Morgunblaðið - 28.06.1992, Síða 18

Morgunblaðið - 28.06.1992, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992 Morgunblaðið/Ámi Johnsen Framhlið módels Guðlaugs Jðrundssonar af Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Hvert einasta atriði er sérsmíðað úr plasti í þessu líkani, hver pOár í handriði, gluggapóstur, drekar, allt nema flaggstangirn- ar, sem eru renndar í málm. AUir brúnu fletirnir eru unnir úr brún- um skrifborðsbakka úr plasti fyrir A-4 pappír. Morgunblaðið/Ámi Johnsen Guðlaugur við líkönin af Kaupfélagshúsinu og Ráðherrabústaðnum. Landshomaílakk eftir Ámo Johnsen GUÐLAUGUR Jörundsson módelsmiður hefur nýlokið gerð módels af Ráðherrabú- staðnum í Tjarnargötu, listaverks sem brottfluttir Önfirðingar ætla að gefa heimabyggð sinni nú um helgina 25.-28. júní í tilefni 70 ára afmælis Flateyrar- hrepps, 200 ára afmælis reglubundinnar verslunar á Flateyri og 100 ára afmælis Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu sem er hús ætt- að frá Flateyri og uppruna- legabyggtþar. að var norski hvalveiði- kaupmaðurinn Hans Ellefsen sem lét byggja sér veglegt og mikið íbúðarhús á Sólbakka á Flateyri árið 1892. Ellefsen hafði þá reist mikla hvalverksmiðju á Flateyri og var hún um tíma eitt stærsta fyrirtæki landsins. En þeg- ar svo hafði verið gengið á hvalinn um síðustu aldamót fyrir vestan fluttu hvalfangarar sig til Aust- fjarða og þá gaf Ellefsen góðvini sínum Hannesi Hafstein, síðar ráð- herra, húsið og hann flutti það suð- ur til Reykjavíkur að Tjamargötu 32. Raunar seldi Hans Ellefsen Hannesi húsið fyrir 5 kr., en víst má segja að það hafi verið gjaf- verð. Ríkissjóður keypti síðan Tjamargötu 32 um 1910 og var það bústaður forsætisráðherra allt fram yfír 1940, en síðasti forsætis- ráðherrann sem bjó í húsinu var Hermann Jónasson. Síðan hefur húsið gegnt hlutverki gististaðar fyrir erlenda þjóðhöfðingja, mót-- töku fyrir innlenda sem erlenda og sem ftmdastaður ráðherra þegar mikið hefur legið við og menn hafa Hvalfangarínn Ellefsen gafvini sínum Hannesi Hafstein húsið á Flateyrí Morgunblaðið/Ámi Johnsen Framhliðin á Kaupfélagshúsinu, Vígþór bróðir Guðlaugs ritaði á skiltið, en allir bræðurnir eru dverghagir á mörgum sviðum. Morgunblaðið/Ámi Johnsen Líkan Guðlaugs af gamla Kaupfélagshúsinu þeirra Önfirðinga fylgir með í gjöfínni vestur á Firði, byggt 1875 en brann 1982. PF G01 viljað vera í húsi mikillar reynslu og góðs anda. Annað sérstætt minnismerki en Ráðherrabústaðinn skildi Hans Ell- efsen eftir sig á íslandi og það fer varla fram hjá nokkrum manni sem tii Flateyrar kemur. Inni á strönd- inni rís stór og búsældarlegur reyk- háfur við hlið gufuketils, en þar hófust framkvæmdir við byggingu nýrrar hvalverksmiðju í stað þeirrar sem brann 1901. Þá var orðið svo langsótt á miðin að brugðið var á það ráð að flytja verksmiðjuna til Askness við Mjóafjörð eystri. Áður var hins vegar lokið framkvæmdum við reykháfínn sem gnæfír nú eins og minnismerki um athafnaævin- týri í íslenskum sjávarútvegi og ís- lensku þjóðlífí og vonandi verður reykháfurinn og það sem honum fylgir varðveitt vandlega komandi kynslóðum til fróðleiks og hvatning- ar. Það hefur aldeilis skipt sköpum um bæjarbraginn í litlu þorpi vestur á fjörðum fyrir síðustu aldamót að vakna upp við slíkar athafnir sem hvalveiðunum fylgdu. Á Flateyri bjuggu á þessum tíma 100-150 manns, en á hvalveiðivertíðinni frá marsbyijun til septemberloka settu 250 starfsmenn hvalverksmiðju Ell- efsens mikinn svip á bæinn eins og gefur að skilja og þá var nú oft líf og ijör í tuskunum. Þar unnu sam- an íslendingar, Norðmenn, Danir og Svíar og oft sló í brýnu, því misjöfn eru nú mannanna merkileg- heit. Svíamir voru aðgangsharðir í þeim efnum og litu frekar hráslaga- lega niður á íslendingana. Kostuðu þau tog oft slagsmál og mikil til- þrif í sviptingum, en það var loks aðfluttur maður, Guðmundur Ein- arsson af Suðurlandi, refaskytta góð, sem lækkaði rostann með slík- um glæsibrag í slagsmálum við Svíana að allur vindur var úr þeim upp frá því. Þessi Guðmundur var afí Jóhannesar Kristjánssonar eftir- hermu og skemmtikrafts frá

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.