- og kvikmyndum, sjón-
varpsþáttum og framhaldsmynda-
flokkum.
Félagi Mat-
locks fyrrver-
andi fegnrð-
ardrottning
Nancy Stafford, sem leikur
Michelle Thomas, lögfræðing
og félaga Matlocks, er fædd
og uppalin í Wilton Manors á
Flórída. Hún lauk B.A.-prófí
í fjölmiðlafræði frá háskólan-
um í Flórída og tók síðan
þátt í keppninni um titilinn
Ungfrú Flórída. Hún vann
hana og varð önnur í keppn-
inni um titilinn Ungfrú Amer-
íka. Hún flutti til New York
og hóf glæsilegan fyrirsætu-
feril hjá Ford-umboðsskrif-
stofunni. í kjölfarið á honum
bauðst henni að leika í sjón-
varpi.
Hún hefur leikið í fjölda
sjónvarpsmynda og fram-
haldsmyndaflokka og m.a.
komið fram í þáttunum um
Hunter lögreglumann og
gamanmyndaflokknum „Hver
á að ráða?“ sem íslenskir sjón-
varpsáhorfendur þekkja.
Matlock mætt-
ur á nýjan leik
Sjónvarpið:
SimpsoivQölskyklan
■I Simpson-fjölskyldan geð-
35 þekka í Springfíeld er
” löngu orðin að heimili-
svinum margra Islendinga og kem-
ur til með að kíkja í heimsókn á
mánudagskvöldum enn um sinn.
Þetta ágæta fólk lifír viðburðaríku
lífi og það er alltaf gaman að fylgj-
ast með uppátækjum þess. Hjóna-
kornin Hómer og Marge hin hár-
prúða hafa margt brallað um dag-
ana en ólyginn segir að í næsta þætti, sem Sjónvarpið sýnir á mánu-
dag, fari Hómer í heiftarlega fylu og að í framhaldi af því komi upp
ósætti í hjónabandi þeirra. Þá er bara að bíða og sjá hvort þau verðf
ekki búin að taka gleði sína á ný áður en þættinum lýkur.
19.00 Róamarkaður Bylgjunnar.
19.19 Fréttir.
20.00 Kristófer Helgasort
23.00 Bjartar nætur. Erla Friðgeirsdóttir með góða
tónlist.
3.00 Naeturvaktin.
EFFEMM
FM 95,7
7.00 í morgunsárið. Sverrir Hreiðarsson.
9.00 Morgunþáttur. Ágúst Héðinsson.
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Valdís Gunnarsdóttir. Tónlist og getraunir.
15.00 ivar Guðmundsson. Stafaruglið.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Gullsafnið. Ragnar Bjamason.
19.00 Halldór Backman. Kvöldmatartónlistin.
22.00 Ragnar Már Vilhjálmsson.
1.05 Haraldur Jóhannsson.
5.00 Náttfari.
HUÓÐBYLGJAN
Akureyri
FM 101,8
17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson fylgir ykkur með
góðri tónlist. Tekið á móti óskalögum og afmæl-
iskveðjum. Fréttir frá fréttastofu Bylgjunnar/Stöð
2 kl. 18.00.
Rás 1;
„Carmilla" - hádegis-
leikrit í fimm þáttum
■■■■ Á mánudag verður á Rás 1
1 Q 05 fluttur fyrsti þáttur fram-
Að “ haldsleikritsins „Carmilla"
sem byggt er á samnefndri skáldsögu
eftir Sheridan LeFanu. Útvarpsleik-
gerðin er eftir Eric Bauersfeld. Leikrit-
ið, sem er í fimm þáttum, gerist í fom-
um kastala í Austurríki,-þar sem hers- ,
höfðingi nokkur býr ásamt ungri dóttur Sigrun Edda Bjomsdottir
sinni og þjónustuliði. Kvöld nokkurt (t-v.) og Harpa Amardóttir.
verða þau vitni að því er hestvagni hvolfir þar skammt frá og ung
stúlka, sem er farþegi í vagninum, er borin heim í kastalann til
aðhlynningar.
HITTNÍU SEX
FM86.6
7.00 Morgunþáttur. Umsjón Amar Albensson.
10.00 Klemens Amarson. Tónlist.
13.00 Arnar Bjamason. Tónlist.
16.00 Páll Sævar Guðjónsson. Tónlist.
19.00 Karl Lúðviksson.
22.00 Rokkhjartað. Umsjón Sigurjón Skæringsson.
1.00 Næturvaktin.
SÓLIN
FM 100,6
8.00 Morgunþáttur. Umsjón Ólafur Birgisson.
10.00 Jóhannes.
13.00 Hulda Skjaldar.
17.00 Steinn Kári. Óskalög.
19.00 Kvöldmatartónlist
21.00 Vigfús.
1.00 Næturdagskrá.
ÚTRÁS
FM97.7
16.00 Iðnskólinn i Reykjavik.
18.00 FB.
20.00 Kvennaskólinn.
22.00 (öftustu röð. Umsjón Ottó Geir Borg og Isak
Jónsson.
1.00 Dagskrárlok.
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
Þriðja hendin?
úkkk
ði margir lyfta glasi milli
klukkan fímm og sjö síð-
degis. Sumir mæta oft og alls
staðar, aðrir sjaldan og eru
kresnir. Þetta er raunar hin hag-
kvæmasta aðferð til að fagna
einhveijum áfanga eða atburði
með vinum eða viðskiptafólki,
bjóða mörgUm og hitta margt
fólk stutta stund. Hefur líka þann
kost að enginn þarf að stansa
lengur en tekur að heilsa húsráð-
endum við dymar, skrifa í gesta-
bókina, renna hring um stofuna
og láta sig hverfa. Eða getur
haft eins langa viðdvöl og kostur
er. Auk þess sem endapunkturinn
á samkvæminu er skriflega fast-
settur. Skrúfað af mestu kurteisi
fyrir þá þaulsætnustu. Semsagt
gottl Enda hefur þessi tegund
samkvæma síðdegis breiðst út
um álfur og unnið sér sinn sess
undanfama áratugi. Hér em það
sem upphaflega kölluðust „kokk
teilboð" sýnilega komin til að
vera. Að standa og lyfta glasi
svo fastur liður í tilverunni að
þau hljóta að fara að hafa áhrif
á framþróun manneskjunnar, ef
nokkuð er að marka þróunar-
kenninguna. Að menn og skepn-
ur lagi sig að aðstæðum og áunn-
um lífsháttum.
Skrýtið að ekki skuli hafa
komið fram á sjónarsviðið sér-
fræðingar með diplómu til að
gefa góð ráð þeim stóra hópi sem
af mesta dugnaði sækir síðidegis-
boð. Eðli málsins samkvæmt er
löngu fyrir bý í borgum erlendis
að fólk æði heim til að skipta
um föt eftir vinnu áður en það
fer í slík boð. Vegalengdir ein-
faldlega of langar og tímasetn-
ingin upphaflega beinlínis valin
til að hægt sé að líta inn eftir
vinnu. Gestir þurfi ekki að fara
aftur út að kvöldinu. Því taka
karlar í hæsta lagi með sér hreina
skyrtu að morgni og konur halda
til vinnu í góðri dragt og með
hreina blússu og spariskóna í
poka. Stinga kannski skartgrip í
töskuna sína. Hér virðist þetta
ekki eins algilt, enda hætta
a.m.k. opinberir starfsmenn upp
úr klukkan fjögur. Sjálf hefí ég
fyrir löngu búið mér til þá kenn-
ingu - eða afsökun - að gestgjaf-
inn viiji a.m.k. allt eins vel fá
óstressaðan gest þótt hann sé
obbolítið sjúskaður en tandur-
hreinan og fínan gest, sem er
allur á tauginni eftir að hafa
þotið heim, farið í sturtu, klætt
sig hálfrakur, iðað í skinninu á
rauðum ljósum eða umferðar-
stoppi og loks komist á staðinn
til að setja upp brosið handa
húsráðendum.
Svo mjakar gesturinn sér í
gegn um þröngina, heilsar mörg-
um og lyftir glasi. Þá getur nú
farið að vandast málið. Með glas
í annarri hendi, konur með tösk-
una hangandi á handleggnum,
og kannski sígarettu í hinni, get-
ur orðið snúið að heilsa. Að ekki
sé nefnt ef staðið er með kaffi-
bolla á skál með glamrandi te-
skeið í annarri og disk með tertu
í hinni. Nú eða ef mann langar
til að taka þetta fína framboðna
snarl af bökkunum og stinga upp
í sig. Freistast jafnvel til að taka
eitthvað af þessu indæla góðgæti
með lausa, hrynjandi ofanálegg-
inu eða lekandi majónesi eða
öðru góðgæti sem spýtist úr sam-
lokum eða innan úr bollum um
leið og bitið er í. Við því bregð-
ast sjálfsagt allir þjálfaðir síð-
drykkjugestir með því að mæta
í fatnaði sem auðveldlega má þvo
úr fitubletti. Það er orðið svo fjári
dýrt að hreinsa. Málið er þó ekki
þarmeð leyst.
Augljóst er að skaparinn hefur
alls ekki séð fyrir svona boð.
Maðurinn er með hönnunargalla.
Það vantar einfaldlega eina
hendi. En ef eitthvað er að marka
þessa margsannprófuðu þróunar-
kenningu þá hlýtur það að standa
til bóta. Einhvem tíma fær mað-
urinn þennan þarfagrip fyrir síð-
degisboðin. Svona rétt eins og
hinn óþarfí botnlangi er smám
saman að hverfa úr líkama hans.
Maðurinn er að ýmsu leyti
svolítið úr stíl við nútímasiði.
Skaparinn hefur t.d. séð honum
fyrir lifur til afnota við áfengis-
drykkjuna, en hann hefur gleymt
að setja á hann stromp, eins og
reyklaus góðkunningi benti á í
einu slíku boði. Þetta er auðvitað
laukrétt. Hér getum við að vísu
iila verið að setja út á það að
huga betur að þörfum þeirra sem
drekka en reykja. Sjálf höfum
við tekið skaparann til fyrir-
myndar og hlynnt mun betur að
þyrstum. Geram alls kyns ráð-
stafanir til þess að hindra reyk-
ingamennina í að iðka sína illu
iðju og vísum þeim miskunnar-
laust í skammarkrókinn. Þeir fá
engan stromp eða rós í
hnappagatið. En drykkjufólkið
fær miklu blíðari móttökur og
sina „lifur" í samfélaginu til að
létta afleiðingamar. Ekki er það
skikkað til að hætta heldur freist-
að til þess með góðri aðbúð á
fallegu, fríu meðferðarheimili, þá
framhaldasdvöl á fögram stað í
sveit og loks á dagpeningum úr
tryggingum að lifa á - hvenær
sem þeir vilja láta það yfír sig
ganga. Semsagt gott. Er ekki
ánægjulegt að einhvers staðar
skuli vera hægt að veita myndar-
lega þjónustu og lítt hefta.
Kannski þetta eigi líka eftir að
koma fram í þróuninni í framtíð-
inni. Vali náttúrannar.
Ólíkt höfumst við að, ég hossa
barni þínu og þú berð bónda
minn, sagði tröllkonan í þjóðsög-
unni. Á víst ekki lengur við í
nútímasamfélagi. Samt skaut því
upp við lestur frétta um nauðsyn-
legan niðurskurð á hjartaaðgerð-
um og mjaðmaviðgerðum af aur-
aleysi. En alltaf verður víst að
velja hvað síst megi missast - og
hafa áhrif á þróunina.