Morgunblaðið - 28.06.1992, Side 17

Morgunblaðið - 28.06.1992, Side 17
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992 17 JMtogutitthifeffe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar. Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. ( lausasölu 110 kr. eintakið. Úr viðjum vanans Undanfarna daga hefur staðið yfír svokölluð furðufiskavika á 20 veitinga- stöðum um land allt undir einkunnarorðunum Sælgæti úr sjó. Kynning þessi var á vegum Aflakaupabankans. Markmiðið með þeirri viku var að kynna almenningi svokall- aðar vannýttar físktegundir, svo sem stinglax, langhala og háf. Tilgangurinn er í raun tvíþættur; að benda fólki á að það er mörg matarholan og til að átta sig á því, þarf að rífa sig úr viðjum vanans, og hitt að auka þrýsting á útgerð og fiskvinnslu að nýta sér þessar matarholur. „Afla- kaupabankinn er verkefni á vegum Aflanýtinganefndar sjávarútvegsráðuneytisins og Rannsóknastofnunar fiskiðn- aðarins. Bankinn kaupir allar vannýttar físktegundir, sem að landi berast og er því við- skiptavaki fyrir vannýttar tegundir hér við land. Bank- inn hefur meðal annars það hlutverk að stuðla að nýtingu, vinnslu og markaðssetningu á vannýttum físktegundum. Þannig er reynt að stuðla að viðhorfsbreytingu gagnvarf. þessari vannýttu auðlind.“ Á þennan hátt er Aflakaupa- bankinn kynntur í tengslum við furðufiskavikuna. Þetta eru mikil og góð markmið, ekki sízt á tímum niðurskurðar á veiðiheimild- um á þorski. Þessi markmið eru góð ábending þeim, sem forystu hafa haft í útgerð og fískvinnslu, því fyrir þá gildir einnig að mörg er matarhol- an. Þeim hættir til að einblína um of á hlutina eins og þeir hafa verið, virðist skorta víð- sýni og þrek til að viðurkenna breyttar aðstæður. Stað- reyndin er sú, og hefur verið um tíma, að sjávarútvegurinn megnar ekki að standa undir því, sem honum hefur verið ætlað til þessa. Því verða menn að rífa sig úr viðjum vanans og hætta að líta á allar breytingar sem lausn á núverandi kringumstæðum. Með því eru menn aðeins að lappa upp á kerfí, sem hefur gengið sér til húðar. Til að ná fram nauðsynlegum breyt- ingum á fískveiðistjórninni, til að ná fram þeirri stjórnun, sem skilar okkur mestu, verða menn að hætta hinni ströngu sérhagsmunagæzlu, sem ein- kennir alla umræðu um sjáv- arútveg nú á tímum. Menn verða á hinn bóginn að fínna leiðir til þess að ná fiskinum með sem hagkvæmustum hætti og vinna hann og selja úr landinu með mestum mögulegum arði fyrir þjóðar- búið í heild. Setja þarf ákveð- inn ramma um starfsemi í sjávarútvegi en gefa um leið eins mikið frelsi til athafna og unnt er innan rammans. Ljóst er að miklar breytingar munu verða á mynstri veiða og vinnslu og breyting á byggð landsins hlýtur að fylgja í kjölfarið. Því þarf að finna leiðir til að hafa hönd í bagga með þeirri þróun, fremur en hún fari úr böndun- um og tilraunir til úrlausna verði ekki hreint yfirklór. Þá er það í senn gleðileg og uggvænleg staðreynd, að á síðasta ári skuli hlutfall sjávarútvegs af heildarverð- mæti vöruútflutnings lands- manna hafa hækkað þrátt fyrir 500.000 tonna aflasam- drátt frá árinu áður. Það er auðvitað gleðilegt að hægt skuli að auka verðmæti afurð- anna eins og raun ber vitni og er það einn af jákvæðu þáttunum í framtíðinni. Það er hins vegar uggvænlegt að annar útflutningsiðnaður skuli ekki vera burðugri en þetta. Þar höfum við svo sannarlega sofið á verðinum. Uppbygging annars útflutn- ingsiðnaðar hefur staðið í skugga sjávarútvegsins og álvera og járnblendis. Þar hefur gleymzt sú staðreynd að hve mikið sem menn óska þess, verður fleira að koma til en sjávarútvegur, þrátt fyrir alla þá vaxtarbrodda sem í útveginum felast. í stað þess að krefjast stöðugt þess ómögulega, verða menn að einbeita sér að því mögulega. FLEIRA • mætti nefna sem fram kemur í samtalinu við Popper. Hann talaði um ríkja- samsteypur og er augsýnilega lítt hrif- inn af ríkjabandalögum sem teygja anga sína í allar áttir svo ekki sé talað um sambræðslutilraunir ein- sog Sovétveldið á sínum tíma og auðvitað hefur Evrópubandalagið tilhneigingu til ríkjasamruna hvem- igsem til tekst. Jafnvel Bandarríki Norður-,Ameríku hafa átt í innbyrð- is erfíðleikum vegna kynþátta- og stéttaskiptingar og þó tala þeir eitt mál allir þótt milljónir manna séu betur að sér í spænsku svoað dæmi sé tekið. Á ferðum mínum til Miami hef ég sumsstaðar átt í erfiðleikum vegna þess að starfsfólk í mótelum hefur fremur talað spænsku en ensku og enginn vafi á því að ensk tunga á undir högg að sækja í Bandaríkjunum áðuren langt um líður. Eftir óeirðimar í Los Angeles tala Bandaríkjamenn sjálfír um þjóðimar tvær sem vestra búa og mætti bæta hinni þriðju við, svo rækilega sem fólk af suður-amer- ísku kyni er farið að setja mark sitt á þetta flókna þjóðfélag hvítra manna og svartra. Evrópubandalagið hefur haft til- hneigingu til að hlú að minnihluta- hópum og sérkennum þjóða í Evr- ópu. Og ekki veitir nú af. í frétta- grein sem birtist í hinu ágæta og sérstæða vikuriti The European er rætt um þau fimmtán tungu- mál í Evrópu sem virðast vera að syngja sitt síðasta en ef þau deyja út hverfur með þeim rótgróin og margháttuð menn- ing sem blómgazt hefur um aldir. Um 50 milljónir manna innan Evr- ópubandalagsins tala minnihluta- tungur en sumar þeirra verða nú ræktaðar með sérstökum hætti vegna menntunarátaks og má þar nefna katalónsku, galisísku, kors- ísku, sardínísku ogtungumál baska. En hvað sem því líður er álitið að 15 af 50 tungum Evrópu muni deyja út án sérstakra aðgerða — og þá fyrren síðar að mati málfræðinga. Meðal þessara tungna eru korsíska og próvenska í Suður-Frakklandi en þar þróuðust á sínum tíma merkilegar bókmenntir í tengslum við riddaramenningu miðalda og Ezra Pound hafði sérstakar mætur á. Á írlandi tala flestir ensku og hún er einnig helzta málið á Möltu en samt tala flestir Möltubúar enn sitt eigið tungumál en innan við 100 þúsund manns tala írsku á írlandi. Umræður um þessi mál hljóta ekkisízt að vera skilaboð til okkar og þá má vel minnast þess sem segir í velskum málshætti, Þjóð án tungu er þjóð án hjarta. Annað sem vekur athygli í sam- talinu við Popper og er í raun mik- ið íhugunarefni nú um stundir; það er sókn öfgaafla inní tómarúmið sem kommúnisminn hefur skilið eftir sig í Evrópu. Barnabarn Mús- sólínis er kosið á þing undir merkj- um afa gamla sem var leiðtogi öfga- fullra fasista á Ítalíu á sínum tíma og hinn versti einræðisseggur, öfgamenn í Frakklandi slá um sig og nærast á útlendingahatri og nú er slíkt hatur að skjóta rótum í Þýzkalandi enn og aftur, og þá ekkisíður í Austurríki þarsem aldrei hefur verið gert upp við nazismann og mannhatursstefnu hans. Naz- istabullur vaða nú einkum uppi í Berlín og Austur-Þýzkalandi hinu gamla — spýttu t.a.m. á kistu Mar- lene Dietrichs í Berlfn sem sýndi Hitler í tvo heimana á sínum tíma — og því ástæða til að halda niðri í sér andanum og vona í Iengstu lög að lýðræði hafí þroskazt svo vel í Þýzkalandi eftir stríð að þjóðin hafí bolmagn til að hrista af sér þjóðem- isstefnuna og þá ofbeldissinuðu arf- taka Hitlers sem nú gera aðsúg að óæskilegum aðskotadýrum einsog þeir kalla þá sem eru ekki þóknan- legir í augum hinna hreinræktuðu og göfugu aría. f öllum löndum Evrópu er farið að bóla á andúð gegn svonefndri úrkynjaðri list. Þetta er bergmál úr fortíð hélstefn- unnar og við þurfum að vera vel á verði, ekkisízt fjölmiðlamenn einsog Popper benti réttilega á. M (meira næsta sunnudag.) HELGI spjall REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 27. júní Fátt er eins óstöðugt og erfitt að spá fyrir um og íslenzka veðurfarið. Sumir segja að svipuðu máli gegni um íslenzka pólitík, en það kann að vera orðum aukið. Það var vissulega óvænt uppákoma á sjálfri Jónsmessunni (24. júní), þegar sól- argangur er lengstur og nótt á vera björt sem dagur, að haglél heiji á höfuðstað- arbúa og að fíöll í nágrenninu verði hvít niður í miðjar hlíðar. Veðráttan lék þó Norðlendinga og Vestfirðinga enn verr. „Lágheiði, Víkurskarð og Óxarfjarðar- heiði ófær vegna snjóa“ er fyrirsögn á frétt hér í blaðinu síðastliðinn fímmtudag. „Smalað af Lágheiði - Mannhæðarháir skaflar á heiðinni" er yfirskrift á annarri frétt í blaðinu þennan sama dag. „Það haust- aði snemma þetta vorið“ „ÞAÐ HAUSTAÐI snemma þetta vor- ið,“ sagði orðhepp- inn maður þegar hann var að lýsa veðráttunni þessa hásumardaga í seinni hluta júnímánaðar 1992. Svoddan tal er ekki nýtt af nál. í gömlum annálum er talað um „sumarið sem aldrei kom“ og fleiri veðurfarslegar hliðstæður. Svo svartur er veruleikinn ekki að þessu sinni, þótt heiðar og jafvel byggðir hafí orðið hvítar fáein dægur. Sumarið hafði sagt vel til sín eystra og nyrðra fyrr í mánuðinum og þar voraði vel í maí. Suð- vesturlandið hefur á hinn bóginn verið kalblautt lungann úr þessu naumast full- burða sumri enn sem komið er. En það standa vonir til að Eyjólfur hressist. Bjart- eyg sumamóttin getur enn gert vart við sig. Sumarið á enn vikur og mánuði til að sanna sig. En hvem veg sem fer um veðráttuna það sem eftir lifír sumars komust fjölmiðl- ar í feitt þegar „haustaði“ á sjálfri Jóns- messunni. Það voru skrautlegar fyrir- sagnir og hressilegar frásagnir sem mættu fréttaþyrstum lesendum á þessum árstíma „gúrkunnar“. í FRÉTT Morgunblaðsins síðastliðinn fimmtudag segir m.a. um júnífærð- ina á Vestfjörðum: „Reynt er að halda Dynjanda-, Hrafnseyrar-, Breiðadals- og Botnsheið- um opnum eftir föngum og em stórvirk snjómðningstæki stanzlaust að störfum á fjallvegum..." Ekki viðraði betur á Norðlendinga. Á Akureyrarsíðu Morgunblaðsins þennan sama dag segir: „Snjómoksturstæki vom á ferð um Norðurland í gærmorgun, enda fjallvegir víða ófærir. Búið var að opna flesta vegi síðdegis, en þó var Lágheiði enn ófær svo og Öxarfjarðarheiði, en ekki átti að hefja hreinsum vega þar fyrr enveður skánaði.“ Húsfreyjan á Bakka í Ólafsfirði „sagði að byijað hefði að snjóa á þriðjudags- kvöld og snjó kyngt niður alla nóttina [aðfararnótt Jónsmessu, 24. júní]. Börnin gerðu snjókarla heima við bæinn. Og huga þurfti að fé af veðurfarsástæðum. Á þriðjudagskvöld höfðu 250-260 kindur náðst niður af heiðinni. „Við óttumst það að hafa misst eitthvað af fénu,“ sagði húsfreyjan á Bakka „en vitum það ekki með vissu fyrr en snjóa leysir. Sennilega hefur eitthvað farið yfir í Fljótin..." Og í frétt blaðsins úr Mývatnssveit segir: „Kuldalegt var um að litast snemma í gærmorgun ... Grátt niður í byggð og alhvítt til heiða og fjalla. Ömurlegt var að sjá tijágreinar sligast undan snjó- „Stórvirk snjóruðn- ingstæki að störfum“ þunga. Þá þurftu ökumenn að skafa bílr- úður sínar.“ Þetta voru ekki sumarlegar fréttir. En það er sem betur fer ekki á hveiju ári sem Fjallkonan skrýðist júnísnjó í byggð, eða tijágreinar sligast undan sumarsnjó í Mývatnssveit á Jónsmessunni, eða að börn búi til snjókarla við bæi á þessum árstíma, eða að bjarga verði fé af heiðum vegna þess að snó kyngir niður heila sum- arnótt. Snjókarlar í Mývatns- sveit HÉR Á LANDI ER ferðaþjónusta vax- andi atvinnugrein. Rúmlega 130 þus- und erlendir ferða- menn lögðu leið sína til landsins árið 1990 og nokkru fleiri árið 1991. Líkur standa til að erlend- ir ferðamenn verði eitthvað færri í ár (jafnvel 10% til 20%) en síðast liðin tvö metár í hingaðkomu útlendinga. Morgunhost er að erlendir ferðamenn. koma til Islands annarra erinda en að liggja í sólbaði. Samt sem áður má búast við að veðráttan í vikunni sem leið hafi komið þeim hressilega í opna skjöldu. „Ég átti alveg von á því að það yrði kalt héma,“ sagði þýzkur ferðalangur í Mý- vatnssveit, „en við þessu bjóst ég alls ekki“. Starfsmaður Iceland Safari með hóp erlendra ferðamanna í Mývatnssveit komst svo að orði í viðtali við blaðið: „Þetta var þriðja nótt þessa hóps hér á landi, áður höfðum við verið í Stykkis- hólmi og Skagafirði og allan tímann hreppt rigningu. Svo lentum við í snjó- komu hér í Mývantssveit. Fólkið hafði aldrei lent í öðru eins, en við reyndum að gera þeim ljóst að okkur þætti þetta óvenjulegt líka.“ Skafrenningur var í Mývatnssveitinni síðastliðið þriðjudagskvöld. Þegar hinir erlendu ferðamenn vöknuðu í tjaldbúðun- um eftir kalsama nótt höfðu myndast skaflar á milli tjaldanna. „Þegar ég kom út um morguninn,“ sagði íslenzki farar- stjórinn, „var búið að gera nokkra snjó- karla hér í kringum tjöldin, þannig að menn virtust hafa húmor fyrir þessu.“ Trúlega hafa hinir yngri í hópi er- lendra ferðamanna ekkert á móti veðurf- arslegum uppákomum af þessu tagi. Öðru máli kann að gegna um hina eldri. Þeir kunna því trúlega miður að lenda í slíku veðri í sumarleyfi sínu. En við þessu er einfaldlega ekkert að gera annað en að vanda þjónustu alla, sem heimafólk hefur í hendi sér, eins og kostur er. Fjallkonan getur sett upp veð- urfarslega ygglibrún á öllum tímum árs. í annan tíma er sólbros í augum hennar. Og þá er fegurð hennar engu lík. Júníhretið, lömbin og fuglarnir ÞAÐ ERU FLEIRI utankomandi sum- argestir hér á landi en af tegundinni maður, meira að segja árvissir sum- argestir; gleðigjafar, sem hingað koma til að deila íslenzka sumrinu, hvem veg sem viðrar, með lífverum sem hér dvelja árið um kring. Þetta eru að sjálfsögðu sumarboðarnir, farfuglarnir, sem hingað koma til að verpa og viðhalda stofni sínum og eru öllum fagnaðarefni. Þessir sumarboðar eru í raun íslending- ar, því hér koma þeir úr eggjum, en flýja skammdegismyrkrið, hríðar og hregg Veturs konungs, til suðrænna landa, eins og reyndar fleiri. En þeir koma heim vor hvert til að syngja íslenzka sumarið og gróðurríkið til nýs lífs af vetrarsvefni. Þessir farfuglar urðu sem aðrir fuglar illa úti í júníhretinu. Ungar þeirra, sumra hverra, lágu eftir í valnum, eins og lömb- in, þegar garrinn var genginn yfír. Sjón- varpið sýndi síðastliðið fimmtudagskveld hryggilegar myndir af ungavalnum í fu- glaparadísinni Hrísey á Eyjafriði. Sem betur fer verpa sumir þessarra fugla aftur. Það er eins og tegundirnar hafi þróað með sér nauðsynleg viðbrögð af þessu tagi; lagað sig að aðstæðum sem reikna verði með hér norður undir dumbs- hafi. Lærðir menn um fugla telja því að viðkomandi stofnar bíði ekki varanlega hnekki af hretinu, þótt skaðinn sé jafnsár eftir sem áður. Lömb og ungar liggja í valnum. Það er harmsefni. En lífið heldur sinn gang og ský hrekur frá sólu. Það má nefnilega treysta því að aftur kemur vor í dal, þrátt fyrir öll hret, bæði mannlífshret og veður- farsleg hret. mmm^mmm sú var tíð að Á mörknm íslendingar voru AmorKlim Stórum háðari ár- hins byggl- ferði og veðurfari lesra heims e!l ™er- F™m ^r ° siðustu aldamót sótti þjóðin lifíbrauð sitt svo að segja með berum höndum í gróðurkragann umhverf- is hálendið, það er til hefðbundins land- búnaðar, og á opnum handrónum smábát- um á haf út. Sól og regn réðu gróður- fari. Gæftir sjávarafla. Veðurfarið lífi og dauða landsmanna. Það var á þessum liðnu tímum, sem þó eru svo undurskammt að baki, tímum langömmu og langafa okkar, þegar sú staðhæfing var sönn, að ísland væri á mörkum hins byggilega heims. „Sumarið sem aldrei kom“, að sögn annála, hafði allt önnur og hrikalegri áhrif en tveggja daga „haust“ að sumri 1992. Ef heyfeng- ur brást, féll búpeningur, og þegar búpen- ingur féll var stutt í mannfallið. Ef við förum dulítið lengra aftur í tím- ann, svo sem tvö hundruð ár, blasir við hryggileg mynd. Mikið harðindaskeið ríkti um og eftir miðja 18. öldina hér á landi, auk þess sem gosaska Skaftárelda (1783) barst víða um land, eyddi gróðri, heyfeng- ur brást og búpeningur féll. Talið er að, að um 9.000 manns hafi fallið á árunum 1783-85 eða tæplega fímmtungur þjóðar- innar á þeirri tíð. í heimildariti sem Framkvæmdastofn- un, áætlanadeild, gaf út 1981 um mann- fjölda á íslandi á ýmsum tímum segir svo um árabilið 1880-1890, það er um þjóð- hagsstöðu og landflótta fyrir rúmum 100 árum: „Á síðasta tímabilinu var veðurfar með eindæmum kalt, auk þess sem flutningar manna til Ameríku voru í hámarki. Talið er, að 10-15 þúsund manns hafí flutzt þangað.“ í frásögn í Öldinni sem leið um júní- mánuð árið 1887 segir: „Víðsvegar að berast nú fréttir um stórversnandi afkomu fólks, og í sumum sveitum er almennt bjargleysi og vand- ræði. Aðalorsökin er gífurlegur fíárfellir í vetur og vor, einkum norðan lands og vestan ..." Framangreindar tilvitnanir segja löngu liðna sögu um veðurfar og landshagi; sögu sem þó má ekki gleymast, því að hún er bakland okkar. Það er í þessari sögu sem rætur okkar liggja. Margt hefur breytzt síð- an byggð var hér reist ATVINNU- OG þjóðlífshættir hafa gjörbreytzt með stóraukinni mennt- un og þekkingu þjóðarinnar og með mikilvirkum tækni- búnaði atvinnu- vega á 20. öldinni, einkum og sér í lagi á lýðveldistímanum. Við framleiðum meiri og meiri búvöru með færri og færri bænd- um. Við getum og sótt (og höfum trúlega sótt) verulega meiri afla í sjó með tækni- væddum fiskiflota okkar en fiskifræðileg- ar niðurstöður telja rétt að gera. Jónsmessan 1992. Morgunblaðið/Rúnar Þór i Við erum ekki háð veðurfari í jafn rík- um mæli og áar okkar fyrr á tíð. En við erum engu að síður háð veðráttunni sem og umhverfi okkar öllu. Gamla spakmæl- ið, „enginn kann sig í góðu veðri heiman að búa“ er enn í fullu gildi. Og við verð- um að umgangast náttúru landsins, haf og hálendi af tilhlíðilegri varúð og virð- ingu. Annars getur illa farið, eins og oft önnum kafnar björgunarsveitir og slysa- skýrslur eru til vitnis um. Og tæknin, sem léttir brauðstritið á flesta lund, felur í sér nýjar slysahættur. Umferðin á vegum landsins hefur kostað, svo dæmi sé tekið, að meðaltali 24 manns- líf á ári á líðandi áratug, auk meiri og minni meiðsla á hundruðum einstaklinga og umtalsverðs eignatjóns. í KRAFTI aukinnar þekking- ar og tækni höfum við fullnýtt (og sumir segja ofnýtt) helztu fískistofna okkar stóru fiskveiði- landhelgi. í því sambandi er skemmst að Landið og miðin minnast tillagna Fiskveiðiráðgjafanefdar Alþjóðahafrannsóknaráðsins og tillagna Hafrannsóknarstofnunar um verulega skertar þorskveiðheimildir. Það er ekki heldur úr vegi að minna á hrun Norður- landssíldarinnar, sem er tiltölulega skammt að baki í sögu okkar, og mætti gjarnan vera okkur víti til varnaðar. í ljósi þeirrar reynslu og þekkingar, sem fyrir hendi er um lífríki sjávar, er óveijandi, að taka augljósar áhættur með þorskinn, gjöfulasta nytjafiskinn, sem lífskjör í landinu hvíla á öðrum auðlindum fremur. Nútíma veiðitækni [veiðigeta] hefur flýtt ferð okkar til velmegunar, en hún felur augljóslega í sér hættur, og þær verulegar, ef við kunnum ekki með hana að fara. Tæknin hefur og gert okkur kleift að framleiða búvöru langt umfram innlenda eftirspurn með verulega færri starfs- mönnum í landbúnaði en fyrir nokkrum áratugum. Við höfum á hinn bóginn ekki nýtt nútíma þekkingu og tækni nægilega vel til að stöðva gróðureyðingu. Landið er að blása upp í höndunum á okkur. Svo virðist sem við séum að ganga of nærri gróðurkraganum umhverfis hálendið og fískimiðunum út af strandlengjunni. Okkur þarf að lærast, sem fyrr segir, að umgangast náttúru landsins og um- hverfí okkar af varúð og virðingu. Það gildir ekki hvað sízt um gróðurlendið og fískimiðin, að öðrum náttúruperlum og náttúruauðlindum ólöstuðum. Við verðum að umgaugast nátt- úru landsins og umhverfi okkar af varúð og virð- ingu. Það gildir ekki hvað sízt um gróðurlendið og fiskimiðin, að öðr- um náttúruperl- um og náttúru- auðlindum ólöst- uðum. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.