Morgunblaðið - 16.08.1992, Page 16

Morgunblaðið - 16.08.1992, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1992 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1992 17 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías lohannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið. Tengsl Alþýðu- bandalags við Moskvu Ekki er nema rúm vika liðin frá því, að Ólafur Ragnar Gríms- son, formaður Alþýðubandalagsins efndi til blaðamannafundar til þess að skýra þjóðinni frá því, að könnun á fundargerðarbókum flokksins hefði leitt í ljós, að engiri sarnskipti hefðu verið við kommúnistaflokka í Sovét- ríkjunum og öðrum Varsjárbanda- lagsríkjum, sem stóðu að innrásinni í Tékkóslóvakíu eftir að Alþýðu- bandalagið var gert að formlegum stjórnmálaflokki haustið 1968. I Morgunblaðinu í gær birtist frétt, sem sýnir svo ekki verður um villzt, að fundargerðarbækur flokksins segja enga sögu um þetta mál eins og raunar var bent á í forystugrein Morgunblaðsins fyrir viku. Arnór Hannibalsson, prófessor, hefur að undanfömu dvalizt í Moskvu við könnun á gögnum um samskipti kommúnista á Islandi við sovézka kommúnistaflokkinn. Hann skýrði frá því hér í blaðinu í gær, að sam- kvæmt þessum gögnum hefði fulltrúi miðstjórnar Kommúnistaflokks Sov- étríkjanna fengið fullvissu fyrir því í samtölum við þrjá þáverandi for- ystumenn Alþýðubandalagsins árið 1970, þá Lúðvik Jósepsson, Magnús Kjartansson og Eðvarð Sigurðsson, að stefnuskrá Alþýðubandalagsins yrði sósíalísk og marxísk. Er þessa fundar getið í fundargerðarbókum Alþýðubandalagsins?! Þá kemur fram í þeim gögnum, sem Arnór Hannibalsson hefur kann- að, að miðstjórn sovézka kommún- istaflokksins samþykkti á árinu 1970 að koma á óopinberu sambandi við Alþýðubandalagið og að sendiherra Sovétríkjanna á íslandi hafi fengið fyrirmæli um, hvemig hann ætti að haga þeim samskiptum. Ennfremur kemur fram, að miðstjórn sovézka kommúnistaflokksins hafí samþykkt á árinu 1974 að senda þrjá sendi- menn til íslands til þess að eiga óformlegar samningaviðræður við forystu Alþýðubandalagsins í þeim tilgangi að endurvekja samskipti flokkanna. Þessar upplýsingar sýna með ótví- ræðum hætti, að eftir að Alþýðu- bandalagið var gert að formlegum stjómmálaflokki 1968 voru sam- skipti á milli forystumanna þess flokks og sovézka kommúnista- flokksins. Að þau hafi verið við þá þijá einstaklinga, sem nafngreindir eru, kemur ekki á óvart enda benti Morgunblaðið á það í forystugrein sl. sunnudag, að ráðherradómur Magnúsar Kjartanssonar og Lúðvíks Jósepssonar 1971-1974 væri til marks um bein tengsl Alþýðubanda- lagsins við forvera þess, Sósíalista- flokkinn og Kommúnistaflokk _ ís- lands. Það er tímabært fyrir Ólaf Ragnar Grímsson að kanna fleira en fundargerðarbækur Alþýðubanda- lagsins! Menn bíða spenntir eftir næsta blaðamannafundi formanns Alþýðubandalagsins um málið. Hann fer kannski bráðum að átta sig á því í hvaða flokki hann er!! í FRAM- • haldi af því sem hér hefur verið sagt er ekki úr vegi að minnast á ritdóm sem GabrieUosipovici hefur skrifað í TLS um bandarísku skáldsöguna The Runaway Soul eftir Harold Brod- key. Hann skrifaði sögur sem vöktu mikla athygli fyrir mörgum árum, en hefur nú loks sent meistaraverk- ið frá sér eftir langa þögn. Áður var talað um hann einsog búast •mætti við nýjum Joyce og svo birt- ist verkið mikla að lokum, 835 blað- síður og metnaðarfullt að sama skapi. En nú sprakk blaðran. Hið of- metna skáld er sagt vera í sömu klæðum og keísarinn í ævintýri Andersens. Ég þekki aðvísu ekki söguna, en þessi athugasemd Josipoviois og margra fleiri á svo sannarlega erindi við okkur einsog við látum og búum til uppákomur í tengslum við þóknanlega „snill- inga“ sem kunna á formúlur mark- aðarins einsog viðhlæjendur þeirra: „Sannleikurinn er sá, að metnað- ur í listum, sem er að sínu leyti ekkert minni en í stjórnmálum eða íþróttum, virðist ekki falla undir neitt utanaðkomandi eða almennt mat. Þegar allt kemur til alls virð- ist metnaður listamannsins felast í því að vera sjálfum sér samkvæmur og ávinna sér virðingu þeirra, sem hann metur mest — látinna manna jafnt sem lifandi. Þessi þrá virðist haldast í hendur við góða greiningu á eigin getu og djúpan skilning á því hvað bezt er í listum eða bók- menntum líðandi stundar. Hluti af því, sem við m'etum mest hjá Borg- es, Sciascia og Muriel Spark, er til- finning þeirra fyrir eigin takmörk- unum. Því má þó ekki gleyma, að í listum eru engar leiðir iokaðar. Spretthlauparinn lætur sig ekki dreyma um maraþon en hvern skyldi hafa órað fyrir því með fyrri verk hans í huga, að Perec ætti eftir að skrifa La V7e mode d’emploi? Samt óx verkið með hon- um og varð til vegna innri nauðsynj- ar, hæfileika, mikillar vinnu og hejjpni. Áður fyrr reyndu ríkisstjórnir og þeir, sem tóku rithöfundana upp á arma sína, að ráða yfir þeim. Nú eru það peningarnir, sem hafa tek- ið þetta að sér, og vonin um skyndi- lega frægð. Miklir listamenn standast þessa ásókir með sama hætti og fyrr en þeir, sem smáir eru í sniðum, falla fyrir henni eins og þeir hafa alltaf gert. The Runaway Soul virðist hafa orðið það, sem hún er, fyrir einhveija blöndu af óspenn- andi naflaskoðun, lönguninni til að skrifa „Stóru, amerísku skáldsög- una“ og þörf útgefenda og fjöl- miðla fyrir einmitt þess háttar verk. Það er ekki uppskriftin að góðri list.“ Þá vita menn það, þótt ég geri ekki ráð fyrir að hasarnum linni meðan sjálfsfullnægingarþörfm yf- irgnæfir þroskahvötina. Það er að vísu gott að kunna að fóta sig og mæta þeirri gerninga- hríð sem töframenn markaðarins og frægðarstreðsins magna sífelld- lega, einkum í fjölmiðlum. En það er ekki sama hvernig menn veijast þessari ásókn. Það er stundum nauðsynlegt að kunna að grafa sig í fönn. Það er ekkisízt mikilvægt fyrir listamenn sem taka verk sín alvarlega og líta ekki á þau einsog hveija aðra uppá- komu. Eða útsölu. HJÖRTUR KRIST- •mundsson skólastjóri var bróðir Steins Steinars. Það kom fyrir ég hitti þá bræður saman, það var eftirminnilegt. Eitt sinn hlust- aði ég á þá heima í Fossvogi rífast hastarlega um sauðfjárrækt. Mér varð raunar svo mikið um að ég hef löngu gleymt því hvaða skoðun þeir höfðu á þessu viðkvæma máli, ég veit það eitt að þeir voru ósam- mála og Steinn sagði Hjörtur hefði ekki hundsvit á sauðfjárrækt. Sjálf- ur talaði hann um þessa búgrein af allmiklum myndugleika. Hjörtur mat Stein bróður sinn mikils og ég naut góðs af því. Ein- hveiju sinni þégar við Hjörtur vor- um að rabba saman löngu eftir að Steinn var allur og samtalið fór á víð og dreif hafði ég orð á því ég héldi að hans kynslóð væri þrosk- aðri en mín. Það er vegna þess hún er eldri, sagði hann. En þín kynslóð hefur tekið út þroska sinn miklu fyrr en mín. Þið talið einsog sá sem valdið hefur í hverri grein. Ég sagði, Ætli það sé þroski, ætli það séu ekki heldur áhrif frá umhverfinu þegar maður var ungur og vissi allt. Nei, sagði hann með áherzlu, þetta er staðreynd. Ungt fólk nú tekur miklu fyrr út þroska en feður þess og mæður. Ég var í nokkrum vafa en þá bætti Hjörtur við með áherzlu, Og þetta er ekki slæmur þroski, heldur góður. Ég ætlaði að fara að malda í móinn en þá greip hann enn fram í og sagði dapur, Það er leiðinlegt að hafa aldrei komizt til neins þroska, þótt maður hafi haft þó- nokkurt vit. EITT AF HLUTVERKUM • skólanna ætti að vera að kenna nemendum að grafa sig í fönn, sagði Hjörtur. Skaflarnir eru margir á lífsleiðinni. Þess vegna eigum við ekki áð lengja skólaárið heldur á íslenzk æska að halda áfram að kynnast fóikinu í landinu og atvinnuháttum til sjávar og sveita. Það eru ekki einungis for- réttindi, heldur mikilvæg forrétt- indi. Bæði fyrir æskuna og þjóðina. Það er gott að kunna að grafa sig í fönn þegar verstu byljir múg- mennskunnar ganga yfir, og bíða þess að hríðinni sloti. Við erum nú í slíkri manndrápshríð miðri. Og svo hafa eyðni og eiturlyf bætzt við. MENN TALA STUNDUM •um að þessi eða hinn sé mestur, jafnvel þegar þeir eru að bera saman listamenn, gjörólíka(!) Slíkur samanburður er fánýtur. Einn listamaður getur átt betur við en annar í vissum tilfellum, það er allt og sumt. Þannig minnir Jack Kerouac á Rimbaud, þegar hann talar um mikið skáld í hugmynda- ríkri ferðaskáldsögu sinni On the Road; ekki Baudelaire. Nöfn skáld- anna koma okkur ekki í hug eftir kerfi sem einhveijir alvitringar tölvusetja. Rimbaud á einfaldlega betur við það hráslagalega og spennandi ævintýri sem Kerouac er að lýsa í ferðasögu sinni en Baud- elaire eða önnur ljóðskáld. Þar minnir ýmislegt á það umhverfi sem ljóð Rimbauds eru sprottin úr og svipaða eftirsókn eftir fullnægingu sem fyllir þó ekkert tóm. M. (meira næsta sunnudag.) HELGI spjall REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 15. ágúst NÝJARTÖLUR UMAT- vinnuleysi á þessu sumri valda miklum áhyggjum. Þegar at- vinnuástand er svo erfítt sem raun ber vitni að sumri til má búast við, að harðni á dalnum þegar kemur fram á haust og vetur og mjög dregur úr verklegum fram- kvæihdum. Gengið er út frá því sem vísu, að umsvif verktaka- og byggingafyrir- tækja minnki verulega þegar kemur fram á haustið og tölur, sem birtar voru í við- skiptablaði Morgunblaðsins sl. fimmtudag sýna samdrátt í ýmsum greinum verzlun- ar og þjónustu. Sérfræðingar spá meira atvinnuleysi á næsta ári. Margt bendir til, að viðvarandi atvinnu- leysi geti orðið hér á næstu misserum en slíkt hefur ekki gerzt í u.þ.b. aldarfjórð- ung. Viðvarandi atvinnuleysi skapar veru- legan óróa í þjóðfélaginu og margvísleg átök. Þetta er sama þróun og orðið hefur í öðrum löndum, þótt hún hafi orðið mun seinna hér. Á móti kemur minnsta verð- bólga í áratugi, sem leitt hefur til stöðug- leika í efnahagsmálum, sem almenningur vill áreiðanlega halda í svo lengi sem kost- ur er. Slíkt gerist ekki átakalaust eins og dæmin sanna bæði hérlendis og erlendis. Nú þegar má sjá merki þess, að vax- andi atvinnuleysi á eftir að leiða til harðra átaka á vettvangi stjórnmálanna. Tíminn birtir í dag, laugardag, mjög harðorða ályktun þingflokks og landsstjórnar Fram- sóknarflokksins, sem haldinn var á Egils- stöðum í gær, föstudag, þar sem segir m.a.: „Meiri átök eru nú framundan í ís- lenzkum stjórnmálum en verið hefur um langan tíma. Þau stafa af þeirri samdrátt- ar- og gjaldþrotastefnu, sem ríkisstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks rekur. Þessi stefna hefur nú þegar leitt til stöðn- unar, samdráttar og gjaldþrota margra fyrirtækja. Almennt atvinnuleysi er ört vaxandi í fyrsta sinn í marga áratugi, með þeim alvarlegu afleiðingum, sem það hefur í för með sér.“ Þing Alþýðusambands íslands kemur saman í fyrsta sinn í fjögur ár nú í haust. Ef svo fer fram sem horfir í atvinnumálum verður atvinnuleysið stærsta málefni þess þings og í kjölfar þess má búast við, að verkalýðshreyfingin leiti leiða til þess að láta að sér kveða svo um munar. Ekki er nema rúmlega hálft ár þar til kjara- samningar renna út. Þeir samningar verða mun erfíðari viðureignar en þeir síðustu m.a. vegna þess, að bæði í febrúar 1990 og nú í vor voru miklar kröfur gerðar til þolinmæði launþega. í kjarasamningunum sl. vor var sett á stofn atvinnumálanefnd á vegum ríkis- stjórnar og aðila vinnumarkaðar. Sú nefnd hefur engum tillögum skilað enn sem komið er, en ef marka má orð Ólafs Dav- íðssonar, ráðuneytisstjóra í forsætisráðu- neytinu, í Morgunblaðinu í dag, laugar- dag, en hann.er formaður nefndarinnar, má gera ráð fyrir, að ráðgjöf hennar verði almenns eðlis. Fyrir aldarfjórðungi þótti sjálfsagt, áð ríkisvaldið hefði bein afskipti af atvinnu- málum, þegar atvinnuleysi sótti að og þáverandi Viðreisnarstjórn tók til hendi með margvíslegum hætti. Þetta þykir ekki jafn sjálfsagt nú. Á síðustu árum eða ára- tug hefur sú skoðun orðið almenn, að ríkis- valdið eigi lítil afskipti að hafa af atvinnu- málum og markaðurinn eigi að ráða ferð- inni. Afskipti ríkisvalds geri jafnvel illt verra og leiði ekki til frambúðarlausnar heldur skyndilausna, sem engan vanda leysi, þegar til lengri tíma er litið. Þessi viðhorf eru mjög almennt ríkjandi nú um stundir innan beggja stjórnarflokkanna. Afskipti op- inberra að- ila af at- vinnumálum EITT AF HELZTU markmiðum núver- andi ríkisstjórnar er að draga úr þátt- töku opinberra að- ila í atvinnumálum. í samræmi við það markmið hefur rík- isstjórnin hafízt handa um svonefnda einkavæðingu, þ.e. að selja atvinnufyrir- tæki í eigu ríkisins eða hlut ríkisins í ein- stökum fyrirtækjum. Um þessa stefnu er nokkuð almenn samstaða og verulegt fylgi í landinu eins og ný skoðanakönnun Hag- vangs sýnir. Opinber rekstur atvinnufyrir- tækja hefur reynzt illa og það er líka al- menn skoðun meðal fólks, að einkafyrir- tæki séu betur rekin, eins og könnunin sýnir einnig. Afskipti ríkisvaldsins hafa ekki einung- is verið með þeim hætti, að opinberir aðil- ar hafi rekið fyrirtæki í eigu ríkisins eða að ríkið hafi átt hlut í fyrirtækjum. Stjórn- málamenn hafa beitt áhrifum sínum til þess að dæla peningum í nýjar atvinnu- greinar með hörmulegum afleiðingum eins og loðdýrarækt og fiskeldi eru skýr dæmi um. Síðasta ríkisstjóm Steingríms Her- mannssonar ætlaði að koma atvinnulífinu til bjargar með því að beina aðstoð ríkis- valdsins í gegnum sjóði eins og Atvinnu- tryggingasjóð og Hlutafjársjóð. Sú aðferð hefur heldur ekki gengið upp eins og staða fyrirtækjanna nú sýnir. Beinir peningastyrkir til atvinnufyrir- tækja hafa ekki tíðkazt árum eða áratug- um saman og mörgum kemur vafalaust á óvart, að núverandi ríkisstjórn hefur orðið sú fyrsta í langan tíma til þess að orða slíkar peningagreiðslur, þótt síðustu frétt- ir bendi til, að sá stuðningur eigi ekkert síður að vera í formi eftirgjafar ávöxtum í einstökum lánasjóðum en beinum pen- ingagreiðslum. Það er hins vegar ekki alveg út í hött, þegar Ingibjörg Pálmadótt- ir, þingmaður Framsóknarflokksins, spyr, hvort slíkar greiðslur flokkist ekki undir sértækar aðgerðir, sem ríkisstjórnin hefur lýst sig mótfallna. Á sama tíma og ríkisstjórnin vinnur að því að draga úr afskiptum hins opinbera í atvinnulífinu og menn standa frammi fyrir gjaldþroti sjóðaleiðar Steingríms Hermannssonar og ríkisstjórnar hans, verður hins vegar ekki horft fram hjá því, að opínber afskiþti og opinber þátt- taka í atvinnulífi eru að aukast á öðrum vettvangi, eins og glögglega kemur fram í grein í þessu tölublaði Morgunblaðsins. Þar er um að ræða beina eða óbeina þátt- töku sveitarstjórna víðs vegar um landið í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Hér er ýmist um að ræða, að sveitarfélögin ganga í ábyrgðir fyrir fyrirtækin eða leggja þeim beinlínis til hlutafé og verða þar með stór- ir eignaraðilar að þeim. Það er því ekki fráleitt að tala um, að bæjarútgerðir séu að skjóta upp kollinum á nýjan leik á tím- um einkavæðingar. Það er hins vegar al- veg ljóst, að það er ekki markviss stefna sveitarfélaganna að verða þátttakendur í atvinnulífínu heldur telja þau sig ekki eiga annarra kosta völ til þess að tryggja at- vinnu í viðkomandi byggðarlagi. Á meðan ríkisstjórnin berst fyrir einka- væðingu og sveitarfélögin telja sig knúin til að fara í þveröfuga átt eru umræður um atvinnumál í sjálfheldu. Andstaðan við kvótakerfið er orðin svo mögnuð, að jafnvel talsmenn þess eru byijaðir að ljá máls á einhveijum breytingum. Umræður um beina peningastyrki til útgerðar hafa vakið upp raddir um að nú eigi að af- henda kvótahöfunum meira fé. Sjálfheldan í umræðum um fískveiðistefnuna er aug- ljós. Hvorki gengur né rekur í störfum þeirrar nefndar, sem ríkisstjórnin skipaði til að endurskoða fiskveiðistefnuna. Raddir eru uppi um nauðsyn gengisfell- ingar en andstaða við gengisfellingu er gífurleg enda mundi hún kollvarpa þeim árangri, sem náðst hefur í efnahagsmálum og baráttunni við verðbólguna. Aðgerðir til endurskipulagningar og hagræðingar í sjávarútvegi virðast ekki ná lengra en til sameiningar fyrirtækja og margir spyija hvaða gagn sé af slíkri sameiningu, ef um sé að ræða sameiningu illa staddra fyrirtækja og ekkert nýtt komi til. ÞEGAR SJÁLF- heldan í umræðum um atvinnumál er svo augljós er gagnlegt að líta til umræðna í öðrum löndum og sjá hvað þar er að gerast en eins og Morgun- blaðið hefur margsinnis bent á, er við svipuð vandamál að stríða beggja vegna Atlantshafsins og hér og þess vegna má kannski eitthvað af slíkum umræðum læra. í nýju tölublaði tímaritsins Harvard Business Review er birt grein eftir mann að nafni Kevin P. Philips, sem hefur skrif- að ýmsar bækur um atvinnu- og þjóðfé- lagsmál í Bandaríkjunum. I grein þessari fjallar höfundurinn um þær umræður, sem fram hafa farið þar síðasta áratuginn þess efnis, hvort yfirleitt ætti að vera til staðar einhver opinber atvinnumálastefna. Slíkar umræður hafa farið fram vestan hafs m.a. vegna þess, að í Japan hefur verið svo náið samstarf opinberra aðila og einkafyrirtækja um atvinnumálastefnu, að sumir hafa fullyrt, að hinni japönsku iðnaðaruppbyggingu og markaðssókn er- lendis hafi verið stýrt úr ráðuneytum þar í landi. Þá hafa menn einnig veitt eftir- tekt sterkri stöðu þýzks atvinnulífs á und- anförnum áratugum en þar hefur verið um að ræða náið samstarf stjórnvalda, banka og fyrirtækja í atvinnumálum. Loks hefur athyglin einnig beinzt að Frakk- landi seinni árin en á Vesturlöndum hefur því verið veitt eftirtekt seint og um síðir, að franska efnahagsundrið __ er kannski ekkert minna en það þýzka. í Frakklandi hefur verið um að ræða mjög náið sam- starf stjórnvalda og einstakra fyrirtækja í atvinnumálum og raunar fullyrt, að heild- arstefna um uppbyggingu einstakra iðn- greina hafi verið mörkuð í nánu sam- starfi stjórnenda fyrirtækjanna og franskra embættismanna. Deilur um þessi málefni komu upp í brezka íhaldsflokknum á síðasta áratug og voru m.a. undirrót að þeirri spennu, sem ríkti á milli Margrétar Thatcher og Michael Hezeltine, en framboð hans gegn henni leiddi að lokum til falls Thatcher. Hezeltine hefur verið boðberi opinberrar atvinnumálastefnu í einhverri mynd en Thatcher trúði á markaðinn. í fyrrnefndri grein í Harvard Business Review minnir höfundur á umræður í Bandaríkjunum á síðasta áratug um kosti og galla opinberrar atvinnumálastefnu. Talsmenn slíkrar stefnu hafí mælt með því, að opinberir aðilar legðu hinar stóru línur til þess að auka samkeppnishæfni bandarísks atvinnulífs en gagnrýnendur hafi haldið því fram, að einungis markað- urinn sjálfur gæti verið grundvöllur að ákvörðunum opinberra aðila um efnahags- mál. Höfundur heldur því fram, að í upp- hafi þessa áratugar hafi smátt og smátt byrjað að mótast málamiðlun á milli þess- ara tveggja ólíku sjónarmiða. Báðir stóru stjómmálaflokkamir vestan hafs leggi nú minni áherzlu á, að markaðurinn einn eigi að ráða ferðinni og fáir dragi í efa rétt- mæti þess, að af opinberri hálfu verði lagð- ar línur eða einhvers konar rammi settur utan um starfsemi atvinnulífsins. Athyglisverð eru þau viðhorf höfundar, að ýmis tízkufyrirbrigði síðasta áratugar hafí ekki reynzt sem skyldi. Hann heldur því fram, að aukið frelsi á fjármálamark- aði, í rekstri kapalkerfa og í flugi hafi leitt til brasks, misbeitingar í verðlagningu og minna öryggis. Þá hafi trú manna á, að vestræn þjóðfélög væru komin svo langt á þróunarbrautinni, að þjónusta mundi taka við af framleiðslu beðið hnekki og nú sé til staðar sannfæring um, að öflugur framleiðsluiðnaður sé forsenda velmegunar, útflutningsstarfsemi og há- launastarfa. Það er svo sem ekkert nýtt að viðtekn- ar skoðanir séu teknar til endurmats í ljósi fenginnar reynslu. En spurning er, hvort við Islendingar, sem erum þrátt fyrir allt svo einangraðir, að það tekur hugmynda- strauma nokkur ár að berast hingað til lands, höfum einhveija tilburði til að beita aðferðum síðasta áratugar til lausnar á vandamálum þessa áratugar. Reynsla okkar af opinberum rekstri í nánast hvaða mynd sem er verður að telj- ast slæm. Við sitjum uppi með stórkost- lega skuldabyrði vegna rangra ákvarðana, sem teknar hafa verið um fjárveitingar, hvort sem er í Kröfluvirkjun, loðdýra- rækt, fískeldi, ullariðnaði og útflutningi, svo að dæmi séu nefnd. Sjóðaaðferðin, þ.e. fjárveitingar til atvinnulífs í gegnum Atvinnutryggingasjóð og Hlutafjársjóð, var ekkert annað en sjálfsblekking. Hvað er þá eftir? Hvaða aðferðum eig- um við að beita til þess að ná okkur á strik og bijótast út úr þeirri sjálfheldu kreppu og samdráttar, sem við höfum verið í sl. íjögur ár? Markaðsöflin eiga að ráða ferðinni segja sumir og það er áreiðanlega rétt að vissu marki. Markað- urinn hefur skilað stórkostlegum árangri í lækkun matvöruverðs, svo að dæmi séu nefnd. En á öðrum sviðum og alltof mörg- um er nánast enginn markaður á íslandi. Fyrr var að því vikið, að þýzkt atvinnu- líf hefði verið byggt upp með náinni sam- . vinnu atvinnufyrirtækja, banka og stjóm- valda. Hér á landi eru bankar og aðrar fjármálastofnanir mjög veigamikill aðili að atvinnulífínu, þótt ekki sé um að ræða beina eignaraðild að atvinnufyrirtækjum eins og í Þýzkalandi nema í undantekning- artilvikum. í bönkum og öðrum lánastofn- unum hefur byggzt upp mikil þekking á atvinnulífínu. Af hálfu bankanna hér er nú veitt ráðgjöf um rekstur í stórauknum mæli. í raun og veru er fráleitt að tala um einhver umtalsverð átök í atvinnulífi Morgunblaðið/Kristinn hér án þess að bankar og aðrar fjármála- stofnanir komi þar við sögu. Myndin, sem við blasir er sú, að tals- menn atvinnulífsins og þá sérstaklega sjávarútvegsins standa í eilífu þrasi við stjórnvöld og einstaka ráðherra. Það á ekkert frekar við um þessa ríkisstjórn en fyrri ríkisstjórnir. Ráðherrar standa í stöð- ugu þrasi sín í milli. Stundum mætti ætla, að ekki væri um að ræða eina ríkisstjórn heldur tíu vegna þess, að hver fagráð- herra berst svo hart fyrir hagsmunum síns ráðuneytis að því er virðist án þess að hafa heildaryfirsýn. Bankarnir beijast fyrir sínum hagsmunum, hækka þjónustu- gjöld og auka vaxtamun, ef rekstrarstaðan krefst þess. íslenzkt þjóðfélag er hins vegar svo lít- ið, að það er ekki við góðu að búast, ef þeir aðilar, sem ættu að starfa saman, stefna hver í sína átt eða hugsa fyrst og fremst um þrönga eiginhagsmuni. Stór- aukið samstarf þeirra þriggja aðila, sem mestu skipta í atvinnulífi okkar, þ.e. at- vinnufyrirtækjanna sjálfra, banka og ann- arra lánastofnana og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, hlýtur að vera ein af forsendum þess, að okkur takist að bijótast út úr þessum vítahring. Almenn stefnumörkun, sem þessir þrír aðilar koma að, leggur hinar stóru línur, náið sam- starf banka og einstakra fyrirtækja trygg- ir framkvæmd þeirrar stefnumörkunar. í stórum dráttum eru þetta þær aðferð- ir, sem notaðar hafa verið með mismun- andi tilbrigðum í Þýzkalandi, Frakklandi og Japan. Hugmyndaheimur okkur íslend- inga hefur hins vegar verið tengdari hinum engilsaxneska m.a. vegna málakunnáttu okkar. En staðreyndin er sú, að banda- rískt og brezkt atvinnulíf hefur átt undir högg að sækja á undanförnum árum og áratugum á sama tíma og uppgangur hefur verið í hinum löndunum þremur. Bandaríkjamenn og að nokkru leyti Bretar horfa til reynslu þessara þjóða. Er ekki kominn tími til að við gerum það líka? Umræður um atvinnu- málastefnu í öðrum lönd- um A „Islenzkt þjóðfé- lag er hins vegar svo lítið, að það er ekki við góðu aðbúast, ef þeir aðilar, sem ættu að starfa saman, stefna hver í sína átt eða hugsa fyrst og fremst um þrönga eigin- hagsmuni. Stór- aukið samstarf þeirra þriggja að- ila, sem mestu skipta í atvinnu- lífi okkar, þ.e. at- vinnufyrirtækj- anna sjálfra, banka og annarra lánastofnana og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfé- laga, hlýtur að vera ein af for- sendum þess, að okkur takist að brjótast út úr þessum vítahring. Almenn stefnu- mörkun, sem þessir þrír aðilar koma að, leggur hinar stóru línur, náið samstarf banka og ein- stakra fyrirtækja tryggirfram- kvæmd þeirrar stefnumörkun- ar.“ /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.