Morgunblaðið - 04.07.1992, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
41
HEILRÆDI
Ef bfllinn bilar,
reynum þá að
koma honum
vel til hliðar,
svo ekki skapist
hætta fyrir aðra
vegfarendur.
Komum heil
heim.
Landnýting - landvernd
* Frá Má Haraldssyni, Jóni Karls-
syni, Haraldi Sveinssyni og Sveini
Ingvarssyni:
VIÐ undirritaðir fulltrúar í sam-
ráðsnefnd sveitarfélaga í austan-
. verðri Árnessýslu um afréttarmál
viljum koma á framfæri athuga-
semdum vegna blaðafregna í vetur
og.,vor um að i ráði sé að friða alla
frétti á Suður- og Suðvesturlandi
fyrir sauðfjárbeit,
Við höfum í vetur og vor setið
þrjá fundi með fulltrúum Land-
græðslu ríkisins og Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins þar sem
fram fóru umræður um afréttarmál
og þar hefur landgræðslustjóri
ítrekað fullyrt að ekki komi til
greina einhliða lokun af hálfu Land-
græðslunnar.
Enda hefur því frá uphafi verið
haldið fram af hálfu heimamanna
að forsendur skorti fyrir slíku þegar
í fé hefur fækkað svo mjög sem raun
ber vitni auk þess sem sveitarfélög-
in hafa lagt verulegar fjárhæðir til
i landgræðslu og landvemdar.
Landgræðslan hefur raunar lýst
vilja sínum til að standa við fyrir-
I heit í lögum um enn frekara sam-
starf við sveitarfélögin um upp-
græðslu á afréttum og er nú á döf-
inni gerð landgræðsluáætlunar fyrir
einn þessara afrétta með áfram-
haldandi nýtingu í huga.
Okkur koma því á óvart síendur-
teknar fullyrðingar um að Land-
græðslan, í samvinnu við landbún-
aðarráðuneytið, sem einungis hefur
sent áheymarfulltrúa á tvo áður-
Pennavinir
Átján ára japönsk stúlka með
á mikinn íslandsáhuga. Einnig með
tónlistardellu:
Ayumi Kudo,
i 12-1 Satomi Fukudate Tokiwa-
mura,
Minamitsugaru-gun,
á Aomori 038-12,
* Japan.
Nítján ára nígerískur piltur með
mikinn íslandsáhuga:
Damian Diala,
42 Bale Street Oloti,
Apapa,
Lagos,
Nigeria.
Frímerkjasafnari í Brasilíu vill
komast í samband við íslenska safn-
ara með skipti í huga:
Antonio Luiz Amato,
Av. Pres. Costa e Silva, 99,
Jd. Helena Maria - Osasco,
| 06250-000 - SP - Brasil.
Frá Ítalíu skrifar stúlka fyrir
4 hönd bekkjarsystkyna sinna sem
em 14-15 ára gömul og langar að
eignast pennavini hér á landi:
4 Sara Rabbia,
Liceo Scientigico-Linguistico,
Piazza Bavo 2,
12045 Fossano (CU),
Italy.
nefndra funda, stefni að friðun
þeirra afrétta sem við emm fulltrú-
ar fyrir.
Er það von okkar og ósk að þeir
fréttamenn sem um þessi mál fjalla
í framtíðinni kynni sér málin og frá
fleiri sjónarhomum en tíðkast hef-
ur, því öll hljótum við að stefna að
auknum skiiningi og betri samstöðu
um landnýtingu og landvemd.
MÁR HARALDSSON,
Háholti, Gnúpveijahreppi,
JÓN KARLSSON,
Gýgjahólskoti, Biskupstungum,
HARALDUR SVEINSSON,
Hrafnkelsstöðum,
Hmnamannahreppi,
SVEINN INGVARSSON,
Reykjahlíð, Skeiðum.
Rusl-
póstur og
verðmæta-
póstur
Frá Erling Erlingssyni:
OKKUR hjá ísafoldarprentsmiðju
hf. þótti vænt um að lesa ummæli
Víkveija í blaðinu þann 26. júní
sl., varðandi mslpóst. Við emm
sömu skoðunar og leggjum okkur
fram um að senda fólki verðmæta-
póst í stað raslpósts.
Þann 16. júní sendum við til
dæmis 12.000 einstaklingum, skól-
um og stofnunum hér á landi og
erlendis bréf sem hafði að geyma
upplýsingar um nýja Dansk-
íslenska orðabók sem kemur út á
vegum forlagsins í ágústmánuði.
Fyrir utan upplýsingamar var einn-
ig pöntunarseðill sem gaf þessum
aðilum kost á að kaupa bókina með
15% afslætti, ef viðkomandi bregst
við fyrir áramót.
AUt þetta væri svo sem ekkert
merkilegt í þessari umræðu ef
umslagið hefði verið venjulegt, en
svo var ekki. Hvert einasta umslag
var tvístimplað og á því nýtt frí-
merki tengt íslenskum iðnaði,
þ.e.a.s. þetta vora fyrstadagsum-
slög. Þessi umslög eiga með tíman-
um eftir að verða verðmæt og á
þennan hátt stuðlar ísafoldarprent-
smiðjan hf. að því á einfaldan hátt
að breyta dæmigerðum mslpósti í
verðmætapóst.
ERLING ERLINGSSON,
útgáfustjóri ísafoldarprentsmiðju
Þingholtsstræti 5, Reykjavík.
VELVAKANDI
BARNASKOR
BLÁIR bamaskór nr. 20 fund-
ust í Breiðholti 26. júní. Upplýs-
ingar í síma 72405.
VÍDEÓTÖKU-
VÉL
PANASONIC M5-vídeótökuvél
var tekin traustataki fyrir
nokkmm dögum. Spennubreytir
sem henni fylgdi var hins vegar
skilinn eftir og getur það valdið
tjóni á vélinni að nota annars
konar spennubreytir. Vinsam-
legast látið vita í síma 625571
ef tökuvélin hefur fundist. Fund-
arlaun.
GALLAJAKKI
NÝR grænblár • jogging-galla-
jakki með basebalimynd á tap-
aðist við Elliðavatn fyrir
skömmu. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
41081.
ÓSANNGJARN-
AR LAUNA-
HÆKKANIR
Valgerður Eyvindsdóttir:
ÉG GET ekki látið ógert að tjá
mig um þessar launahækkanir
sem hinir æðstu embættismenn
þjóðarinnar em að fá núna.
Hvernig er það hægt að væla í
fjölmiðla eins og Salóme Þor-
kelsdóttir forseti Alþingis sem
hækkar úr 175 þúsund krónum
á mánuði í 380 þúsund krónur
á mánuði. Ég og mín fjölskylda
höfum ekki efni á að lifa —
maðurinn minn er opinber
starfsmaður með 61.513 krónur
í mánaðarlaun eftir hækkun.
Við eram með tvö böm undir
þriggja ára aldri og stöndum í
íbúðarkaupum eins og svo
margir aðrir. Mig langar til að
biðja Salóme Þorkelsdóttur og
hina æðstu embættismenn þjóð-
arinnar að gefa mér, og svo
mörgum öðram sem era í okkar
aðstöðu, einhver ráð til að ná
endum saman. Þökkum fyrir öll
þau ráð sem þið getið gefið okk-
ur, með ósk um ráðleggingar
og svör sem fyrst.
í MDGLUM MÆLI
Auðunn Bragi Sveinsson:
ÉG HEF tekið eftir því að orða-
sambandið „í stórum stíl“ hefur
vaðið uppi í fjölmiðlum undan-
farið en það er ekki góð íslenska
og reyndar ekki annað en
danska. Betur fer á því að nota
orðasambandið „í miklum
mæli“.
KETTLINGAR
KETTLJNGAR fást gefins. Upp-
lýsingar í síma 45744.
HVERJIR SITJA
í KJARADÓMI?
Guðmunda Egilsdóttir, Suður-
braut 6, Hafnarfirði:
MIG langar til að spyijast fyrir
um hverir eru í Kjaradómi, það
hefur hvergi komið fram.
Dómendur kjaradóms eru:
Jón Finnsson hrl., Jónas Aðal-
steinsson hrl., Ólafur Nilsson
löggildur endurskoðandi, Brynj-
ólfur Sigurðsson prófessor og
Jón Þorsteinsson fyrrv. alþingis-
maður.