Morgunblaðið - 04.07.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
15
„Þama er tvennt ólíkt á ferðinni“
eftir Svavar Gestsson
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra gaf alþingi skýrslu um
EES-málið á árinu 1991 rétt fyrir
kosningar. Þar greindi hann með-
ferð dómsmálaþáttar EES-samn-
ingsins en þróun þess máls var þá
skammt á veg komin. Björn Bjarna-
son alþingismaður vitnar í þessa
skýrslu í blaðagrein fímmtudaginn
25. júní, bersýnilega til þess að
reyna að sanna að Alþýðubandalag-
ið hafi fallist á þessar dómsmálanið-
urstöðu EES-samningsins strax ár-
ið 1991 en hafí nú snúið við blað-
inu. Einkum telur Björn að afstaða
okkar til fullnustuákvæða EES-
samningsins hafí breyst.
Það er sjálfsagt að pólitíkusar
leiki sér að því að snúa út úr hver
fyrir öðrum — þannig telur almenn-
ingur stjórnmálin raunar vera. En
það er leiðinlegt þegar fjallað er
um örlagaríkasta mál þjóðarinnar
frá stofnun lýðveldis að menn skuli
gera sér leik að því að ljúga til um
staðreyndir. Þess vegna er þessi
grein skrifuð — til þess að svara
Birni Bjarnasyni ef verða mætti til
þess að hann öðlaðist skilning á
lykilatriðum EES-samningsins. Það
er vissulega mikilvægt þar sem
hann er formannsefni Davíðs Odds-
sonar í utanríkismálanefnd alþingis.
í skýrslu sinni vitnar Jón Baldvin
til nokkurra alþjóðasamninga sem
Island er aðili að til sannindamerk-
is um það að í fullnustuákvæðum
EES-samningsins felist engin
breyting frá því sem verið hefur
og ákvæðin séu því ekki stjórnar-
skrárbrot. Hvaða ákvæði eru þetta?
1. Norðurlandasamningur frá
1932 um viðurkenningu dóma.
2. Lög nr. 111 frá 1972 um að-
stoð í skattamálum.
3. Lög nr. 92/1962 um inn-
heimtu meðlaga.
4. Mannréttindasáttmáli
Evrópuráðsins.
Tvennt ólíkt
Þessi dæmi telur Björn Bjamason
sanna að aðfararákvæði EES-
samningsins standist stjórnarskrá
og að Alþýðubandalagið hafí fallist
á þau í sinni tíð. Hvort tveggja er
rangt og útúrsnúningur í senn. Þau
dæmi sem Jón Baldvin nefndi í
skýrslu sinni eru ósambærileg. Ég
segi reyndar fyrir mína parta: Ég
hefði engar athugasemdir gert við
þennan þátt EES-samningsins ef
hann hefði verið sambærilegur áð-
urnefndum sáttmála og lagabálk-
um. Svo er alls ekki.
Dr. Guðmundur Alfreðsson fjall-
aði einmitt um þetta atriði í ræðu
sinni á fundi lögfræðingafélagsins
og sagði orðrétt: „Varðandi fram-
kvæmdavalds- og dómstólaþættina
hefur verið bent á að það megi
hugsanlega bera saman vald eftir-
litsstofnunar og dómstóls EFTA við
þær viðurkenningar á aðfararhæfí
erlendra stjórnsýsluathafna og er-
lendra dóma sem við höfum gengist
undir skv. fáeinum alþjóðasamning-
um og þó aðallega Norðurlanda-
samningum. Nánari athugun leiðir
í ljós að þarna er tvennt ólikt á
ferðinni. (Leturbreyting mín.) '
BILALEIGA
Úrval 4x4 fólkabfla og station bila.
Pajero jeppar o.tl. teg. Pickup-bílar
meS einf. og tvöf. húsi. Minibussar og
12 sæta Van bílar. Farslmar, kerrur f.
búslóðir og farangur og hestakerrur.
Reykjavík 686915
~ BÍLALEIGA
interRent
Europcar
AKUREYRAR
Fáðu gott tilbo&l
„Það er ekki skynsam-
legt fyrir alþingismenn
á fyrstu misserum
starfs síns að umgang-
ast stj órnarskrána án
þess að sýna henni lág-
marks virðingu. “
Útlendir dómstólar fá samkvæmt
síðarnefndu samningunum aldrei
dómsögu yfír einstaklingum eða
fyrirtækjum nema þeir hafi sjálfír
með gerðum sínum komist undir
vald erlendra dómsögu. Á EES-
svæðinu getur hins vegar EFTA-
dómstóllinn fengið lögsögu án þess
að þessir sömu aðilar aðhafíst nokk-
uð til að kalla hana yfir sig. Ég
verð þess vegna að telja að þessi
samanburður eigi ekki rétt á sér.“
(Leturbreyting mín.)
Með öðrum orðum:
1. Þau tilvik sem Jón Baldvin
nefndi og Alþýðubandalagið gat
stutt fyrir sitt leyti eru ekki sam-
bærileg því ákvæði sem nú er í
EES-samningnum.
2. Björn Bjarnason fer því með
rangt mál.
3. Ákvæðið um aðfararhæfí í
EES-samningnum er að mati dr.
Guðmundar Alfreðssonar brot á
stjómarskránni.
Forúrskurðir verða
lögteknir hér
í grein minni um stjómarskrár-
málið í Morgunblaðinu 17. júní flall-
aði ég um svokallaða forúrskurði
og fullyrti að það ákvæði stangað-
ist á við stjómarskrána. Þar er
gert ráð fyrir því að dómstólum
aðildarríkjanna verði heimilt að
leita éftir 'túlkun EB-dómstólsins á
tilteknum lagaákvæðum og að túlk-
un EB-dómstólsins sé þá bindandi.
Jafnvel utanríkisráðuneytið lætur
að því liggja að þessi framkvæmd
mála væri stjórnarskrárbrot. En í
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem
fylgir samningnum er ekki gert ráð
fyrir því að þetta ákvæði komi til
framkvæmda nema með sérstöku
lagaákvæði eða með stjórnarskrár-
breytingu. En þetta ákvæði er í
samningunum og samningana á að
lögtaka. Þar með er ljóst að það
getur reynt á þetta ákvæði strax í
einhverju EFTA-ríkjanna og samn-
ingurinn hefur verið samþykktur
og þar með er ljóst að röðin kæmi
að Islandi hvort sem við viljum nú
eða ekki. Það er því útúrsnúningur
að gera lítið úr þessu atriði — ekki
Svavar Gestsson
síst líka þegar þess er gætt að
Evrópubandalagið taldi þetta
ákvæði um forúrskurði i raun úrslit-
amál af sinni hálfu við frágang
samningsins.
Umræður um lögfræðileg álita-
efni eru fróðlegar og gagnlegar um
þessar mundir. Allt of fáir íslenskir
lögfræðingar hafa tjáð sig um mál-
ið fram undir það síðasta. Fundur
lögfræðingafélagsins markaði þátt-
askil í þeim efnum. Ef lögfræðing-
arnir þar hefðu skipað Qölskipaðan
dómstól hefði niðurstaðan verið
þessi: Helmingurinn (Ragnar Aðal-
steinsson, Eiríkur Tómasson og
Guðmundur Alfreðsson) taldi óhjá-
kvæmilegt/skynsamlegt að breýta
stjómarskránni. Hinn helmingurinn
taldi stjómarskrárbreytingu óþarfa.
í þeim hópi var einn lögfræðingur
sem starfar fyrir utanríkisráðherra
og telst því tæplega marktækur í
þessum samanburði. Það er því
nauðsynlegt fyrir Björn Bjarnason
að gera sér grein fyrir því að marg-
ir af virtustu lögfræðingum lands-
ins eru þeirrar skoðunar að breyta
þurfi stjórnarskránni. Það er ekki
skynsamlegt fyrir alþingismenn á
fyrstu misserum starfs síns að
umgangast stjórnarskrána án þess
að sýna henni lágmarksvirðingu.
Til lítils var þá barist fyrir sjálf-
stæðum þjóðríkisréttindum íslend-
inga ef Björn Bjarnason talar fyrir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Því
verður ekki trúað að þeir hafí allir
gleymt sögunni þó að Bjöm Bjama-
son virðist hafa gleymt því sem síst
skyldi.
Höfundur er þingmaður fyrir
Alþýðubandalagið í Reykjavík.
+ FJOLSKYLDUPAKK11
TJALD DR-8
+ 2 SVEFNPOKAR
+ 2 DÝNUR
4 manna tjald úr bómull,
himinn úr nælon
2 NITESTAR
svefnpokarO0
2 dýnur
+ UNGLINGAPAKKI
KULUTJALD
+ 1 SVEFNPOKI
+ HIPPAGRILL
DD-200 kúlutjald
úr vönduðu nælonefni
1 MARCO POLO-450
svefnpoki -20°
Einfalt grillsett
BORÐ+STOLAPAKKI
HRINGBORD
+ 2 STÓLAR
MALAGA Plastborð
86 O sm
2 BLÁNES plaststólar
með háu baki og
þykkum púðum
hringdu - vid sendum bæhling
Sendum einnigípósHtrðfu
+ VEISLUPAKKINN
KÆLIBOX
+ PICNICSETT
+ POTTASETT
Kælibox 32 Iftra
4 stólar og borð (tösku
3 pottar, panna
og ketill
Nældu þérí
plGsNlboð í
Seglogerðinni.
Tiðldvagnasíjning
FellihQsi
Sólhfisgögn
Bðrngferflðröm
figrnð
Gðsgrill
Göngushór
erflggrind
ASTRO
TJALDVAGN
BREMSUBÚNAÐUR
13* FELGUR
STERK GALVANISERUÐ
STÁLGRIND
MÁ BREYTA í BILAKERRU
EINFÖLD UPPSETNING
SÉRHANNAÐUR FYRIR
ISLENSKAR AÐSTÆÐUR
Sijning um helgina.
...þar sem ferðalagið bgrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLÓÐ 7 • REYKJAVÍK • SÍMI91-621780 • FAX 91-623853