Morgunblaðið - 16.08.1992, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C
184. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Á FJALLABAKSLEIÐ SYÐRI
Bandaríkjastjóm undirbýr
loftbrú til sveltandi Sómala
Washington. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN hyggst hefja
matvælaflutninga „eins fljótt og mögu-
legt er“ til sveltandi fólks í Sómalíu og
beita sér fyrir aðgerðum af hálfu Sam-
einuðu þjóðanna til að tryggja að neyðar-
aðstoðin komist til skila, að því er Banda-
ríkjaforseti tilkynnti á föstudagskvöld.
„Þjáningar fólksins og fjöldamannfellir-
inn í Sómalíu er meiriháttar harmleikur,“
sagði í tilkynningu frá forsetanum. „Varnar-
málaráðuneytið hyggst heíja loftbrúarflutn-
inga eins fljótt og mögulegt er til að mat-
væli berist til hinna nauðstöddu."
Gert er ráð fyrir að her Bandaríkjanna
flytji 145.000 tonn af matvælum flugleiðis
til Sómalíu og að sögn Marlins Fitzwaters,
talsmanns Bandaríkjaforseta, bætast þessir
matvælaflutningar við matvælaaðstoð að
andvirði 77 milljóna dala (4,2 milljarða ÍSK)
sem stjórnin hafði þegar lofað. Stjórnin
hefur auk þess boðist til að senda 500 her-
menn til að tryggja að matvælin komist til
skila og íhugar möguleikann á að koma upp
loftbrúm innan Sómalíu.
Stjórnin í Washing-
ton hyggst nú enn-
fremur beita sér
fyrir ráðstefnu á
vegum Sameinuðu
þjóðanna til að sam-
hæfa hjálparstarfið
og vill að öryggis-
ráðið samþykki
ályktun sem heimil-
ar „aukaaðgerðir"
|| til að tryggja að
matvælin berist til
nauðstaddra. Gert
er ráð fyrir að full-
trúar hinna stríð-
Reuter andi fylkinga í Sóm-
Sómalskt barn sem er alíu taki þátt í ráð-
orðið svo veikburða og stefnunni til að
vannært að það getur tryggja samvinnu
ekki talað. þeirra við að hraða
matvæladreifing-
unni og draga úr hættunni á að hún fari
úr skorðum vegna árása.
Hungurdauði blasir við 4,5 af um 7 millj-
ónum íbúa Sómalíu og sjötti hver Sómali
er flóttamaður.
Engin ríkisstjórn hefur verið við völd í
landinu frá því Mohamed Siad Barre, fyrr-
verandi einræðisherra, var steypt af stóli í
janúar í fyrra. Ættflokkar og uppreisnar-
hópar voru sameinaðir í baráttunni gegn
einræðisherranum en eftir fall hans biðu
hundruð þúsunda manna bana eða særðust
alvarlega í bardögum sem blossuðu upp á
milli þeirra. Vopnaðir glæpahópar hafa
truflað hjálparstarfíð í landinu frá því sam-
ið var um vopnahlé í maí.
Margir hafa sagt að hvergi í heiminum
ríki jafn mikið hörmungarástand og í Sómal-
íu. James Kunder, yfirmaður Neyðaraðstoð-
ar Bandaríkjanna, sagði eftir að hafa heim-
sótt höfuðborgina, Mogadishu, að hann hefði
séð 7.000 tonn af matvælum frá Sameinuðu
þjóðunum í vöruhúsi við höfnina, sem ekki
hefði verið hægt að dreifa, á sama tíma og
fólk svalt í hel í nokkurra kílómetra fjar-
lægð.
„Áttu við Bosníu
í Suður-Dakota?“
ÞÓTT bandarískir kjósendur hafi knú-
ið á George Bush Bandaríkjaforseta
um að beita hervaldi í Bosníu-Herz-
egovínu virðast margir þeirra ekki
vita nákvæmlega hvert eigi að senda
hermennina, samkvæmt óformlegri
könnun fréttaritara breska dagblaðs-
ins The Daily Telegraph í þremur
bandarískum borgum. Þótt komið
hefði í ljós að fólkið myndi eftir sjón-
varpsmyndum af stríðshörmungunum
í júgóslavneska lýðveldinu fyrrverandi
héldu sumir að Bosnía væri í Suður-
Dakota, en aðrir nefndu SauBi-Arabíu.
Rúmur helmingur vissi að landið hefði
heyrt undir gömlu Júgóslavíu en að-
eins þrír af sextíu aðspurðum gátu
bent á það á landakorti. I Washingfton
vissu flestir að Bosnía er í Evrópu en
ekki hvar. Nokkrir bentu á Egypta-
land, einn á Síberíu, tveir á Tyrkland,
en oftast rugluðu menn Bosníu við lönd
sem hafa verið í fréttum vegna hernað-
ar, svo sem Afganistan, Falklandseyjar
og Líbýu.
„Síðasta kvöld-
máltíð“ Thatcher
Kirkjuleiðtogar í Bretlandi eru nú
æfir út af listsýningu, sem var opnuð
í Lundúnum á fimmtudag. Þar eru
sýndar háðsádeilumyndir og það sem
fer fyrir brjóstið á kirkjunnar mönnum
er mynd, sem hefur verið notuð til að
auglýsa sýninguna. Myndin er frá
breska sjónvarpsleikhópnum „Spitting
Image“ og lýsir afsögn Margaret
Thatcher sem forsætisráðherra með
því að vísa til síðustu kvöldmáltíðar
Jesú Krists. Thatcher er þar lýst sem
Kristi; breski ráðherrann Virginia
Bottomley er klædd sem þjónustu-
stúlka og færir forsætisráðherranum
fyrrverandi höfuð Neils Kinnocks, leið-
toga Verkamannaflokksins, á fati;
Norman Lamont fjármálaráðherra les
reikninginn; Michael Heseltine, sem
bauð sig fram gegn Thatcher, undirbýr
krossfestingu ... og sir Denis Thatch-
er krýpur undir borðinu.
SJAVARUTVEGUR
A SVEITINNI 10
N
RÍMSSON
SEGIRFRA STANG-
VEIÐI OG FLUGU-
HNÝTINGUM
BOSNÍII-
MENNIRNIR
ÍVAL
24
MARIE C
THERÉSE
ROBIN
BÚNDAKONA Á REFSSTÖOUM