Morgunblaðið - 16.08.1992, Qupperneq 26
ÍSIENSKA AUCLÝSINCASTOFAN HF.
26
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1992
TILBOÐ
ÓSKAST
í Toyota 4-Runner árgerð ’89 (ekinn 49
þús. mílur), Jeep Wrangler 4x4 árgerð '90
(ekinn 13 þús. mílur), Chevrolet BlazerS-10
Tahoe 4x4 árgerð '87 og aðrar bifreiðar,
er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðju-
daginn 18. ágúst kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
SKAGAROKK
Pottaplöntur
o g púkar á sviðinu
Það hyllir nú undir ann-
ars ólíklega uppá-
komu þar sem er Skaga-
rokkið svokallaða sem
fram fer daganna 25 og
26. september með þátt-
töku tveggja gamal-
reyndra og heimsþekktra
rokkhljómsveita, Jethro
Tull og Black Sabbath.
Tónleikahölduðir eru á
þönum við undirbúninginn,
en fregnir berast að utan
af væntanlegum gestum,
liðsmenn Jethro Tull senda
með símritum undarlegar
kröfur um hvað skuli vera
til staðar í búningsklefan-
um og á sviðinu er þeir
leika og liðsmenn Black
Sabbath eiga í sínum enda-
lausu erjum við sértrúar-
hópa sem telja þá útsendara Lúsifers
til að svala fýsnum þeirra sem illt
stunda.
Sigurður Sverrisson ritstjóri á
Akranesi er forsprakki Skagarokks
og hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þó hann hefði vitað fyrir-
fram að hann myndi hafa í nógu að
snúast er málið færi að vinda upp á
sig þá vjeri slík lýsing nú augljóslega
hlægileg. Svona lagað væri ótrúleg
snúið og sýndi alltaf á sér nýjar hlið-
ar. Eitt er sérviska hinna erlendu
listamanna. Skömmu eftir að samið
var við skosku rokkaranna í Jethro
Tull kom t.d. langur listi yfir það sem
þurfti að vera til staðar til þess að
þeir næðu réttu andlegu ásigkomu-
lagi. Sem dæmi má nefna að tiltek-
inn fjöldi handklæða átti að vera til
staðar. ÖII ný, en samt þvegin einu
Ian Anderson situr til borðs og tveir fé-
laga hans eru skammt undan.
sinni! Það nýjasta nýtt kom á símrita
frá herbúðum laxabóndans Ians
Andersons, forsprakka sveitarinnar
fyrir stuttu. „Þeir krefjst þess nú,
að útvegaðar verði tíu tveggja metra
háar pottaplöntur sem eigi að vera
á sviðinu hluta af tónleikunum. Sveit-
in hefur einnig beðið um hringlaga
borð og fjóra stóla að hætti franskra
kaffihúsa. Við vitum ekki enn þá
hvað þeir félagar ætlast fyrir og bíð-
um eiginlega spenntir eftir því hvað
verður beðið um næst,“ sagði Sigurð-
ur Sverrisson. Og hann bætti við,
að félagarnir í Jethro Tull séu svo
spenntir fyrir íslandsheimsókninni,
að þeir hafa óskað eftir því að dvelj-
ast á landinum tveimur dögum leng-
ur en til stóð í fyrstu til að geta
heilsað aðeins upp á land og þjóð.
Það gustar meira um Black Sab-
Ronnie James Dio söngvari Black
Sabbath þenur raddböndin.
bath sem er á tónleikaferð um
Bandaríkin. Er sveitin að kynna nýj-
ustu breiðskífu sína, „Dehumanizer",
heitir hún og hvar sem þeir koma
taka á móti þeim fulltrúar sértrúar-
hópa. Frá fyrstu tíð hefur það orð
farið af sveitinni að hún sé hand-
bendi hins illa og trúarhóparnir hafa
efnt til mótmæla við tónleikahallirn-
ar. „Þeir telja sig vera illa mis-
skylda," segir Sigurður. „Frá fyrstu
tíð hafa þeir .verið með tákn á svið-
inu hjá sér, kross á hvolfi og þvíum-
líkt, en þeir fullyrða að slíkt sé að-
eins til merkis um ævarandi átök
góðs og ills í heiminum. Þeir fullyrða
að þeir séu ekki djöflatrúar, þvert á
móti trúi þeir á guð og ganga allir
með krossa um hálsinn. Hins vegar
hafi þeim snemma orðið ljóst að illt
umtal hafi verið betra en ekkert í
hinum harða heimi samkeppninnar
og því hafi þeir um tíma ekki neitað
ásökunum. Á ferðalagi sínu nú eru
þeir með risastóran kross að baki sér
á sviðinu og situr púki vopnaður þrí-
forki uppi á honum. Þeir segja þetta
enn eitt táknið um baráttu góðs og
ills, en sértrúarhóparnir segja þetta
staðfesta djöflatrúnna og storka
sannkristnum," segir Sigurður.
Sídustu sæthi að sefast
Costa del Sol með sérstöku hausttflboði
Vikuferðir:
1.-8. sept. 7 sæti laus
8. - 15. sept. 12 sæti laus
Verð
Jíf.*
á mann í tvíbýli í stúdíói á Costa Lago.
Tveggja vikna ferðir:
1. - 15. sept. 5 sæti laus
15. - 29. sept. Laus sæti
Verð
'fJMv Jf.*
á mann í tvíbýli í stúdíói á Costa Lago.
Þriggja vikna ferðir:
18 ágúst. - 8. sept. Uppselt
8. - 29. sept. Laus sæti
Vérð
Ét h tJ)-s) II ifi f *
Jh
á mann í tvíbýli í stúdíói á Costa Lago.
^ÍIVAL-ÍTSÝI
íMjódd: sími 699 300; við Austurvöll: sfmi 2 69 00
f Hafnarfirði: sími 65 23 66; við Ráðbústorg á Akureyri: sfmi 2 50 00
- og bjá umboðsmönnum um land allt
EXPð’92
*Verð miðast við staðgreiðslu ferðakostnaðar og er án fastra aukagjalcJa, samtals 3.450 kr. á mann.