Morgunblaðið - 04.07.1992, Side 2

Morgunblaðið - 04.07.1992, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 íslendingar Norðurlandameistarar í brids: Geysilega mikilvæg- ur sigur fyrir okkur - segir Björn Eysteinsson fyrirliði ISLENSKA karlaliðið í brids varð Norðurlandameistari í opn- um flokki á Norðuriandameist- aramótinu í Svíþjóð, sem lauk í gær. Liðið tapaði aðeins einum leik á öllu mótinu, síðasta leikn- um gegn Norðmönnum með minnsta mun, 14 stigum gegn 16. Björn Eysteinsson fyrirliði ís- lenska liðsins segir að sigurinn sé geysilega mikilvægur fyrir íslenska bridsspilara því hann sýni m.a. að heimsmeistaratitil- Blönduós: Bíll tekinn á 143 km hraða ÖKUMAÐUR var tekinn á 143 km hraða við bæjarmörk Blöndu- óss í gærkvöldi. Lögreglan á Blönduósi svipti manninn öku- leyfinu á staðnum. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Blönduósi var ökumaður tekinn á þessum ofsahraða við af- leggjarann að flugvellinum. Ánamaðkur- ínn kominn í 45 krónur Stangaveiðimenn leita nú margir hverjir logandi ljósi að ánamöðkum til að freista laxa og silunga. Sú leit er ekki þrautalaus því nú hefur ekki rignt um nokkurt skeið og þegar vel aflast í ám og vötnum eins og verið hefur, sitja maðkasalar ekki lengi uppi með birgðir og í kjölfar- ið kemur verðsprenging. Nú er fátt um ánamaðka, en Morgunblaðið hefur fregnað að örfáir maðkakarlat sem standa allan daginn yfir einstökum görðum og úða yfír þá vatni fái allt að 45 krónur fyrir hvem maðk, en til samanburðar má geta þess, að á meðan nóg var til af maðki í júnímánuði, var verðið 20 til 25 krónur stykkið. Þeir ná hins vegar ekki nærri því eins miklu af maðki eins og ef vætan væri tilkomin frá náttúrunnar hendi. Sjá veiðiþátt á bls. 10. inn í Yokohama hafi ekki verið nein tilviljun. Lokatölur í opna flokknum eru þær að íslendingar eru í efsta sæti með 185,5 stig, Norðmenn í öðru sæti með 174,5 stig, Svíar í þriðja sæti með 166 stig, Finnar í fjórða sæti með 144 stig, Danir í fímmta sæti með 141 stig og Færeyingar reka lestina með 70 stig. í kvenna- flokknum hafnaði íslenska sveitin í fímmta sæti með 148 stig en Svíar unnu í þeim flokki örugglega með 192 stig. í öðru sæti af konunum urðu Danir með 166 stig. Úrslitin í tveimur síðustu umferð- unum í opna flokknum í gærdag fóru þannig hjá íslenska liðinu að þeir gerðu jafntefli við Svía 15-15 en töpuðu síðan fyrir Norðmönnum með 14-16. Raunar var staða ís- lenska liðsins svo góð fyrir síðustu umferðina að þeir máttu tapa 21-9 en samt halda titlinum. „Það má segja að við höfum unnið þetta mót með glæsibrag," segir Bjöm Eysteinsson. „Og þessi sigur er skemmtilegt augnablik fyr- ir íþróttina á íslandi því hann sýnir hversu mikil breiddin er og hve marga góða bridsspilara við eigum. Þess má geta í þessu sambandi að Norðurlandaþjóðirnar, Svíar, Danir og Norðmenn, eru mjög hátt skrif- aðar á alþjóðlegum mælikvarða í brids enda hafa þær unnið marga titla á þeim vettvangi. Ég tel að það sé full ástæða fyrir íslendinga að vera stolta af þessum árangri liðsins." Norðurlandameistarar í brids eru þeir Karl Sigurhjartarson, Matthías Þorvaldsson, Sverrir Ármannsson, Sævar Þorbjörnsson og spilandi fyr- irliði var Bjöm Eysteinsson. Ungir ferðalangar tygja sig af stað í Þórsmerkurferð á Umferðarmiðstöðinni í gær. Fyrsta helgin í júlí orðin ein af mestu ferðahelgunum: Á þríðja þúsund manns í Þórsmörk um helgina BÚAST má við að á þriðja þúsund manns lyóti útiveru í Þórsmörk í skipulögðum ferðum um helgina. Uppselt er í allar Þórsmerkur- ferðir á vegum Ferðafélags Islands, Útivistar og Austurleiðar. Fulltrúum ferðaskrifstofanna sem rætt var við í gær bar saman um að fyrsta helgin í júlí væri orðin ein af stóru ferðahelgunum. I Þórsmörk er til dæmis búist við meira fjölmenni en um verslun- armannahelgina. Aðsókn í ferðir Ferðafélagsins í Langadal hefur verið mikii í sumar og það er fyrir löngu upp- selt í ferðir um helgina. Tjald- stæði voru öll uppbókuð í maí og uppselt er í sæluhúsin. 350 manns mega tjalda í einu á vegum Ferða- félagsins í Langadal og 80 manns í sæluhúsi. Austurleið er með daglegar ferðir í mynni Húsadals, en bann- að er að tjalda í sjálfum dalnum. Starfsmaður Austurleiðar sagði að fyrsta helgin í júlí væri orðin ígildi verslunarmannaheigar og hefði reyndar verið það í nokkur ár. Margt spilaði eflaust inn í vin- sældir þessarar helgar, e.t.v. það að þá hafa skólafólki verið borguð út laun í fyrsta sinn á sumrinu og oft væri gott veður í Þórsmörk um þetta leyti. Útivist býður upp á skipulagðar ferðir í Bása í Goðalandí. Á svæð- inu mega mest vera 6-700 manns í einu. Starfsmaður Útivistar sagði að aðsókn í ferðir um næstu helgi væri gífurlega mikil. Félagið hefði getað selt hvert pláss 3-5 sinnum. Uppselt var á tjaldsvæðin fyrir meira en mánuði. Hann sagði að iðulega hefði verið meiri áð- sókn í ferðir fyrstu helgina í júlí en um verslunarmannahelgina. Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater Seafood Corp.: Veiðibann á þorski við NA-Kan- ada hækkar verð á þorskblokk „BANN við veiðum á norðurslóð- arþorski við austurströnd Kanada leiðir til einhverrar verðhækkun- ar á okkar þorskblokk hér og eykur líkur á að við getum haldið verði á þorskflökum óbreyttu og aukið sölu á þeim. Von var á miklu magni af þorskafurðum, aðallega blokk, úr norðurslóðarþorskinum á næstunni en hann er sá af Kanadaþorskinum, sem hefur ver- ið næstur okkar þorski að gæð- um,“ segir Magnús Gústafsson forsljóri Coldwater Seafood Corp., dótturfyrirtækis Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum. Magnús Gúsfafsson segir sölu á þorskflökum og þorskafurðum hafa verið dræma í Bandaríkjunum und- anfarið og mikið komi af blokk úr Alaskaufsa m.a. frá Rússlandi. „Við erum fyrst og fremst að selja unna vöru úr blokk núna, m.a. þorskblokk, og þorskflök og eigum nokkurra mánaða birgðir miðað við sölu und- anfarinna mánaða. Þá er verðið á þorskblokk í Evrópu hærra en hér, eða 2,35-2,40 dollarar pundið, og því hefur áhersla verið lögð á að fram- Kristinn Pétursson telur vafasamt að lög um stjómun fiskveiða standist stjórnskipan: Hæpið að Alþingi geti veitt ráðherra umboð til að ákveða heildarafla KRISTINN Pétursson framkvæmdastjóri á Bakkafirði og fyrrverandi alþingismaður telur afar hæpið að það umboð sem Alþingi hefur veitt sjávarútvegsráðherra til ákvörðunar aflahámarks standist stjórnskipun lýðveldisins, að minnsta kosti hvað varðar ákvörðun um heildarafla þorsks á næsta fiskveiðaári miðað við núverandi kringumstæður. Telur hann að sjávarútvegsráðherra beri skylda til að vísa ákvörðuninni til sjávarútvegsnefndar Alþings sem síðan leggi tillögur sínar fyrir Al- þingi. Vegna mikilvægis málsins telur hann brýnt að ráðherra feli nefndinni þetta mál sem allra fyrst. Kristinn hefur borið þessa skoðun sína undir lögfræðinga og hafa þeir tekið undir sjónarmið hans. „Það getur ekki verið að það standist stjórnskipun lýðveldisins að einum ráðherra sé ætlað að ákvarða með reglugerð svo mikla ákvörðun sem getur haft í för með sér að hálf at- vinnugreinin fari nánast beint í gjald- þrot með tilheyrandi keðjuverkun gjaldþrota, fjöldaavinnuleysi og eyð- ingar heilu byggðarlaganna," sagði Kristinn í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann vakti jafnframt athygli á því að þær fjárhæðir sem hér væri um að ræða skiptu milljörðum og upphæðin væri hærri en farið hefði samtals í gegnum Hæstarétt frá upphafí. „Ég minni á að nú eru breyttir starfshættir á Alþingi. Nefndir þingsins starfa nú allt árið og ein stór sjávarútvegsnefnd er starfandi í stað tveggja nefnda sem voru í deildum þingsins. Ef sjávarútvegs- ráðherra vísar þessu stórmáli ekki til Alþingis getur sjávarútvegsnefnd sjálf tekið til hendinni í því og er það jafnvel skylt að mínu mati,“ sagði Kristinn. Kristinn sagði að í lögunum um stjómun fískveiða væri sjávarútvegs- ráðherra falið, að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunar, að ákveða með reglugerð heildarafla einstakra nytjastofna við ísland sem nauðsyn- legt sé talið að takmarka veiðar á. „Þessi lagagrein felur í sér víðtækt framsal á valdi sem vafasamt er að standist stjómskipun landsins. Nú- verandi lögum var böðlað í gegnum deildir Alþingis með hrossakaupum og hroðvirknislegum vinnubrögðum vorið 1990 og er þetta einn af mörg- um afleitum göllum sem á þeim eru. Alþingi íslendinga er ætlað ákveðið hlutverk í stjómskipun landsins. Al- þingismenn verða að vera meðvitaðir um skyldur sínar gagnvart fram- kvæmdavaldinu. Ég tel að leita eigi álits iögfróðra manna á réttmæti þessa valdaframsals," sagði Kristinn. Hann minnti jafnframt á dóm Hæsta- réttar frá árinu 1986 þar sem dæmd hafi verið marklaus lög frá Alþingi þar sem það hafði framselt umboð til fjármálaráðherra með lögum um að honum væri heimilt að ákveða með reglugerð þungaskatt á vörubif- reiðar. Kristinn rökstyður skoðanir sínar einnig með því að óeðlilegt sé að Hafrannsóknastofnun geri tillögur um aflahámark sem byggðar eru á eigin rannsóknum stofnunarinnar. Ekki eigi að láta menn dæma eigin rannsóknir. Jafnframt bendir hann á að sjávarútvegsráðherra sé æðsti yfirmaður Hafrannsóknastofnunar. „Þetta er sama ástæða og liggur til grundvallar nýgerðum breytingum á dómskerfínu þar sem hætt var að láta sýslumenn dæma í málum sem þeir rannsökuðu sjálfír. Það fyrir- komulag stóðst ekki mannréttinda- sáttmála Evrópu. Menn ættu að íhuga það að tillögur og ákvörðun um aflahámark er nokkurs konar dómstóll um lífskjör þjóðarinnar," sagði Kristinn Pétursson. I I t leiða þorskblokk fyrir Evrópu. Auk þess eru sumarfrí í frystihúsunum heima og því eðlilegra að framleiða einfaldari vöru eins og þorskblokk fyrir Evrópu.“ Ákveðið hefur verið að banna veið- ar á norðurslóðarþorski við austur- strönd Kanada í tvö ár. Þar voru veidd 350.000 tonn af þorski í fyrra, þar af 130.000 tonn af norðurslóðar- þorski en kvótinn af honum var skor- inn niður úr 185.000 í 120.000 tonn fyrr á þessu ári. Þá verður, sam- kvæmt heimiidum Morgunblaðsins, líklega kunngert eftir u.þ.b. viku að annar þorskkvóti við austurströnd Kanada verði minnkaður úr 212.000 í 100.000 tonn. Því má gera ráð fyr- ir að þar verði veidd um 160.000 tonn af þorski í ár en 100.000 tonn á næsta ári. Þorskurinn, sem unninn hefur verið á Nýfundnalandi að und- anförnu, hefur verið svo smár að nánast hefur þurft að nota síldarflök- unarvélar til að flaka hann. í Bandaríkjunum fást nú 2,10 dollarar fyrir pundið af íslenskri þorskblokk. „Með verðhækkun á þorskblokk auka menn kaup sín á öðrum tegundum, fyrst og fremst Alaska-ufsa, sem hefur komið í stað- inn fyrir þorskinn í unnu vörunni. Nög virðist vera til af Alaska-ufsa og verð á honum hefur lækkað úr 1,50-1,60 dollara fyrir pundið í fyrra- sumar í 80 sent núna.“ Kanadamenn, íslendingar, Al- askabúar, Norðmenn, Rússar Danir og Bretar veiddu samtais 1.325 þús- und tonn af þorski í fyrra en þorsk- afli þeirra verður trúlega 1 071 þús- und tonn í ár og 991 þúsund tonn á næsta ári, þannig að þá yrði aflinn einungis a/i af aflanum 1991. Sjá einnig frétt á bls. 20. I I > I i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.