Morgunblaðið - 28.06.1992, Síða 2
2 FRÉTTIR/INNLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992
EFNI
► l-32
Orlagagyðja þjóðar-
búsins
►Hafrannsóknastofnunin hefur
verið mikið í sviðsljósinu að undan-
fömu og er viðbúið að svo verði á
meðan Islendingar byggja afkomu
sína á fiskveiðum og sjávarfangi.
En hveijir eru sérfræðingarnir sem
þar starfa og við hvað era þeir að
fást frá degi til dags..?/ 10
Erfðavísar f iytja
brjóstakrabba
►Rætt við þijá íslenska vísinda-
menn um rannsóknir á erfðaefni
einstaklinga úr ættum með háa
tíðni bijóstakrabbameins./12
Landshornaflakk Ráð-
herrabústaðarins
►Ráðherrabústaðurinn við Ijam-
argötu er ættaður frá Flateyri og
uppranalega byggður þar. Hval-
fangarinn Ellefsen gaf vini sínum
Hannesi Háfstein húsið og Hannes
flutti það til Reykjavíkur./ 18
ATVINNU/RAÐ OG
SMÁAUGLÝSINGAR
FASTEIGNIR
B
► 1-16
Samdráttur í
nýbyggingum
►Tilfærslur frá stærri fram-
kvæmdum yfir í minni fram-
kvæmdir og viðhald./8
► l-24
Hvar?
►Jóhann var eins kvæðis maður
og það er honum nóg, margur má
una við minna, hafði Halldór Lax-
ness eftir ágætum bókmennta-
frömuði um vin sinn Jóhann skáld
Jónson í riti á 90. afmælisdegi
skáldsins. Þórður Runólfsson, fyrr-
verandi öryggismálastjóri, sem
þekkti Jóhann bæði í Reykjavík á
menntaskólaárum hans og á
Þýskalandsárunum 1921 til 1925,
riflar hér upp kynni sín af skáld-
inu./l
Sölsur, sömbur og
bossanóvur
►Rætt við aðstendendur hljóm-
plötunnar Þegar þið erað nálægt",
sem gefin er út í samvinnu við
BarnaheiIl./4
Fremsta listdanskona
íslendinga
►Rætt við Maríu Gísladóttur, nýr-
áðinn listdansstjóra hjá íslenska
dansflokknum, en María hefur
fengið lof um allan heim fyrir ljóð-
rænan listdans./8
Hugmynd verður að
mynd
►Fæstir gera sér grein fyrir þeirri
vinnu sem liggur að baki vandaðri
ljósmyndatöku. Frá því hugmyndin
fæðist og þar til myndir era komn-
ar á hreint hafa margir lagt gjörva
höndáplóginn./12
Af spjöldum glæpa-
sögunnar
►í þættinum Upp með hendur
segir frá fyrsta nýtískulega bank-
aráninu í Danmörku, en eyðsla
ræningjanna í kvenfólk kom upp
umþá./14
► FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir lOc
Leiðari 16 Dægurtónlist llc
Helgispjall 16 Myndasögur 16c
Reykjavfkurbréf 16 Brids 16c
Minningar 20 Stjömuspá 16c
Fólk i fréttum 24 Skák 16c
íþróttir 26 Bíó/dans 17c
Útvarp/sjónvarp 28 Bréftil blaðsins 20c
Gárur 31 Velvakandi 20c
Mannlífsstr. 6c Samsafnið 22c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
MorgunDiaoio/öjom tsionaai
Slökkviliðsmenn sprauta vatni á eld sem lagði út um stafnglugga á frystihúsinu Eitlinum hf. í fyrrinótt.
Eigandi frystihúss í Höfnum sem stórskemmdist í eldi:
Erum ákveðin í að koma fyr-
irtækinu í gang á nýjan leik
Keflavfk.
„ÉG var að koma úr vinnu úr Reykjavík rétt fyrir hálftvö og þegar
ég nálgaðist þorpið tók ég eftir að mikinn reyk lagði frá frystihús-
inu. Ég flýtti mér niður að húsinu og þá voru aðaldyr þess opnar og
eldur fljótandi um allt gólf í pappakössum og fleiru. Ég reyndi þegar
í stað að tilkynna um eldinn í farsímann en tókst ekki að ná sam-
bandi. Þá dreif ég mig heim og náði þá strax að tilkynna um eldinn
til Keflavíkur, en á þessum mínútum og þar til að slökkviliðið kom
magnaðist eldurinn verulega,“ sagði Ásgeir Skúlason sem fyrstur kom
að frystihúsinu Eitli hf. í Höfnum sem stórskemmdist í eldi aðfara-
nótt laugardags.
Slökkviliðsmenn úr Keflavík, af
Keflavíkurflugvelli og úr Sandgerði
komu fljótlega á staðinn og að sögn
Jóhannesar Sigurðssonar aðstoðar-
slökkviliðsstjóra í Keflavík gekk til-
tölulega vel að slökkva eldinn. Jó-
hannes sagði að svo virtist sem eldur-
inn hefði kviknað í suðurhluta húss-
ins og þar hefðu mestar skemmdir
orðið. Jóhannes sagði að hitinn inni
í húsinu hefði verið geysilega mikill
og ekki hefði mátt miklu muna að
húsið yrði alelda. í því voru 3 gaskút-
ar og sprakk einn rétt áður en
slökkviliðsmenn komu á vettvang.
Vegna sprengihættu þurfa að líða
24 klukkustundir frá því að eldurinn
var slökktur þar til rannsókn getur
hafist.
Björgvin Lúthersson sveitastjóri í
Hafnahreppi sagði að frystihúsið
hefði verið eina fyrirtækið sem starf-
rækt væri í Höfnum um þessar
mundir og því væri þetta mikið áfall.
„Þetta var vel rekið fyrirtæki sem
gekk vel og var á uppleið. Þeir sem
að því stóðu voru búnir að festa
kaup á tveim húsum hér í þorpinu'
fyrir starfsmenn sína og voru að
kanna með leigu á öðrum húsum.
Mér telst til að þama hafi unnið lið-
lega 20 manns og því er þetta vera-
legt áfall fyrir lítið sveitarfélag eins
og Hafnahrepp.
Þuríður Magnúsdóttir einn eig-
enda Eitilsins sagði að óvenju mikið
af afurðum hefði hefði verið í frysti-
geymslunni sem átti að skipa út eft-
ir helgi og hún áætlaði að verðmæti
þeirra væri u.þ.b. 5 milljónir. Þuríður
sagði að erfitt væri að átta sig á
heildartjóni á þessu stigi en hún
væri ákveðin í að koma fyrirtækinu
í gang á ný væri þess nokkur kostur.
-BB
Háskólahátíð:
BRAUTSKRÁNING kandidata
við Háskóla íslands fór fram á
Háskólahátið í gær. Að þessu
sinni voru útskrifaðir 520 kandi-
datar, en fyrsta vetrardag voru
brautskráðir 162 kandidatar og
1. febrúar 101, samtals 783, og
hafa þeir aldrei verið fleiri í
sögu skólans. í hátíðarræðu
sinni lagði Sveinbjörn Björnsson
háskólarektor áherslu á sam-
starf og samvinnu um hagnýt-
ingu þekkingar.
Háskólarektor vildi ekki þreyta
áheyrendur með raunasögum um
erfiðan rfjárhag Háskólans heldur
fara nokkrum orðum um þau fram-
faramál sem honum væru ofarlega
í huga og yrðu væntanlega meðal
viðfangsefna þróunamefndar þeirr-
ar sem menntamálaráðherra hefði
fyrir nokkm skipað að tilmælum
Háskóla íslands.
Háskólarektor lagði áherslu á
nauðsyn þess að auka hagnýtingu
þekkingarinnar í atvinnulífinu.
Meðal atriða sem rektor greindi frá
voru þátttaka Háskólans í umfangs-
miklu rannsóknaverkefni um botn-
dýr á íslandsmiðum. Á Ísafirði
muni Háskólinn eiga aðild að Þró-
unarsetri Vestfjarða og stunda
rannsóknir til vinnslu verðmætra
lífefna úr sjávarfangi.
Rektor sagðist gera ráð fyrir
aukinni samvinnu Háskóla íslands
við Háskólann á Akureyri, en hann
væri nú að byggja upp fjögurra ára
nám í sjávarútvegsfræðum. Því
námi myndi fylgja rannsóknir í fisk-
eldi og fiskvínnslu sem gæfu marg-
vísleg tilefni til samvinnu. Svein-
bjöm Bjömsson tók fram að Há-
skóli íslands myndi gæta verka-
skiptingar og fara aðrar leiðir en
Háskólinn á Akureyri í sínu náms-
framboði í sjávarútvegsgreinum.
Rektor greindi einnig frá sam-
starfí og samvinnu út fyrir land-
steinana. Háskóli íslands hýsir
„Sammennt", samstarfsnefnd at-
vinnulífs og skóla um menntun og
tækniþjálfun, sem starfaði í tengsl-
um við evrópsku starfsáætlunina
„Comett". Rektor lét þess getið að
von væri á ríflegum styrkjum til
Sammenntar frá Evrópubandalag-
inu til að þróa námskeið um gæða-
stjómun fyrir starfsmenn og stjóm-
endur fískvinnslu í Evrópu. Sam-
hæfing og frumkvæði yrðu í hönd-
um Islendinga en að verkefninu
stæðu fyrirtæki, stofnanir og há-
skólar í sjö Evrópulöndum, auk ís-
lands.
Þrjú úr sömu fjölskyldu útskrifast
Við útskriftarathöfn Há-
skóla fslands í gær vildi svo
skemmtUega til að þrir úr
sömu fjölskyldunni voru út-
skrifaðir saman. Það voru
mæðginin Alma Valdís Sverr-
isdóttir og Jón Helgi Egilsson
sem útskrifuðust ásamt konu
Jóns, Guðrúnu Ingibjörgu
Arnardóttur.
Alma Valdís Sverrisdóttir út-
skrifaðist úr lögfræði, sonur
hennar, Jón Helgi Egilsson, úr
verkfræði, og kona hans, Guðrún
Ingibjörg Amardóttir, lauk BA-
prófi í frönsku. En það voru ekki
eingöngu háskólastúdentamir í
fjölskyldunni sem vom að ijúka
prófum heldur útskrifaðist einnig
dóttir Ölmu, Svandís Egilsdóttir,
frá Menntaskólanum í Reykjavík
nú í vor.
Alma sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri í raun
tilviljun að hún, Jón Helgi og
Guðrún útskrifuðust öll saman.
Morgunblaöiö/överrir
Nýstúdentinn Svandís Egilsdóttir og háskólastúdentamir þrír,
Alma Valdís Sverrisdóttir, Jón Helgi Egilsson, og Guðrún Ingi-
björg Amardóttir.
Hún sagði að hefði t.d. Jón Helgi
ekki frestað náminu um eitt ár
til þess að fara í heimsreisu þá
hefði hann útskrifast á síðasta
ári. Alma sagði að það væri mik-
ill léttir að útskrifast. Hún sagði
að hún hefði lengi gengið með
það hugarfóstur að nema lög-
fræði við Háskólann en þar sem
fjölskyldan hefði ekki búið í
bænum hefði hún orðið að bíða
með námið. ____________
„Heimili-
Fasteignir“
kemur út á
þriðjudag
SÉRBLAÐ Morpmblaðsins,
Heimili-Fasteignir, kemur
ekki út í dag, sunnudag, líkt
og verið hefur. Það sem eftir
Iifir sumars, út ágústmánuð,
mun blaðið þess í stað koma
út á þriðjudögum.
Þessi ákvörðun var tekin í
samráði við Félag fasteignasala
í kjölfar samþykktar aðalfund-
ar félagsins um að hafa fast-
eignasölur félagsmanna lokað-
ar um helgar frá miðjum júní
og út ágústmánuð.
í sérblaði um atvinnuauglýs-
ingar og fleira í biaðinu í dag
er einnig að fínna fasteigna-
auglýsingar.
Aldrei fleiri kandidatar verið
brautskráðir frá Háskóla Islands