Morgunblaðið - 28.06.1992, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992
19
Frá hvalskurði í hvalstöð Ellefsens á Flateyri, spúandi reykháfar
og fjöll af tunnum bakatil.
Morgunblaðið/Ámi Johnsen
Líkanið er ótrúlega fíngert, það getur rúmast á venjulegri síma-
skrárkápu, en hvert atriði er eins og í fullbyggðu húsi eins og sjá
má t.d. á tröppunum og handriði. Á myndinni teygir sólargeisli sig
í gegnum drekann niður þilið.
Önfirðingar eru lífsglatt og félagslynt fólk. Fremstur á myndinni
vinstra megin er Björn Ingi Bjarnason og fyrir aftan hann Jóna G.
Haraldsdóttir og Gísli Árni Böðvarsson, en hægra megin við borðið
innst eru Benedikt Vagn Gunnarsson, Hólmfriður Sigurðardóttir og
Siggi Björns.
Morgunblaðið/Ámi Johnsen
Menn sjá sjaldan bakhliðina á Tjarnargötu 32, Ráðherrabústaðnum,
en húsið allt er sérlega fallegt eins og sprettur fram í líkani Guðlaugs.
Frá Flateyri skömmu fyrir aldamótin 1900, á miðri mynd fyrir ofan
hvalverksmiðjuhúsin stendur „Ráðherrabústaðurinn“, íbúðarhús Ell-
efsens, hvítt og reisulegt.
Brekku, Ingjaldssandi við Önundar-
fjörð.
Björn Ingi Bjarnason úr Hafnar-
firði, gamalgróinn Önfirðingur, hef-
ur haft frumkvæði að smíði líkans-
ins af Ráðherrabústaðnum sem
Qöldi einstaklinga og fyrirtækja
gefur til síns heima ásamt líkani
sem Guðlaugur Jörundsson hefur
einnig á sinn listilega hátt gert af
hinu gamla verslunarhúsnæði
Kaupfélags Önfirðinga sem byggt
var á Flateyri 1857 en brann 1982.
Önfirðingar sunnanlands í sam-
vinnu við heimaaðila tóku afmælis-
árið strax föstum tökum með út-
gáfu veglegs dagatals þar sem upp-
lýsingum tengdum afmælunum
þremur var fléttað saman með
myndum ogtexta. Tekjur af auglýs-
ingum mynduðu sjóð sem síðan var
1922 1992
FLAÍÍYRAEHRHTUR 70 ÁEA
Myndin sýnir forsíðu afmælis-
dagatalsins í tilefni afmælistríós-
ins, en myndirnar tók Björn Ingi
Riarnacnn
efldur til þess að standa að kostn-
aði við smíði módelanná, en listræn
vinna módelsmiðsins er með því
dverghagasta sem menn hafa séð
hérlendis enda er hver einasti pílári
og hver einasti hlutur í húsinu hand-
smíðaður. Ugglaust er tímakaupið
hjá módelsmiðnum ekki hátt en
kjörgripir komast í hendur Önfirð-
inga og annar er svo áþreifanléga
tengdur sögu lands og þjóðar. Ekki
er óalgengt að menn utan af lands-
byggðinni hafi tekið sig upp og flutt
suður til Reykjavíkur en óvenju-
legra er að þeir hafi tekið sig upp
með annað éins stórhýsi og Ráð-
herrabústaðurinn við Tjamargötu
32 er. Húsið var reist eins í Reykja-
vík nema að settir voru þrír kvistar
á þak hússins í stað eins.
Þegar Ráðherrabústaðurinn
hvarf frá Flateyri opnaðist rými í
lóð sem lengi stóð autt, en nú er
þar hús Einars Odds Kristjánssonar
framkvæmdastjóra, en líklega hefur
það hús nú ekki tilhneigingu til
þess að fara á flakk frekar en eig-
andinn.
Hvalstöðin á Sólbakka stóð frá
1889 til 1901 og með tilkomu at-
hafnanna sem fylgdu má segja að
nýjar dyr hafi opnast Önfirðingum
að umheiminum. Menn kynntust
nýjum viðhorfum, heimamenn
sendu jafnvel börn sín til mennta í
útlöndum og bæjarbragurinn varð
heimsborgarlegri. Sumir ánetjuðust
hvalveiðistemmningunni og fluttu
burt þegar hvalvinnslan lagðist af,
fluggu með Ellefsen hvalfangara
til Austurlands og síðar allt til
Suður-Afríku er hann fór þangað á
efri árum í atvinnurekstur þegar
hvalurinn var búinn við ísland. Einn
hvalfangaranna sem fór með hon-
um var Ebeneser Ebenesersson sem
flutti um síðir til Noregs og gerðist
hvalveiðimaður þar.
En þótt landinn færi á flakk í
stemmningu hvalveiðinnar þá hætti
Ráðherrabústaðurinn að flakka,
hann hefur haldið sig við bakk-
anna, Sólbakka á Flateyri og Tjarn-
arbakkann í Reykjavík, þjóðareign
sem skylt er að vernda og halda
við svo sómi sé að, en módel Guð-
laugs undirstrikar tengsl lands-
byggðarinnar við höfuðborgina,
upprunann og gagnkvæma skyldu
landsbyggðar og höfuðborgar til
virðingar og vegsauka landi og þjóð.
Tilbob nr. 2 í ríkisbréf
mánudaginn 29. júní
Um er að ræða 2. fl. 1992 í eftirfarandi verðgildum:
Kr. 2.000.000
Kr. 10.000.000
Kr. 50.000.000
Ríkisbréfin eru til 6 mánaða, með gjalddaga
30. des. 1992. Þessi flokkur verður skráður á
Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki ríkisbréfanna.
Sala nýrra ríkisbréfa fer fram með þeim hætti
að löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst
kostur á að gera tilboð í bréfin samkvæmt
tilteknu tilboðsverði. Lágmarkstilboð er
kr. 2.000.000 að nafnvirði.
Öðrum aðilum er bent á að hafa samband við
ofangreinda aðila, sem munu annast tilboðs-
gerð fyrir þá, en þeim er jafnframt heimilt að
bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboða
(meðalávöxtun vegin með fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisbréfin þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins mánudaginn 29. júní fyrir kl.14.
Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Lánasýslu ríkisins/Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40.
i
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
IANASÝSLA RÍKISINS RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40,