Morgunblaðið - 16.08.1992, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/IIMIMLEIMT
Raufarhöfn:
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1992
EFNI
Falleg loðna
en dauft yf-
ir veiðunum
ÞRJÚ skip lönduðu loðnu á Rauf-
arhöfn í gær. Engar loðnuland-
anir voru á miðvikudag, fimmtu-
dag og föstudag.
Þijú skip, Háberg GK, Guð-
mundur Ólafur ÓF og Súla EA,
lönduðu um 2.000 tonnum af loðnu
hjá SR á Raufarhöfn á þriðjudag.
Hlé varð á loðnulöndun miðviku-
dag, fimmtudag og föstudag en
aftur voru þrjár landanir í gær.
Um hádegisbil í gær sagði Haf-
þór Sigurðsson, vinnslustjóri SR,
að verið væri að ljúka löndun á 670
tonnum af loðnu úr Svani RE,
Bergur VE biði með 530 tonn við
bryggju og von væri á Guðmundi
Ólafi ÓF með tæp 600 tonn seinni-
part dags.
Sævald Pálsson, skipstjóri á
Bergi VE, sagði að dauft væri yfír
veiðunum þó eitthvað hefði glæðst
þegar skipt hafí verið um svæði
aðfaranótt laugardags. Hann sagði
að loðnan væri sérstaklega falleg.
Fyrir tonnið af loðnu fást 4.200 kr.
Átta loðnuskip eru á veiðum.
Steindórshúsið rifið
Steindórshúsið á Steindórsplani við Aðalstræti var
rifið árla í gærmorgun. Húsið er kennt við Stein-
dór Einarsson en hann rak bifreiðastöð í húsinu
um árabil. Anna Haarde, dóttir Steindórs, segir
að húsið hafí verið byggt árið 1938 á grunni eldra
stöðvarhúss. Mikil umsvif voru í kringum Bifreiða-
stöð Steindórs á árum áður og voru á tímabili
100 bifreiðar í ferðum fyrir stöðina, smábílar og
langferðabílar út á Iand. Aðstaða fyrir langferða-
bílana var á stórri lóð þar sem nú stendur Hafnar-
stræti 5. Bifreiðastöð Steindórs var stofnuð árið
1914 en hætti starfsemi í kringum 1980.
Stóraukin aðsókn að Kvenna-
athvarfinu það sem af er árinu
JAFNMARGAR konur hafa leitað til Kvennaathvarfsins það sem af
er þessu ári og allt síðastliðið ár. Á fyrstu þrettán dögum ágúst
leituðu 48 konur til athvarfsins. Líkamlegir áverkar á konunum sem
þangað leita hafa einnig aukist og að sögn starfskonu hjá Kvennaat-
hvarfinu er mikið um slæma og ljóta áverka. Stefnt er að því að
kaupa nýtt húsnæði fyrir starfsemina þar sem núverandi húsnæði
er of lítið, en samtökin eiga 10 ára afmæli á þessu ári.
Að sögn Valgerðar Jónsdóttur,
framkvæmdastjóra söfnunarátaks
Kvennaathvarfsins, hafa 216 konur
komið í Kvennaathvarfíð frá ára-
mótum til 14. ágúst. Ein kona er
þar að auki væntanleg þessa helgi
og er þá fjöldi þeirra kvenna sem
hafa leitað til Kvennaathvarfsins
það sem af er þessu ári orðinn jafn-
mikill og allt síðasta ár en þá leit-
uðu 217 til athvarfsins. Einnig hef-
ur fjöldi skráðra símtala i neyðar-
síma athvarfsins aukist á milli ára.
Árið 1990 var heildarfjöldinn 1.706
símtöl en í fyrra var hann 2.248.
Hiutfall kvenna utan af landi sem
leita til athvarfsins hefur aukist og
er nú um 30%. Einnig leita fleiri
erlendar konur búsettar hér á landi
til Kvennaathvarfsins. Valgerður
benti á í þessu sambandi að kynning
hefði aukist og konur viti því af
þessum möguleika meira en áður.
Hún sagði að einnig gerði smæð
samfélagsins það að verkum að ekki
væri hægt að reka kvennaathvörf
annars staðar en í Reykjavík, sér-
staklega þar sem leynd hvíldi yfír
heimilisfangi athvarfsins, og konur
utan af landi kæmu því þangað.
Stefna samtakanna væri að taka á
móti öllum konum jafnvel þó að
núverandi húsnæði væri að springa.
Valgerður kvað vera pláss fyrir 6
konur í athvarfínu en nú dveldu þar
10 konur. Hún sagði að það stæði
fyrir dyrum að kaupa stærra hús-
næði og væri undirbúningur söfnun-
arátaks hafínn.
Valgerður sagði að líkamlegir
áverkar hefðu aukist mjög mikið frá'
því sem áður hefði verið, en þeir
hefðu einnig verið áberandi í fyrra.
Hvað varðaði hugsanlegar ástæður
benti hún á samdráttinn i þjóðfélag-
inu til dæmis hvað varðaði atvinnu.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Fyrsta ferð Almenningsvagna
Almenningsvagnar bs. hófu starfsemi í gærmorgun, en starfsvettvang-
ur fyrirtækisins er fólksflutningar á höfuðborgarsvæðinu utan Reykja-
víkur og Seltjamamess, í Hafnarfírði, Kópavogi, Garðabæ og Mosfells-
sveit. Samstarf verður á milli Alménningsvagna bs. og Strætisvagna
Reykjavíkur. Fyrsta ferðin var farin frá skiptistöðinni við Fjarðargötu
í Hafnarfírði kl. 6.20 í gærmorgun og sjást á myndinni fyrstu farþeg-
arnir sem voru viðstaddir er fyrirtækið var formlega tekið í notkun.
Ókeypis •er með vögnum Almenningsvagna bs. um helgina.
Þórann Þórarinsdóttir, starfs-
kona hjá Kvennaathvarfínu, sagði
að hægt væri að vera með ýmsar
getgátur um ástæður þess að að-
sókn hefði aukist að Kvennaathvarf-
inu og líkamlegir áverkar aukist.
Hún sagði að margir þættir kæmu
til, en erfítt væri að fínna einn afger-
andi þátt. Þórann benti á að þær
konur sem leituðu til athvarfsins
nú væra margar búnar að vera í
10-15 ár í sambúð með sama manni
sem beitti ofbeldi og væra mörg
mál sem kæmu nú til meðferðar
erfið og svæsin. Hún sagði að mikið
væri um hrottalegt ofbeldi eins og
í fyrra og konurnar kæmu með
slæma og ljóta áverka. Hún undir-
strikaði að konumar kæmu úr öllum
stéttum og tók þar undir orð Val-
gerðar sem benti á að ofbeldi á
heimilum fyndist í öllum stéttum.
Valgerður sagði að Kvennaat-
hvarfíð hefði skilað mjög góðu starfi
bæði fyrir konurnar og einnig börn
þeirra. En frá áramótum til 14.
ágúst hafa 123 börn komið í at-
hvarfíð. Eins og kemur fram í árs-
skýrslu Samtaka um Kvennaathvarf
eru bömin síst minni þolendur í
heimilisofbeldi en mæður þeirra og
hjá Kvennaathvarfinu starfar sér-
stök kona sem sinnir málefnum
bama sem þar dvelja.
Lífeyrisjóðsgreiðslur skráðar á launaseðia:
Gengið verður frá mál-
inu í næstu samningum
- segir framkvæmdastjóri YSÍ
ALLAR líkur eru á að á næsta ári
muni greiðslur atvinnurekenda í
lífeyrissjóði verða skráðar á
launaseðla launþega. Þessar
greiðslur nema nú 6% af launum
á móti 4% sem launþegar sjálfir
greiða. Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSI, segir að
gengið verði frá málinu formlega
í næstu samningum enda eru aðil-
ar vinnumarkaðarins sammála um
að þetta eigi að koma til fram-
kvæmda.
„Hugsunin sem liggur að bakí
þessari skráningu er af tvennum
toga,“ segir Þórarinn. „Annars vegar
að gera launþegum betur grein fyrir
þeim fjárhæðum sem fari í iðgjöld
og hins vegar að efla eftirlit með
þessum greiðslum til lífeyrissjóð-
anna.“
í máli Þórarins kemur fram að
umræða um þetta mál hafí komið
upp í tengslum við umræðuna um
ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot
fyrirtækja. „Með þessu vinnst að ið-
gjöld ættu ekki að safnast upp hjá
atvinnurekendum og verða að stóram
vanskilakröfum," segir Þórarinn.
„Þótt reiknað sé með að ganga form-
lega frá málinu í næstu samningum,
en þeir eru lausir 1. mars, gæti jafn-
vel farið svo að gengið yrði frá mál-
inu fyrr. í það minnsta mundi þessi
skráning koma til framkvæmda á
næsta ári.“
Skráning á lífeyrisgreiðslum á
næsta ári á launaseðlum verður með
tvennum hætti, þ.e. sýnt verður hvað
launþeginn borgar, hvað atvinnurek-
andi borgar og heildarfjárhæðin sem
fer til lífeyrissjóðs viðkomandi.
Sophia hitti
ekki dætumar
FYRRUM eiginmaður Sophiu
Hansen braut í sjötta sinn dómsúr-
skurð um umgengnisrétt hennar
við dætur þeirra þegar hann kom
ekki með stúlkurnar, Dagbjörtu
og Rúnu, til fundar við Sophiu í
Istanbúl í Tyrklandi í gærmorgun.
Sophiu hefur verið dæmdur réttur
til að vera með dætrum sínum tvo
laugardaga í mánuði frá kl. 7 að
morgni til kl. 14 eftir hádegi. Faðir
telpnanna hefur hins vegar ekki kom-
ið með þær til fundar við hana í 6
seinustu skipti. Hans var leitað án
árangurs í Istanbúl í gær. Vonast
er til að stúlkurnar komi í leitirnar
þegar tyrkneskir skólar hefjast í
september.
Sjávarútvegur á sveit-
inni
► Skuldbreytingalán, Atvinnu-
tryggingasjóður og Hlutafjársjóð-
ur dugðu ekki til. Nú er horft til
sveitarfélaganna í stórauknum
mæli og þau kölluð til sjávarút-
vegsfyrirtækjunum til bjargar. En
hafa þau fjárhagslegt bolmagn til
þess að axla ábyrgðina?/ 10
í hægum valsi
►Kolbeinn Grímsson segir frá
stangveiði, fluguhnýtingum,
þroskaferli veiðimannsins og
fleiru./ 14
Vita ekki hvort fjöl-
skyldan er á lífi
►Bosníumennimir í Val, Salih
Porca og Izudin Dervic, hafa ekki
fengið neinar fréttir að heiman í
tæpa þijá mánuði./ 24
Bavinna/radoo
SMÁA UGL ÝSINGAR
FASTEIGNIR
► l-16
Cjg^J_
Það er ekkert að mér
► Um vorið var Marie Térése í
mánuð á Refsstöðum til að hjálpa
til við sauðburðinn. Og það varð
afdrifaríkt. Á Refsstöðum bjó
glæsilegur ungur maður, Gunnar
Pálsson. Islenskar vornætur, þegar
vakað er yfir ánum, hafa löngum
orðið ungu fólki skeinuhættar. /1
Ævintýriá Jökli
► Rætt við Matta Ósvald Ás-
björnsson áttræðan, sem fyrir 60
árum dvaldi í heilt ár á Snæfells-
jökli. /4
Kóngurinn
► Fyrir réttum fímmtán árum voru
tónlistaráhugamenn um allan heim
slegnir þegar spurðist að rokk-
kóngurinn Elvis Presley hefði dóp-
að sig í hel. Elvis var þá ekki nema
svipur hjá sjón, en tónlistin sem
hann tók upp á sjötta áratugnum
breytti ásýnd dægurtónlistarinnar
um alla framtíð./7
Sumar í lífi öfganna
►Á íslandi er engu að treysta,
sumarkoman er duttlungafyllri en
sjálf síldin og henni fylgir lauflétt
vitfirring á öllum sviðum, ekki síst
í tómstundaiðju: Allt annað hvort
of eða van. Oftast of./8
í Ástralíu
►Af fólki, náttúru og atvinnulífi
í Drottningarlandi./ 12
Af spjöldum glæpa-
sögunnar
► Hér segir af mannráni og svo-
nefndu Stokkhólms-sjúkdómsein-
kenni á háu stigi, er höfðingjadótt-
irin í Kansas City heillaðist af
ræningjum sínum og reyndi að
leiða þá af rangri braut./14
► FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir lOc
Leiðari 16 Dægurtónlist llc
Helgispjall 16 Myndasögur 16c
Reykjavíkurbréf 16 Brids 16c
Minningar 22 Stjömuspá 16c
íþréttir 24 Skák 16c
Fólk í fréttum 26 Bíó/dans 17c
Utvarp/sjónvarp 28 Bréf til blaðsins 20c
Gárur 31 Velvakandi 20c
Mannlifsstr. 6c Samsafnið 22c
INNLENDARFh .ÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4