Morgunblaðið - 16.08.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.08.1992, Blaðsíða 10
10 sefet i>.U()A ,oi }iui:'A<mvíviu« 'HUAaiivuuMor/ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1992 Skuldbreytinga- lán, Atvinnu- tryggingasjóður og Hlutaff jár- sjóóur dugóu ekki til. Nú er horff t til sveitar- félaganna i stór- auknum mæli og j»au kölluó til sjávarútvegs- fyrirtækjunum til bjargar. Haffa sveitarffélögin ffjárhagslegt bolmagn til þess aó axla ábyrgó- ina? Eóa er sú steffna ekki bara aóeins ávisun á skattpeninga ibúanna i Ijósi stóraukins þorskveióisam- dráttar á næst- unni og veró- lækkunará mörkuóum okk- ar erlendis? SUVHUTYEGW eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur. Smákóngasjónarmið, röng ákvarðanataka, offjárfesting, þröngsýni og lítil framtíðarsýn eru slagorð, sem oftar en ekki heyrast í umræðunni um sjávarútvegs- stefnuna. Okkur hefur, þrátt fyrir allt, tekist að halda íslenskum sjávarútvegi í fyrstu deild sjávar- útvegsþjóða, bæði hvað varðar fiskveiðar og fiskvinnslu. Þar með er þó ekki öll sagan sögð því grein- in í heild er skuldum vafin og mun í náinni framtíð, að minnsta kosti, búa við verulega rekstrar- og greiðsluerfiðleika, ekki síst í ljósi aukins samdráttar í þorskveiðum og verðlækkunar á mörkuðum er- lendis. Sú krafa verður æ hávær- ari meðal lánastofnana og sjóða að sveitarfélög axli fjárhagslega ábyrgð sjávarútvegsfyrirtækja. Sveitarstjórnarmenn hafa miklar áhyggjur af þessari þróun mála enda er þátttaka sveitarfélaga í atvinnurekstri ekki lögskylt verk- efni þeirra þó að í sveitastjórnar- lögum sé kveðið á um að þau skuli „gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir almennt atvinnuleysi og bjargarskort". Sveitarfélög eru nú nauðbeygð. Atvinna íbúanna er í veði. Menn hljóta því að spyrja: Eru bæjarútgerðir ekki aðeins ávísun á skattpeninga íbúanna þegar illa árar? Jú, vissulega,“ segir Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggða- stofnunar. Og hann bætir við: „Þegar ekki tókst að bjarga sjávar- útveginum með skuldbreytingalán- um hjá bönkum og sjóðum, var búinn til Atvinnutryggingasjóður útflutningsgreina síðla árs 1988. Þar sem hann dugði ekki til var kallaður til Hlutafjársjóður Byggða- stofnunar í byijun árs 1989. Þegar allt þetta þraut, er nú komið að því á einstökum svæðum á landinu að farið er að leita á náðir sveitarfélag- anná í stórauknum mæli með fjár- magn og ábyrgðir. Félagsmálastofnun Ég'hef satt best að segja miklar áhyggjur af bæjarútgerðum og er persónulega á móti þeim. Einhvern veginn verður það svo að það er eins og enginn beri almennilega ábyrgð á bæjarútgerðum. Menn hugsa sem svo að alltaf sé hægt að leita á náðir sveitarfélagsins með vandamálin. Á móti kemur það að sveitarfélagið freistast til þess að nota fyrirtækið, hvort sem um er að ræða útgerð eða fiskvinnslu, sem félagsmálastofnun fyrir sig. Og þá 'er farið að blanda saman atvinnu- starfsemi og félagsmálastarfsemi. Það á ekki vel saman. Annars veg- ar tel ég að hér eigi að vera öflug almenningshlutafélög þar sem að mikillar hagræðingar er gætt og stærðin sé þannig að fyrirtækin hafi efni á að hafa þá aðila í sinni þjónustu sem þau þurfa. Hinsvegar vil ég áfram sjá gott og hollt ein- staklingsframtak, sem sagt gamla útgerðarmanninn og litla fiskverk- andann. Þeir eiga báðir fullan rétt á sér.“ Hlutafjársjóður á 9.308 þorskígildi Hlutafjársjóður Byggðastofnunar á hlutafé í tíu sjávarútvegsfyrir- tækjum, allt frá 22% og upp i 48%. Alls hafa fyrirtækin, sem um ræðir, yfirráðarétt yfir 27.378 þorskígild- um. Miðað við 34% meðaleign- arhlutdeild í fyrirtækjunum tíu, hef- ur Hlutafjársjóður ráðstöfunarrétt á 9.308 þorskígildum sem áætla má í krónum talið að séu rúmar 1.650 milljónir króna. Nýlega auglýsti Hlutafjársjóður hlutabréf sín til sölu, en samkvæmt lögum skal stofnuninn bjóða þau til sölu eigi síðar en íjórum árum eftir kaup þeirra og eiga eigendur og starfs- fólk viðkomandi fyrirtækja for- kaupsrétt að hlutafénu. Þau sjávar- útvegsfyrirtæki, sem um ræðir, eru: Búlandstindur hf. á Djúpavogi, Fáfnir hf. á Þingeyri, Fiskvinnslan hf. Bíldudal, Gunnarstindur hf. Stöðvarfirði, Hraðfrystihús Grund- arfjarðar, Árnes hf. Stokkseyri, Hraðfrystihús Þórshafnar hf., Meit- illinn hf. Þorlákshöfn, Oddi hf. Pat- reksfirði og Tangi hf. Vopnafirði. Útistaridandi lán Atvinnutrygg- ingasjóðs vegna sjávarútvegs nema 8 milljörðum. Þar af nema vanskil við sjóðinn 800 milljónum. Um 60% af lánum Byggðastofnunar renna til sjávarútvegs, en útistandandi lán hennar nema 5,2 milljörðum og vanskil eru 700 milljónir. Ný lög um greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins koma að líkindum til með að létta á vanskilum, en úr Verðjöfnunarsjóði er gert ráð fyrir þremur milljörðum króna sem fara eiga í að standa straum af vanskila- skuldum sjávarútvegsins við banka og sjóði. Rekstrarerfiðleikar Nýlegar úttektir hafa sýnt að á undanförnum 10 árum hefursjávar- útvegurinn á engan hátt skilað nægilegum arði. Staða sjávarút- vegsins er nú þannig að greinin skuldar um 95 milljarða króna, en heildartekjur sjávarútvegsins á síð- asta ári voru um 75 milljarðar. Haustmánuðirnir reyndust sjávar- útveginum afar erfiðir og hafa fyr- irtækin eitt af öðru verið að kynna reikninga, sem sýna mikið tap á árinu 1991. Jafnframt er fyrirsjáan- legt að þau munu lenda í miklum rekstrar- og greiðsluerfiðleikum á næstu misserum og árum í kjölfar stóraukins kvótasamdráttar og sölutregðu á mörkuðum erlendis. Ekki er að vænta neinna heildar- björgunaraðgerða eða efnahagsað- gerða af hálfu ríkisstjórnar sem rétta af hag sjávarútvegsfyrirtækj- anna ef marka má stefnu hennar. Sú stefna hefur aftur á móti leitt til þess að sveitarfélög hafa í stór- auknum mæli verið nauðbeygð til þess að taka þátt í rekstri sjávarút- vegsfyrirtækja hringinn í kringum landið. Jafnframt hafa lánastofnan- ir gripið til þess að sameina skuld-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.