Morgunblaðið - 25.07.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.07.1992, Blaðsíða 32
MlCROSOFT. WlNDOWS. EINAR). SKÚLASON HF MORGUNBLAÐW, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVtK SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 25. JULI 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Fiskveiðasjóður skuldbreytir og lengir lán fyrirtækja: Greiðslubyrði létt- ist um 600 milljómr MÁR Elísson forstjóri Fiskveiðasjóðs segir að í kjölfar samþykkt- ar stjórnar Fiskveiðasjóðs frá því í fyrra um að líta á stöðu hvers einasta fyrirtækis sem er í viðskiptum við sjóðinn, hafi sjóðurinn skuldbreytt lánum með þeim hætti að greiðslubyrði fyrirtækja í sjávarútvegi hafi lést um allt að 600 miHjónir króna. Hann telur af þessum sökum að innstreymi í Fiskveiðasjóð minnki um nokkur hundruð milljónir næstu tvö ár. „Auðvitað erum við sem lána- stofnun alltaf að skoða stöðu við- skiptavina okkar og ef okkur finnst að það svari kostnaði og þjóni hagsmunum sjóðsins og við- skiptavinanna að við lengjum lán, eða stokkum upp, þá gerum við það,“ sagði Már í samtali við Morgunblaðið, „en ef okkur fínnst að það taki því ekki, þá gerum Myndritar vekja fólk um nætur EIN TIL tvær kvartanir berast daglega til bilanadeildar Pósts og síma um myndrita, sem þrjóskast við að senda fólki skilaboð á nóttunni í venjuleg- an talsíma. Er þá um að ræða mannleg mistök þegar röng símanúmer eru slegin inn í tækin. Að sögn Arinbjarnar Arnbjömssonar hjá bilana- deild geta sumir myndritar endurvalið númer sjálfkrafa 5-10 sinnum eða jafnvel oftar. „Það er ekkert hægt að gera í þessu, nema taka símann úr sambándi,“ sagði Arinbjöm. Hann kvað þó bilanadeildina reyna að vera til aðstoðar á opn- unartíma. Væri þá móttökutæki tengt inn á línuna, tekið á móti sendingunni svo senditækið hætti að senda, og skilaboðum komið til sendanda um hvers kyns væri. Arinbjöm kvað þó mun fleiri kvartanir berast frá fólki sem telur sig vera að hringja í talsíma en fær samband við myndrita. Að sögn Þorvaldar Birgisson- ar hjá Skrifbæ geta myndritar endurvalið númer sem ekki svar- ar eða er á tali. Ekki væri um að ræða, að tækin hringdu sjálf- virkt aftur og aftur, ef svarað væri. Stómjarð- ýtu stolið STÓRRI jarðýtu af gerðinni Ca- terpillar D-6B árgerð 1960 hefur verið stolið af svæði Fáks í grennd við Reiðhöllina í Víðidal um síð- ustu helgi. Að sögn lögreglunnar var ýta þessi notuð til ýmissa verka á svæðinu en þess á milli stóð hún rafgeymalaus. Þar sem ýtan stóð má sjá vörubíla- hjólför og ummerki þess að ýtan hafi verið sett upp á vörubílspall. við það ekki. Fyrirtæki verða gjaldþrota, það er ljóst og sumum þeirra er ekki við bjargandi. Það er alveg sama hvað við myndum gera og bankakerfið myndi gera. Hjá ákveðnum fyrirtækjum geng- ur dæmið einfaldlega ekki upp, nema svo og svo mikið nýtt fé komi inn í reksturinn.“ Már segir að Fiskveiðasjóður hafi seinni hluta sl. árs og á þessu ári verið að framfylgja ákveðinni stefnu í því að létta þá byrði sem lögð var á fyrirtækin í fyrra, þeg- ar aflamagn var skorið niður. „Hvort við reynum að gera eitt- hvað svipað núna, hefur enn ekki komið til tals,“ sagði Már, „en að óbreyttu liggur ekkert fyrir um að við getum gert eitthvað til við- bótar því sem við þegar höfum gert.“ Már segir að þær aðgerðir sem sjóðurinn hefur þegar gripið til kosti Fiskveiðasjóð nokkur hundr- uð milljónir króna í minna inn- streymi, vegna þess að verið sé að lengja lán og fresta afborgun- um. Dráttarvél og bíll rák- ust saman FÓLKSBÍLL sem var að koma út af brúnni yfir Laxá í Aðaldal við Laxamýri rakst á dráttarvél með hlöðnum aftanívagni, sem var að koma úr gagnstæðri átt. Ökumaður dráttarvélarinnar náði ekki að stöðva hana og ók á brúarstólpa þar sem fólksbíll- inn lenti á henni. Engin slys urðu á fólki. „Brekkan er nokkuð brött alveg niður að á að austanverðu,“ sagði Jón Gunnar Steinarsson, ökumað- ur dráttarvélarinnar. Hann kvaðst hafa reynt að stansa þegar ljóst hafi verið að ökumaður fólksbílsins ætlaði ekki að víkja, því brúin er einbreið. Aðspurður kvað Jón Gunnar aft- anívagninn vera gámavagn, hann- aðan til dráttar. „Þessi vagn tekur tólf tonn, en ég var ekki með nema tvö eða þijú tonn á pallinum," sagði hann. Fólksbíllinn lenti með aðra hliðina á dráttarvélinni og skemmdist hann mikið. Morgunblaðið/Bjarni Norðan- áttáfram Veðrið hefur leikið við íbúa á suð- vesturhominu undanfarna daga og um leið fyllast sundlaugamar. Um helgina verður norðanátt ríkj- andi á landinu,. kalt nyrðra en hlýtt syðra. Hins vegar verður ekki eins bjart og verið hefur að undanfömu. Þessi mynd var tekin í Sundlaug Kópavogs í blíðviðrinu og er greinilegt að sundlaugar- gestir kunnu vel að meta veðrið. Morgunblaðið/Eiríkur Nicklaus kominn Kylfingurinn heimsfrægi, Jack Nicklaus, er kominn til landsins. Nicklaus er hingað kominn til að veiða lax og auk þess mun hann sýna hvernig þeir bestu munda golfkylfuna. Sjá Akureyrarsíðu og golf- fréttir í íþróttablaði. Athugnn lögreglunnar á ofbeldisverkum í Reykjavík á undanförnum árum; Alvarlegum árásum fækkar í miðbænum í ATHUGUN sem Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn hefur gert á ofbeldisverk- um í Reykjavík árin 1989 til 1991 kemur fram að alvarlegum tilvikum hefur fækkað mjög í miðborginni á þessu tímabili. Þetta er talinn árangur af aukinni gæslu lögregl- unnar á þessu svæði frá upphafi ársins 1990. I athugun Guðmundar kemur m.a. fram hvað varðar Reykjavík í heild að tilvikum þar sem hnífum var beitt í átökum, eða ógnað með hnífum, fækkaði á þessu svæði úr 20 árið 1989 niður í 11 í fyrra. Ef miðborgin er tekin út úr heildarmyndinni kemur í ljós að alvarlegum tilvikum þar fækk- aði úr 10 árið 1989 og niður í 3 árið eftir. Hér eru vínveitingahús ekki talin með en Guðmundur Guðjónsson segir að fækkun tilvika inni á þeim hafi einnig orðið á milli þessara ára og haldi sú fækkun áfram í ár. Ef tekin eru saman tilvik þar sem hnífum og/eða bareflum var beitt í borginni í heild kem- ur í ljós að þau urðu samtals 31 tajsins árið 1989 en voru á síðasta ári 23 talsins. í athugun Guðmundar segir m.a.: „Það vekur athygli að veruleg fækkun er á því að hnífum sé beitt eða ógnað með slíku á síðustu tveimur árum eða úr 20 tilvikum árið 1989 í 12 tilvik árið 1991. Lögreglan hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á að leggja hald á ólöglega hnífa. í um 60% tilvika þar sem hnífum eða bareflum er beitt eða ógnað með slíku er árásarmaðurinn 25 ára eða eldri. Fá tilvik eru þar sem aðilar eru yngri en 16 ára. Yngra fólkið virðist frekar ógna með hnífum en þeir eldri beita þeim. Alvar- legustu hnífatilvikin, þ.e. hnífsstungumálin, eru flest í heimahúsum og þar sem áfengi er haft um hönd.“ í sérstöku yfirliti með athugun Guðmundar er að finna tölur yfir morð og morðtilraunir á fyrrgreindu tímabili. Árið 1988 voru framin tvö morð í borginni og gerðar tvær morðtilraunir. Árið 1989 voru tvær morðtilraunir, 1990 var eitt morð framið og 1991 voru tvö morð framin og ein morðtilraun. Athygli vekur að öll tilvikin 1991 áttu sér stað í febrúarmánuði. í athugun Guðmundar eru skoðuð áhrif áfeng- is- og fíkniefnaneyslu á ofbeldisverk. Þar segir að þegar lögregluskýrslur séu skoðaðar bendi ýmislegt til að aldur þeirra sem byija að neyta áfengis sé að færast niður og jafnframt obeldis- verk barna og unglinga. Síðan segir: „Árið 1989 virðist hafa verið sérstaklega slæmt bæði varð- andi mikla áfengisneyslu, sem var 22,99% aukn- ing frá árinu 1988 pr. mann 15 ára og eldri ... og fjölda afbrota. Þetta ár var sérstaklega slæmt varðandi fjölda tilvika svo sem rána og líkams- meiðsla þar sem börn og unglingar áttu hlut að máli bæði sem gerendur og þolendur en tölu- verð breyting varð til batnaðar í þessum efnum 'á árinu 1990, sérstaklega í miðborg Reykjavíkur og í námunda við hana en til þess verður að líta að stóraukin löggæsla á því svæði og virkara samstarf lögreglu og deilda Félagsmálastofnun- ar eiga þar sennilega stærstan þátt svo og umræða um aukna löggæslu á því svæði.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.