Morgunblaðið - 28.06.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992
21
Margrét Rögnvalds
dóttir — Minning
Fædd 23. október 1989
Dáin 22. júní 1992
iðnaðarmanna, fyrir rétt um 10
árum, var Þorgeir útnefndur heið-
ursfélagi Landssambandsins fyrir
framúrskarandi störf í þágu ís-
lensks iðnaðar, bæði á félagsmála-
sviði og á sviði iðnrekstrar. Hafði
hann nokkrum árum áður (1975)
verið sæmdur heiðursmerki Lands-
sambands iðnaðarmanna úr gulli.
Þá var hann einnig kosinn heiðurs-
félagi í Félagi dráttarbrauta og
skipasmiðja fyrir ómetanleg störf í
þágu íslensks skipaiðnaðar.
Þorgeir lét sig ekki einvörðungu
varða málefni iðnaðarins. Hann var
einnig virkur í sveitarstjórnarmál-
um. Hann sat í hreppsnend Ytri-
Akraneshrepps á árunum 1935-
1941, var varabæjarfulltrúi á Akra-
nesi 1942-1946, bæjarfulltrúi á
Akranesi 1946-1958 og 1962-
1966 og í bæjarráði 1951-1953.
Hann sat lengi í stjórn Sjúkrahúss
Akraness og átti mikinn þátt í upp-
byggingu þess. Fyrir störf sín í
þágu heimabyggðar sinnar naut
Þorgeir mikillar virðingar og var
kjörinn heiðursborgari Akraness
árið 1982.
Öllum störfum, sem Þorgeir tók
að sér, sinnti hann af mikilli trú-
mennsku. Hann var sérlega traust-
ur maður og gott til hans að leita.
Því bera vitni samstarfsmenn hans,
starfsfólk í fyrirtæki hans og síðast
en ekki síst viðskiptavinirnir. Hann
var gæfumaður í einkalífi, þótt
hann hafi eins og aðrir orðið að
taka miklu andstreymi, ekki síst
þegar fyrsta barn hans lést á unga
aldri. Þorgeir var einn þeirra manna
sem bugaðist aldrei og miklaði ekki
fyrir sér stór eða erfið viðfangs-
efni. Kona hans, Svanlaug Sigurð-
ardóttir, og börn þeirra, Jóhanna,
Jónína, Jósef og Svana stóðu ávallt
með honum í blíðu og stríðu.
Það er sagt um suma menn að
þeir standi eins og klettar upp úr
mannhafinu. Þorgeir var einn af
þessum klettum og er ekki ofsögum
sagt að hann var meðal þeirra sem
settu svip á öldina og kunnu að
gefa öðrum af sjálfum sér. Það var
ekki ónýtt fyrir ungan mann, sem
innan við þrítugt hóf starf hjá
Landssambandi iðnaðarmanna og
fékk einnig það hlutverk að hafa
umsjón með starfsemi Félags drátt-
arbrauta og skipasmiðja, að geta
gengið í smiðju og leitað ráða hjá
Þorgeiri Jósefssyni. Þótt samtölin
yrðu býsna mörg hefðu þau þurft
að verða fleiri. En þrátt fyrir langa
reynslu Þorgeirs og yfirburða þekk-
ingu á málefnum iðnaðar voru þessi
samtöl aldrei neinar predikanir eða
ítroðsla. Engar málalengingar eða
Iöng ræðuhöld þurfti, hvorki í slík-
um samtölum né á fundum. Um-
ræðan fór alltaf fram af sanngirni
og á jafnréttisgrundvelli, en með
þeirri festu og vel undirbyggðu
grundvallarskoðun sem einkenndi
Þorgeir og mótast hafði af langri
reynslu. Og þótt skilyrði iðnaðarins
væru oft bágborin og efnahagslegt
umhverfi andsnúið, ekki síst í skipa-
smíðaiðnaðinum, lagði Þorgeir aldr-
ei árar í bát. Hann vissi af langri
reynslu, að eins og dagur fylgir
nóttu og sumar vetri, birtir öll él
upp um síðir. Sveiflur milli bjart-
sýni og svartsýni komust því ekki
að í huga hans eins og okkar hinna.
Raunsæi var hans einkunnarorð og
hann trúði því alltaf að þegar til
lengdar léti yrði skynsemin ofan á.
Þegar höfðingjar falla frá verður
tilveran sviplausari en áður. Satt
er það að maður kemur í manns
stað. En andblær sterkra persónu-
leika verður ekki borinn uppi af
þeim sem eftir koma. Hann lifir
áfram í minningunni. Enginn sem
þekkti Þorgeir Jósefsson mun
gleyma honum.
Landssamband iðnaðarmanna og
Félags dráttarbrauta og skipa-
smiðja standa í þakkarskuld við
Þorgeir Jósefsson, fyrir ómetanleg
störf hans í þágu íslensks iðnaðar
og samtaka hans. Við viljum færa
Svanlaugu og afkomendum þeirra
Þorgeirs samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning Þorgeirs Jósefssonar.
Þórleifur Jónsson.
Fleirí greimr um Þorgeir Jó-
sefsson bíðn birtingar og verða
birtar í blaðinu næstu daga.
Vertu sæl, vor litla, hvíta lilja,
lögð í jörð með himnafóður vilja,
leyst frá lífi nauða,
ljúf ogJíjört í dauða
lést þú eftir litla rúmið auða.
Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða,
lof sé Guði, búin ertu að striða.
Upp til sælu sala
saklaust barn án dvala.
Lærðu ung við engla Guðs að tala.
(Sb. 1945 - M. Joch.)
Margréti litlu eða Möndu eins og
foreldrar og systir hennar kölluðu
hana kynntist ég á deild 12-E
Bamaspítala Hringsins fyrir rúmu
ári. Móðir hennar sagði mér að hún
væri með sjúkdóm sem hrifi hana
burt úr okkar heimi. Og þá spyr
maður af hveiju er verið að taka
svona lítil börn úr faðmi fjölskyld-
unnar? En við fáum aldrei fullkom-
ið svar við því.
Margrét var lítil og falleg stelpa
en heft í líkama sínum. Hún naut
yndislegrar ástar og umhyggju for-
eldra sinna sem gerðu allt til að
létta henni þessi miklu veikindi sem
hrjáðu hana. Þegar ég kom í heim-
sókn til Unnar og Dofra var mér
alltaf tekið opnum örmum sama
hversu veik Margrét var og alltaf
átti hún allan hug manns og hjarta.
Margrét var í sjúkraþjálfun á
Landspítalanum hjá frábærum
barnasjúkraþjálfurum sem gerðu
allt til að henni liði vel. Hún lá á
deild 12-E í veikindum sínum og
þar hlúðu allir að henni eins mikið
og hægt var enda yndislegt starfs-
fólk þar.
Elsku Unnur, Dofri og Nanna.
Ég mun biðja Guð að gefa ykkur
styrk til að takast á við erfiðan tíma
sem framundan er en minninguna
um yndislegu litlu Möndu ykkar
verður ekki tekin frá ykkur.
Ömmum hennar og öfum vil ég
einnig senda mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Hönd þín snerti
sálu okkar.
Fótspor þín liggja
um líf okkar allt.
Jóhanna Hauksdóttir.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(H. Pétursson)
Elsku Unnur, Dofri og Nanna,
við vottum ykkur dýpstu samúð og
biðjum algóðan Guð að styrkja ykk-
ur í sorginni.
Addý, Atli og Daníel Örn.
t
Elskuleg systir mín,
GUÐRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánudaginn 29. júní
kl. 13.30.
Jón Óttarr Ólafsson.
t
Elsku litla dóttir okkar og systir,
MARGRÉT RÖGNVALDSDÓTTIR,
Álagranda 10,
Reykjavík,
sem lést í Barnaspítala Hringsins 22. júní, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 29. júní kl. 16.00.
Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti
Barnaspítala Hringsins njóta þess.
Unnur Bjarnadóttir, Rögnvaldur Dofri Pétursson,
Nanna Kristín Magnúsdóttir.
t
Útför
OTTÓS S. JÓNASSONAR
fyrrv. brunavarðar,
Hringbraut 78,
veröur gerð frá Nýju kapellunni Fossvogi þriðjudaginn 30. júní
kl. 15.00.
Ása G. Ottósdóttir, Albert Stefánsson,
Elfsabet S. Ottósdóttir, Örn Johnson,
Helga Ottósdóttir,
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn,
ÞORGEIR JÓSEFSSON
fyrrv. framkvæmdastjóri,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju mánudaginn 29. júní
kl. 11.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness
og dvalarheimilið Höfða, Akranesi.
Svanlaug Sigurðardóttir.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS MARTEINSSONAR,
Miðtúni 56.
Sérstakar þakkir færum við fararstjór-
um Samvinnuferða Landsýnar á Korfu,
Mariu Perello og Helgu Einarsdóttur.
Sesselja Einarsdóttir,
Edda Sigrún Gunnarsdóttir, Þórður Sigurðsson,
Guðrún Gunnarsdóttir, Sigurjón Sigurðsson,
Marteinn Gunnarsson, Ingunn Steinþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og móðurbróðir,
WALTERANTONSSON
hæstaréttarlögmaður,
Eskihlið 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. júní kl.
13.30.
Jónína Kristín Gunnarsdóttir,
Elsa Rúna Antonsdóttir, Eyjólfur Björgvinsson,
Gunnar H . Antonsson, Anton Eyjólfsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar eiginmanns míns og föður okkar,
BENEDIKTS HANNESSONAR,
Hofsvallagötu 18.
Hallfríður Magnúsdóttir
og börn.
t
Innilegt þakklæti til allra þeirra, er með nærveru sinni og hlýjum
hugsunum styrktu okkur við missi litlu dóttur okkar,
GUÐRÚNAR HILMARSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir eru færðar öllu starfsfólki vökudeildar og deildar
22A Landspítalans.
Sigurlaug Jónsdóttir, Hilmar Sigurðsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls ástkærs sonar okkar,
bróður, mágs, dóttursonar og frænda,
MATTHÍASAR Þ. GUÐMUNDSSONAR,
Miðvangi 121,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir sendum við séra Einari Eyjólfssyni og öllum vin-
um og fjölskyldum, fjær og nær, fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Ragnheiður Matthiasdóttir, Guðmundur Brandsson,
Guðmundur R. Guðmundsson, Ingibjörg St. Ingjaldsdóttir,
Ragnheiður B. Guðmundsdóttir, Ægir Örn Guðmundsson,
Örvar Þór Guðmundsson, Ragnheiður G. Guðmundsdóttir,
Sara Rakel Hlynsdóttir, Guðmundur Heiðar Guðmundssor
L E GSTEINAR
HELLUHRAUNI 14 - SSO+IAFNAFíFIRÐI • SlMI 652707