Morgunblaðið - 25.07.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.07.1992, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1992 22 * Héðinn Olafsson Fjöllum - Minning Fæddur 14. janúar 1918 Dáinn 16. júlí 1992 í dag, er tengdafaðir minn, Héð- inn á Fjöllum, er til grafar borinn, langar mig að minnast hans í örfá- um orðum. Okkar kynni hófust í byijun apríl 1969 er ég kom í fyrsta skiptið að Fjöllum, með Sigríði Guðrúnu, dótt- ur hans. Mér var tekið opnum örm- um, bæði af Héðni, konu hans Sjöfn Jóhannesdóttur og móður hans Friðnýju Sigurjónsdóttur. Og þeir traustu og styrku armar hafa umlukt mig æ síðan. Héðinn hafði mikla þekkingu á náttúru landsins, gæðum þess og gögnum og kunni á mörgu skil, eftir áratuga athuganir og yfirferð. Áhugamál hafði hann mörg, og vann að þeim, svo sem fískirækt, skógrækt og fleira. í fjölda ára skráði hann rjúpnastofninn og fylgdist náið með dýralífinu, bæði til sjós og lands. Héðinn hafði ákveðnar skoðanir á verndun dýra, þrátt fyrir að vera mikill veiðimaður á sínum yngri árum. Er heilsan ekki lengur leyfði ferð- ir um fjöll og torsótta dali, var hann brunnur þekkingar fyrir böm og tengdaböm og gat leiðbeint um hvar helst var veiðivon og sjaldan brást sú leiðsögn. Vinmargur var Héðinn, hann starfaði sem rafvirki í mörg ár um nærliggjandi sveitir og vildi hvers manns vanda leysa. Hann var ein- staklega fljótur að eignast vini og kunningja, og voru þeir víðsvegar um landið. Héðinn hélt nánu sam- bandi við þá, bæði með heimsóknum og samtölum, eða eins og hann hafði tök á. Enda sýndi það sig hinar síðustu vikur, að sú vinátta var endurgoldin, svo margir hringdu víðsvegar af landinu til að spyrja um líðan hans. Oft var gestagangur mikill á Fjöllum og ætíð var gestum tekið opnum örmum, og að góðum og gömlum íslenskum sið var öllu því besta til tjaldað. Þar naut hann dyggrar aðstoðar síns kæra lífs- förunautar, Sjafnar, sem var honum og börnum þeirra sem klettur, hin órjúfanlegi hlekkur, sem hægt var að setja allt sitt traust á. » Þó Héðinn væri ekki afskipta- samur um heimilishaldið, þá var það eitt sem hann hugsaði vel um, og það var að aldrei skorti til matar né drykkjar. Skipti þá ekki máli þó bömin flyttu að heiman, bæði til að stofna heimili eða til náms, þeim var þá sent eða þau látin taka með sér „nesti“ er heim var skroppið. Súrmatur, vel feitt þverhandar- þykkt sauðakét, siginn fiskur, há- karl og fleira var matur, og ekki fengu nútímalegir matarréttir, svo sem djúpsteiktir kjúklingar, pizzur og hamborgarar háa einkunn hjá Héðni. í öllum hans veikindum og aðgerðum er hann þurfti að ganga í gegnum, æðraðist hann aldrei og ekki heyrði maður hann segja „af hveiju ég“ heldur var áfram barist og ekki gefist upp. Þessi baráttuhugur, hið góða skap, bjartsýni, dugnaður, ásamt þeim hæfileika að sjá hið skoplega í málefnum líðandi stundar, og geta gert hversdagslega atburði að við- burði. Og um leið var það festa og áræði sem einkenndi hann og þann- ig verður hann í minningunni. Gam- an hafði hann af að kasta fram stökum um hin ýmsu málefni, sér- staklega hin síðari ár, en hljótt fór hann með þennan hæfileika sinn. Kæra Sjöfn, ég veit að missir þinn er mikill, en sú mikla sam- heldni í fjölskyldunni, sem ævinlega hefur ríkt, og kom svo berlega fram undanfarnar vikur, mun verða þér og bömum þínum mikill styrkur. Blessuð sé minning hans. Evert Kr. Evertsson. Héðinn Ólafsson er látinn eftir langa og stranga sjúkdómslegu. Mig langar í þessum fáu orðum að minnast Héðins og þeirra kynna sem ég hafði af honum. Þegar ég var ungur vár nafn Héðins snemma sveipað ævintýra- ljóma í mínum huga. Ég fékk að heyra sögur af þessari kempu sem var giftur Sjöfn Jóhannesdóttur föðursystur minni. Hreysti hans var rómuð svo og þrautseigja við erfið- ar aðstæður á heiðum Norður-Þing- eyjarsýslu þar sem hann vann við að léggja síma. Ég fékk tækifæri að vera í sveit í nokkur sumur hjá Héðni og Sjöfn á Fjöllum, þar sem Héðinn fæddist og bjó alla sína ævi. Þar komst ég nær honum, sá hann við leik og störf. Ég var þá kominn á þær slóð- ir þar sem Héðinn þekkti svo vel, hafði háð baráttu við náttúruöflin og borið jafnan sigur af hólmi þó svo að hann hefði jafnvel þurft að skríða hryggbrotinn á fjöllum á sjö- unda kílómetra, slíkt hraustmenni var hann. Það var mikil tilhlökkun að kom- ast í Fjöll á hveiju vori, komast í sauðburðinn og taka þátt í starfínu á bænum. Minningar frá þessum árum tengjast mjög Héðni og hans starfi. Hugur Héðins var mjög tengdur veiðum og nærveru við náttúruna. Þar fann hann sig vel. Hann þekkti landið og staðhætti mjög vel, gat lesið ótal margt úr hegðun dýra sem venjulegir menn gátu ekki og var sannspár fyrir um veðrabrigði. Það var alltaf mikill völlur á honum er hann var að útbúa sig til veiða, hvort sem það var að leggjast á greni, fara í sjóróðra eða leita fanga í Lóninu, en þangað fékk maður að fara með honum til veiða. Hæfíleikar þessa náttúru- skoðara nýttust þar vel. Héðinn fékk að sjá hugsjón sína um físk- eldi í Lóninu verða að veruleika þar sem sonur hans og frændur hafa unnið við uppbyggingu og rekstur þess til margra ára. Það var alltaf mikið um að vera á Fjöllum. Heimilið var stórt og þar var gestkvæmt enda heimilisfólkið á Fjöllum skemmtilegt heim að sækja og sérlega vel tekið á móti gestum. Héðinn starfaði sem bóndi og rafvirki og var sérlega laginn verk- maður. Minningar úr sveitinni tengjast mjög ferðalögum Héðins um Norður-Þingeyjarsýslu þar sem hann vann við að færa sýslungum sínum birtu með rafvæðingu sveita- bíla. Sjálfsagt hefur hann einnig fært þeim annars konar birtu á ferðalögunum því hann var heill hafsjór af fróðleik um menn, mál- efni og þjóðlegt efni. Einnig kunni Héðinn mikið af tækifærisvísum og var hagyrðingur góður. Hann var óspar að miðla fólki af þekkingu og fróðleik sínum. Þó svo Héðinn hafí staðið uppi sem sigurvegari gegn náttúruöflun- um, þá þurfti hann marg oft að taka á öllu sem hann átti til að beijast við afleiðingar slysa eða erfiðra sjúkdóma. Hann sigraðist jafnan á þeim með miklum stuðn- ingi Sjafnar og sérlega samhents barnahóps þó svo að sú barátta setti mark á líkamann. Að lokum var Héðinn þrotinn kröftum og lét loks undan þungum og þrálátum sjúkdómum. Fyrir mína hönd, systkina minna og maka votta ég Sjöfn og öðrum aðstandendum, okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minning Héðins Ólafssonar. Lárus Ásgeirsson. Héðinn Ólafsson er allur. Hans löngu og erfíðu sjúkrasögu er lokið. Héðinn var fyrst og fremst Þing- eyingur-Keldhverfíngur. Einatt kynnti hann sig sem Héðinn á Fjöll- um. Þar kunni hann best við sig, þekkti hvert kennileiti eins og sinn eigin lófa. Oft þurfti Héðinn að skjótast inn á Reykjaheiði, inná Tunguheiði, út á Reka eða út á Brekkur, til að líta á landið eða náttúruna, virtist þá stundum eins og hann sæi þar eitthvað sem aðrir sáu ekki. Þetta svæði átti hug hans allan. Vegna fötlunar sinnar nú síðustu ár gat hann ekki farið eins langt og víða eins og hann hefði gjarnan viljað. En Héðinn fór eins langt og víða og hægt var að komast á „Rússanum“. Héðinn átti marga og góða vini, bæði karla og konur, víða um land sem hann hafði eignast á sinni veg- ferð. Skrifaði hann nöfn þeirra í litla vasabók sem hann bar alltaf á sér og átti það til að hringja í þetta fólk rétt til að halda sambandinu eða til að bjóða í kaffí eða mat. Héðinn var mikill fjölskyldumað- ur. Hugsunin var alltaf sú að alltaf væri nóg til af góðum mat handa fólkinu, bæði gestum og gangandi. Jafnvel eftir að bömin vom flutt að heiman og komin með sín eigin heimili og fjölskyldur var hugur Héðins enn við það að þau hefðu nóg að bíta og brenna. Ósjaldan fengum við sendingu af ýmsum mat s.s. fugli, físki eða haustmat. Þessari gestrisni og rausnarskap í l»lonia-kr<‘> liii^iiin >ió öll lu'kilæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sínii 19090 Héðins kynntist ég af eigin raun þegar ég varð tengdasonur hans. Það var mér mikið heillaspor. Oft var leitað ráða hjá Héðni þegar átti að taka stórar ákvarðan- ir. Við hjónin leituðum álits Héðins þegar til stóð að við keyptum okkar fyrstu íbúð. Gmnur min og raunar vissa er að fleiri af börnum hans hafí gert slíkt hið sama. Áður en til áðumefndra ættar- tengsla kom hafði ég heyrt um Héðinn á Fjöllum þar sem hann var að vinna á bæjunum í minni heima- sveit bæði við uppsetningu og við- hald á AGA eldavélunum sem þá voru mjög víða til og einnig við rafmagn sem seinna varð hans, svo að segja aðalstarf. Við rafmagnið vann ég með honum allt frá Þistil- firði í austri til Báðardals í vestri. Það var gott að vinna með Héðni. Hann var ákveðinn, duglegur og fylginn sér. Hann leiðbeindi mér á sinn mildilega hátt en þó ákveðið. Hann var mjög vandvirkur í sínu starfí og lærði ég margt af honum í þvi sambandi. Héðinn var einstaklega greiðvik- inn og vildi allt fyrir alla gera og jafnvel bar það við að fyrr var brugðist við að lagfæra það sem aflaga fór hjá nágrannanum heldur en heima fyrir. Oft hefur leið okkar legið austur í Fjöll, en aldrei fannst dætmm okkar við vera komin „í sveitina" fyrr en komið er í hlað á Fjöllum jafnvel þó farið sé í gegnum margar sveitir á leiðinni frá Akur- eyri austur í Fjöll. Oft var setið tímunum saman í eldhúsinu eða stofunni á Fjöllum eða „úti í skúr“ þar sem unnið var að ýmsum hugðarefnum hans en þau voru mörg. Má þar nefna að stóran þátt átti Héðinn í að komið var á fót því fiskeldi sem nú er í Lónunum. Síðustu árin helgaði hann krafta sína skógrækt og land- græðslu. Aldrei var komið að tómum kof- anum hjá Héðni. Hann hafði sínar skoðanir á mönnum og málefnum og stóð fast á sínu. Oftar en ekki virtist hann vera búinn að velta hlutunum fyrir sér og var þá með svar á reiðum höndum. Ekki vorum við Héðinn alltaf sammála en við deildum aldrei. Að lokum vil ég þakka þeim sem öllu ræður fyrir að haga örlögum mínum svo að ég fékk að kynnast og vera í samvistum við Héðinn á Fjöllum, þennan stórbrotna og sterka mann sem hægt var að læra svo margt af. Ef ætti að gefa hon- um einkunnarorð held ég að þau ættu helst að vera að gefast aldrei upp og að skulda aldrei neinum neitt. Stórt skarð hefur nú myndast í hina samhentu fjölskyldu Héðins og Sjafnar á Fjöllum. Það skarð fyllist aldrei. Sár er nú söknuðurinn hjá börnum hans og öðrum afkom- endum og ekki síður hjá aldraðri móður hans sem horfír nú á eftir syni sínum en sárastur hlýtur þó söknuður þinn að vera elsku Sjöfn mín. Ég bið góðan guð að styrkja ykkur um ókomin ár. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá hug þinn aftur og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem áður var gleði þín. (Úr Spámannin- um). t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SNORRI GUÐMUNDSSON, Þverbrekku 2, andaðist í Borgarspítalnum að kvöldi 23. júlí. Kristfn Jónasdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðirokkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURJÓNA JAKOBSDÓTTIR frá Akureyri, verður jarðsett frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28. júlí kl. 15. Þórir Björnsson, Jakob Þorsteinsson, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Þórhalla Þorsteinsdóttir, Halldór Þorsteinsson, Jón Óli Þorsteinsson, Anna Lára Þorsteinsdóttir, tengdabörn og barnabörn. Við skulum vera þakklát og glöð fyrir það að hafa fengið að vera samferða góðum dreng. Megi Héðinn Ólafsson hvíla í friði. Hann var vinur minn. Magnús Sigurðsson. „Það hefír ekki verið sparað efn- ið í þennan pilt“. Þessi orð lét Ólaf- ur Jónsson, bóndi á Fjöllum í Keldu- hverfí, eitt sinn falla um son sinn, Héðin, sem þá var á besta aldri og í blóma lífsins, saman rekinn og kraftalegur svo að af bar og á orði var haft. Það fer hins vegar eftir eðli og upplagi hvers og eins hvern- ig hann notar afl sitt, andlegt eða líkamlegt, sem skaparinn hefír gef- ið honum en auðna ræður hve aflið endist hveijum og einum. Héðinn Olafsson fæddist á Fjöll- um í Kelduhverfí, 14. janúar 1918. Foreldrar hans voru hjónin Ólafur Jónsson, bóndi á Fjöllum og Friðný Siguijónsdóttir, sem er enn á lífi, nálega 94 ára og hefir verið í skjóli sonar síns, Héðins, og tengdadóttur um nálega 40 ára skeið. Olafur lést árið 1953. Héðinn ólst upp á Fjöllum, elstur í hópi 5 systkina, og vandist þar algengum sveitastörfum. Þegar hann var 16 ára hlaut faðir hans alvarlegt heilsutjón og kom þá í hlut Héðins að standa fyrir búi með móður sinni og mikil ábyrgð lagðist á herðar honum. Héðni lærðist snemma í föðurtúni að líta í kring- um sig en að mörgu var að hyggja í náttúrunnar ríki. Fuglaskoðun hans leiddi til þess að hann fylgdist grannt með ijúpnastofninum í landi Fjalla um árabil og skráði hjá sér. Þá veitti hann og athygli marg- breytilegum gróðri, varð og nær- gætur um veður með því að hlusta eftir veðurhljóðum, beina sjónum að skýjafari og hafa gát á hvort forystuær væri treg að fara úr húsi til beitar að morgni en það var órækt merki um illt veður í aðsigi er á daginn liði. Allt var þetta þekk- ing sem erfst hafði í aldanna rás frá kynslóð til kynslóðar, ómetanleg þeim sem allt sitt áttu undir sól og regni. Héðinn var snemma áhugasamur um veiðiskap til að afla fæðu handa heimilinu. Reri snemma á bátkænu og komst í snertingu við lífríki sjáv- arins og hafði á því áhuga jafnan síðan. Tólf ára gamall tók Héðinn að fylgja föður sínum upp á Tungu- heiði þar sem Ólafur hafði eftirlit með símalínum sem þar vildu slitna í misjöfnum veðrum. Við þessu starfí tók Héðinn ungur að árum og gegndi fram yfír miðjan 6. ára- tuginn. Akvegur um Reykjaheiði var lagður rétt upp úr 1930 en naum- ast fær nema 2-3 mánuði á ári. Leiðin úr Kelduhverfi vestur á bóg- inn lá því og hafði legið um aldir um Tunguheiði og gat verið villu- gjörn ókunnugum í vondum veðrum og ófærð. Var lagt upp frá Fjöllum þegar farið var vestur yfír og kom- ið þar við á leið austur um. Var því Iöngum gestkvæmt á Fjöllum en gestrisni þar og greiðasemi við brugðið. Það kom því oft í hlut, húsbænda á Fjöllum að fylgja fólki lengri eða skemmri spöl upp á heið- ina í misjöfnum veðrum og færð. Urðu þær æði margar ferðimar sem Héðinn fór um heiðina til að lið- sinna fólki. Var þá gott að vera veðurglöggur og þekkja til stað- hátta. Árið 1939 fór Héðinn upp á heiði eitt sinn sem oftar í svartasta skammdegi vetrarins og hríðarbyl til að gera við símalínu, ferð sem átti eftir að reynast honum örlaga- rík. Hann kleif upp í staur til að losa klökuga símalínu. Kom þá hnykkur á staurinn gaddfreðinn svo hann hrökk í sundur en Héðinn þeyttist langa leið og vissi ekki af sér um stund. Komst að lokum heim við illan leik, ýmist gekk eða skreið og tók heimferðin 6-7 klukkustund- ir. Var Héðinn mjög illa til reika er heim kom og var lengi að ná sér eftir byltuna og varð ekki fullgóður fyrr en eftir tvö ár að því er hann hugði þótt annað ætti eftir að koma í ljós. í viðtali við Héðin fyrir fáum árum um þessar ferðir á heiðina til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.