Morgunblaðið - 25.07.1992, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1992
Skálholtsútgáfan:
Bænabók
komin út
ÚT ER komin bænabók á vegum
Skálholtsútgáfunnar, útgáfufé-
lags Þjóðkirkjunnar, í samantekt
sr. Karls Sigurbjörnssonar. Bók-
in er prýdd myndum eftir Björn
Rúriksson ljósmyndara. í frétt
frá útgáfunni segir, að allar fyrri
bænabækur séu löngu uppseldar
og þessi bók bæti því úr brýnni
þörf.
Bókin hefur að geyma fjölda
bæna frá frumkristni til þessa dags,
sem höfundur hef-
ur ýmist þýtt,
safnað eða samið
sjálfur. Þá eru í
bókinni greinar
um bæn og lestur
Biblíunnar eftir dr.
Sigurbjöm Einars-
son biskup. Annar
kaflinn hefur að
geyma daglega
bænagjörð í fjórar
vikur, morgun-
bænir og kvöld-
bænir. Þriðji kaflinn fylgir kirkjuár-
inu og fjórði kaflinn ýmsum við-
burðum, sem verða á vegi fólks á
lífleiðinni. Fimmti kafli er um trúar-
lífið og sjötti kafli biblíulestrarskrá.
í lok bókarinar eru svo Fræði Lút-
ers hin minni, skýringar Marteins
Lúters á fmmatriðum trúarinnar
og auðar síður, sem eru ætlaðar
fyrir eigin bænir og hugleiðingar.
Bókin fæst í Kirkjuhúsinu,
Kirkjuhvoli, gegnt Dómkirkjunni og
er hægt að fá hana senda í póst-
kröfu, auk þess sem hún fæst í öil-
um bókaverslunum.
----♦ ♦ »
Kápa bókarinnar
Bænabók, leidsögn
á vegi trúarlífsins.
Sjóblandaður
spíri fannst
LÖGREGLUNNI var tilkynnt um
að fundist hefði 25 lítra brúsi
fullur af sjóblönduðum spíra í
fjörunni við Hvassahraun suður
af Hafnarfirði. Maður sem var á
gangi þarna í fyrrakvöld fann
brúsann.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni hafði brúsann greinilega
rekið á land því áföst við hann var
merkt bauja og öruggt talið að um
smygl sé að ræða.
Morgunblaðið/Þorkell
Listasmiðjan opnaði fyrir stuttu nýja verslun,
Jólasalan er hafin
hjá Listasmiðjunni
LISTASMIÐJAN hefur opnað nýja verslun í Nóatúni 17. Versl-
unin selur keramikmuni, allt frá styttum og blómavösum til
nytjahluta í eldhúsið. Einnig selur hún tól og tæki til að skreyta
og vinna frekar tilbúna muni. Um níu manns starfa nú hjá
fyrirtækinu.
Langmesta salan er í ómáluð-
um munum, að sögn Eiríks Harð-
arsonar hjá Listasmiðjunni. Fólk
kaupir hlutina ómálaða og málar
þá síðan sjálft. Af þeim sökum
er jólasalan að hefjast núna, þrátt
fyrir að nú sé hásumar, og alls-
kyns jólastyttur og jólamunir selj-
ast vel. Listasmiðjan býður einnig
upp á námskeið, sem eiga að heíj-
ast næstkomandi september og á
þeim er kennt að mála keramik-
hlutina en ýmsar mismunandi
aðferðir eru til.
Leirinn, sem notaður er í mun-
ina, er á þykkt við súrmjólk og
er steyptur í mót þannig að hlut-
imir eru holir að innan. Minni
sala er á sumrin og er sá tími
nýttur til að koma upp lager því
að sögn Eiríks, hafa starfsmenn
ekki undan eftirspurninni þegar
líða fer á veturinn.
Eiríkur segir að yngri við-
skiptavinir og á miðjum aldri séu
aðallega konur en kynskipting sé
nokkuð jöfn hjá eldra fólki.
Af nytjahlutum selst ekki eins
mikið því Eiríkur segir að vinnan
hér á landi sé svo dýr að þesskon-
ar vörur standist engan veginn
verðsamkeppni við ódýrari vörur
frá Austurlöndum. Þeir sem helst
kaupi nytjahluti séu að leita að
einhveijum ákveðnum lit og kom-
ist að þeirri niðurstöðu að best
sé að mála hlutina sjálfír til að
fá eina rétta litinn.
Nýr togari til Seyðisfjarðar:
Bærínn í ábyrgð fyrir
100 mílljón króna láni
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur gengist i ábyrgð fyrir láni upp
á 11 norskar milljónir (rúmlega 100 milljónir ísl. kr.) vegna kaupa
Útgerðarfélagsins Ottos Wathnes á 750 tonna frystitogara frá
Noregi. Gert er ráð fyrir að tvö skip, Otto Wathne NS og Erling
KE sem sökk fyrir 2 árum, verði úreld vegna kaupanna. Þorvald-
ur Jóhannsson, bæjarstjóri, segir að hér sé um að ræða framlag
til að auka atvinnutækifæri í byggðarlaginu.
Þorvaldur sagði að í kjölfar
kaupanna yrðu sennilega til 17
ný störf. Ennfremur mætti ætla
að árleg tekjuaukning í gegnum
bæjar- og hafnarsjóð gæti orðið
7-8 milljónir á ári. „Hér er um
stórt og mikið atvinnutækifæri að
ræða,“ sagði Þorvaldur,,, og við
metum það svo að með því að
vera með annan veðrétt í skipinu
og sérstakan baksamning við eig-
enduma sé þetta áhættunnar
virði,“ sagði hann en ákvörðun um
að gangast í ábyrgði fyrir láninu
var tekin samhljóða á bæjarstjóm-
arfundi á miðvikudag.
„Sennilega hefðum við ekki
geta keypt skipið ef ekki hefði
verið fyrir ábyrgð frá bænum,“
sagði Trausti Magnússon, sem
gerir út Otto Wathne. „Það em
margir sem vilja hjálpa okkur
nema þessir aðiiar sem eiga að
gera það. Við höfum verið í við-
skipum við Landsbankann síðan
1974 og aldrei lent í vanskilum,
•ekki skuldað krónu. Samt er ekki
hægt að fá þá til að hjálpa á einn
eða neinn veg,“ sagði hann.
Trausti sagði að skrifað hefði
verið undir úreldingu Ottos Wat-
hnes en margir hefðu sýnt skipinu
áhuga. Það væri í góðu lagi enda
hefði því verið vel við haldið. Með-
al þess sem rætt hefur verið um
er að skipið fari til Akranes og
komi í stað Höfðavíkurinnar en
Trausti segir að engin ákvörðun
hafi verið tekin varðandi það mál.
Þess má geta að Höfðavíkin er
smíðuð sem fjölveiðiskip en Otto
Wathne er fyrst og fremst tog-
veiðiskip.
Nýja skipið er eins árs en hefur
verið í rekstri í 9 mánuði. Það
kemur frá Tromsö í Noregi en er
nú í slipp í Harstad í Norður-Nor-
egi. Síðan siglir það til Esbjerg í
Danmörku þar sem komið verður
fyrir flotvörpuvindu í skipinu. Von
er á því hingað til lands í ágúst.
Trausti sagði að mikill söknuður
myndi fylgja hvarfi Ottós Wathne
sem er 15 ára gamall. Aftur á
móti benti hann á að nýja skipið
myndi breyta miklu að því leyti
að útgerðin losnaði algjöriega við
miklar siglingar sem áður hefðu
tíðkast.
Töluverð áhætta
fylgir 220.000
tonna þorskveiði
- segir Jakob Magnússon, fískifræðingur
JAKOB Magnússon, starfandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar, seg-
ir að töluverð áhætta fylgi því ef leyft verði að veiða 220 þúsund
tonn af þorski á næsta fiskveiðiári. Við bestu aðstæður þýði slík
veiði að ekki sé gengið á hrygningarstofninn, en það geti líka farið
á verri veg.
Hafrannsóknastofnun hefur lagt
til við sjávarútvegsráðherra, að á
næsta fiskveiðiári, sem hefst 1.
september, verði aðeins leyfð veiði
á 190 þúsund tonnum af þorski, en
alls verði á næsta almanaksári leyft
að veiða 175 þúsund tonn. Alþjóða-
hafrannsóknaráðið skilaði fyrr í
sumar tillögum um að ekki yrðu
veidd nema 154 þúsund tonn á
næsta almanaksári og undir þær
hefur tekið John Pope, enskur sér-
fræðingur, sem sjávarútvegsráð-
herra fékk til að meta niðurstöður
ráðsins.
Jakob Magnússon, starfandi for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar, seg-
ir að muninn á tillögum stofnunar-
innar og Alþjóðahafrannsóknaráðs-
ins megi skýra með því, að Hafrann-
sóknastofnun telji rétt að fara mild-
ari leið í niðurskurðinum næstu tvö
árin, en hinir erlendu aðilar leggi
til að aflinn verði minnkaður í einu
skrefi. Þessar tvær leiðir ættu hins
vegar báðar að leiða til þess að
hrygingarstofninn gæti náð
400.000 tonnum að 4 árum liðnum,
en það sé sú stofnstærð, sem talin
sé viðunandi.
Jakob segir að töluverð áhætta
fylgi því ef leyft verði að veiða 220
þúsund tonn á næsta fiskveiðiári.
Ef allar aðstæður verði með besta
móti geti verið að með slíkri veiði
sé ekki gengið á hrygningarstofn-
inn, en hættan á því að hrygningar-
stofninn minnki niður fyrir hættu-
mörk sé auðvitað miklu meiri þá,
heldur en ef farið yrði að tillögum
Hafrannsóknastofnunar.
25. alþjóðlega skákhátíðin í Biel:
Héðinn með 3 vinninga
eftír jafnmargar umferðir
ÁRLEG skákhátíð í borginni Biel í Sviss hófst þann 17. júlí með
keppni í Iokuðum flokki. Þremur dögum síðar hófst keppni í opnum
meistaraflokki þar sem Héðinn Steingrímsson er meðal keppenda.
Þegar þrjár umferðir hafa verið tefldar hefur Héðinn hlotið 3 vinn-
inga.
Þátttakendur í opna meistara-
flokknum eru 190. Þar af eru um
30 alþjóðlegir meistarar og svipaður
fjöldi stórmeistara. Meðal keppenda
í þessum flokki má nefna stórmeist-
arana Sokolov og Portisch. And-
stæðingar Héðins hafa hingað til
verið FIDE-meistarar en í fjórðu
umferð mun hann mæta alþjóðlega
meistaranum Ariel Sorin frá Arg-
entínu.
í lokaða flokknum taka átta
keppendur þátt. Þar á meðal eru
Karpov, Beljavski frá Úkraínu,
Lettinn Shirov, Hansen frá Dan-
mörku og heimamaðurinn Korts-
jnoj. Að loknum sex umferðum er
Karpov efstur með 5 vinninga en
næstur honum er Búlgarinn Georgi-
ev með 4 vinninga. Fyrir fimmmtu
umferð var Shirov jafn Karpov að
vinningum en hafði hvítt gegn Ge-
orgiev í þeirri umferð og tapaði.
Eitthvað virðist tapið hafa farið illa
í Lettann því hann tapaði einnig
næstu skák og þá gegn Karpov.
Morgunblaðið/Kristjana
Gullmávurinn, bátur Jóhannesar Kjarvals, á sýningunni í Fjarðar-
borg.
Borgarfjörður eystri:
Listsýning í Fjarðarborg
SÝNING á verkum 15 listamanna stendur nú yfir í félagsheimilinu
Fjarðarborg. Hún hófst 5. júlí og stendur til 31. júlí nk. Stærsti
hluti verkanna eru fenginn frá Listasafni alþýðu en það er sljórn
Fjarðarborgar sem stendur fyrir sýningunni. Á sýningunni er jafn-
framt bátur sem var í eigu Jóhannesar Kjarvals.
Frá Listasafni íslands koma verk urðsson, skipstjóri, gaf Jóhannesi
13 grafiklistamanna og frá Kjarv-
alstöðum voru fengnar að láni fimm
myndir eftir Jóhannes Kjarval. Á
sýningunni er að auki Kolbrún
Kjarvals, Ieirkerasmiður, með sölu-
sýningu.
Á sýningunni í Fjarðarborg er
jafnframt bátur sem Ásgeir Sig-
Kjarval. Báturinn heitir Gullmávur-
inn og sigldi Kjarval honum sumar-
ið 1959 frá Selfljótsbrú við Unaós,
út fljótið, fyrir Kögur og að bryggju
á Borgarfírði. Kjarval var 74 ára
gamall þegar hann sigldi þessa leið
en hún er um 21 km.