Morgunblaðið - 28.06.1992, Side 11

Morgunblaðið - 28.06.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JUNI 1992 11 GUDRÚN MARTEINSDÓTTIR FISKIFRÆDINGUR Það er gott að vinna með körlunum HELSTA viðfangsefni Guðrúnar undan- farin tvö ár hefur verið að fylgjast með vexti og viðgangi grálúðunnar. Nýlega var byrjað á nýju verkefni hjá Hafrann- sókn sem Guðrún er þátttakandi í. Verið er að athuga hrygningu og klak þorsks- ins og er verkefnið unnið í samvinnu við LÍU, SH og SIF sem jafnframt eru styrkt- araðilar. „Við höfum merkt þorsk við Austfirði nú í tvö ár og í vor við Suðurland. Tilgangur- inn er að fylgjast með göngu þorsksins til og frá hrygningarsvæðunum. Einnig erum við að skoða sjálfa hrygninguna og atferli þorsksins við hana. Við reynum að meta hvaða árgangar gefa mest af sér og halda stofninum uppi. Þetta hefur ekki verið skoð- að áður. Rannsóknir af þessu tagi eru nýbyr- jaðar bæði hér og erlendis. Hér er um grunn- rannsóknir að ræða og ég held að niðurstöð- urnar komi til með að skipta mjög miklu máli um skilning á þorskstofninum og sveifl- unum í honum. Hluti af rannsókninni fer fram í eldisstöðinni í Grindavík. Þar skoðum við klakið og fylgjumst með afkomu hrogn- anna og þroska lirfanna. Verkefni við Há- skólann á Akureyri tengist þessu, þeir eru að athuga möguleikana á þvi að fara út í hafbeit á þorski." - Sjómenn hafa yfirleitt mjög ákveðnar skoðanir á störfum Hafrannsóknastofnunar 'J. fyrir 20 árum og kom með þetta í land. Menn fussuðu og sveiuðu, þetta væri kýlakarfí og allt hið versta mál. Fyrir nokkrum árum fannst markaður en stjórnvöld þurftu að koma mönnum af stað. Útgerðarmenn fengu grál- úðukvóta fyrir að fara á úthafskarfa. Nú eru þetta arðvænlegar veiðar. Einkenni djúpfiska eins og langhala og búra er að þeir eru hæg- vaxta og afrakstursgetan lítil. Við höfum hvorki haft peninga, mannskap né rétt útbú- in skip til nægilegra rannsókna á djúpmiðum. En það er fólk hér sem alltaf vinnur að þessu.“ - Hvernig tilfínning er að sitja í forstjóra- stól stofnunar sem veldur jafn miklum öldu- gangi í þjóðfélaginu og raun ber vitni? i „Það er nú ekkert þægilegt. Mér fínnst eðlilegt að það verði mikil umræða og tillögur i okkar oft gagnrýndar. En það sem mér fínnst erfítt að kyngja er ósanngjöm og órökstudd gagnrýni. Það sem mér sárnar mest er þegar við á Hafrannsóknastofnun erum höfð fyrir rangri sök. Eins og þegar datt upp úr skip- stjóra á fundi í Vestmannaeyjum að allar i þessar tillögur væru hreinar geþóttaákvarð- , anir. Hér vinnur fólk baki brotnu og af mik- illi fórnfysi og samviskusemi. Það leggur oft nótt við dag og vandar til vinnunnar af fremsta rnegni." Um það hvort næsta skýrsla verði svört eða björt segir Jakob skipta mestu máli að skýrslur stofnunarinnar varpi réttu ljósi á ástandið. Menn verði að horfast í augu við veruleikann og svört skýrsla sé sú sem er óraunhæf. Menn megi ekki gleyma því að ástandið á miðunum fari ekki eftir skýrslunum heldur öfugt. „Tillögumar skipta ekki öllu máli heldur ástand þorskstofnsins. Þetta hef- ur vantað i umræðuna." og verið ófeimnir við að láta þær í ljósi. Hvemig taka þeir á móti fiskifræðingunum? „Öll samvinna við sjómenn er einstaklega góð. Ef við þurfum að komast um borð í bátana til að safna sýnum er okkur mjög vel tekið. Það er ótrúlegt hvað þeir leggja á sig til að hjálpa okkur. Mér fínnst ég verða vör við mikinn áhuga úti í þjóðfélag- inu á rannsóknunum. í rauninni hef ég ekki orðið vör við neikvæða umræðu. Mér fínnst gæta ákveðins ótta hjá þeim sem hafa ver- ið að sækja í þorskstofninn. Þeir skynja að það er minna af físki en verið hefur, menn velta því meira fyrir sér nú en áður af hveiju þetta stafí og hvað sé hægt að gera.“ - Em það margir sem eiga hlut að tillög- um ykkar? „Það er mikið fundað hér og miklar um- ræður. Það tekur marga mánuði að ganga frá úttektum á fiskistofnunum og á þeim tíma eru fundir nær daglega í vinnuhópun- um og starfsmannafundir eru mjög vel sótt- ir. Þær aðferðir sem við notum í dag til að meta stærð stofnanna tel ég að-séu með þeim bestu í heiminum. Eg held að það sé óhætt að fullyrða að hér eru menn mjög einhuga um tillögurnar. Það er búið að vara við því í mörg ár að þorskstofninn sé í hættu svo þessar tillögur áttu ekki að koma á óvart.“ - Nú ert þú ein fárra kvenna sem vinna við fiskirannsóknir. Hvernig líður þér einni í hópi karla um borð í rannsóknaskipi? „Mér líður alveg ágætlega og það er gott að vinna með körlunum. Ég held að okkur konunum sé almennt tekið mjög vel. Það er ekkert að því að vera eina konan um borð!“ HJÁLMAR VILHJÁLMSSON FISKIFRÆDINGUR Það er löngu búið að grisja þorskinn HJÁLMAR Vilhjálmsson fæst fyrst og fremst við loðnurannsóknir. Á árum áður fékkst hann við síld og kolmunna og var um tíma sviðsstjóri á sviði nyijastofna. Hjálmar hefur ekki farið varhluta af þeirri gagnrýni sem beinst hefur að fiski- fræðingum og fengið mishlýjar kveðjur frá loðnusjómönnum í gegnum árin. „Ef ég tek dæmi af sjálfum mér og minni vinnu fínnst mér stundum að ég fái gagnrýni ef ég held því fram að það sé lítið til af loðnu, en enga-ef ég tel að það sé mikið af loðnu.“ Hjálmar segir loðnuna erfíða viðfangs. Það sé best að mæla veiði- og hrygningastofninn eftir áramót, þegar hann er búinn að skilja sig frá smælkinu og heldur sig á tiltölulega afmörkuðu svæði. í upphafí vertíðar á haust- in er loðnan aftur á móti blönduð. Ef loðnan er þá í æti mælist hún mjög illa. Allt þetta segir hann að hafí verið útskýrt margoft fyr- ir mönnum. Það sé því afskaplega þreytandi að heyra því haldið fram að fiskifræðingar vaði um hafíð með bundið fyrir augun og haldi mönnum frá góðum veiðisvæðum að ástæðulausu. - Hvernig er að taka ákvarðanir sem ráða örlögum stórrar atvinnugreinar?" „Það er alveg skelfíleg tilfínning, ég hef aldrei haft gaman af þeim þætti starfsins. Þegar við erum í þessum mælingatúrum, sem allt veltur á, hefur það oft komið fyrir að við höfum verið búnir að keyra í hálfan mánuð áður en við finnum loðnu. Það eru oft alveg voðalegir dagar þangað til fyrsta loðnan fínnst." Skoðið þið niðurstöður mælinga á grund- velli fræðanna einna, eða hugsið þið mikið um hvaða áhrif tillögumar muni hafa í þjóðfé- laginu? „Já, það held ég að við gemm allir. Það er mjög erfítt að taka ákvarðanir um veiðir- áðgjöf án þess að hafa í huga hvaða áhrif ráðgjöfin kann að hafa. í sjálfu sér er það ekki hlutverk Hafrannsóknastofnunar að meta slíka þætti. Það vantar hins vegar lang- tíma fiskveiðistefnu um hvemig á að nýta þessa stofna. Þá gæti Hafrannsóknastofnun veitt ráðgjöf á grundvelli veiðipólitíkur sem til þess kjörin stjórnvöld hefðu sett fram.“ Hjálmar segir slíka stefnu liggja fyrir varð- andi loðnuna og vera til mikilla bóta fýrir ráðgjafanefndina. Fyrst er stofnstærðin mæld, þá em tekin frá 400 þúsund tonn sem eiga að vera eftir til að hrygna í lok vertíðar- innar, afganginn mega menn veiða. Hjálmar dregur upp boð um fund þar sem fundarefnið er „Söguleg ráðgjöf í þorskveið- um“. Hann segir þetta dæmi um skjót við- brögð Hafrannsóknastofnunar við umræðunni í þjóðfélaginu. En hver em viðbrögð hans við kenningunni um þörf á enn frekari grisjun þorsksins? „Svarið er afdráttalaust nei. Þetta getur átt við um sumar fiskitegundir og við aðrar aðstæður, en alls ekki íslenska þorskstofninn. Ég hef reynslu fyrir því að það er afskaplega erfítt að yfírfæra þekkingu á einu hafsvæði yfír á annað, hvað þá úr vötnum yfír í sjó. Ég er ekki að segja að það þurfí ekki að grisja fískistofna, en þegar menn tala um íslenska þorskstofninn þá er löngu búið að grisja hann og grisja mikið.“ HRAFNKELL EIRÍKSSON FISKIFRÆÐINGUR Ég hef áhyggjur af komandi þorskvertíðum Aðalverksvið Hrafnkels er að hafa um- sjón með humar- og hörpudisksrann- sóknum Hafrannsóknastofnunar, hann tekur líka þátt í rannsóknum á rækju, kúskel og fleiri botndýrategundum. Hrafnkell situr í verkefnisnefnd Haf- rannsóknastofnunar um fiskveiðiráð- gjöf. Hrafnkell hefur stundað humarrannsóknir í ríflega 20 ár og var hann fyrst beðinn um að segja frá starfi sínu. „Við fömm á hveiju ári í tveggja vikna humarleiðangur á einu skipi. Þá er farið yfír alla slóðina með svipuðum hætti ár eftir ár. Tilgangurinn er ekki að magnmæla humarinn heldur að athuga samsetningu varðandi stærð og kyn, einnig hrygningu og klak. Stærðar- skipting humarsins er langþýðingarmest, því hún gefur vísbendingu um aldurssamsetning- una. Aldur humarsins verður ekki ráðinn af öðru en stærðinni. Stofnstærðin er svo metin með hefðbundnum aðferðum. Humarinn er hér á norðurmörkum út- breiðslu sinnar. Við sýndum fyrstir fram á það að humarinn hrygnir hér aðeins annað hvert árf því sjávarhitinn er ekki nægur til að klára æxlunarhringrásina á einu ári. Þetta þýðir að bara helmingur kynþroska stofnsins getur af sér afkvæmi árlega.“ Hrafnkell segist ekki skjóta sér undan ábyrgð á óvinsælum tillögum fískveiðinefnd- arinnar. Hann segist vel geta skilið hluta gagnrýninnar sem komið hefur fram, en kann illa órökstuddri gagnrýni. „Ég get vel skilið að menn sem stundað hafa þorskveiðar á vertíðarsvæðinu frá Homafírði til Breiðafjarðar séu hissa á þess- um niðurstöðum varðandi hrygningarstofn- inn. Vertíðin hefur í sjálfu sér gengið vel. Mönnum hefur ekki sýnst að það sé jafn lítið af hrygningafíski og fram kemur í okkar gögnum. Enn er verulegur hluti aflans úr sterkum árgöngum frá ’83 og ’84. Áhyggjurn- ar beinast að því hvað gerist að þessari ver- tíð lokinni, svo ég tali ekki um næstu ár ef ekki verður dregið úr sókn. Árgangamir sem eru að koma inn í hrygningnarstofninn virð- ast allir vera lélegir. En ég skil ekki orð nokkurra togaraskip- stjóra sem segja að ástandið sé betra en við erum að lýsa. Flestir togaramenn held ég að séu okkur mjög sammála. Veiðar þeirra hafa gengið illa undanfarið ár og jafnvel lengur. Togararnir stunda mikið veiðar á uppeldis- stöðvum þorsksins og verða því varir við lé- legu árgangana. Sumir okkar harðorðustu gagnrýnenda tala frá stöðum á landinu þar sem veiðar hafa gengið fádæma illa. Tal þeirra er svo algjörlega á skjön við reynslu fiskimanna á sömu slóðum að maður skilur þetta ekki.“ SÓLMUNDUR TR. EINARSSON FISKIFRÆÐINGUR Margar vannýttar tegundir við ísland Á HAFRANNSÓKNASTOFNUN er sí- fellt verið að leita að nýjum möguleikum í nýtingu sjávarfangs. Sólmundur Tr. Einarsson fiskifræðingur fæst við rann- sóknir á vannýttum hryggleysingjum við strendur Islands. Það eru til dæmis krabbadýr, skeljar og kuðungar af ýmsu tagi. Hann telur að góðir framtíðar- möguleikar séu í nýtingu hryggleysingja í sjó. „Ég held að það geti verið eitt af því já- kvæða sem kemur út úr minnkaðri sókn í hefðbundna fískistofna að við förum að nýta betur það sem við höfum og sækjum í nýjar tegundir," segir Sólmundur. Markaðsmálin ráða frekari þróun veiða og vinnslu. Það þýðir lítið að veiða ef ekki er hægt að selja aflann. Sólmundur segir tölu- verðan markað fyrir ýmsa hryggleysingja í Japan og meðal Bandaríkjamanna af asískum uppruna, einnig er markaður í Frakklandi. Vandinn hefur snúið að flutningum og vinnslu en Sólmundur hefur trú á að markaðsmálin séu að leysast. „Við höfum gert töluverðar rannsóknir á ígulkeijum bæði í Faxaflóa og á Breiðafirði og skiluðum skýrslu í fyrra. Menn sækjast aðallega eftir hrognum og svilum ígulkeij- anna. Þetta er eftirsótt hágæðavara og mark- aðurinn viðkvæmur. Vinnslan krefst mikillar nostursemi á öllum stigum. Við höfum einnig hugað að beitukóngi, kuðungi sem hefur líkað mjög vel. Það er búið að rannsaka tijónu- krabba allt í kringum landið og hægt að mæla með veiðum á honum. Tijónukrabbinn er ekki matarmikill en ákaflega bragðgóður og mundi henta vel til bragðauka og súpu- gerðar. Það hefur reynst erfítt að komast inn á markaðina næst okkur. Svo virðist sem við verðum að selja ákveðna ímynd og vísa til hreinleika og ómengaðs umhverfis íslands." Til viðbótar telur Sólmundur upp fleiri van- nýttar tegundir á borð við krækling, öðu og kúskel, hafkóng, tröllakrabba, bogkrabba og gaddakrabba. Þegar sókn í hefðbundnar fiskitegundir var skert beindu menn athyglinni að vannýttum djúpsjávarfískum og hryggleysingjum. Sól- mundur segir það helst standa aukinni nýt- ingu fýrir þrifum hvað lítið er til af áhættufé í landinu til að þróa veiðar og vinnslu. Fyrir utan hið opinbera eru fáir tilbúnir til að leggja fram fjármuni. Talsvert af þessum afla hefur þurft að sækja með köfun og það er dýrt. Nú er unnið að þróun veiðarfæris, eins konar botnsugu með myndavél, til að sækja aflann niður á sjávarbotn. Sólmundur sér möguleika á að stækka neyslumarkaðinn innanlands og í stað þess að flytja góðgætið út má alveg eins flytja inn ríka matmenn og leyfa þeim að neyta sjávark- rásanna hér á landi. „Við getum gert ísland að sælkeralandi. Það er kjörið að leyfa matmönnunum að veiða aflann sjálfír. Héruð í Frakklandi eru þekkt fyrir vín og osta. Stykkishólmur hefur alla burði til að verða skelfískbær. Vestmannaeyj- ar hafa bæði fugl og fisk af öllu tagi. Það verður að vinna úr möguleikunum sem við höfuim“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.