Morgunblaðið - 04.07.1992, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 04.07.1992, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992 39 FRUMSÝNIR 7 MIÐAVERÐ KR. 300 Á 5 OG 7 SÝNINGAR ALLA DAGA NÆSTUM OLETT Eldf jörug gamanmynd um vandræði hjóna sem langar að eignast barn. Það er leitað aðstoðar víða og allar aðferðir notaðar. Eitthvað róttækt verður að gera þegar eiginmaðurinn skýtur púðurskotum. Læknirinn (Dom deLuise) gefur góð ráð, vinur kemur til „hjálpar", en því miður er enginn kraftur í honum. Aðalhlutverk: Tanya Roberts (A view to a Kill), Jeff Conaway (Petes Dragon), Dom deLuise. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. - Bönnuð innan 14 ára. k\M0$r TÖFRALÆKNIRINN Stórbrotin mynd um mann, sem finnur lyf við krabba meini. Stórkostlegur leikur Sean Connery gerir þessa mynd ógleymanlega. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. VÍGHÖFDI Stórmynd með Robert De Niro og Nick Nolte. ***'/, MBL. **** DV Sýnd kl. 5 og 9. MITT EIGIÐIDAHO Frábær verðlaunamynd með úrvalsleikurum. ★ ★★ Mbl. Sýnd kl. 7.05 og 11. Bönnuð innan 16 ára. ★ ★★ 'h Bíólínan „HRAÐUROG SEXÍ ÓGNARÞRILLER11 ★ ★★ Al Mbl. (Sumir sjá hana tvisvar). Miðasalan opnuð kl.4.30 Miðaverð kr. 500. Sýnd kl. 5,9 og 11.30. Stranglega bönnuð innan 16ára. ★ ★★★ SV MBL. ★ ★★★ PRESSAN ★ ★★ BÍÓLÍNAN Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuðinnan14. FREEJACK Sýnd kl.5,7,9 og 11. Bönnuðinnan16. 31. sýningavika. Ekki láta þessa einstöku mynd framhjá þér fara. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. LÉTTLYNDA RÓSA Sýnd kl. 5,7,9og11. SIÐLAUS... SPENNANDI... ÆSANDI... ÓBEISLUÐ... ÓKLIPPT... GLÆSILEG... FRÁBÆR. „BESTA MYND ÁRSINS11 ★ ★ ★ ★ Gísli E. DV REGNBOGINN SÍMI: 19000 ■ VERSLUNARMANNA- FELAG Arnessýslu hefur sent Ríkisstjórn Islands eft- irfarandi ályktun: „Aðalfund- ur Verslunarmannafélags Ár- nessýslu, haldinn á Selfossi 2. júlí 1992, mótmælir harð- lega úrskurði kjaradóms um kjör æðstu embættismanna ríkisins. Fundurinn telur það siðlaust að á sama tíma og láglaunafólk fær aðeins 1,7% launahækkun skuli hálauna- fólki færðar kjarabætur svo nemur tugum prósenta. Fundurinn krefst þess að Al- þingi verði kallað saman án tafar og tekið verði á málinu. Verði úrskurður kjaradóms látinn standa mun Verslunar- mannafélag Ámessýslu gera kröfu um samskonar leiðrétt- ingar fyrir sína félaga." (Fréttatilkynning) ■ ALMENNUR félags- fundur Sveinafélags málm- iðnaðarmanna á Akranesi haldinn 2. júlí 1992 fagnar innilega þeirri niðurstöðu kjaradóms að hæstlaunuðu mönnum í þjóðfélaginu sé dæmd tugir prósenta launa- hækkun á meðan aðrir þjóð- félagsþegnar verða að láta sér nægja 1,7% launahækk- un. í ljósi þessa skorar fund- urinn á launþegasamtökin í landinu að krefjast nú þegar samsvarandi leiðréttingar á sínum kjörum og beita til þess þeim ráðum sem tiltæk eru. (Fréttatilkynning) ■ FUNDUR haldinn í stjórn Verkamannafélags- ins Hlífar, mánudaginn 29. júní 1992, telur að dómur Kjaradóms um tuga prósenta hækkun á launum alþingis- manna og fleiri embættis- manna sé siðleysi við ríkjandi aðstæður. Verði dómurinn ekki dreginn til baka eða honum hnekkt þannig að hann komi ekki til fram- kvæmda mun Verkamanna- félagið Hlíf hefja baráttu fyrir samsvarandi hækkun á launum félagsmanna sinna og hvetja önnur verkalýðsfé- lög til að gera slíkt hið sama. (Fréttatilkynning) fttftcgmt* bíatiiíl I Haupmannanotn FÆST i BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG A RÁDHÚSTORGI _____ \_____v_ Félagarnir forheimsku Kvikmyndir ' Arnaldur Indriðason Veröld Waynes („Wayne’s World“). Sýnd í Háskóla- bíói. Leikstjóri: Penelope Spheeris. Handrit: Mike Myers og Bonnie og Terry Turner. Aðalhlut- verk: Mike Myers, Dana Carvey, Rob Lowe. í gamanmyndinni Veröld Waynes, sem hlaut miklar og óvæntar vinsældir í Bandaríkjunum í vor, gerir gríndúettinn Mike Myers og Dana Carvey út á nokkurn veginn galtómar persónur sem heita Wayne og Garth. Líkt og Billi og Teddi (í „Bill and Ted’s Excellent Adventure" og „Bill and Ted’s Bogus Journey") eru þeir eins og gangandi slangurorðabók með sitt eigið sérstaka tungumál („dudespeak" eða „way- nespeak"). Þeir eru sérstak- lega heimskulegir í orði, æði og athöfnum, aðhyllast mjög hið villta þungarokk og hrærast í veröld þar sem sjaldan er sagt eitt orð af viti. Af hveiju ættu þeir ekki að verða vinsælir? Menn hafa löngum hlegið að heimskupörum og þessir hafa gert þau að milljarða króna söluvöru. Myndin er byggð á gam- anatriðum félaganna í hin- um frægu skemmtiþáttum „Saturday Night Live“. Söguþráðurinn, svo lítils sem hann er annars virði, snýst um skemmtikraftana Wayne og Garth og sjón- varpsþáttinn sem þeir halda úti og senda um kapalkerfi neðan úr kjallaranum heima hjá Wayne. Risafjölmiðill, sem hinn sleipi og spillti Rob Lowe er fulltrúi fyrir, vill eignast þættina og beit- ir bellibrögðum til að hremma þá en félagarnir forheimsku eru ekki dauðir úr öllum æðum og gera gagnárás. Það er þó algert aukaatr- iði. Myndin snýst fyrst og fremst um daglegt líf og yndi dúettsins, mótorhaus- ana félaga þeirra, stelpurn- ar sem þeir girnast og hina furðulegu veröld sem þeir hrærast í. Persónurnar sjálfar, uppljómaðar af barnalegum einfaldleik, eru afar kómískar og hinir heimskulegu tilburðir og samtöl er fyndin á köflum, stundum mjög fyndin, en sumt fer líka forgörðum. Eitthvert eftirminnilegasta og skemmtilegasta atriðið er þegar þeir taka undir með hljómsveitinni Queen í bíltúr að kvöldlagi. Annars fá þeir fjölbreytilegt og að mörgu leyti frumlegt grínið sitt úr ýmsum áttum og ekki síst úr öðrum kvik- myndum. Þeir skopast að t.d. auglýsingum í bíómynd- um og grátatriðunum sem yfirleitt vinna Óskarsverð- launin, sjónvarpsþáttunum hallærislegu „Mission Im- possible” og Tortímandan- um 2. Veröld Waynes höfðar að sjálfsögðu mest til ungling- anna sem eiga örugglega eftir að njóta þess í botn sem flest fullorðið fólk mundi líklegast kalla „tóma vitleysu". Úr gamanmyndinni Veröld Waynes. Mafían fær á baukínn I kröppum leik („Pay- off“). Sýnd í Bióhöllinni. Leikstjóri: Stuart Coo- per. Aðalhlutverk: Keith Carradine, Kim Greist, Harry Dean Stanton. í hefndartryllinum í kröppum leik fer Keith Carradine, sem lítur full gáfulega út fyrir slappa formúluhasarmynd eins og þessa, með hlutverk manns sem hefur harma að hefna frá því foreldrar hans voru myrtir að undirlagi maf- íunnar. Hann man eftir andliti eins morðingjans og þegar hann sér því bregða fyrir kominn á fullorðins- aldur býr hann sig undir að leggja líf morðingjans í rúst og koma höggi á maf- íuna í leiðinni. Myndin hefst á afar al- varlegum nótum þegar hefndarþátturinn er byggður upp en smám saman hverfur það út í blá- inn, sérstaklega þegar kemur að skoplegri lýsingu á mafíunni, sem erfitt er að sjá að passi inní drunga- legt andrúmsloftið. Höfuð mafíunnar er hefndarþyrst gamalmenni er talar um heiður fjölskyldunnar; tengdasonur hans, sem stjómar í raun, er kynferð- islega afbrigðilegur og nógu vitlaus til að festa það á fílmu og sonur hans, sem erfír veldið, er eins og fermingardrengur að herma eftir A1 Pacino í Guðföðurnum. Allir eru þeir mátulega kvikindisleg- ir og kannski sérstaklega drengurinn sem leggur kapp á að koma sínum eig- in föður undir græna torfu. Myndin fjallar um þessa fugla á furðulega léttum nótum og í öðru samhengi væri það kannski fyndið en það þarf ekki nema sjá framan í Carradine til að vita að hann a.m.k. tekur þetta alvarlega. Persóna hans er ákaflega þreytt og klisjukennd. Carradine er þessi hefðbundni einfari sem hefur það eina hlut- verk í lífinu að hefna sín og ætlar að gera það með þvf að ræna öflugt spilavíti í eigu mafíunnar. í leiðinni hittir hann FBI-konuna Kim Greist og við tekur hið vemmilegasta ástaræfin- týri, sem að auki gerir myndina leiðinlega lang- dregna. Carradine bætir engu við klisjuna en Harry Dean Stanton er ljós punktur sem leigumorðingi mafí- unnar, skemmtilega ósvíf- inn og svalur eins og hans er von og vísa. Annars er lítið í myndina varið. Hún er bara enn ein lumman úr hasarmyndagerðinni vestra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.