Morgunblaðið - 28.06.1992, Side 6

Morgunblaðið - 28.06.1992, Side 6
6 FRETTIR/INNLEIMT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992 Dómur Kjaradóms um laun embættismanna og kjörinna fulltrúa: Hækkun til æðstu manna ríkis- ins nemur um 100 þús. á mánuði Ekki ætlunin að varpa pólitískri bombu,“ segir Jón Finnsson formaður dómsins SAMKVÆMT nýgengnum dómi Kjaradóms hækka föst laun forseta Alþingis um um það bil 190 þúsund krónur á mánuði. Áður hlaut forseti Alþingis fékk venjulegt þingfararkaup, sem var 175.023 krónur með 10% álagi, en frá 1. júlí verður embættið launað séstaklega með 380 þúsund krónum á mánuði. Hækkunin mun nema um 97%. Þingfararkaup, kaup alþingismanna, hækkar um 65 þús- und krónur á mánuði, sem samsvarar 37% á mánuði, eða úr 175.023 krónum í 240 þúsund krónur. Alþingismenn hljóta auk þess greiðslur vegna ýmiss kostnaðar og breytist það ekki með kjara- dómi. Laun ráðherra hækka um 28%, úr 288.818 krónum í 370 þúsund, að meðtöldu þingfararkaupi bæði fyrir og eftir hækkun, en laun forsætisráðherra hækka um 26%, úr 317.702 í 400 þúsund krón- ur. Laun hæstaréttardómara hækka um 101.440 krónur á mánuði, úr 248.650 krónum í 350 þúsund og laun forseta Hæstaréttar hækka um 106.584 krónur, eða úr 273.416 krónum í 380 þúsund krónur á mánuði. Hækkun til dómaranna nemur um 40%. Laun forseta íslands hækka um rúmlega 91 þús- und krónur á mánuði, úr 328.731 krónu í 420 þúsund krónur, eða um 27%. Þeir hópar sem fram hafa verið taldir hér að ofan njóta ekki annarra greiðslna, svo sem aukavinnu, fastrar eða mældr- ar, sem ætlunin, að því er fram kemur í dómi Kjaradóms, að falli út hjá þeim búa við laun ákveðin af dóminum og þeirra njóta. „Því fer fjarri að við séum að kasta neinum pólitískum bombum held- ur teljum við okkur vera að lagfæra launakerfið til samræmis við þann veruleika sem við höfu búið við, með því að fella aukagreiðslur inn í mánaðarlaunin hjá þeim sem þær höfðu og þeir sem ekki höfðu þær fá samsvarandi leiðréttingu á sínum launum," sagði Jón Finnsson, hæstaréttarlögmaður og forseti Kjaradóms í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann vísaði á talsmenn fjármála- ráðuneytisins spurningum um heild- aráhrif dómsins en sagði að heildar- hækkunin ætti ekki að verða um- talsverð. Hækkun fastra launa hér- aðsdómara nemur tæplega 89 þús- und krónum, þeir hækka úr 171.041 Fjórðungsmótið á Kaldármelum: Gísli og Haukur frá Hrafnagili efstir í tölti Kaldármelum, frá Valdimar Kristinssyni. Gísli Höskuldsson Faxa og Haukur frá Hrafnagili hlutu flest stig í töltkeppni fjórðungs- mótsins á Kaldármelum á föstu- dagskvöldið eða 90,93 stig. Næst kom Olil Amble Faxa á Frama frá Brúarlandi með 85,86 stig. Reynir Aðalsteinsson Faxa varð þriðji á Skúmi frá Geirshlíð með 84 stig. í fjórða sæti varð Sigurður Stef- ánsson Snæfellingi á Hamri með 82,13 stig og Vignir Jónsson Snæ- fellingi fimmti á Dróma frá Hrappsstöðum. í 150 metra skeiði sigraði Áki frá Laugarvatni á 15.44 sek., knapi Þorkell Þorkels- son. Annar Snarfari frá Kjalardal á 15,50 sek., knapi Sigurbjörn Bárðarson. Háski varð þriðji á 16.45 sek., knapi Ámundi Sigurðs- son. í 250 metra skeiði sigraði Eitill, knapi Hinrik Bragason, á 23,92 sek. Leistur frá Keldudal varð annar á 24,07 sek., knapi Sigurbjöm Bárðarson og Þjótandi þriðji á 24,8 sek., knapi Logi Laxd- al. í 3þ0 metra stökki sigraði Sleipnir á 27,67 sek., knapi Magn- hildur Magnúsdóttir og í 250 metra stökki sigraði Amor á 20,82 sek., knapi Helga Ágústsdóttir. ♦.. Slökkviliðið að Esju vegna pípureyks SLÖKKVILIÐ Reykjvíkur fékk aðvörun frá eldvarnarkerfi Hótel Esju. Reykur var frá plpu og glóð þar í, en eldur ekki. Kl. 20.13 í fyrrakvöld bárust boð til Slökkviliðs Reykjavíkur frá sjáif- virku eldvamarkerfi á hótel Esju. Allt Slökkviliðið sem var á vakt fór á staðinn. í ljós kom að hótelgestur hafði látið undan tóbaksfýkn sinni og reykt reykjapípu undir reyk- skynjara sem setti kerfíð í gang.. krónu í 260 þúsund krónur. Hækk- unin nemur um 52% sé miðað við föst laun, en 12% sé miðað við heild- arlaun, að sögn Jóns Finnssonar þar sem héraðsdómarar hafa hlotið aukavinnugreiðslur. Að sögn Jóns námu föst laun sóknarpresta um 90 þúsund krónum fyrir hækkun en þau hækka nú i 150 - 180 þús- und krónur. Á móti komið að felld- ar ém niður ýmsar aukagreiðslur, en Jón sagði það utan verksviðs dómsins að fjalla um greiðslur fyrir prestverk og fleira. Laun sýslu- manna nema 230 - 270 krónum eft- ir dóm kjaradóms en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins námu laun til sýslumanna í aprílmaúði 250-400 þúsund krónum, eftir að aukatekjur þeirra höfðu verið felld- ar niður en í staðinn greitt sam- kvæmt samkomulagi sem fyrrum fjármálaráðherra gerði, og tók með- al annars mið að innheimtuárangri þeirra. Um talsverða launalækkun verður að ræða til sýslumanan sam- kvæmt því, og einnig til ýmissa annarra embættismanna, svo sem ráðuneytisstjóra, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðið. Biskup fær 350 þúsund krónur Laun annarra þeirra sem heyra undir Kjaradóm og ekki hefur verið minnst á að framan verða sem her segir frá næstu manaðamótum. Upplýsingar um breytingu í pró- sentum lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun í gær: 350 þúsund krónur á mánuði fá ríkissaksókn- ari, ríkissáttasemjari og biskup Ís- lands; ríkisendurskoðandi fær 340 þúsund krónur en ráðuneytisstjórar og skrifstofustjóri Alþingis fá 305 þúsund króna mánaðarlaun. 290 þúsund króna mánaðarlaun hljóta: Dómsstjóri í héraðsdómi Reykjavíkur, forstjóri ríkisspítal- anna, landlæknir, lögreglustjóri í Reykjavík, Póst- og símamálastjóri, Rektor Háskóla íslands, ríkisskatt- stjóri, sendiherrar og vegamála- stjóri. Héraðsdómarar fá 260 þúsund 270 þúsund greiðast til dóms- stjóra utan Reykjavíkur, flugmála- stjóra, forstjóra Hafrannsókna- stofnunar og Landhelgisgæslu, ork- umálastjóra, rafmagnsveitustjóra ríkisins, ríkislögmanns, skattrann- sóknastjóra, tollstjórans í Reykja- vík, svo og til sýslumanna á Ákur- eyri og í Hafnarfirði, Keflavík, Kópavógi og í Reykjavík. Mánaðarlaun héraðsdómara og formanns yfirskattanefndar verða 260 þúsund krónur. 250 þúsund krónur verða greidd- ar rektorum Tækniskóla og Kenn- araháskóla íslands, tollgæslustjóra, verðlagsstjóra, svo og sýslumönn- unum í Borgamesi, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum og á Akranesi, Blönduósi, Eskifirði, Húsavík, Hvol- svelli,.. ísafírði, Keflavíkurflugvelli, Sauðárkróki, Selfossi og Seyð- isfirði. Aðrir sýslumenn en að framan hafa verið taldir fá 230 þúsund krónur á mánuði, svo og yfírdýra- læknir, og 210 þúsund fá yfir- skattanefndarmenn í fullu starfí, frá og með 1. júlí. Sóknarprestar fái 150 -180 þúsund á mánuði Kjaradómur felldi í fyrsta skipti dóm um kjör presta. í dómi meiri- hluta er rakið hve preststarf sé ólíkt störfum annarra háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og að þessi sér- staða hafi ekki nema að litlu leyti verið viðurkennd í kjarasamning- um. Dómurinn taki tillit til þess að prestar séu svo bundnir í starfi sínu að þeir séu ætíð á bakvakt og beri greiðslur samkvæmt því. Því séu álagsgreiðslur vegna afbrigðilegs vinnutíma og yfírvinnugreiðslur vegna bindingar nú felldar inn í föst mánaðarlaun. Mánaðarlaun sóknarpresta með færri en 1.000 sóknarbörn verða 150 þúsund krónur, samkvæmt dómi Kjaradóms, fyrir 1.000 - 4.000 sóknarbörn greiðast 165 þúsund og 180 þúsund fyrir fleiri en 4.000 sóknarbörn og einnig til fangaprests, farprests, heyrnleys- ingjaprests og sjúkrahúsprests. Prófastar með færri en 4.000 sókn- arbörn fá 195 þúsund en séu sókn- arbörn fleiri en 4.000 verða mánað- arlaun 210 þúsund. Prófastar í Reykjavíku og á Kjalamesi fá 225 þúsund á mánuði og vígslubiskupar 240 þúsund. Allar yfirvinnugreiðslur eiga að hverfa í atkvæði meirihluta Kjaradóms segir um hina almennu hækkun til embættismanna og kjörinna full- trúa segir að ekki verði hjá því komist að breyta og lagfæra launa- kerfi dómsins vegna þeirrar innri og ytri röskunar sem orðið hafi á launakerfinu. I þeim tilvikum sem embættismenn hafí notið auka- greiðslna í formi unninnar eða óunninnar yfirvinnu fyrir venju- bundin störf sé sá kaupauki sem þannig sé orðinn staðreynd, nú felldur inn í mánaðarlaunin og ætti breytingin ekki að leiða til aukinna útgjalda. „Greiðsla fyrir ómælda yfírvinnu fyrir venjubundin störf ætti að vera með öllu óheimil því -að í raun er hún ekkert annað en kaup- auki,“ segir í dóminum. Vitnað er til dóms Kjaradóms frá 1985 þar sem mörkuð hafi verið sú stefna að Iaun sem hann ákveði séu heildarlaun og ekki komi til fastar aukagreiðslur fyrir venju- bundin störf, þó innt séu af hendi utan dagvinnutíma. Vegna eðlis starfa þeirra sem fái laun ákvörðuð af Kjaradómi ætti ekki að vera um frekari greiðslur að ræða nema við sérstakar óvenjulegar aðstæður. Rakið er að hins vegar hafí í raun í vaxandi mæli komið til greiðslu yfirvinnu, fastrar eða mældrar, til þeirra, sem fá Iaun samkvæmt ákvörðun Kjaradóms og séu greiðsl- umar mismunandi eftir einstökum embættum. Fyrir vikið sé verulegt ósamræmi milli heildarlauna og þeirra launa sem Kjaradómur ákveður og í mörgum tilvikum ákveði launagreiðandi allt að 50% af þeim launum sem Kjaradómi er ætlað að ákvarða. í mörgum ríkis- stofnunum þar sem laun forstöðu- manna ákvarðast af dóminum séu heildarlaun næstráðenda og ann- arra yfirmanna mun hærri en föst laun forstöðumanna, þótt vinnu- framlag þeirra sé síst minna en annarra. Einstakir hópar svo sem hæsta- réttardómarar, ráðherrar og alþing- ismenn njóti hins vegar engra slíkra greiðslna. Þá segir að sýslumenn og bæjarfógetar hafi haft sérstöðu í launakerfi ríkisins og fengið auka- laun fyrir innheimtustörf í þágu ríkisins sem nú hafi verið afnumin. Einnig segir að við mikilsverða rétt- arfarsbreytingar sem nú séu að verða sé ástæða til að gefa gaum að starfskjörum dómara og hvort þau hæfí því hlutverki sem þeir eigi að gegna í þágu réttaröryggis. Hækkun langt úr hófi, segir í sératkvæði I sératkvæði Jón Þorsteinssonar, hrl, segir að hækkun sú sem meiri- hlutinn hafi ákveðið sé langt úr hófí miðað við ríkjandi aðstæður í þjóðfélaginu. Enda þótt hækkunin tákni engan veginn samsvarandi hækkun raunverulegra launatekna ségir Jón Þorsteinsson að hún sé um það bil þrisvar sinnum meiri en hann geti fallist á. Óvíst sé í hve miklum mæli aukagreiðslur muni falla niður á móti þeirri hækkun mánaðarkaups sem veitt er. í sératkvæðinu um prestana seg- ir Jón að launahækkun sem meiri- hlutinn ákveði til presta sé að minnsta kosti tvöfalt meiri en hann geti fallist á. Kaupgjald presta hafi borið að leiðrétta innan hóflegra marka en hafa verði hliðsjón af launakjörum í landinu, þar á meðal kjörum annarra háskólagenginna ríkisstarfsmanna. Kjaradómur er skipaður fímm dómendur. Þrír eru tilnefndir af Hæstarétti; Jón Finnsson, hrl, dómsformaður, Jónas A. Aðal- steinsson, hrl, og Ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi. Brynjólfur Sigurðsson prófessor er tilnefndur í dóminn af fjármálaráðherra og Jón Þorsteinsson hrl er tilnefndur af félagsmálaráðherra. Kosið er í dóm- inn til fjögurra ára í senn og mun kjörtímabil þeirra dómenda sem nú situr hafa hafist árið 1989. Björn Bjarnason formaður íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins: Islendingar eiga ekki að hika við að sækja rétt sinn „ÞAÐ eru söguleg tíðindi, að íslenska ríkið skuli dæmt fyrir brot á mannréttindasáttmála Evrópu. Dómurinn ætti að verða ríkisstjórn og Alþingi hvatmng til að huga að nauðsyn þess að lögfesta mann- réttindasáttmálann hér á landi,“ sagði Björn Bjarnason formaður íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins þegar leitað var álits hans á úr- skurði Mannréttindadómstóls Evrópu í ípáli Þorgeirs Þorgeirssonar. „Fagna ég ummælun Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra sem hníga að því, að á vegum dóms- málaráðuneytisins verði sérfræð- ingum falið að kanna það mál,“ sagði Björn. „Tel ég eðlilegt, að fulltrúar Alþingis eigi þar einnig hlut að máli, erfnýlega var úttekt á dönskum lögum og stöðu þeirra gagnvart mannréttindasáttmálan- um unnin í Danmörku og gefið út ýtarlegt álit á vegum danska þings- ins. Er slík vinna nauðsynlegur aðdragandi að því að lögfesta sátt- málann hér eins 0g annars staðar á Norðurlöndunum. Þing Evrópuráðsins er ráðgef- andi fyiir ráðherranefnd þess og á þinginu eru dómarar í Mannrétt- indadómstólinn kjörnir. Aðildarríkj- um Evrópuráðsins hefur fjölgað eftir hrun kommúnismans og í maí síðastliðnum bættist Búlgaría í hóp- inn, 27. ríkið. Á sumarþingi sem haldið er í Búdapest verður einkum rætt um frekari stækkun Evrópu- ráðsins og þær kröfur sem gera á til þeirra ríkja, sem sækja um að- ild, hvort draga eigi landfræðileg mörk eða einungis gera pólitískar kröfur. Allir eru sammála um að ekki megi slaka á hinum ströngu kröfum, sem gerðar eru til stjórnar- hátta í aðildarríkjunum og lýsa sér meðal annars í nýföllnum dómi yfír íslenska ríkinu. I ríkjum Evrópur- áðsins verða lýðréttindi, lýðræðis- legir stjórnarhættir og lög og réttur að vera í heiðri höfð. Kröfúr til nýrra ríkja missa marks, ef þau sem fyrir eru sýna ekki í verki, að þau taki ríkt tillit til skuldbindinga sinna á vettvangi Evrópuráðsins. Þess vegna er mikilvægt, að af festu verði brugðist við af hálfu íslenskra stjórnvalda eftir nýgenginn dóm í máli Þorgeirs Þorgeirssonar. Fleiri íslensk mál eru til meðferð- ar á vettvangi eftirlitsnefnda Evr- ópuráðsins. Má þar nefna rétt leigu- bílstjóra til að standa utan stéttar- félags, sem er hjá Mannréttinda- nefnd Evrópuráðsins, er fjallar um mál, áður en þau fara fyrir dómstól- inn. Náskylt máli leigubílstjórans eru aðfínnslur sérfræðinganefndar, er hefur eftirlit með því að staðið sé við félagsmálasáttmála Evrópu- ráðsins. Hefur nefndin sett fram athugasemdir gagnvart íslenskum stjórnvöldum meðal annars vegna aðildar að verkalýðsfélögum 0g spurningarinnar um rétt manna til að standa utan þeirra. Á liðnum vetri tilnefndi íslandsdeild Evrópu- ráðsþingsins sr. Jón Bjarman í eftir- litsnefnd vegna meðferðar á föng- um og þeim sem sviptir eru frelsi. Er líklegt, að brátt dragi að því að þessi nefnd komi í rannsókna- leiðangur hingað og semji skýrslu um ísland. Málsókn Þorgeirs Þorgeirssonar pg dómurinn í máli hans sýna, að íslendingar eiga ekki að hika við að sækja rétt sinn til stofnana Evrópuráðsins, telji þeir á sér brot- ið. Með þátttöku í samstarfínu inn- an Evrópska efnahagssvæðisins fá íslendingar aukinn rétt með alþjóð- legri vernd á viðskiptasviðinu á sama hátt og hún er veitt á sviði mannréttinda og félagsmála með aðild að Evrópuráðinu," sagði Björn Bjarnason. ... ..............

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.