Morgunblaðið - 28.06.1992, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992
27
KRAFTLYFTINGAR
Setti
stefn-
unaá
pall-
inn
- sagði Auðunn Jóns-
son sem hafnaði í
þriðja sæti í -90 kg
flokki á Evrópumeist-
aramóti unglinga í
kraftlyftingum
EVRÓPUMEISTARAMÓT ungl-
inga í kraftlyftingum var haldið
í Búdapest íUngverjalandi 14.
júní sl. Fimm keppendur frá
íslandi voru á mótinu, og náði
Auðunn Jónsson, tvítugur
Kópavogsbúi, þeim ágæta
árangri að hafna í þriðja sæti
i -90 kg þyngdarflokknum.
Hann átti möguleika lengi vel
á gullverðlaunum, en mistókst
naumlega að iyfta 312,5 kg í
réttstöðulyftu undir lokin, og
haf naði því í þriðja sæti.
Arangur Auðuns er glæsilegur,
sérstaklega í ljósi þess að
hann setti íslandsmet í unglinga-
flokki í hnébeygju,
Steíán réttstöðulyftu og
Eiríksson samanlögðu, í -90
skrífar kg flokknum. Sömu
sögu er að segja af
Hilmari Gunnarssyni sem keppti í
-75 kg flokknum, en hann hafnaði
í 5. sæti í sínum flokki. Auðunn
lyfti samtals 757,5 kg í saman-
lögðu, tók 290 kg í réttstöðulyftu
og 295 kg í hnébeygju. Hilmar lyfti
samtals 617,5 kg, tók 250 kg í
réttstöðulyftu og 242,5 í hnébeygju.
Mótið nú mun sterkara en í
fyrra
Auðunn sagðist í samtali við
Morgunblaðið vera ánægður með
þennan árangur. Það hafi lítið vant-
að upp á að hann krækti í gullið,
og samanlagt hefði árangur hans
Auðunn Jónsson lenti í þriðja sæti í -90 kg flokki, á Evrópumeistaramóti
unglinga sem haldið var í Búdapest um miðjan mánuðinn.
verið jafn árangri Norðmannsins
sem lenti í öðru sæti, en hann hafi
verið 200 grömmum léttari og því
hreppt silfrið. „Ég stefndi alltaf að
því að ná verðlaunasæti á mótinu,
og ég er mjög ánægður með að það
tókst. Mótið núna var mun sterkara
en í fýrra, sem sést best á því að
-90 kg flokkurinn vannst á 730 kg
samanlagt í fyrra, en Finninn sem
vann núna lyfti samtals 780 kg.,“
sagði Auðunn.
Eftir fyrstu lyfturnar í réttstöðu-
lyftunni var Auðunn í efsta sæti,
en þegar Finninn Jari Perálá lyfti
302,5 kg, þurfti Auðunn að taka
312 kg til að tryggja sér sigur. „Ég
hef verið að taka 300 kg nokkuð
auðveldlega á æfingum að undan-
fömu. Það var kannski svolítil
græðgi að æða beint í 312,5 kg
eins og ég gerði, en það komst
ekkert annað að hjá mér en sigur.
Ég hefði tryggt mér annað sætið
með 300 kg en tók áhættuna," sagði
Auðunn.
Draumurinn að komast á
heimsmeistaramótið
Auk Auðuns og Hilmars kepptu
á mótinu Jóhannes Eiríksson, Ólaf-
ur Kristjánsson og Grétar Hrafns-
son. Næsta stórmót í unglingaflokki
er heimsmeistaramótið í Astralíu
sem fram fer í september. „Það er
auðvitað draumurinn að komast
þangað, en það er með það eins og
flest annað, spurningin snýst um
að ijármagna ferðina," sagði Auð-
unn. Hann sagði að þeir hefðu orð-
ið að verða sér sjálfir út um allt
fjármagn til að kosta förina á Evr-
ópumeistaramótið. Þeir hefðu reynt
að fá styrki hjá fyrirtækjum, en
þeir hefðu ekki numið nema broti
af ferðakostnaðinum. Kraftlyft-
ingasambandið hefði ekki aðstoðað
þá neitt, hvorki fjárhagslega né
með öðrum hætti, þeir hefðu meira
að segja þurft að skrá sig sjálfir á
mótið. „Það er auðvitað erfitt að
þurfa að standa í svona basli. Stjóm
Kraftlyftingasambandsins virðist
ekki hafa mikinn áhuga á að gera
eitthvað til að aðstoða okkur fjár-
hagslega. Ef sambandið.væri innan
ISI hefði það einhvem aðgang að
fjármunum, sem án alls efa kæmu
félagsmönnum að góðum notum,“
sagði Auðunn.
Augnlæknastofan í IHjódd
Álfabakka 14
Hef hafið störf víó augnlæknastofuna íMjódd.
örn Sveinsson.
Sérgrein augnlækningar.
Símar682166 og 682344.
Verð
Barnagalli, kr. 3.990,-
St. 8-14
Fótboltaskór, kr. 2.980,-
St. 28-38
Fótbolti kr. 1.450,-
Opið laugardag
frá kl. 10-14.
SPORTBÚÐIN ÁRMÚLA 40, SÍMI 813555.
ik/jXXíÚ
AlII/ACCDJIID Tll
AUIxArtKDlK IIL
MALLORCA!
Við bætum við ferðum til Mallorca í sumar vegna mikillar eftirspurnar. Frábærir
gististaðir á 3 vinsælustu stöðunum á þessari sumardvalarparadís fjölskyldunnar.
Tveggja og þriggja vikna ferðir: 3. ágúst og 24. ágúst.
- LWill-hibSa téi
SfHin/iiiiiiilerilir-Lmiási/ii i
Roykjavík: Austurstrœti 12 • S. 91 - 69 1010 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Símbrél 91 - 2 77 % / 691095 • Telex 2241 ”
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbrét 91 - 62 24 60 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Simbréf 96 - 24087