Morgunblaðið - 04.07.1992, Síða 38

Morgunblaðið - 04.07.1992, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 U/tffiUÖ STORMYND BARRYS LEVINSON WARREN HEATTV, ANNETTE líENINC;, HARVEY KEITEL OG BEN ICINCíSLEY. MYNDIN, SEM VAR TILNEFND TIL 10 ÓSKARSVERÐLAUNA. ★ ★ ★ DV. ★ ★ ★ ★ AI. JVIBL. ★ ★ *BÍÓLÍNAN Sýndkl.5, 9 og 11.30. Bönnuð börnum i. 16 ára._ Afmælis- og víg’sluhátíð á Lýsuhóli SPECTRm. RECORDlhlG. □ni DOLBYgrERgÖIBB f A- OG B- SAL OÐURTIL HAFSINS Sýnd kl. 7.05 og 9.15. Bönnuð i. 14 ára. Sýnd kl. 4.45. STRÁKARNIR i HVERFINU Sýnd kl. 11.35. Bönnuð i. 16ára. BÖRN NÁTTÚRUNNAR Sýnd kl. 7.30 í A-sal. 11. sýn.mán. Staðsveitunga og gamalla fé- laga í Ungmennafélaginu mættu til þessarar hátíðar og margir þeirra eftir áratuga fjarveru. Elstur viðstaddra mun hafa verið Júlíus Krist- jánsson frá Slitandastöðum, nærri 88 ára gamall. Hann var lengi í stjóm félagsins og mikill velunnari þess og ötull stuðningsmaður um langa hríð. Veðurguðimir sýndu sína bestu hlið við þetta tækifæri því sól og blíðviðri ríkti allan daginn. I tilefni þessara tímamóta í sögu féiagsins var gefið út afmælisrit þar sem raktir eru ýmsir þættir úr sögu og starf- semi Ungmennafélags Stað- arsveitar í 80 ár. Fjölmargar myndir prýða ritið þar á með- al af öllum þeim er verið hafa formenn félagsins frá upphafi. - Þ.B. Staðarsveit. 80 ARA afmæii Ungmenna- félags Staðarsveitar var haldið hátíðlegt laugardag- inn 20. júní á Lýsuhóli. Jafn- framt var vígður nýr íþróttavöliur við félags- heimilið sem ungmennafé- lagið hefur af miklum dugn- aði unnið að nú síðustu árin. Er þetta mikið og vandað mannvirki og talinn af kunnugum einn besti völlur á Snæfellsnesi. Hátíðin hófst um kl. 13 á íþróttavellinum þar sem for- maður félagsins, Margrét Björk Bjömsdóttir, Böðvars- holti, setti hátíðina en Kristján Þórðarson, Ölkeldu, lýsti framkvæmdum. Að því loknu talaði sóknarpresturinn, séra Rögnvaldur Finnbogason, og lýsti blessun yfír vellinum og því sem þar ætti eftir að fara fram. Þórður Gíslason á Öl- keldu sem lengst allra hefur verið formaður félagsins klippti á borða til merkis um að völlurinn væri opnaður en viðstaddir gengu síðan í skrúðgöngu umhverfis völl- inn. Þá fór fram íþróttakeppni. Að lokinni athöfninni á vell- inum var öllum viðstöddum boðið til veislufagnaðar í fé- lagsheimilinu. Þar munu hafa setið að borðum á fjórða hundrað manns. Formaður félagsins hélt hátíðarræðuna en veislustjóri var Guðmundur Sigurmonsson, skólastjóri. Á milli atriða söng blandaður kór heimamanna, karla, kvenna og bama. Sungin voru Ijóð eftir Braga Jónsson frá Morgunblaðið/Alfons Þórður Gíslason klippir á borða til að opna formlega íþróttavöllin. Hóftúnum sem var á sinni tíð mikill frumkvöðull í starfí fé- lagsins og lengi formaður. Undirleik á píanó annaðist Gautur Gunnlaugsson, sonar- sonur höfundar. Þá las Helga Braga Jónsdóttir leikkona ljóðið Starfshvöt eftir langafa sinn, Jón G. Sigurðsson frá Hofgörðum, en það er ort árið 1917 ogtileinkað Ungmenna- félagi Staðarsveitar. Þá hófust stutt ávörp og ámaðaróskir og afhending gjafa. Sturla Böðvarsson, fyrsti þingmaður Vesturlands, flutti ávarp í nafni þingmanna kjördæmis- ins. Aðrir sem töluðu og færðu félaginu gjafír voru Bogi Jóh. Bjamason frá Neðri-Hól, fyrrv. lögreglumaður, Hallur Pálsson, Grundarfirði, form. HSH, Sigurður Þór Jónsson íþróttamaður, Margrét Vig- fúsdóttir, Ólafsvík, Kristinn Einarsson, Hellnum, Hall- grímur Guðmundsson, Hellis- sandi, Ingólfur Narfason frá Hoftúnum og Svala Bogadótt- ir, Akranesi, sem þakkaði sér- staklega þann heiður er föður hennar væri sýndur með því að syngja ljóð eftir hann við þetta tækifæri. Margar góðar gjafír voru færðar félaginu, bæði pening- ar, bækur, íþróttaáhöld, blóm o.fl. Um kvöldið lauk hátíðinni með dansi. Mikill ijöldi burtfluttra Félag opinberra starfsmanna, Austurlandi: ■ SÖNGKONAN Móeiður Júníusdóttir mun sunnu- daginn 5. júlí koma fram á tónieikurn á veitingahúsinu Jazz að Ármúla 7. Móeiður hefur verið að hasla sér völl síðustu árin sem söngkona. Tónleikamir hefjst um kl. 23.00. Guðrún Amalds sýnir myndir málaðar á silki í Gallerí Ing- ólfsstræti, á horninu á Bank- astræti og Ingólfsstræti. Einnig sýnir Jón Sæmund fjögur myndverk úr bývaxi og litadufti á striga. Galleríið er opinð alla daga frá kl. 9-16. Móelður Júniusdóttir Sýnir mál- aðar mynd- ir á silki GÖNGUFERÐ verður farin á Austureyna laugardaginn 4. júlí 1992. Farið verður af Viðeyjarhlaði kl. 14.15 en bátsferð verður á heila timanum frá kl. 13.00. Gengið verður austur á Sundbakka, skoðaður skólinn, sem nú er verið að endurbyggja. Einnig verða skoðaðar aðrar leifar þorpsins, sem reis á Sundbakka í byrjun þessarar aldar. Þaðan verður haldið yfír Þórsnes, yfír á Kríusand og eftir suðurströndinni heima að Viðeyjarstofu með við- komu í Kvennagönguhólum. Þar er að finna foma nátt- úmgerða rétt og helliskútann Paradís. Ferðinni lýkur á Heljarkinn. Kaffísala verður í Viðeyjarstofu kl. 14-16.30. Bátsferðir verða á heila tím- anum sem fyrr segir frá kl. 13 út í eyju en á hálfa tíman- um til baka kl. 17.30. Farið er frá Klettsvör í Sundahöfn. Messa verður kl. 14 sunnudaginn 5. júlí. Sr. Jak- ob Ágúst Hjálmarsson pred- ikar og þjónar fyrir altari. Allir eru velkomnir til messu- gjörðarinnar en bátsferð verður kl. 13.30 aukalega. Klukkan 15.15 verður staðarskoðun að aflokinni messu. Hún hefst með því að kirkjan verður skoðuð en síðan verður gengið um Við- eyjarhlöð, fornleifagröftur- inn skoðaður, sagan rifjuð upp og sagt verður frá því helsta sem fyrir augu ber í eynni og nágrenni hennar. Kaffisala og bátsferðir verða með sama hætti og á laugardag. (Fréttatilkynning) Anægju lýst með kjaradóm STJÓRN Félags opinberra starfsmanna á Austuriandi samþykkti á fundi sínum 1. júlí 1992 að lýsa yfir sér- stakri ánægju sinni á þeim dómi sem Kjaradómur felldi TÓNLEIKAR með tónlist fyrir þijú selló og orgel sem Listvinafélag Hallgríms- kirkju hafði fyrirhugað að halda nk. sunnudag er frest- að vegna vinnufram- kvæmda í kirkjunni en nú er að hefjast uppsetning hins nýja orgels. Á tónleikunum áttu að leika hollensku sellóleikaramir Jud- ith Jamins og Seabastian van Eck ásamt Ingu Rós Ingólfs- dóttir og Herði Áskelssyni organista Hallgrímskirkju. 26. júní sl., til leiðréttingar á launum þeirra sem hallað hefur á í kjarabaráttu síð- ustu ára. Jafnframt lítur stjórn FOSA svo á að tilvitnaður Þau munu koma fram á sum- artónleikum á Norðurlandi, á Húsavík, Hólum og Akureyri um aðra helgi. Stefnt er að því að halda tónleikana í Hall- grímskirkju miðvikudags- kvöldið 15. júlí. Uppsetning nýja orgelsins hefst nk. mánudag og mun standa yfír næstu fímm til sex mánuði. kjaradómur sanni svo ekki verði um villst, að miðlunart- illögur sáttasemjara sem sam- þykktar voru af þorra stéttar- félaga á síðasta vetri og færðu launþegum 1,7% hækkun launa, en hélt þó ekki í við minnkandi kaupmátt á samningstímabilinu hafi verið á misskilningi byggðar og þá um leið samþykkt hennar. Því er stærstu launþega- samtökum landsins, BSRB og ASÍ, bent á að nú er lag til að ná samsvarandi leiðrétting- um á launum sinna skjólstæð- inga svo sem þeir fengu er nutu velvilja Kjaradóms. (Fréttatilkynning) Tónleikum frestað Hryssan Embla 8535 frá Árbakka í sumarhaga ásamt folaldi sínu. Embla er hreinræktuð og skyldleikaræktuð af Kolkuóssgrein Svaðastaðastofnsins eins og flest hross- in á Árbakka. ■ EFNT verður til sölusýn- inga á hrossaræktarbúinu á Árbakka á Landi alla laug- ardaga í sumar. Sölusýningar af þessu tagi hafa verið árviss þáttur í starfsemi búsins undanfarin ár og hefur ijöldi hestamanna og áhugamanna um hrossarækt lagt leið sín að Ábakka sýningardagana. í ár verða boðin til sölu folöld undan fjórum stóðhestum sem allir hafa hlotið fyrstu verð- laun sem kynbótahestar en þeir eru þessir: Bylur 892 frá Kolkuósi, Feykir 962 frá Hafsteinsstöðum, Stígandi frá Hvolsveli og Sokki 1050 frá Kolkuósi. Að auki verða boðin til sölu nokkur folöld undan unghestinum Biskupi frá Hólum, sem hlotið hefur 1. verðlaun fyrir sköpulag. Á Árbakka eru eingöngu ræktuð hross af hinum kunna Svaða- staðastofni og er einkum lögð áhersla á ræktun Kolkuós- greinar hans. Allar hiyssurnar á Árbakka eru innbyrðis skyldar og allir stóðhestar sem þar eru notaðir eru af sama grunnstofni. Viðey um helgina STÆRSTA BÍÓIÐ ÞAR SEM '• • • • ALLIR SALIR ERU FYRSTA J , ] FLOKKS HÁSKOLABÍO SÍMI22140 GRIIUMYND SUMARSINS VEROLD VUAYNES FYNDNASTA MYNDIN í BANDA- RÍKJUNUM MYNDIN SLÓ í GEGN í BRETLANDT FYRIR SKÖMMU ★ ★ ★ ★ Tvímælalaust gamanmynd sumarsins - Bíólínan. SAMFELLDUR BRANDARI FRÁUPPHAFITILENDA. STÓRGRÍNMYND SEM Á ENGASÉR LÍKA. ATH: GEGN FRAMVÍSVN BÍÓMIDA AF „VERÖLD WAYNES“ ER VEITTUR 10% AFSLÁTTUR AF PIZZUM HJÁ PIZZA HUT i MJÓDDINNI OG HÓTELESJU. Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.10. STEIKTIRGRÆNIR LUKKULAKI TOMATAR € iPifc

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.