Morgunblaðið - 04.07.1992, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992
KNATTSPYRNA
Bröndby
ridará
barmi
gjald-
þrots
EITT frægasta knattspyrnufé-
lag Danmerkur, Bröndby riðar
á barmi gjaldþrots og verður
að öllum líkindum tekið til
skipta.
Hákon
Gunnarsson
skrifarfrá
Danmörku
Párhagsstaða Bröndby hefur
verið slæm eftir vafasamar
flárfestingar. Félagið keypti stóran
hlut í InterBank
fj ármögnunarfyrir-
tækinu en eftir hall-
andi gengi hjá
Bröndby í deildinni
þá hríðféllu hlutabréf félagsins í
verði. Forráðamenn lýstu því yfir
fyrir þremur mánuðum að það hefði
kaupanda að félaginu en nú hefur
verið tilkynnt að sá kaupandi er
„Hafnia", tryggingarfyrirtæki sem
á í miklum fjárhagskröggum. Talið
er líklegt að kaupin á Bröndby verði
felld á stómarfundi fyrirtækisins í
dag.
Bröndby hefur lengst af átt mik-
illi velgengni að fagna í Danmörku
og meðal annars unnið danska
meistaratitilinn fimm sinnum frá
árinu 1985. í vetur fór að ganga
illa, liðið hafnaði í 7. sæti af átta
í úrvalsdeildinni dönsku og Morten
Olsen, þjálfari liðsins, var látinn
fara frá félaginu.
Þrír af nýkrýndum Evrópumeist-
urum Dana, léku með Bröndby á
síðasta keppnistímabili, þeir John
Jensen, Kim Christofte og Kim
Wilfort.
FRJALSIÞROTTIR / OLYMPIULEIKARNIR I BARCELONA
/fiRLWR
FOLK
■ CHRIS Waddle, sem nýlega
gekk til liðs við Sheffield Wed-
nesday, segir að Bernard Tapie,
forseti Marseille, hafi neytt hann
til að fara frá félaginu. Hann seg-
ist hafa viljað leika áfram í Frakk-
landi, en Tapie hafi komið í veg
fyrir það með því að krefja frönsk
félög um helmingi hærri upphæð
en ensku félögin hefðu þurft að
borga.
■ WADDLE segir að Tapie hafi
logið að fjölmiðlum þegar hann
hafi sagt að hann, Waddle, vildi
fara frá Marseille.
■ IVICA Osim, fyrrum landsliðs-
þjálfari Júgóslavíu í knattspymu,
hefur skrifað undir þriggja ára
samning við gríska félagið Pana-
thinaikos. Osim kom júgóslavn-
eska landsliðinu í úrslitakeppni Evr-
ópukeppni landsliða, en liðinu var
vikið úr keppni skömmu áður en
hún hófst, vegna viðskipta- og sam-
skiptabanns Öryggisráðs Samein-
uðuð þjóðanna á Júgóslavíu.
■ RUMENSKA knattspyrnuliðið
Steaua Búkarest hefur ráðið Ang-
hel Iordanescu sem þjálfara, og á
hann að sjá um að endurvekja foma
frægð félagsins. Hann þjálfaði liðið
árin 1988-1990, en hefur þjálfað
knattspyrnulið á Kýpur sl. tvö ár.
■ FRANSKI landsliðsmaðurinn
Alain Roche, sem leikið hefur sem
fríherji með Auxerre, hefur skrifað
undir þriggja ára samning við Par-
is St. German. Liðið er einnig á
höttunum eftir þýska sóknarmann-
inum Jiirgen Klinsmann, en hann
hefur leikið með Inter Milan upp
■ LEIKMENN Atletico Madrid
fengu 2,4 millj. ísl. kr. á mann fyr-
ir að verða bikarmeistarar á Spáni.
M BORDEAUX gekk frá ráðn-
ingu Rolland Courbis sem þjálf-
ara í gær. Hann tekur við af Ger-
not Rohr sem sagði upp eftir að
hafa komið félaginu upp í 1. deild
í vor.
ÞÝSKA hlaupadrottningin Katr-
ín Krabbe ákvað í gær að taka
ekki þátt í Ólympíuleikunum í
Barcelona, sem verða settir
eftir þrjár vikur. Stöllur hennar,
Grit Breuer og Silke Möller,
tóku sömu ákvörðun.
Stöllumar þijár vom ásakaðar
um að hafa haft rangt við í
ljfyaprófi í byijun árs og í fram-
haldi vora þær úrskurðaðar í fjög-
urra ára keppnisbann. Gerðadómur
Alþjóða fijálsíþróttasambandsins
aflétti banninu um síðustu helgi
vegna formgalla og staðfesti þar
með niðurstöðu laganefndar þýska
fijálsíþróttasambandsins frá því í
byijun apríl. Stúlkunum var þar
með heimilt að taka þátt í Ólympíu-
leikunum, en þegar til kastanna
kom treystu þær sér ekki til þess.
Talsmaður íþróttafélags þeirra
sagði að útlit væri fyrir að Möller
hætti keppni fyrir fullt og allt.
Jos Hermens, framkvæmdastjóri
Krabbe, sagði að málið hefði haft
mikil áhrif á hlaupadrottninguna.
„Síðustu fimm mánuðir hafa verið
erfíðir og ekki var á álagið bæt-
andi. Það gengur ekki að segja að
málinu sé lokið og nú verði allt eins
og áður. Það er erfitt að ná sér á
strik á nokkram vikum.“
Krabbe sagði fyrr í vikunni að
erfitt hefði verið að einbeita sér að
æfingum og málið hefði haft áhrif
á taugarnar. „Ég fer ekki til Barce-
lona til að gera mig að fífli," sagði
hún s.I. þriðjudag, en í fyrradag var
hún óvænt tekin í lyfjapróf fyrir
og eftir æfingu.
Krabbe sigraði í 100 m og 200
m hlaupi á HM í Japan í fyrra, en
hefur ekki sýnt fyrri styrk að und-
anfömu og hafði aðeins tryggt sér
sæti í þýsku boðhlaupssveitinni á
ÓL en ekki í einstaklingsgreinum.
Gert er ráð fyrir að íþróttafélag
hennar gefi út yfirlýsingu um málið
í dag.
Katrfn Krabbe verður ekki á hlaupabrautinni á Ólympíuleikunum í Barcelona.
Krabbe keppir ekki
á Ólympíuleikunum
LYFJAMISNOTKUN
Morgunblaðið/Steinþór
Dennis Cabot ásamt unnustu sinni
að ofan en íbygginn á svip til hliðar.
Gróðafíkn, útlit og
von um árangur
LYFJAMISNOTKUN íþróttamanna hefur verið íbrennidepli und-
anfarin misseri. Þekkt íþróttafólk hefur fallið á lyfjaprófum og
annað fengið uppreisn æru, en ekki sýnt fyrri styrk samanber
Ben Johnson. Sumir hafa viðurkennt misnotkunina i kjölfar niður-
staða lyfjaprófa, en aðrir eru ekkert nema sakleysið uppmálað,
þrátt fyrir að rannsóknir og fleira bendi til annars. Breski vaxtar-
ræktarmaðurinn Dennis Cabot viðurkenndi steraneyslu í sam-
tali við Morgunblaðið og sagði hana mun algengari en ætlað væri.
Dennis sagði að ekkert væri
auðveldara en að verða sér
úti um stera í líkamsræktarstöðvum
•■■■■■ og málið væri ósköp
Eftir einfalt. Söluaðilar
Steinþór hugsuðu fyrst og
Guöbjartsson fremst um hagnað-
inn, íþróttamenn um
afrek, frægð og frama og almenn-
ingur um bætt útlit.
„Hvað mig varðar þá vildi ég ná
Iengra í vaxtarrækt. Ekki með
keppni í huga heldur hvað útlitið
varðar. Ég tel mig þekkja efnin,
sem ég notaði, áhrif þeirra og auka-
verkanir. Ég tók töflur af og til í
ár, en er ánægður með útlitið og
hef ekki neytt þeirra síðan í októ-
ber á síðasta ári.“
Milljón í hagnað á viku
Þekkt er að eiturlyfjasalar svífast
einskis til að koma eitrinu á markað
og stjórnar gróðafíknin gerðum
þeirra.
Dennis sagði að sama væri uppi
á teningnum varðandi sterana og
væra miklir peningar í spilinu.
„Mánaðarskammtur kostar í Bret-
landi um 25 pund [um 2.500 ÍSK]
miðað við fyórar töflur á dag, en
margir láta sér það ekki nægja og
borga um 100 pund [um 10.000
ÍSK] fyrir mánaðarskammtinn og
jafnvel meira. Þetta er stórgróða-
fyrirtæki fyrir þá sem stjórna söl-
unni og þeir stærstu eru að fá um
10.000 pund (um milljón ÍSK] á
viku.“
Árangur háður steranotkun
Þegar þekkt íþróttafólk fellur á
lyfjaprófi er stöðugt vitnað í hneis-
una, sem kanadíski spretthlaupar-
inn Ben Johnson varð fyrir á Ólymp-
íuleikunum í Seoul 1988. Hann seg-
ist sjálfur hafa verið blóraböggull,
því flest af fremsta fijálsíþróttafólki
notaði stera og hefði það verið tek-
ið sömu tökum og hann var væri
engin keppni.
Dennis tók í sama streng. „Þessi
lyf eru bönnuð í íþróttakeppni, en
hvað á íþróttamaður, sem vill ná
langt, að gera? Ef hann ætlar að
vera samkeppnisfær verður hann
að taka stera eins og hinir. Misnotk-
unin er það útbreidd að menn neyð-
ast til að dansa nieð stefni þeir á
toppinn. Þeir bestu fá gríðarlegan
fjárhagslegan stuðning og era á
grænni grein og því taka menn
áhættuna. Lyfjapróf, eins og þau
hafa verið framkvæmd, hafa ekkert
verið nema sýndarmennska og þess
era mörg dæmi að íþróttafólk hefur
hreinlega getað hagað sér að vild
og forðast próf á óheppilegum tíma.
En sumir falla á lyfjaprófi og þar
með er draumurinn um frægð og
frama úti.“
Fræðsla mikilvæg
Dennis viðurkenndi að steranotk-
un gæti verið hættuleg. „Allt, sem
gert er í óhófi er hættulegt. Menn
verða að vita hvað þeir eru að gera
og það er ekki nóg að segja að
þetta sé slæmt fyrir þig heldur verð-
ur fræðsla að fylgja. Mér vitanlega
hefur ekkert dauðsfall verið rakið
beint til steraneyslu, en aukaverk-
anir eru þekktar og betra er að
byrgja brunninn áður en barnið fell-
ur ofan í hann.“